16 mars 2026
/
Mál nr. 21/2026 Úrskurður 16. mars 2026
Mál nr. 21/2026 Aðlögun kenninafns: Andrason
Með bréfi Þjóðskrár Íslands, dags. 11. febrúar 2026, var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni XX og YY um að kenna son sinn við föður þannig að nafn hans verði aðlagað að íslensku og kenninafn hans verið Andrason.
Ekkert er í lögum nr. 45/1996, um mannanöfn, sem stendur í vegi fyrir því að fallist sé á ofangreinda beiðni.
Úrskurðarorð:
Fallist er á föðurkenninguna Andrason.