19 mars 2026

/

Mál nr. 765/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 765/2025

Fimmtudaginn 19. mars 2026

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 26. nóvember 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 24. nóvember 2025, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 24. nóvember 2025, var kæranda tilkynnt að réttur hennar til greiðslu atvinnuleysisbóta hefði verið felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hún hefði ekki tilkynnt stofnuninni um tekjur frá Ríkissjóði Íslands. Kæranda var jafnframt tilkynnt að hún hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 196.969 kr., að meðtöldu 15% álagi.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 26. nóvember 2025. Með bréfi, dags. 27. nóvember 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 16. janúar 2026 þar sem fram kom að ranglega hefði verið staðið að ákvörðun í máli kæranda. Hin kærða ákvörðun hefði því verið afturkölluð. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 20. janúar 2026, var óskað eftir afstöðu kæranda til greinargerðar Vinnumálastofnunar. Svar barst ekki. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 9. mars 2026, var óskað eftir gögnum frá Vinnumálastofnunar vegna hinnar kærðu ákvörðunar. Umbeðin gögn bárust úrskurðarnefndinni 10. mars 2026.

II.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 24. nóvember 2025, um að fella niður rétt kæranda til greiðslu atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndarinnar var vísað til þess að ranglega hefði verið staðið að ákvörðun í máli kæranda og því hefði hún verið afturkölluð.

Hlutverk úrskurðarnefndar velferðarmála er að úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana eftir því sem mælt er fyrir um í lögum sem kveða á um málskot til nefndarinnar, sbr. 1. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála. Samkvæmt 11. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar kveður úrskurðarnefndin upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laganna. Þar sem Vinnumálastofnun hefur afturkallað hina kærðu ákvörðun verður ekki séð að ágreiningur sé til staðar á milli kæranda og stofnunarinnar vegna þeirrar ákvörðunar. Þar sem enginn ágreiningur er til staðar í máli þessu er kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

 

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir