19 mars 2026
/
Mál nr. 776/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 776/2025
Fimmtudaginn 19. mars 2026
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 29. nóvember 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 29. ágúst 2025, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 29. ágúst 2025, var kæranda tilkynnt að réttur hennar til greiðslu atvinnuleysisbóta hefði verið felldur niður í tvo á mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hún hefði ekki tilkynnt stofnuninni um tekjur frá B. Kæranda var jafnframt tilkynnt að hún hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 732.718 kr., að meðtöldu 15% álagi.
Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 29. nóvember 2025. Með bréfi, dags. 2. desember 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 19. janúar 2026 þar sem fram kom að ranglega hefði verið staðið að ákvörðun í máli kæranda. Hin kærða ákvörðun um viðurlög og innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta hefði því verið afturkölluð. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 20. janúar 2026, var óskað eftir afstöðu kæranda til greinargerðar Vinnumálastofnunar. Svar barst frá kæranda 3. febrúar 2026 og var það kynnt Vinnumálastofnun með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 10. febrúar 2026. Þann 10. mars 2026 bárust gögn frá Vinnumálastofnun vegna hinnar kærðu ákvörðunar eftir beiðni úrskurðarnefndarinnar þar um.
II. Niðurstaða
Kærð var ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 29. ágúst 2025, um að fella niður rétt kæranda til greiðslu atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndarinnar var vísað til þess að ranglega hefði verið staðið að ákvörðun í máli kæranda og því hefði hún verið afturkölluð. Kærandi kæmi til með að fá sent erindi þess efnis. Þau gögn sem bárust frá Vinnumálastofnun 10. mars 2026 staðfesta að Vinnumálastofnun hefur afturkallað viðurlagaákvörðun og leiðrétt greiðslur til kæranda.
Hlutverk úrskurðarnefndar velferðarmála er að úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana eftir því sem mælt er fyrir um í lögum sem kveða á um málskot til nefndarinnar, sbr. 1. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála. Samkvæmt 11. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar kveður úrskurðarnefndin upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laganna. Þar sem Vinnumálastofnun hefur afturkallað hina kærðu ákvörðun og leiðrétt greiðslur til kæranda verður ekki séð að ágreiningur sé til staðar á milli kæranda og stofnunarinnar vegna þeirrar ákvörðunar. Þar sem enginn ágreiningur er til staðar í máli þessu er kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir