19 mars 2026
/
Mál nr. 828/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 828/2025
Fimmtudaginn 19. mars 2026
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 25. desember 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 17. desember 2025, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 3. október 2025 og var umsóknin samþykkt 12. nóvember 2025. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 17. desember 2025, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hann hefði látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um nauðsynlegar upplýsingar sem hefðu áhrif á rétt hans til atvinnuleysisbóta.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 25. desember 2025. Með bréfi, dags. 5. janúar 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 5. febrúar 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 10. febrúar 2026. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að kærandi hafi verið veikur og því ekki komist á fund. Hann hafi fengið boð vikuna áður og hafi skráð sig veikan þá. Kærandi hafi í kjölfarið fengið annað boð viku síðar en þá hafi hann enn verið mjög veikur af flensu. Kærandi hafi ekki náð að tilkynna veikindi fyrir fundinn en hann hafi sent útskýringu og vottorð frá lækni daginn eftir sem hafi útskýrt fjarveru hans. Kærandi harmi niðurstöðu Vinnumálastofnunar þar sem hann hafi verið mjög veikur en hefði vel getað mætt að loknum veikindum. Kærandi skilji ekki hvað hann eigi að gera, hann sé að mæta í viðtöl og að sækja um störf en hann upplifi að Vinnumálastofnun sé að láta hann hoppa í gegnum hringi.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 3. október 2025. Með erindi, dags. 12. nóvember 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 96%.
Með erindi, dags. 18. nóvember 2025, hafi kærandi verið boðaður á kynningarfund hjá Vinnumálastofnun þann 20. nóvember 2025, klukkan 14:00. Kæranda hafi verið bent á að um skyldumætingu væri að ræða og að ótilkynnt forföll og forföll án gildra ástæðna kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans yrðu stöðvaðar. Boðunin hafi verið send þann 18. nóvember 2025 á „Mínar síður“ kæranda, með tilkynningu á uppgefið netfang X og með smáskilaboðum í símanúmerið X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi skilaboðin borist í símtæki kæranda þann 18. nóvember 2025, klukkan 14:24.
Kærandi hafi ekki mætt á fundinn. Hvorki hafi borist tilkynning af hálfu kæranda um forföll né veikindi. Þá liggi fyrir að kærandi hafi heldur ekki mætt á boðaðan kynningarfund sem hann hafi áður verið boðaður á sem hafi átt að fara fram þann 13. nóvember 2025.
Þann 21. nóvember 2025 hafi borist læknisvottorð frá kæranda sem staðfesti að hann hafi verið óvinnufær með öllu vegna sjúkdóms á tímabilinu 13. til 21. nóvember 2025. Læknisvottorðið hafi verið dagsett 21. nóvember 2025.
Með erindi, dags. 9. desember 2025, hafi Vinnumálastofnun óskað eftir skýringum á fjarveru kæranda á boðaðan kynningarfund. Áréttað hafi verið að ef kærandi hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum án gildra ástæðna gæti hann þurft að sæta biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta. Jafnframt hafi athygli verið vakin á að ef kærandi hefði látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um breytingar á högum gæti það leitt til viðurlaga í formi biðtíma á greiðslu atvinnuleysisbóta. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að koma að skýringum sínum.
Í kjölfar erindis Vinnumálastofnunar hafi kærandi aftur sent inn sama læknisvottorð sem hann hafi þegar sent þann 21. nóvember 2025. Kærandi hafi jafnframt tjáð að sökum veikinda hafi hann ekki getað mætt á boðaðan kynningarfund. Með erindi, dags. 17. desember 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laganna þar sem hann hefði ekki tilkynnt tafarlaust um veikindi sín til Vinnumálastofnunar.
Ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 25. desember 2025. Í kæru greini kærandi frá því að hann hafi ekki getað mætt á boðaða kynningarfundi hjá Vinnumálastofnun sökum veikinda. Þá segi kærandi í kæru að hann hafi tilkynnt um veikindi til Vinnumálastofnunar þegar hann hafi verið boðaður á kynningarfund í fyrra skiptið. Kærandi hafi ekki náð að tilkynna um veikindi sín fyrr en eftir að seinni kynningarfundur hafi farið fram.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á boðaðan kynningarfund. Kærandi hafi veitt skýringar á fjarveru sinni sem lúti að því að hann hafi ekki mætt sökum veikinda. Meðal gagna í máli þessu sé læknisvottorð, dags. 21. nóvember 2025, þar sem fram komi að kærandi hafi verið veikur á tímabilinu 13. til 21. nóvember 2025. Í ljósi þess að kærandi hafi ekki tilkynnt Vinnumálastofnun um veikindi sín án ástæðulausrar tafar hafi honum með ákvörðun stofnunarinnar, dags. 17. desember 2025, verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ákvæði 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé svohljóðandi:
„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“
Í lögum um atvinnuleysistryggingar sé rík áhersla lögð á upplýsingaskyldu atvinnuleitanda gagnvart Vinnumálastofnun. Þannig sé meðal annars í 3. mgr. 9. gr. laganna kveðið á um að sá sem teljist tryggður á grundvelli laganna skuli upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunni að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum. Upplýsingaskylda atvinnuleitanda sé ítrekuð á öllum stigum umsóknarferlis um atvinnuleysisbætur. Við upphaf umsóknar sé atvinnuleitendum kynnt margvísleg atriði er varði réttindi og skyldur, þar á meðal um upplýsingaskyldu. Í lok umsóknar staðfesti allir atvinnuleitendur að þeir hafi kynnt sér þau atriði.
Samkvæmt 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar beri atvinnuleitendum að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunni að vera á vinnufærni eða aðstæðum þeirra að öðru leyti samkvæmt 1. mgr. 14. gr., þar á meðal um tilfallandi veikindi, án tafar. Þá segi í 5. mgr. 14. gr. laganna að hinn tryggði skuli tilkynna um upphaf og lok veikinda til Vinnumálastofnunar án ástæðulausrar tafar.
Kærandi hafi ekki tilkynnt stofnuninni um veikindi sín fyrr en eftir að Vinnumálastofnun hafi óskað eftir skýringum á fjarveru hans á boðaðan kynningarfund. Í skýringum beri kærandi við að hann hafi skráð sig veikan þegar hann hafi verið boðaður á fyrri kynningarfundinn í nóvember 2025. Engin slík tilkynning eða skráning af hálfu kæranda fyrirfinnist í kerfum Vinnumálastofnunar um veikindi hans í nóvember 2025. Þá hafi engin forföll borist frá kæranda. Það sé því afstaða Vinnumálastofnunar að kærandi hafi látið hjá líða að tilkynna um veikindi sín. Ekki verði séð af fyrirliggjandi gögnum að kærandi hafi verið ófær um að tilkynna Vinnumálastofnun um veikindi sín sökum alvarleika veikinda. Vinnumálastofnun telji að kærandi hafi ekki uppfyllt áskilnað 2. og 5. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar um að tilkynna um tilfallandi veikindi án ástæðulausrar tafar. Kæranda beri því að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Í 59. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því að láta hjá líða að veita upplýsingar eða láta hjá líða að tilkynna um breytingar á högum. Ákvæðið er svohljóðandi:
„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“
Samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 skal sá sem telst tryggður á grundvelli laganna upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir. Í 2. mgr. 14. gr. laganna kemur einnig fram að hinn tryggði skuli tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr., þar á meðal um tilfallandi veikindi, án ástæðulausrar tafar. Þá segir meðal annars í 5. mgr. 14. gr. laganna að hinn tryggði skuli tilkynna um upphaf og lok veikinda til Vinnumálastofnunar án ástæðulausrar tafar. Jafnframt skuli hann skila inn læknisvottorði innan viku frá lokum veikindanna óski Vinnumálastofnun eftir því.
Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 18. nóvember 2025 boðaður á kynningarfund hjá Vinnumálastofnun sem var haldinn 20. nóvember 2025. Kæranda var greint frá því að það væri skyldumæting og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að ótilkynnt forföll gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna.
Í máli þessu liggur fyrir að kærandi mætti ekki á boðaðan kynningarfund hjá Vinnumálastofnun þann 20. nóvember 2025. Þá liggur fyrir að kærandi tilkynnti ekki Vinnumálastofnun um veikindi fyrr en daginn eftir að fundurinn hafi átt að fara fram. Kærandi ber því við að hann hafi verið með flensu og skilaði inn læknisvottorði, dags. 21. nóvember 2025, því til staðfestingar. Læknisvottorðið kveður á um að kærandi hafi verið með öllu óvinnufær dagana 13. til 21. nóvember 2025.
Í ljósi upplýsingaskyldu 3. mgr. 9. gr., 2. og 5. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 verður fallist á það með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn skyldum sínum er hann tilkynnti stofnuninni ekki strax um upphaf veikinda sinna. Í 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er skýrt kveðið á um beitingu viðurlaga við slíku broti.
Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 17. desember 2025, um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006, staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 17. desember 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir