19 mars 2026
/
Mál nr. 830/2026-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 830/2025
Fimmtudaginn 19. mars 2026
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 29. desember 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 29. desember 2025, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 28. október 2025 og var umsóknin samþykkt 28. nóvember 2025. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 29. desember 2025, var kæranda tilkynnt að réttur hans til atvinnuleysisbóta hefði verið felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hann hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 29. desember 2025. Með bréfi, dags. 6. janúar 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 5. febrúar 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 10. febrúar 2026. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru til úrskurðarnefndar er ekki að finna sérstakan rökstuðning fyrir kæru en af kærunni má ráða að kærandi sé ósáttur við þá ákvörðun Vinnumálastofnunar að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 26. október 2025. Með erindi, dags. 28. nóvember 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.
Þann 2. desember 2025 hafi kærandi verið boðaður á kynningarfund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar í Reykjavík þann 4. desember 2025, klukkan 13:00. Kærandi hafi verið upplýstur að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar á netfangið [email protected]. Sömuleiðis hafi kæranda verið tjáð að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans yrðu stöðvaðar. Boðun þessi hafi verið birt á „Mínum síðum“ atvinnuleitanda. Ásamt því hafi athygli kæranda verið vakin á nýjum samskiptum með tölvupósti á netfang kæranda og með smáskilaboðum í skráð símanúmer hans, X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 2. desember 2025, klukkan 15:03. Kærandi hafi mætt til umrædds kynningarfundar án gildra skilríkja. Kæranda hafi verið leiðbeint um að fara og ná í skilríki og koma aftur klukkan 14:00 á kynningarfund. Kærandi hafi tjáð starfsmanni Vinnumálastofnunar að hann ferðist með strætó. Kæranda væri því ómögulegt að mæta. Kæranda hafi þá verið tjáð að hann myndi fá annað boð um að mæta á kynningarfund innan tíðar.
Þann 9. desember 2025 hafi kærandi aftur verið boðaður á kynningarfund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar í Reykjavík þann 11. desember 2025, klukkan 15:30. Tekið hafi verið fram að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun á greiðslum atvinnuleysistrygginga. Boðun hafi verið birt á „Mínum síðum“ atvinnuleitanda. Ásamt því hafi athygli kæranda verið vakin á nýjum samskiptum með tölvupósti á skráð netfang kæranda og með smáskilaboðum í skráð símanúmer hans, X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 9. desember 2025, klukkan 15:30. Kærandi hafi hvorki mætt á fund stofnunarinnar né tilkynnt um forföll.
Kæranda hafi verið sent erindi 15. desember 2025 þar sem honum hafi verið gefinn kostur á að skila skýringum á fjarveru sinni á boðaðan kynningarfund þann 11. desember 2025. Kærandi hafi þá þegar sent Vinnumálastofnun skýringar á fjarveru sinni í tölvupósti, dags. 12. desember 2025, klukkan 23:07. Í tölvupóstinum komi fram að kærandi hafi misst af kynningarfundi sökum þess að hann hafi gleymt að taka með skilríki. Hvað varði seinni kynningarfund þá hafi boð Vinnumálastofnunar farið fram hjá honum sökum þess að sími hans hafi bilað og hann hefði því hvorki verið með aðgang að „Mínum síðum“ á vmst.is né á island.is. Kærandi hafi beðist afsökunar á að hafa ekki haft síma síðastliðna þrjá daga. Kærandi hafi farið fram á að fá nýja boðun á kynningarfund.
Kæranda hafi verið send ákvörðun stofnunarinnar þann 29. desember 2025 um að fella niður greiðslur honum til handa í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. og 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Ástæða þess að kæranda hafi verið gert að sæta þriggja mánaða viðurlögum hafi verið sú að kærandi hefði áður þegið greiðslur atvinnuleysisbóta frá 25. nóvember 2024 til 2. apríl 2025. Kærandi hafi sætt viðurlögum með ákvörðun, dags. 21. nóvember 2025, vegna ótilkynntra tekna í mars 2025. Hin kærða ákvörðun hafi því ítrekunaráhrif í máli kæranda.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Á meðal skilyrða greiðslu atvinnuleysisbóta sé að viðkomandi sé í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Samkvæmt [h.] lið 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði nr. 55/2006 komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:
„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“
Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum. Ráðgjafar stofnunarinnar skuli boða atvinnuleitendur reglulega í viðtöl eftir þörfum hvers og eins atvinnuleitanda.
Á grundvelli 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar beri atvinnuleitendum að hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Í tilfelli kæranda hafi hann verið boðaður til kynningarfunda hjá stofnuninni en samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laganna sé Vinnumálastofnun heimilt að boða atvinnuleitendur til stofnunarinnar með sannanlegum hætti meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum þeirra sem kunni að hafa áhrif á rétt þeirra til greiðslu atvinnuleysisbóta. Atvinnuleitendur skuli þá vera reiðubúnir að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara. Ákvæði 3. mgr. 13. gr. hafi verið bætt við lög um atvinnuleysistryggingar með 4. gr. laga nr. 134/2009 en í athugasemdum með 4. gr. segi að gert sé ráð fyrir að stofnunin geti boðað atvinnuleitanda með allt að sólarhringsfyrirvara á skrifstofu sína sem næst sé lögheimili viðkomandi.
Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á kynningarfund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 11. desember 2025. Kærandi hafi fengið senda tilkynningu í tölvupósti, farsíma og á „Mínum síðum“ um boðun á umræddan kynningarfund. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa. Ákvæðið sé svohljóðandi:
„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“
Í 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.
Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur og sömuleiðis skyldur atvinnuleitanda til að verða við slíkri boðun séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysistrygginga sé umsækjandi upplýstur um að honum sé skylt að mæta í þau viðtöl, þá fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði hann til.
Skýringar kæranda á ástæðum þess að hann hafi ekki mætt á boðaðan kynningarfund hafi verið þær að sími hans hafi verið bilaður á þeim tíma sem boðun Vinnumálastofnunar hafi verið send. Þá bendi kærandi á að hann hafi mætt á fyrri kynningarfund sem hann hafi verið boðaður á en ekki verið með skilríki.
Að mati Vinnumálastofnunar geti framangreindar skýringar kæranda ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Í því samhengi bendi Vinnumálastofnun á að boð á kynningarfund hafi verið sent bæði með tölvupósti á skráð netfang og með smáskilaboðum í skráð símanúmer kæranda. Kærandi hafi í upphafi umsóknar verið upplýstur með fullnægjandi hætti um hvernig honum yrði send mikilvæg skilaboð og tilkynningar. Boðunin hafi borist kæranda með sannanlegum hætti, sbr. lokamálslið 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Auk þess hafi sérstaklega verið tekið fram að tilkynningar um forföll skyldu berast án tafar. Þá hafi sérstaklega verið tekið fram í boðun að nauðsynlegt væri að sýna gild skilríki á boðuðum kynningarfundi.
Í ljósi framangreinds og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga. Með því að hafa ekki mætt til umrædds kynningarfundar hafi kærandi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði og beri honum því að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Með ákvörðun Vinnumálastofnunar þann 21. nóvember 2025 hafi kæranda verið gert að sæta biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta í tvo mánuði sökum ótilkynntra tekna samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta í mars 2025. Því hafi verið um að ræða niðurfellingu á bótarétti í annað sinn á bótatímabili kæranda. Samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar skuli sá sem sætir viðurlögum eða biðtíma í annað skiptið á sama bótatímabili ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbótum fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi sem ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggi fyrir. Kæranda hafi því borið að sæta biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði.
Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 58. gr., sbr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.
Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:
„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“
Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.
Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.
Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 2. desember 2025 boðaður á kynningarfund hjá Vinnumálastofnun sem fara átti fram þann 4. desember 2025. Kærandi mætti á þann fund en var ekki með gild skilríki til að framvísa. Kærandi var aftur þann 9. desember 2025 boðaður á kynningarfund hjá Vinnumálastofnun sem fara átti fram þann 11. desember 2025. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar á tilgreint netfang Vinnumálastofnunar. Kærandi var jafnframt upplýstur um að ekki væri hægt að fá nýjan fund en að skýringar vegna fjarveru yrðu sendar til Greiðslustofu til yfirferðar. Þá var kærandi upplýstur um að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Að lokum var kærandi hvattur til að hafa samband ef eitthvað væri óljóst eða hann óskaði frekari upplýsinga. Fyrir liggur að kærandi hvorki mætti á boðaðan kynningarfund né boðaði forföll. Í skýringum kæranda til Vinnumálastofnunar kom fram að kærandi hafi ekki séð boðunina á fundinn þar sem að sími hans hafi verið í ólagi á þessum tíma.
Framangreind boðun var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tilkynningu á „Mínar síður“, í skráð tölvupóstfang og farsíma. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hann hafi ekki mætt á boðaðan kynningarfund hjá Vinnumálastofnun.
Í 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um ítrekunaráhrif fyrri viðurlagaákvarðana. Ákvæðið er svohljóðandi:
„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. eða 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“
Samkvæmt gögnum málsins var bótaréttur kæranda felldur niður í tvo mánuði þann 21. nóvember 2025 á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006. Þar sem um sama bótatímabil er að ræða, sbr. 29. gr. laganna, kom til ítrekunaráhrifa samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laganna. Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006, staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 29. desember 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir