20 mars 2026
/
Úrskurður nr. 147/2026
Hinn 20. mars 2026 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 147/2026
í stjórnsýslumálum nr. KNU24070049 og KNU24070050
Kæra [...] og barna þeirra
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 4. júlí 2024 kærðu [...], fd. [...] (hér eftir M) og [...], fd. [...] (hér eftir K), ríkisborgarar Kólumbíu, ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 20. júní 2024, um að synja þeim og börnum þeirra, [...], fd. [...] (hér eftir A) og [...], fd. [...] (hér eftir B), ríkisborgurum Kólumbíu, um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. [...]
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærendur eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
2 Málsatvik
Samkvæmt lögregluskýrslu komu kærendur til landsins frá Kólumbíu og lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd fyrir sig og börn sín 7. apríl 2023. Kváðust kærendur hafa yfirgefið Kólumbíu vegna þess að faðir K hafi verið myrtur af samtökum sem heiti ELN og þessi samtök hafi hótað honum lífláti ef hann greiddi ekki háa fjárhæð.
Kærendur komu til viðtals hjá Útlendingastofnun 2. maí 2023 ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindu frá ástæðum flótta síns. M kvaðst vera fæddur og uppalinn í borginni Neiva í sveitarfélaginu Hulia, sem sé í suðvesturhluta Kólumbíu, þar sem hann og fjölskylda hans hafi jafnframt búið fram að flótta hans. M kvað fjárhag sinn hafa verið góðan, hann hafi unnið í banka, verið fyrirvinna og átt pening til íbúðakaupa. M kvað heilsu sína og barna sinna vera góða. K kvaðst einnig vera fædd og uppalin í Neiva. Heilsa hennar væri góð sem og fjárhagur hennar en hún væri nýútskrifuð úr háskóla með kennsluréttindi.
Aðspurður um ástæður flótta greindi M frá því að faðir hans hefði verið myrtur þegar M var 12 eða 13 ára. Faðir hans hefði verið viðskiptamaður, átt íbúð og þau hafi ferðast mikið innan Kólumbíu. Hann hafi verið beittur fjárkúgunum af meðlimum ELN á árunum 2007 til 2009. Fjölskyldan hafi flutt frá Putumaya héraði til Popayan héraðs, til að flýja fjárkúganirnar, en faðir kæranda hafi að endingu verið myrtur í Cauca héraði. Móðir M kært atvikið og kvað hann að í kærunni sem móðir hans hafi lagt fram komi fram að grunur hafi leikið á um að gerendurnir væru meðlimir ELN. Um atvikið hafi verið fjallað í blöðum og fréttum og síðar hafi verið staðfest af stjórnvöldum að um meðlimi ELN hafi verið að ræða. Kærandi kvað lögregluna ekki hafa aðhafst neitt eftir morðið. M kvað aðilana sem hafi myrt föður hans einnig hafa hótað að myrða M, móður hans og systur. Eftir þetta hafi fjölskyldan flutt til Neiva og verið þar síðan. Móðir hans og systir hafi farið til Chile, nokkrum árum eftir morðið á föður M, vegna þess að þeim hafi borist hótanir, en M hafi orðið eftir í Neiva með ömmu sinni. Hinn 27. janúar 2023, hafi M sjálfum verið hótað. Hann hafi verið á leið heim úr verslun á mótorhjóli þegar maður hafi komið aftan að honum sem sagðist vita hver hann væri og að faðir hans skuldaði þeim. M kvaðst ekki hafa séð andlit aðilans en hafi farið til lögreglunnar að kæra. Vegna tilvísunarinnar til föður síns taldi M ljóst að þar væri á ferðinni meðlimur ELN. Lögreglan hafi sagst ekki geta aðhafst mikið vegna skorts á sönnunargögnum. M kvaðst hafa fundið til mikillar hræðslu eftir þetta. Um miðjan febrúar hafi hann fengið textaskilaboð í símann sinn þar sem hann hafi verið minntur á skuld föður síns. Eftir það hafi M flutt til ömmu sinnar til að halda fjölskyldu sinni utan við þetta. M kvaðst óttast um eiginkonu sína og um að börnum hans yrði rænt. Algengt væri að svona aðilar rændu börnum. M kvaðst hafa reynt að hlífa eiginkonu sinni við upplýsingum um málið en hann hafi beðið um að hún færi ekki út og að A færi ekki í skólann. Um mánaðamót febrúar og mars hafi hann sagt konu sinni allt af létta. Þau hafi haldið sig innandyra, sem væri ólíkt þeim, og ákveðið að þau þyrftu að yfirgefa landið. Í mars hafi kærandi fengið önnur textaskilaboð þar sem hann hafi verið krafinn af sömu aðilum og áður um 70 milljónir pesóa og honum veittur einn mánuður til að greiða. M hafi farið til lögreglunnar að kæra en þar hafi honum verið vísað á annan mann sem hafi ekki verið til staðar. M kvaðst hafa upplifað að fylgst væri með honum, A hafi verið mikið fjarverandi úr skóla og því hafi þau ákveðið að yfirgefa landið. M kvaðst ekki hafa fengið vernd frá lögreglunni í Kólumbíu. ELN hafi ekki mikil yfirráð í Neiva en hann hafi séð í fréttum að viðvera þar hafi aukist nýlega. M kvaðst vera með tvær kærur, skjáskot af textaskilaboðum sem hann hafi fengið og blaðagreinar um morðið á föður hans og viðveru ELN í Neiva. M kvaðst telja að algengt væri að þjófar beindu spjótum sínum að fólki sem ynni í bönkum. Aðspurður um ástæðu þess að ELN beindi spjótum að honum núna gat M sér til um að það væri vegna starfs M í banka þar sem hann ynni með mörgum viðskiptavinum og vegna aukinna umsvifa ELN í Neiva en meðlimir ELN hefðu verið að leita að honum og þekktu nafn hans. M greindi frá því að móðir hans sem væri í Chile hefði fyrir mánuði síðan fengið símtal frá meðlimum Tren de Aragua í Kólumbíu með hótunum sem beindust að allri fjölskyldunni. M kvaðst ekki geta flutt innanlands og verið öruggur þar sem hann hafi reynt slíkt áður án árangurs. M greindi einnig frá því að hafa verið rændur tvisvar þegar hann hafi verið ungur og stunginn með hnífi í bæði skiptin. K greindi frá sömu hótunum og M sem borist hefðu fjölskyldunni. Þau hafi farið að kæra en lögreglan hafi ekkert aðhafst. Hún hafi séð í fréttum að fleiri væri í sömu stöðu og að verið væri að sprengja heimili fólks. Hún greindi frá því að stjórnvöld hafi gert friðarsamning við ELN meðan Santos hafi verið við völd. Eftir að Petro hafi tekið við völdum hafi stjórnvöld ekki staðið við sinn hluta samkomulagsins með þeim afleiðingum að nú væri allt eins og áður hafi verið fyrir friðarsamninginn. Fjárkúganir og þvingaðir búferlaflutningar hefðu færst í aukana og lögreglumenn væru myrtir. Aðspurð gat K sér til um að ástæða þess að ELN beindu spjótum að þeim nú væri sú að ELN væri að auka umsvif sín á ný. K kvað móður sína og bróður einnig vera í hættu í heimaríki. Bróðir hennar væri lögreglumaður og hann hafi lent í hættulegum aðstæðum í starfi sínu. Árás hafi verið gerð á hús þar sem hann og vinnufélagar hans hafi verið stuttu áður auk þess sem sprengiefni hafi fundist á lögreglustöðinni.
Í ákvörðunum Útlendingastofnunar í málum barna kærenda kom fram að ekki væri tilefni til að taka viðtal við þau með vísan til ungs aldurs þeirra og framburðar foreldra þeirra.
Með ákvörðunum Útlendingastofnunar var kærendum og börnum þeirra synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kærendum var brottvísað frá landinu og þeim ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Fram kom að yfirgæfu kærendur landið sjálfviljug innan frests sem þeim hefði verið veittur yrði endurkomubann þeirra fellt niður. Börnum kærenda var brottvísað frá landinu. Kærendur kærðu ákvarðanirnar til kærunefndar 4. júlí 2024 og kærunefnd barst greinargerð kærenda ásamt fylgiskjölum 18. júlí 2024. Viðbótargreinargerð barst kærunefnd 4. febrúar 2025.
3 Greinargerð til kærunefndar
Nefndin hefur farið yfir greinargerð kærenda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.
Í greinargerð er aðstæðum kærenda lýst. Þar kemur m.a. fram að faðir M hafi verið myrtur árið 2009 af skæruliðahópnum ELN eftir hótanir og fjárkúgun. ELN hafi krafist þess að faðir M greiddi þeim svokallaðan verndarskatt en að öðrum kosti myndi hreyfingin myrða hann og fjölskyldu hans. Faðir hans hafi ekki ráðið við að greiða fjárhæðina. Þau hafi flutt sig um set á milli nokkurra borga en ELN hafi fundið hann í hverri borg á fætur annarri og faðir kæranda hafi að endingu verið myrtur í borginni Cauca. Fjölskyldan hafi tvístrast upp í kjölfar morðsins þar sem þau hafi haldið áfram að fá hótanir. Kærendur hafi flúið heimaríki eftir að ELN hafi haft uppi á kæranda og hótað honum í þrígang, í persónu og í gegnum textaskilaboð. M hafi leitað til lögreglu í tvígang en hún hafi ekkert aðhafast. Kærendur hafi verið mjög óttaslegin og haldið sig innandyra og A lítið mætt í skólann.
Í greinargerðum kærenda er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Kólumbía mótmælt. Einnig er vísað til mats Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagna kærenda og því mati mótmælt. Byggt er á því að skæruliðahreyfingin ELN hafi staðið á bak við morð föður M. Vísað er til framlagðrar skýrslu lögreglustjóra frá árinu 2009 þar sem haft sé eftir móður M að eiginmaður hennar hafi verið myrtur af samtökum sem starfi utan laga. Þá er vísað til framlagðrar skýrslu þar sem fram komi að í þeim landshluta þar sem faðir M hafi verið myrtur, hafi stafað mikil hætta af skæruliðahópum, svo sem ELN og FARC. Auk þess er vísað til blaðagreinar þar sem fram kemur að hópur sem starfi utan laga hafi staðið að morði á föður M. Með greinargerð er lagt fram bréf sem sagt er stafa frá kólumbískri bótanefnd fyrir þolendur afbrota. Fram kemur að um sé að ræða afsökunarbréf fyrir hönd kólumbíska ríkisins vegna árásarinnar sem faðir M hafi orðið fyrir og þeirri þjáninga sem M hafi orðið fyrir í kjölfarið og þar séu honum boðnar skaðabætur. Einnig er á því byggt að meðlimir ELN hafi staðið að baki hótunum sem bárust M en það hafi verið ljóst af tilvísunum í hótununum til skuldar föður hans. Lögð er áhersla á að fjárhagsleg staða M hafi verið mjög góð áður en honum bárust hótanirnar. Vísað er til landaskýrslna þar sem fram komi að ELN samtökin séu búin að koma sér vel fyrir í og í kringum Neiva, heimaborg M og mikil aukning hafi orðið á fjárkúgunum án fullnægjandi viðbragða yfirvalda.
Kærendur krefjast þess aðallega að þeim og börnum þeirra verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamenn hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þau bera fyrir sig ofsóknir vegna aðildar að þjóðfélagshópi sem sé ofsóttur af ELN. Faðir M hafi verið myrtur af ELN árið 2009 vegna meintrar skuldar og ELN hafi hafið ofsóknir og ólögmæta innheimtu gagnvart M og hótað honum lífláti.
Verði ekki fallist á aðalkröfu krefjast kærendur þess til vara að þeim og börnum þeirra verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þau eigi á hættu að verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð og/eða alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum við ELN. Einnig vísa þau til ástandsins í Kólumbíu og morðöldunnar sem þar hafi geisað undanfarið ár vegna átaka og umsvifa þarlendra glæpahópa.
Verði ekki fallist á framangreindar kröfur krefjast kærendur þess að þeim og börnum þeirra verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Á því er byggt að ástandið sem þau myndu þurfa að búa við í Kólumbíu nái því alvarleikastigi að sanngjarnt og eðlilegt sé að þeim verði veitt dvalarleyfi af mannúðarástæðum.
Í viðbótargreinargerð kærenda er gerð krafa um að þeim verði veitt dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Mál þeirra hafi verið í málsmeðferð íslenskra stjórnvalda í yfir 16 mánuði og uppfylli kærendur og börn þeirra skilyrði ákvæðisins til þess að verða veitt dvalarleyfi.
Með endursendingu kærenda og barna þeirra til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki brjóti slík ákvörðun í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.
4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga
Í greinargerð kærenda eru ekki gerðar athugasemdir við málsmeðferð og ákvarðanatöku Útlendingastofnunar. Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hinar kærðu ákvarðanir sem eru í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til að fella ákvarðanir Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.
5 Alþjóðleg vernd
5.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.
Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).
5.2 Réttarstaða barna
Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.
Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með hagsmuni þess að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.
Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.
Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að börn þau sem hér um ræðir eru í fylgd foreldra sinna og haldast úrskurðir fjölskyldunnar því í hendur.
5.3 Auðkenni
Umsækjanda um alþjóðlega vernd er skylt að veita atbeina sinn til að upplýsa hver hann er, sbr. 1. mgr. 14. gr. laga um útlendinga. Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærendur framvísað kólumbískum vegabréfum fyrir sig og börn sín. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærendur og börn þeirra hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Ekki er ástæða til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærendur og börn þeirra séu kólumbískirClick or tap here to enter text. ríkisborgarar.
5.4 Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Kólumbíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices – Colombia (US Department of State, 20. mars 2023);
- 2023 Country Reports on Human Rights Practices - Colombia (US Department of State, 22. apríl 2024);
- 2024 Country Reports on Human Rights Practices: Colombia (US Department of State, 12. ágúst 2025);
- ACLED Explorer, skráð atvik í Kólumbíu frá 20. ágúst 2024 – 21. ágúst 2025 (https://acleddata.com/platform/explorer);
- Almost half of the human rights defenders killed last year were in Colombia (Guardian, 4. apríl 2023);
- Amnesty International Report 2021/22 – Colombia (Amnesty International, 29. mars 2022);
- Amnesty International Report 2022/23 – Colombia (Amnesty International, 27. mars 2023);
- Annual Report 2024 – Chapter IV.A: Human Rights Development in the Region (IACHR, 2025);
- Annual Report 2020 – Chapter IV.A: Human Rights Development in the Region (IACHR, 2021);
- Availability and accessibility of mental health services, particularly in Bogotá, Cartagena and Barranquilla; treatment of individuals with mental illness by society and by the authorities; state protection, including recourse and complaint mechanism (Immigration and Refugee Board of Canada, 11. ágúst 2021);
- BTI 2022 Country Report: Colombia (Bertelsmann Stiftung, 23. febrúar 2022);
- BTI 2024 Country Report: Colombia (Bertelsmann Stiftung, mars 2024);
- Colombia: Fact-Finding Mission Report. Conflict Dynamics in the Post- FARC- EP Period and State Protection (Immigration and Refugee Board of Canada, mars 2020);
- Colombia(skýrsla aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna (S/2021/312), 30. mars 2021);
- Colombia´s Armed Groups Battle for the Spoils of Peace (International Crisis Group, 19. október 2017);
- Colombia at a Stabilization Crossroads (Center for Strategic and International Studies (CSIS), 5. mars 2021);
- Colombia Complex crisis (ACAPS, 9. ágúst 2021);
- Colombia: Country Focus (EUAA, desember 2022);
- Colombia: Country Focus(EUAA, desember 2025);
- Colombia: Fact – Finding Mission Report; Conflict Dynamics in the Post- FARC-EP Period and
- State Protection (mars, 2020);
- Colombia´s illegal armed groups (maps) (Colombia Reports, 3. október 2021);
- Colombian activist killings hit record high in 2022: Ombudsman (Al Jazeera, 23. janúar 2023);
- Columbia and ELN rebels extend ceasefire by six months, agree to set up fund (Reuters, 6. febrúar 2024);
- The Colombia Collaborative Project: Stress, health and wellbeing of LGBT people in Colombia (UCLA School of Law, apríl 2020);
- Colombia – Overview of the Education System (OECD, Education at a glance 2025);
- Colombia: Urgent Updates October 2024 (WOLA, Advocacy for Human Rights in the Americas, 17. október 2024);
- Colombia. Social Institutions and Gender Index 2023 (Organization for Economic Co-operation and Development, 26. ágúst 2024);
- Colombia. Social Institutions and Gender Index 2019 (Organization for Economic Co-operation and Development, 7. desember 2018);
- Colombia struggles to keep social leaders safe (y News, 13. janúar 2021);
- Colombia Travel Advisory(US Department of State, Bureau of Consular Affairs, síðast uppfært 17. janúar 2025);
- Colombia Country Security Report (US Department of State, Bureau of Consular Affairs, síðast uppfært 24. febrúar 2025);
- Colombia/Venezuela: Border Area Abuses by Armed Groups: Killings, Disappearances, Child Recruitment, Forced Displacement (Human Rights Watch, 28. mars 2022);
- Conflict persists five years after peace deal (Norwegian Refugee Council, 23. nóvember 2021);
- Divisions Over Peace Talks Spark Surge in Armed Activity in Huila, Colombia (Insight Crime, 9. september 2024);
- Freedom in the World 2023 - Colombia (Freedom House, 2023);
- Freedom in the World 2024 – Colombia (Freedom House, 2024);
- Freedom in the World 2025 – Colombia (Freedom House, 2025);
- GameChangers 2023; Unintended Consequences for Colombia’s ‘Total Peace’ (Insight Crime, 29. desember 2023);
- Gender-based violence (GBV), particularly domestic and sexual violence; impact of COVID-19; state protection and support services available, including psychological services, particularly in Bogotá, Santiago de Cali and Medellín (2020- July 2022) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. ágúst 2022);
- Gender, Sexuality and Gender Based Violence (Human Rights Watch, 2021);
- Gustavo Petro and Francia Márquez: A new era For Colombia(BBC, 20. júní 2022);
- Homicidios en el Huila aumentan más del 100 % y ya suman 39 casos en lo corrido del 2026 (Caracol Radio, 23. janúar 2026)
- How peace efforts are making a difference (or not) in Colombia (The New Humanitarian, 15. febrúar 2023);
- International Protection Considerations with Regard to People Fleeing Colombia (UNHCR, ágúst 2023);
- ISSA Country profiles – Colombia (The International Social Security Association, 1. janúar 2023);
- Latin America and the Caribbean – September 2024 (ACLED, 4. október 2024);
- Latin America and the Caribbean Overview: August 2024 (ACLED, 6. september 2024);
- Left Undefended – Killings of Rights Defenders in Colombia´s Remote Communities (Human Rights Watch, 10. febrúar 2021);
- Los Focos del Conflicto en Colombia. Informe Sobre Presencia de Grupos Armados (Indepaz, 4. október 2021);
- National Liberation Army (ELN) (InSight Crime, 27. febrúar 2026);
- Protecting Colombia´s Most Vulnerable on the Road to Total Peace (International Crisis Group, 24. febrúar 2023);
- Public Statement by Chair of Working Group on Children and Armed Conflict (Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna, 9. september 2024);
- Report of the United Nations High Commissioner for Human Rights on the situation of human rights in Colombia (Office of the United Nations High Commissions for Human Rights, 12. júlí 2024);
- Report of the United Nations High Commissioner for Human Rights on the situation of human rights in Colombia (Office of the United Nations High Commissions for Human Rights, 14. febrúar 2024);
- Resolution 2573(2023) (Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna, 11. janúar 2023);
- Social Security Throughout the World, The Americas, 2019 – Colombia(Social Security Administration. Office of Retirement and Disability Policy. Office of Research, Evaluation and Statistics, mars 2020);
- The Situation of Women Social Leaders and Human Rights Defenders after the Peace Deal in Colombia (FOKUS, 9. febrúar 2021);
- The State of the World´s Human Rights; Columbia 2023(Amnesty International, 24. apríl 2024);
- The State of the World’s Human Rights; Colombia 2024(Amnesty International, 29. apríl 2025);
- The World Factbook: Colombia (CIA, síðast uppfært 6. ágúst 2025);
- UNHCR Eligibility Guidelines for Assessing the International Protection Needs of Asylum-Seekers from Colombia (UNHCR, september 2015);
- United Nations Verification Mission in Colombia: Report of the Secretary – General (United Nations, 24. mars 2023);
- Why Are Rights Activists Being Targeted in Colombia?(The Dialogue, 8. febrúar 2023);
- World Report 2023 – Colombia Events of 2022 (Human Rights Watch, 12. janúar 2023);
- World Report 2024 – Colombia Events of 2023 (Human Rights Watch, 11. janúar 2024);
- World Report 2025 – Colombia Events of 2024 (Human Rights Watch, 16. janúar 2025);
- World Report 2026 – Colombia Events of 2025 (Human Rights Watch, 4. febrúar 2026);
- Upplýsingar af vefsíðu Alþjóðabankans(https://datos.bancomundial.org/pais/colombia, skoðað 9. febrúar 2026);
- Upplýsingar af vefsíðu kólumbíska heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytisins (https://www.minsalud.gov.co, síðast sótt 17. mars 2026);
- Upplýsingar af vefsíðu Colombia Reports (colombiareports.com, síðast sótt 17. mars 2026);
- Upplýsingar af vefsíðu Global Organized Crime Index (https://ocindex.net/country/colombia, síðast sótt 26. september 2024);
- Upplýsingar af vefsíðu International Citizens Insurance (Overview of Colombia Healthcare System International Insurance, síðast sótt 26. september 2024) og
- Upplýsingar af vefsíðu Refugees International (https://www.refugeesinternational.org).
Kólumbía er stjórnarskrárbundið lýðveldi með tæplega 50 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 92% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 5. nóvember 1945 gerðist Kólumbía aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1969. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1982 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1987.
Í framangreindum heimildum, m.a. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2022 kemur fram að 20. júní 2022 hafi Gustavo Petro verið kjörinn forseti Kólumbíu. Petro sé fyrsti vinstrisinnaði forseti landsins og heimildir bendi til þess að hann hafi á yngri árum tilheyrt M-19 skæruliðahreyfingunni áður en hann hafi snúið sér að stjórnmálum. Í kosningabaráttunni hafi hann heitið því að berjast gegn spillingu og skipulagðri glæpastarfsemi í landinu auk þess að beita sér fyrir auknu jafnrétti. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 kemur fram að eftirlitsaðilar hafi talið kosningarnar frjálsar og þær friðsælustu í áratugi. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að forsetinn hafi valið Francia Márquez sem varaforseta. Hún sé umhverfisverndarsinni af Afró-kólumbískum uppruna og önnur konan til að gegna stöðu varaforseta.
Í skýrslum bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 og 2024 kemur fram að helstu vandamál á sviði mannréttinda í landinu séu m.a. handahófskennd morð, pyndingar og ill meðferð af hálfu öryggissveita ríkisins og vopnahópa, víðtæk spilling innan ríkisstofnana, nauðganir og misnotkun kvenna og barna af hálfu ólöglegra vopnaðra hópa í landinu auk ofbeldis gegn minnihlutahópum s.s á grundvelli uppruna, kynhneigðar og kynvitundar. Spilling sé umtalsverð á meðal stjórnmálamanna og innan lögreglu landsins. Í skýrslunni kemur fram að stjórnvöld hafi almennt gert ráðstafanir til að lögsækja og refsa embættismönnum fyrir mannréttindabrot þó sum mál taki langan tíma. Stjórnvöld hafi almennt beitt lögum sem leggi refsingu við opinberri spillingu. Þá hafi ríkisstjórnin innleitt umbætur hjá lögreglunni sem miði að því að auka ábyrgð og bæta mannréttindavernd og samskipti almennings og lögreglu. Þá hafi refsileysi innan öryggissveita landsins verið vandamál en stjórnvöld hafi á síðustu árum aukið þjálfun liðsmanna öryggissveita landsins hvað varðar mannréttindi ásamt því að rannsaka og sakfella í auknum mæli brot liðsmanna þeirra. Þá hafi dregið úr samstarfi á milli öryggissveita og ólöglegra vopnahópa. Ólöglegir vopnahópar beiti ofbeldi, svo sem fjárkúgunum, morðum, mannránum, pyndingum og sprengjuárásum og notist við barnahermenn. Lögregluyfirvöld rannsaki almennt þessi brot og sæki ábyrga til saka. Mannréttindasamtök hafi þó gagnrýnt að á sumum svæðum virðist glæpahópar fá að starfa því sem næst óáreittir. Lögregla sé fagmannlegri en í nágrannaríkjum Kólumbíu en skortur sé á fjármagni og mannafla. Enn fremur hafi lögreglan verið sökuð um að vinna með glæpamönnum og að vera ekki til staðar á strjálbýlli svæðum þar sem hættulegir hópar séu virkir.
Af framangreindum heimildum, m.a. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024, má ráða að glæpa- og morðtíðni sé há í Kólumbíu og að glæpahópar séu starfandi víðs vegar um landið og séu ráðandi á ákveðnum svæðum, einkum í héruðunum Cauca, Nariño, Catatumbo og Norte de Santander. Þeir stærstu og þekktustu hafi verið skæruliðahóparnir FARC-EP (e. Revolutionary Armed Forces of Colombia -People´s Army) og ELN (e. National Liberation Army). Þá séu einnig starfandi svokallaðir NAG (e. New Armed Groups) sem hafi sprottið út frá hersveitum sem áður hafi starfað í landinu. Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 að í kjölfar undirritunar friðarsamkomulags stjórnvalda við skæruliðahópinn FARC, hafi formlegri afvopnun hópsins lokið árið 2017 og það sama ár hafi fyrrum meðlimir myndað stjórnmálaflokk og tekið þátt í þingkosningum í mars árið 2018. Í skýrslunni kemur fram að her landsins hafi áætlað að meðlimir í afsprengihópum FARC væru nú fleiri en 5.200 talsins. Af fyrirliggjandi gögnum, þ. á m. skýrslu Indepaz frá 2021 og kortum Columbia Reports frá 2020, verður ráðið að afsprengihópar FARC hafi að mestu haldið til í suður-, suðvestur- og suðausturhluta Kólumbíu og við landamæri Venesúela. Hóparnir hafi verið virkir utan tilgreindra svæða, þá ýmist með leynilegum aðgerðum eða í gegnum bandalög með öðrum glæpahópum, en séu ekki með mikla viðveru eða sterk ítök í höfuðborg landsins, Bógóta eða í Cundinamarca héraði. Í skýrslu Freedom House frá 2025 kemur fram að sum landsvæði, einkum svæði sem séu rík af náttúruauðlindum og svæði þar sem flutningur fíkniefna eigi sér stað, séu óörugg. Meðlimir afsprengihópa skæruliðahópa, m.a. ELN og FARC, misnoti óbreytta borgara, sérstaklega á svæðum þar sem kókaín sé ræktað. Almenn sundrung og aukning átaka hafi leitt til þess að íbúar verst útsettu svæðanna hafi neyðst til að flýja heimili sín. Í febrúar 2024 greindi skrifstofa Sameinuðu þjóðanna um samhæfingu mannúðarmála (OCHA) frá því að um 63 þúsund manns hafi þurft að yfirgefa heimili sín og um 88 þúsund manns hafi verið innilokuð sökum hótana og vopnaðra átaka sem sé svipaður fjöldi og árið 2022.
Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2023 að um 6,7 milljónir íbúa í Kólumbíu séu vegalausir innanlands (e. internally displaced people), flestir vegna vopnaðra átaka í landinu. Samkvæmt lögum hafi 52 opinberar stofnanir í Kólumbíu það hlutverk að veita einstaklingum sem hafi þurft að flýja heimkynni sín aðstoð. Jafnframt séu fjöldi félaga og samtaka í samstarfi með stjórnvöldum og hafi tekið að sér að veita mannúðaraðstoð til þeirra sem hafi þurft að flytjast á brott frá heimasvæði sínu. Stjórnvöld hafi þó sætt gagnrýni fyrir seinar og ófullnægjandi aðgerðir. Þá hafi mannúðarsamtök aukið fræðslu og dreifingu hreinlætisvara, í tengslum við Covid-19 heimsfaraldurinn.
Í skýrslu frá bandaríska utanríkisráðuneytinu um glæpi og öryggi í Kólumbíu frá 31. janúar 2024 kemur m.a. fram að lögregluyfirvöld í Kólumbíu séu alla jafna öflug og fagleg. Þrátt fyrir framangreind vandamál hafi dregið verulega úr ofbeldi í landinu öllu á síðustu 20 árum. Megi rekja þessa fækkun ofbeldisglæpa einkum til friðarsamkomulagsins við FARC og vopnahlés og friðarviðræðna við ELN. Þó kemur fram m.a. í skýrslu Freedom House frá árinu 2023 að ofbeldi og glæpatíðni hafi tekið að rísa á ný frá árinu 2017. Megi meðal annars rekja hluta þess til að fyrrverandi skæruliðar hafi hafið glæpastarfsemi á ný vegna þess að þeir telji stjórnvöld ekki hafa staðið við sína hlið friðarsamningsins.
Í skýrslu EUAA frá desember 2025 kemur fram að á fyrri helmingi 2025 hafi ofbeldi vegna vopnaðra átaka aukist í Kólumbíu vegna baráttu glæpa- og vopnaðra hópa um landsvæði og yfirráð yfir ólöglegum hagkerfum. Um 1,45 milljón íbúa hafi fundið fyrir áhrifum þess, n.t.t. fjórum sinnum fleiri en á sama tímabili árið 2024. Einnig væri aukning í fjöldaflótta (e. mass displacement), takmörkunum á ferðum borgara, morðum og dauðföllum vegna ofbeldis. Þá hafi 84% fórnarlamba vegna vopnaðra átaka tilheyrt héruðunum Chocó, Cauca, Guavire og Norte de Santander. Náttúruhamfarir hafi haldið áfram að hafa áhrif á svæði sem þegar hafi þjáðst af átökum, einkum héruðin Antioquia, Nariño, Arauca, og Amazonas og þannig gert ástandið verra. Öryggisástand og eðli átaka sé mjög mismunandi innan Kólumbíu. Heimildir bendi til þess að ólöglegir vopnaðir hópar hafi aukið viðveru sína í landinu, þar á meðal á afskekktum svæðum. Aukningin sé nátengd vilja þeirra hópa til að græða m.a. á fíkniefnasmygli og ólöglegri námuvinnslu. Á einhverjum svæðum hafi slíkir hópar stofnað til samstarfs sín á milli. Fjöldi vígamanna hafi aukist frá um 15 þúsund einstaklingum um mitt ár 2022 í tæplega 22 þúsund einstaklinga í júní 2025 og í nóvember 2025 hafi fjöldi vígamanna verið rúmlega 25 þúsund. Þau svæði sem helst hafi orðið fyrir áhrifum ofbeldis séu gjarnan þau svæði sem áður hafi verið stjórnað af FARC-EP og búi yfir umtalsverðum auðlindum sem deilt sé um, líkt og kókaínrækt eða ólöglegri námuvinnslu. Þar á meðal séu héruðin Antioquia, Norte de Santander, Bolívar, Cauca, La Guajira, Chocó, Nariño, Putumayo, Caquetá, Guaviare, Meta, Valle del Cauca og Arauca. Samkvæmt upplýsingum sem EUAA hafi aflað frá ACLED hafi nærri 60% allra ofbeldistilvika á tímabilinu 1. janúar til 24. október 2025 átt sér stað í fimm héruðum Kólumbíu, n.t.t. í héruðunum Cauca, Antioquia, Norte de Santander, Nariño og Arauca. Heimildir EUAA hafi bent á skort á viðveru yfirvalda á ýmsum svæðum landsins, einkum við Kyrrahafsströndinni og utan þéttbýliskjarna þar, ekki síst vegna lélegra innviða, einkum lélegs vegakerfis, sem geri aðgengi að afskekktustu svæðunum erfiðara. Erfitt og nánast ómögulegt sé að tilkynna um tiltekna glæpi á einangruðum og afskekktum svæðum, s.s. svæðum þar sem íbúar séu undir eftirliti vopnaðra hópa og lögregla fari ekki inn á þau svæði. Í nóvember 2025 hafi varnarmálaráðherra Kólumbíu gefið til kynna að herinn og lögregluyfirvöld hafi aukið aðgerðir gegn glæpahópum um 20%.
Í frétt á vef fréttamiðilsins Al Jazeera frá 4. október 2022 kemur fram að kólumbísk yfirvöld og ELN hafi komist að samkomulagi um að hefja friðarviðræður á ný eftir að þeim hafi verið slitið 2018. Þá kemur fram í skýrslu Freedom House frá árinu 2023 að forseti landsins hafi lagt til nýjan friðarsamning við andófsmenn FARC í ágúst 2022, sem hafi verið tilefni gagnrýni frá þeim aðilum er komu að samningaviðræðum vegna friðarsamningsins árið 2016. Forsetinn hafi hafið samningaviðræður við ELN í desember 2022 og hafi það verið fyrstu viðræðurnar við samtökin síðan árið 2019. Í sama mánuði hafi ríkisstjórnin tilkynnt um sex mánaða vopnahlé við ELN, FARC andófsmenn og þrjá aðra glæpahópa. Þá hafi ELN samþykkt vopnahlé til sex mánaða sem hafi byrjað 9. ágúst 2023. Vopnahléið hafi bætt öryggi íbúa þeirra svæða þar sem ítök hópanna séu hvað mest tímabundin. Samkvæmt fréttum á veraldarvefnum hafi vopnahléinu átt að ljúka 29. janúar 2024. Hinn 23. janúar 2024 hafi sjötta umræða friðarviðræðna hafist í Havana á Kúbu og vonast hafi verið til þess að ná samkomulagi um að framlengja vopnahléið auk annarra atriða sem stuðla eigi að friði í Kólumbíu. Í yfirlýsingu frá ELN, dags. 20. febrúar 2024, sögðu samtökin forseta Kólumbíu ekki hafa staðið við gefin loforð og því væru sjöttu viðræðurnar „frystar“ þangað til að loforðin yrðu efnd. Hafi þetta sett friðarviðræðurnar í uppnám og óvíst hafi verið með framhaldið. Í nýlegum fréttaheimildum kemur fram að í febrúar 2024 hafi kólumbísk yfirvöld og ELN tilkynnt um framlengingu vopnahlés til sex mánaða frá 6. febrúar 2024. Í skýrslu Freedom House frá árinu 2025 kemur fram að ríkisstjórn Petro hafi haldið áfram vinnu sinni við áætlun sína um algjöran frið (e. Total Peace) með ýmsum aðgerðum. Dregið hafi verulega úr skærum á milli vopnahópa og öryggissveita ríkisins árið 2024. Í skýrslu nefndar Ameríkuríkja um mannréttindi (e. Inter-American Commission on Human rights) fyrir árið 2024 kemur fram að stjórnvöld hafi ráðist í ýmsar aðgerðir til þess að styrkja lýðræðið og efla öryggi borgaranna. Liður í því hafi verið að víkka aðgerðir innan áætlunarinnar um algjöran frið og ná fleiri hópum að samningaborðinu. Ýmsar áskoranir hafi þó dregið úr árangri þessara aðgerða. Til að mynda hafi síðustu viðræðum við ELN lokið á þá leið að ekki hafi náðst nema að takmörkuðu leyti að semja um áframhaldandi vopnahlé sem hafi leitt til aukins ofbeldis á ákveðnum svæðum. Árangur hafi þó náðst í viðræðum við önnur glæpasamtök í landinu og dregið hafi úr glæpa- og morðtíðni á þeim svæðum, s.s. í Medellín, Valle de Aburrá, Quibdó og Buenaventura.
Samkvæmt upplýsingum af síðu InSight Crime um ELN hafi þau upphaflega verið stofnuð á sjöunda áratugnum sem þjóðernishreyfing undir áhrifum frá kúbversku byltingunni og séu samtökin síðasti stóri uppreisnarhópurinn í Kólumbíu. Samtökin séu með starfsemi bæði í Kólumbíu og Venesúela og hafi stundað mannrán, fjárkúganir, ólöglega námuvinnslu og fíkniefnaviðskipti. Hin síðari ár hafi hópurinn eflst og stækkað yfirráðasvæði sín m.a. inn fyrir landamæri Venesúela. Þrátt fyrir að friðarviðræður við kólumbísk stjórnvöld hafi mjakast áfram séu innri klofningur og andstaða við afvopnun innan samtakanna gríðarleg áskorun. ELN hafi aukið starfsemi sína á svæðum þar sem kólumbísk stjórnvöld séu veikari fyrir auk þess að vinna í samstarfi við venesúelsk stjórnvöld innan landamæra Venesúela. Þá hafi samtökin starfsemi víða í Kólumbíu en séu öflugust í héruðunum Chocó, Norte de Santander og Arauca.
Samkvæmt upplýsingum af heimasíðu sannleiks- og sáttanefndar (e. UN Verification Mission) í Kólumbíu hafi Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna framlengt umboð verkefnis til 31. október 2023 varðandi framfylgni samningsins um uppbyggingu á dreifbýlli svæðum og málefni þjóðernishópa. Nefndinni hafi verið gert að fylgjast með og hafa eftirlit með framfylgd ríkisstjórnar og samningsaðila FARC á friðarsamkomulaginu, þ.m.t. pólitíska, efnahagslega og félagslega enduraðlögun FARC meðlima og innleiðingu persónulegra og sameiginlegra öryggistrygginga ásamt því að halda utan um yfirgripsmiklar áætlanir um öryggis- og verndarráðstafanir fyrir samfélög og stofnanir á svæðunum. Í skýrslu aðalframkvæmdastjóra frá 24. mars 2023 komi fram að kólumbíska ríkisstjórnin og FARC hafi samþykkt að framlengja umboð framkvæmdastjórnar til að fylgja eftir og hafa eftirlit með framfylgd friðarsamkomulagsins til fjögurra ára.
Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024 kemur fram að fjöldi kólumbískra og alþjóðlegra mannréttindahópa starfi án takmarkana stjórnvalda, rannsaki og birti niðurstöður um mannréttindamál. Þá séu embættismenn yfirleitt samvinnuþýðir og reiðubúnir að hlusta á áhyggjur staðbundinna mannréttindasamtaka. Nokkur frjáls félagasamtök hafi fengið hótanir en ríkisstjórnin fordæmi hótanirnar og skori á dómsmálaráðherra að rannsaka þau. Í sumum tilvikum hafi aðgerðarsinnum þótt viðbrögð stjórnvalda hæg og lítil. Þá kemur fram að þótt löggjöf í landinu veiti frjálsum félagasamtökum og mannréttindabaráttufólki vernd þá sé traust til slíkrar verndar takmarkað og á síðustu árum hafi hundruð meðlima mannréttindasamtaka, fjölmiðlafólks, leiðtoga frumbyggja og annarra aðgerðarsinna staðið frammi fyrir margvíslegu ofbeldi, líflátshótunum og verið myrtir, einkum af uppreisnarmönnum eða meðlimum glæpasamtaka. Stjórnvöld hafi ekki gripið til fullnægjandi ráðstafana til að vernda þau, refsileysi sé útbreitt og ákærur og sakfellingar eigi sér sjaldnast stað.
Í skýrslu kanadíska innflytjenda- og flóttamannaráðsins (e. Immigration and Refugee Board of Canada) kemur fram að skrifstofa umboðsmanns (s. Defensoría del Pueblo), sem sett hafi verið á fót árið 1991, sinni margvíslegu hlutverki til að stuðla að bættri mannréttindavernd í Kólumbíu. Skrifstofan beri ábyrgð á að sinna eftirliti og aðhaldi með stjórnvöldum, taki við kvörtunum frá einstaklingum, hópum og lögaðilum og beiti sér fyrir aukinni vernd og fræðslu um mannréttindi. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 og 2024 kemur fram að undirfjármögnun takmarki getu skrifstofunnar til að fylgjast með misnotkun á áhrifaríkan hátt. Umboðsmaðurinn, sem og meðlimir svæðisskrifstofu umboðsmanns, fái hótanir frá vopnuðum hópum í gegnum ýmsa miðla. Skrifstofa umboðsmanns gefi reglulega út viðvaranir fyrir svæði sem hún telji hættuleg en ríkisstjórnin bregðist hægt við tilmælum og viðvörunum. Þá veiti ríkisstofnunin National Protection Unit einstaklingum vernd sem telji sig þurfa á vernd að halda, m.a. þolendum mannréttindabrota og vopnaðra átaka. Eðli verndarinnar fari eftir áhættumati sem stofnunin framkvæmi fyrir hvern og einn einstakling. Verndin sem stofnunin veiti sé þó ekki alltaf fullnægjandi eða í samræmi við þá hættu sem viðkomandi sé í.
Samkvæmt stjórnarskrá Kólumbíu eiga ríkisborgarar rétt á grunnheilbrigðisþjónustu og félagslegri aðstoð í landinu. Samkvæmt vef Alþjóðabankans var atvinnuleysi í Kólumbíu 9,6% árið 2024 en hafði verið 10,5% árið 2022. Ráðuneyti heilbrigðis- og félagslegrar verndar (s. Ministerio de Salud y de Protección Social) ber ábyrgð á að hafa eftirlit með og samræma þjónustu á starfssviði sínu á landsvísu. Samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu frá 2015 (s. La Ley Estatutaria de Salud 1751 de 2015) telst heilbrigði til grundvallar mannréttinda og bann er lagt við því að synja sjúklingum um nauðsynlega heilbrigðisþjónustu á grundvelli efnahagslegrar stöðu. Samkvæmt heimildum hefur heilbrigðiskerfið í Kólumbíu verið með þeim bestu í heiminum og samkvæmt skýrslu Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar (World Health Organization, WHO) frá árinu 2000 var Kólumbía þá í 22. sæti yfir skilvirkustu heilbrigðiskerfi í heimi. Heilbrigðisþjónusta í Kólumbíu sé almennt ekki kostnaðarsöm og aðgengi ríkisborgara að heilbrigðisþjónustu almennt gott. Í Kólumbíu sé opinbert sjúkratryggingarkerfi (s. Entidades Promotoras de Salud (EPS)). Umrætt sjúkratryggingakerfi sé í boði fyrir alla íbúa Kólumbíu með litlum tilkostnaði. EPS sjúkratryggingakerfið sé með þriggja þrepa greiðslukerfi sem nái yfir greiðsluþátttöku EPS vegna rannsóknarstofuprófa, myndgreininga, sérfræðiheimsókna og lyfja. Þá kemur fram í skýrslum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar og innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanada að sérstök löggjöf um geðheilbrigðismál í Kólumbíu hafi verið í gildi frá árinu 2013 og sérstök aðgerðaráætlun um geðheilbrigðismál frá árinu 2018. Samkvæmt þeirri löggjöf sé ríkisborgurum Kólumbíu tryggt aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu og þurfi meirihluti fólks sem sæki þjónustu hjá geðheilbrigðissérfræðingum ekki að greiða fyrir slíka þjónustu. Biðtími geti verið langur en aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum sé betra í þéttbýli heldur en í dreifbýli.
Í skýrslu kanadísku innflytjendastofnunarinnar kemur fram að kynbundið ofbeldi sé útbreitt í Kólumbíu. Ofbeldi gegn konum og nauðganir, þ. á m. nauðganir í hjónaböndum, séu vandamál í landinu. Í skýrslunni kemur fram að ofbeldi gegn konum hafi aukist í Covid 19-heimsfaraldinum en að löggjöf í landinu kveði á um jafnrétti kvenna. Í skýrslu Freedom House kemur fram að um 20 prósent þingsæta í hverri þingdeild sé í höndum kvenna og varaforseti Kólumbíu sé kona. Löggjafinn hafi um árabil hunsað réttindi kvenna en árið 2021 hafi lög verið samþykkt sem ætlað sé m.a. að bæta félagslegar og efnahagslegar aðstæður kvenna. Í framangreindum skýrslum kemur fram að kólumbísk stjórnvöld hafi fullgilt alla gildandi alþjóðasamninga er lúti að mannréttindum og réttindum kvenna og ríkið hafi náð þýðingarmiklum framförum í þróun löggjafar sem styðji jafnrétti kynjanna og mannréttindi kvenna. Sem dæmi um það hafi lög verið sett árið 2014 til að bæta aðgengi þolenda kynferðisofbeldis að réttvísi. Mismunun og ofbeldi gagnvart konum og refsileysi gerenda í slíkum málum sé þó vandamál í ríkinu. Konur verði fyrir kynbundnu ofbeldi, m.a. kynferðisofbeldi, í tengslum við átök tengd glæpastarfsemi og baráttu stjórnvalda við glæpahópa í landinu. Kólumbísk lög leggi skyldu á kólumbísk stjórnvöld að veita þolendum heimilisofbeldis tafarlausa vernd gegn frekara ofbeldi, hvort sem það sé líkamlegt eða andlegt. Þá kveði kólumbísk lög á um 21 til 50 ára fangelsisvist fyrir kynbundin morð á konum (e. femicide) sem sé talsvert þyngri refsing en við morðum af öðrum ástæðum, sem varði að lágmarki 13 ára fangelsisvist. Í skýrslu fulltrúa aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna um kynferðislegt ofbeldi í Kólumbíu kemur m.a. fram að stofnun um velferð fjölskyldunnar (s. Instituto Colombiano de Bienestar Familiar) sé starfrækt í landinu. Stofnunin vinni að alhliða velferð barna, ungmenna og fjölskyldna þeirra og reki svæðisbundnar fjölskyldumiðstöðvar í öllum borgum landsins. Skrifstofa umboðsmanns standi auk þess vörð um mannréttindi bæði þolenda og gerenda þegar um ofbeldi sé að ræða, m.a. með því að veita einstaklingum ráðgjöf og aðstoð. Í skýrslunni kemur fram að starfræktar séu neyðarlínur, þar sé hægt að tilkynna kynbundið ofbeldi. Samkvæmt skýrslu samtakanna Freedom House frá 2023 standi konur frammi fyrir mismunun á vinnumarkaði og verði fyrir kynferðislegri áreitni á vinnustöðum. Stjórnlagadómstóll Kólumbíu hafi áréttað skyldu fyrirtækja til að bregðast við og refsa fyrir kynbundið ofbeldi á vinnustað. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að lög leggi bann við hvers kyns áreitni á vinnustað og mæli jafnframt fyrir um eins til þriggja ára fangelsisvist fyrir slík brot.
Í yfirliti frá Efnahags- og framfarastofnuninni um menntamál í Kólumbíu fyrir árið 2023 og á heimasíðu World Education News+Reviews kemur fram að í landinu sé skyldubundið grunnskólanám öllum að kostnaðarlausu. Flestir skólar séu ríkisreknir og gert að fylgja lögboðnum námsskrám sem gefin séu út af menntamálaráðuneyti Kólumbíu. Það framfylgi ákveðnum gæðastöðlum menntunar.
5.5 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærendur bera fyrir sig vera í hættu í heimaríki vegna fjárkúgana af hálfu meðlima ELN samtakanna sem hafi M að skotmarki vegna meintrar skuldar föður M við samtökin. Umrædd samtök hafi einnig orðið valdur að dauða föður M.
Mat á trúverðugleika frásagnar kærenda er byggt á endurritum af viðtölum þeirra hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki þeirra.
Í viðtölum hafa kærendur greint frá því að þau óttist um líf sitt en meðlimir ELN hafi hótað M í þrígang. Kærendur telja að fjárkúganirnar megi rekja til fyrri ofsókna sama hóps gegn föður M. Meðlimir ELN hafi árið 2009 myrt föður M eftir að hafa reynt að kúga út úr honum fé. Fjölskylda M hafi áður ítrekað flust milli borga í tilraun til að flýja meðlimi ELN. Meðlimir umræddra samtaka hafi einnig hótað að myrða M, móður hans og systur. Nokkrum árum eftir morðið á föður M hafi móðir M og systir flutt til Chile vegna hótana og M hafi þá dvalið hjá ömmu sinni. Aðdragandi flótta kærenda hafi verið sá að M hafi sjálfum byrjað að berast hótanir, einu sinni í persónu og tvisvar í textaskilaboðum á tímabilinu 31. janúar 2023 til 15. mars 2023, þar sem hafi m.a. verið vísað til skuldar föður M.
Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lögðu kærendur fram ýmis gögn máli þeirra til stuðnings, sem kærunefnd hefur yfirfarið ásamt þýðingu skjalanna. Meðal fyrirliggjandi gagna er afrit dags. 23. mars 2023 frá kólumbíska stjórnvaldinu Unidad para las víctimas í Neiva, Huila. Þar er fjölskylda M, hann, móðir hans og systir, skráð sem þolendur þvingaðra flutninga (e. forced displacements) dags. 4. ágúst 2007 og morðs [á fjölskyldumeðlimi] dags. 1. maí 2009 (fskj. 6). Einnig lögðu kærendur fram upplýsingar úr ódagsettri skýrslu frá kólumbísku stjórnvaldi að nafni Departamento del Cauca. Þar kemur fram að í þeim landshluta þar sem faðir M hafi verið myrtur, hafi verið mikil hætta, þ.e. rauð viðvörun, þar sem skæruliðahópar, s.s. ELN og FARC, voru áhrifamiklir (fskj. 8). Þá lögðu kærendur fram afrit af skýrslu móður M hjá ríkissaksóknara, dags. 1. maí 2009, þar sem haft er eftir móður M að eiginmaður hennar hafi verið myrtur af samtökum sem starfi utan laga. Einnig leggja kærendur fram bréf kólumbískra stjórnvalda til M, dags. 7. nóvember 2013. Um er að ræða afsökunarbréf frá kólumbískri bótanefnd fyrir þolendur afbrota til M sem send var fyrir hönd kólumbíska ríkisins þar sem honum eru boðnar bætur vegna þeirra þjáninga sem hann hefði orðið fyrir vegna hinna vopnuðu átaka, vísað er til þess að margir hafi orðið fyrir skaða og að ofbeldinu verði að linna (fskj. 10). Auk þess leggja kærendur fram blaðagrein um fjöldamorð, dags. 2. maí 2009, þar sem fram kemur að hópur sem starfi utan laga hafi staðið að morði föður M (fskj. 9). Þá liggja fyrir frekari gögn tengd morði á föður M, þar á meðal nafnskírteini hans og sjúkragögn auk frekari gagna sem stafa frá stjórnvöldum og varða andlát hans.
Framangreind gögn eru afrit og er sönnunargildi þeirra því ekki óyggjandi en þó ekki ástæða til annars en að leggja til grundvallar að faðir M hafi verið myrtur árið 2009. Af framangreindum gögnum verður ráðið að ekki sé vitað hverjir stóðu að baki morðinu á föður M en að móðir M og kólumbísk stjórnvöld telji líkur á að skæruliðahópar hafi verið þar að verki. Í ljósi framlagðra gagna og landaupplýsinga telur kærunefnd ekki útilokað að meðlimir skæruliðahóps hafi staðið að baki morðinu á föður M. Að sama skapi dregur kærunefnd ekki í efa að M og fjölskylda hans hafi þurft að flytjast á milli borga á uppvaxtarárum M sökum fjárkúgana og hótana frá meðlimum ELN.
Kærendur hafa einnig lagt fram gögn til stuðnings frásögn M um hótanir sem hann kvaðst sjálfur hafa orðið fyrir í þrígang í ársbyrjun 2023. Annars vegar er um að ræða kærur M til lögreglu vegna fjárkúgunar og líflátshótunar, dags. 31. janúar 2023 (fskj. 11) og 17. mars 2023 (fskj. 14). Hins vegar er um að ræða tvö skjáskot af síma kæranda með hótun sem M greindi frá að honum hefði borist með textaskilaboðum 18. febrúar og 16. mars 2023. Samkvæmt skjáskotum af umræddum símaskilaboðum snúa fyrri skilaboðin að því að tilkynna að samstarfs sé krafist vegna skuldar föður M og að frekari upplýsingar muni berast síðar. Í seinni símaskilaboðununum er gerð krafa um 70 milljónir pesóa, sem greiddir skyldu innan mánaðar.
Framangreind gögn eru afrit og er sönnunargildi þeirra því ekki óyggjandi. Þá fela lögregluskýrslur í sér einhliða frásögn M af atvikum. Ekki er mögulegt að staðreyna uppruna hótunarskilaboða sem lögð hafa verið fram. Kærunefnd lítur til þess að innra samræmi er meðal framlagðra gagna og frásagnar kærenda og til þess að gögn málsins eru í ytra samræmi við landaupplýsingar um Kólumbíu. Að mati kærunefndar hafa kærendur leitt að því líkum að M hafi verið hótað í þrígang og að í tvö skipti hafi umræddar hótanir falið í sér vísun til morðsins á föður M. Af frásögn kærenda má ráða að M hafi gegnt góðri stöðu í banka og fjölskyldan hafi verið ágætlega fjárhagslega stödd. Þegar litið er heildstætt til frásagnar kærenda og gagna málsins er það niðurstaða kærunefndar að ekkert bendi til þess að kærendur séu sérstök skotmörk ELN eða annarra glæpasamtaka. Er þá litið til þess að hátt í tveir áratugir eru liðnir frá morði föður M, að hann hafi getað dvalið í Kólumbíu allan þann tíma án verulegs áreitis, þess að ekkert í frásögnum kærenda eða gögnum málsins gefur til kynna að ELN hafi staðið að baki umræddri fjárkúgun og þess að landaupplýsingar benda til þess að slíkar fjárkúganir séu nokkuð algengar af hálfu glæpahópa í landinu.
Þá er það mat kærunefndar að frásögn kæranda og gögn málsins beri ekki annað með sér en að kærendum standi til boða aðstoð yfirvalda í heimaríki. Kærunefnd hefur yfirfarið gögn málsins og landaupplýsingar um Kólumbíu, þar á meðal um heimasvæði kæranda. Samkvæmt seinni lögregluskýrslunni var kæranda leiðbeint um að beina máli sínu til deildar innan lögreglu og hersins sem vinni gegn mannránum, eða GAULA (Los Grupos de Acción Unificada por la Libertad Personal), áður en ríkissaksóknari taki ákvörðun um framhaldið, en slíkt væri í samræmi við málsmeðferð í máli sem hans. Þær heimildir sem kærunefnd hefur skoðað um aðstæður í Kólumbíu bera m.a. með sér að þeir einstaklingar sem telja sér stafa ógn af fjárkúgunum glæpasamtaka geti leitað aðstoðar yfirvalda. Í Kólumbíu eru starfræktar sérhæfðar lögreglu- og herdeildir, GAULA, sem berjast gegn fjárkúgun og mannránum. Deildirnar telja um 1.659 starfsmenn, nái yfir 90% landsins og sinni bæði forvörnum, rannsóknum, upplýsingaöflun og alþjóðlegu samstarfi. GAULA starfi á þéttbýlissvæðum undir stjórn kólumbísku þjóðarlögreglunnar, en herdeildir GAULA starfi á landsbyggðinni undir yfirstjórn hersins. Einnig sé starfandi „CiberGAULA“ sem vinni gegn stafrænum fjárkúgunarbrotum og starfræki neyðarsíma sem geri fórnarlömbum kleift að ná hratt sambandi við GAULA. Mál sem berist GAULA séu send til eins af 33 saksóknurum sem sérhæfi sig í fjárkúgunarmálum, og deildirnar vinni jafnframt með öðrum stjórnvöldum. Á tímabilinu janúar til apríl 2023 handtóku 33 herdeildir GAULA samtals 218 einstaklinga fyrir fjárkúgun. Á árinu 2023 voru 2.708 manns handteknir fyrir fjárkúgun, sem sé 12% aukning frá árinu áður, og 82% þeirra hafi verið sakfelldir. Á árinu 2024 hafi GAULA-deildir hersins framkvæmt 600 aðgerðir og handtekið 900 manns fyrir fjárkúgun og 120 fyrir mannrán. Af heimildum verður ekki ráðið að í borginni Nuiva séu ítök og áhrif glæpa- og skæruliðahópa slík að ómögulegt sé fyrir kærendur að leita aðstoðar yfirvalda. Landaheimildir bera með sér að Huila‑héraðið standi frammi fyrir alvarlegri öryggiskreppu eftir að fjöldi manndrápa hafi meira en tvöfaldast það sem af er árinu 2026. Samkvæmt Juan Carlos Casallas, innanríkisráðherra héraðsins, hafa 39 manndráp þegar verið skráð í Neiva, samanborið við aðeins tvö á sama tíma í fyrra, og alls 31 í héraðinu. Yfir helmingur tilvikanna hafi átt sér stað í dreifbýli, en 45% í þéttbýli. Um 17% manndrápa tengist skipulögðum vopnuðum hópum, einkum í Algeciras og Gigante, þar sem rannsóknir beinist meðal annars að starfsemi Iván Díaz‑hópsins. Í ljósi þessa hafi héraðsstjórnin ákveðið að efla öryggisgæslu í samstarfi við lögreglu og her, meðal annars með auknum eftirlitsferðum, vegatálmum og sýnilegri viðveru á viðkvæmum svæðum. Jafnframt hafi verið óskað eftir auknum mannafla, betri búnaði og öflugri upplýsingaöflun frá varnarmálaráðuneytinu. Verður því lagt til grundvallar að þar til bær yfirvöld í heimaríki kærenda hafi getu og vilja til að veita kærendum vernd, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir þær athafnir sem feli í sér ofsóknir. Hafa kærendur auk þess lagt fram gögn sem gefa til kynna að M hafi leitað til yfirvalda í heimaríki og honum verið leiðbeint um þann farveg sem hann gæti lagt málið í. Geta kærendur samkvæmt framangreindu leitað aðstoðar yfirvalda í heimaríki að nýju telji þau þörf á því.
Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal, við mat samkvæmt 1. og 2. mgr. 37. gr. í málum sem varða börn, fylgdarlaus sem önnur, hafa það sem er barninu fyrir bestu að leiðarljósi. Í ákvæðinu kemur fram að við það mat beri að líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis barnsins, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skal tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Leggur kærunefnd mat á hagsmuni barna samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af upplýsingum úr fyrirliggjandi gögnum málsins og framangreindum aðstæðum í heimaríki þeirra. Sjónarmiðum barnanna var nægilega komið á framfæri með framburði kærenda, viðtölum við börnin og hagsmunagæslu talsmanns. Að teknu tilliti til ákvæða barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og íslenskrar löggjafar um barnavernd standa engin rök í vegi fyrir því að börnin fylgi foreldrum sínum aftur til heimaríkis. Börn þau sem um ræðir eru í fylgd foreldra sinna sem eru heilsuhraust og vinnufær og njóta börnin stuðnings þeirra. Eins og áður greinir stendur börnum kærenda til boða menntun í heimaríki. Þá bera gögn með sér að börnin muni jafnframt hafa aðgang að heilbrigðiskerfinu í heimaríki. Með vísan til framangreinds og að teknu tilliti til sjónarmiða um öryggi, velferð og félagslegan þroska barnanna er það börnunum fyrir bestu að fylgja foreldrum sínum til heimaríkis síns.
Þegar frásagnir kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum þeirra og barna þeirra í heimaríki, teljast kærendur ekki hafi sýnt fram á með rökstuddum hætti að þau eigi á hættu ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Sama á við þegar litið er til samsafns athafna. Kærendur og börn þeirra uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.6 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærendur byggja á því að þau eigi rétt á vernd á grundvelli 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur hafa vísað til þess að þau séu í hættu í heimaríki vegna glæpahópa. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda til þess að ástandið í Kólumbíu sé víða ótryggt, sumum svæðum sé að mestu leyti stjórnað af glæpa- og skæruliðahópum og að íbúar landsins kunni að eiga á hættu að vera beittir ofbeldi af hálfu slíkra hópa. Löggæsluyfirvöld hafa átt erfitt með að komast inn á svæði þar sem glæpahópar hafi völd og átök eigi sér stað. Að jafnaði hafi kólumbísk stjórnvöld og öryggissveitir þeirra góða stjórn á öðrum svæðum og séu þau svæði nokkuð friðsæl og örugg. Þá séu lögregluyfirvöld að öllu jöfnu öflug og fagleg í landinu. Kærendur kváðust hafa búið í borginni Neiva í héraðinu Hulia í suðvesturhluta Kólumbíu áður en þau yfirgáfu heimaríki. Líkt og áður greinir eru glæpahópar öflugir á ákveðnum svæðum í heimahéraði kærenda en heimildir benda þó ekki til þess að aðstæður á heimasvæði þeirra séu slíkar að hver sem þar sé staddur eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka.
Þegar frásögn kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda og barna þeirra séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur og börn þeirra uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.7 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga
Þar sem kærendur og börn þeirra eru ekki flóttamenn samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.
6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða
Með ákvæði a-liðar 5. gr. breytingarlaga nr. 12/2026, sem voru samþykkt á Alþingi 16. febrúar 2026, var lögum um útlendinga breytt á þann veg að ákvæði 2. mgr. 74. gr. laganna var felld brott. Samkvæmt 1. mgr. 10. gr. laga nr. 12/2026 öðluðust lögin þegar gildi en í 2. mgr. 10. gr. kemur fram að ákvæði a-liðar 5. gr. gildi ekki um meðferð umsókna sem hafi náð tímamörkum 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga við gildistöku laganna. Lögin voru birt í Stjórnartíðindum 6. mars 2026 og öðluðust þá gildi.
Kærendur sóttu um alþjóðlega vernd fyrir sig og börn sín 7. apríl 2023. Hafði því málsmeðferð stjórnvalda í máli þeirra náð tímamörkum ákvæðis 2. Mgr. 74. Gr. laganna við gildistöku framangreindar breytingarlaga og á það því við í máli þeirra. Er því heimilt að veita kærendum og börnum þeirra dvalarleyfi á grundvelli ákvæðisins að uppfylltum öðrum skilyrðum 2. mgr. 74. gr. laganna.
Í 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kemur fram að heimilt sé að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann sótti fyrst um alþjóðlega vernd hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt ákvæðinu að því tilskildu að skorið hafi verið úr um að hann uppfylli ekki skilyrði 37. og 39. gr. Ef um er að ræða barn skal miðað við 16 mánuði. Frekari skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis í þeim tilvikum koma fram í a- til d-liðum 2. mgr. 74. gr. laganna en þau eru að tekin hafi verið skýrsla af umsækjanda um alþjóðlega vernd, ekki leiki vafi á því hver umsækjandi sé, ekki liggi fyrir ástæður sem geta leitt til brottvísunar umsækjanda og að útlendingur hafi veitt upplýsingar og aðstoð við úrlausn máls.
Að mati kærunefndar uppfylla kærendur skilyrði a- til d-liðar 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lögðu kærendur fram kólumbísk vegabréf sem lögð hafa verið til grundvallar auðkenni þeirra. Verður því ekki talið að vafi leiki á því hverjir kærendur og börn þeirra séu, sbr. b-lið 2. mgr. 74. gr. laganna. Þá er það mat kærunefndar að ákvæði a- til d-liðar 3. mgr. 74. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir veitingu dvalarleyfis samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Að öllu framangreindu virtu er lagt fyrir Útlendingastofnun að veita kærendum dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Í ljósi framangreindrar niðurstöðu er ekki þörf á að fjalla um kröfur kæranda skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
7 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana eru ákvarðanir Útlendingastofnunar staðfestar hvað varðar umsókn kærenda um alþjóðlega vernd. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að veita kærendum dvalarleyfi samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Úrskurðarorð:
Lagt er fyrir Útlendingastofnun að veita kærendum dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Ákvarðanir Útlendingastofnunar í máli kærenda varðandi umsókn þeirra um alþjóðlega vernd eru staðfestar.
The Directorate of Immigration is instructed to issue the appellants a residence permit based on Article 74(2) of the Act on Foreigners. The decisions of the Directorate related to their application for international protection are affirmed.
Þorsteinn Gunnarsson
Vera Dögg Guðmundsdóttir