21 mars 2026
/
Samráðsgátt: Endurgreiðsla kostnaðar vegna leiðsöguhunda við ferðalög erlendis
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda drög að reglugerð um endurgreiðslu kostnaðar vegna leiðsöguhunda við ferðalög notenda erlendis.
Reglugerðinni er ætlað að gilda um endurgreiðslu úr ríkissjóði á kostnaði sem fellur til þegar notendur leiðsöguhunda, með lögheimili á Íslandi, ferðast með hund sinn til útlanda. Ákvæðin ná til leiðsöguhunda sem Sjónstöðin hefur úthlutað sem hjálpartæki á grundvelli laga um Sjónstöðina.
- Markmið reglugerðarinnar er að tryggja að sá viðbótarkostnaður sem hlýst af ferðalögum með leiðsöguhund, og stafar af skilyrðum sem sett eru í reglum um innflutning hunda og katta og einangrun þeirra, falli ekki á notendur sjálfa.
- Í stað þess er gert ráð fyrir að kostnaðurinn verði endurgreiddur úr ríkissjóði, samkvæmt nánari útfærslu í reglugerðardrögunum.
„Með breytingunum er leitast við að bæta aðgengi notenda leiðsöguhunda að ferðalögum og tryggja jafnræði þeirra til þátttöku í samfélaginu,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson.
Drögin eru birt í samráðsgátt stjórnvalda og gefst almenningi og hagsmunaaðilum kostur á að koma á framfæri umsögnum áður en endanleg ákvörðun verður tekin. Frestur til að senda inn umsögn er til 2. apríl nk.