21 mars 2026
/
Sanngjarnari reglur um raforkugjöld á nýjum iðnaðar- og athafnasvæðum
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur sett drög að breytingu á reglugerð um framkvæmd raforkulaga til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda, þar sem sett er sú krafa á dreifiveitur að þær sýni fram á sannanlegan kostnaðarauka þar sem notast er við dreifbýlisgjaldskrá.
Í reglugerð um framkvæmd raforkulaga eru útfærð skilyrði fyrir samþykkt sérstakrar dreifbýlisgjaldskrár, þ.e. sérstakri gjaldskrá sem dreifiveitum er heimilt að sækja um til Raforkueftirlitsins á svæðum þar sem kostnaður vegna dreifingar er sannanlega hærri en í þéttbýli. Til að ákveða hvaða svæði teljast til dreifbýlis hefur hingað til verið horft til þröngrar túlkunar Hagstofu Íslands um íbúafjölda og fjarlægðir milli húsa.
Sveitarfélög, sérstaklega Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum (SSKS), hafa bent á galla í núverandi fyrirkomulagi og sendu ráðherra erindi þess efnis síðasta haust. Þegar sveitarfélög skipuleggja ný iðnaðar- og athafnasvæði rétt fyrir utan íbúðabyggð flokkast þau svæði oft sjálfkrafa sem „dreifbýli“ vegna þess að þar er engin búseta fyrir. Þetta hefur haft í för með sér mun hærri raforkureikninga fyrir fyrirtæki sem vilja byggja sig upp á landsbyggðinni, jafnvel þótt raunverulegur kostnaður við að dreifa rafmagni til þeirra sé ekki endilega hærri en inni í bænum.
Með breytingunni sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur kynnt í samráðsgátt er lagt til að horfið verði frá föstum tölulegum viðmiðum, en að í staðinn verði dreifiveitum gert að sýna fram á sannanlegan kostnaðarauka ef þær vilja beita dreifbýlisgjaldskrá. Við það mat verður sérstaklega litið til:
- Skipulags sveitarfélaga: Hvernig sveitarfélagið sjálft skipuleggur landnotkun og atvinnusvæði til framtíðar.
- Raunkostnaðar: Upplýsinga um línulengdir, viðhald og raunverulegan kostnað við að koma rafmagninu til skila.
- Kortagagna og byggðaeinkenna: Landfræðilegra gagna sem sýna raunverulega tengingu við dreifikerfið.
Athygli er vakin á því að umsagnarfrestur í samráðsgátt stjórnvalda vegna draga að reglugerðinni er til 3. apríl næstkomandi.