25 mars 2026
/
Mál nr. 31/2025 - Úrskurður
Mál nr. 31/2025
Úrskurður kærunefndar jafnréttismála
A
gegn
umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu.
Skipan nefndar. Aðild. Frávísun.
Kærandi kærði skipan umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins í svæðisstjórn Vatnajökulsþjóðgarðs og taldi hana brjóta gegn 28. gr. laga nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. Þar sem kæranda skorti lögvarða hagsmuni af úrlausn málsins var því vísað frá nefndinni.
- Á fundi kærunefndar jafnréttismála hinn 25. mars 2026 er tekið fyrir mál nr. 31/2025 og kveðinn upp svohljóðandi úrskurður:
- Með kæru, dags. 24. október 2025, kærði A ákvörðun umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins frá 30. apríl 2025 um að skipa tvær konur og sex karla í svæðisstjórn Vatnajökulsþjóðgarðs. Kærandi telur að með þessu hafi ráðuneytið brotið gegn 28. gr. laga nr. 150/2020, um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. Í kæru voru talin upp nöfn þeirra sem skipuð höfðu verið í svæðisstjórnina. Var nafn kæranda ekki þar á meðal. Vísaði kærandi nánar um kæruefnið til fréttar á heimasíðu Stjórnarráðs Íslands.
NIÐURSTAÐA
- Samkvæmt 1. gr. laga nr. 151/2020, um stjórnsýslu jafnréttismála, gilda lögin um stjórnsýslu á sviði jafnréttismála á því sviði sem löggjöf um jafnréttismál tekur til, m.a. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, og um störf kærunefndar jafnréttismála. Samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laganna tekur kærunefnd jafnréttismála til meðferðar kærur sem til hennar er beint samkvæmt framansögðu og kveður upp skriflegan úrskurð um hvort ákvæði laganna hafi verið brotin. Samkvæmt 1. mgr. 9. gr. laganna geta einstaklingar, fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök sem telja að ákvæði laga um jafnréttismál hafi verið brotin gagnvart sér leitað atbeina kærunefndar jafnréttismála í eigin nafni eða fyrir hönd félagsmanna sinna, eftir því sem við á.
- Mál þetta beinist að skipun fulltrúa í tiltekna svæðisstjórn á vegum kærða sem fór fram 30. apríl 2025. Af 1. mgr. 9. gr. laga nr. 151/2020 leiðir að til þess að einstaklingar geti leitað atbeina kærunefndar vegna brota á ákvæðum laganna verða þeir að eiga lögvarða hagsmuni af úrlausn um efnisatriði kæru. Verður ekki ráðið af fyrirliggjandi gögnum að ákvæði laga nr. 150/2020 hafi verið brotin gagnvart kæranda. Samkvæmt því verður ekki séð að kærandi hafi lögvarða hagsmuni af úrlausn málsins. Þegar af þeirri ástæðu er málinu vísað frá nefndinni, sbr. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 151/2020 og 1. mgr. 23. gr. reglugerðar nr. 1320/2024, um kærunefnd jafnréttismála.
Ú r s k u r ð a r o r ð
Máli þessu er vísað frá kærunefnd jafnréttismála.
Ari Karlsson
Andri Árnason
Maren Albertsdóttir