26 mars 2026
/
1347/2026. Úrskurður frá 26. mars 2026
Hinn 26. mars 2026 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 1347/2026 í máli ÚNU 26010008.
Kæra og málsatvik
Með erindi, dags. 14. janúar 2026, kærði […], fréttamaður hjá Ríkisútvarpinu, til úrskurðarnefndar um upplýsingamál ákvörðun Reykjavíkurborgar að synja beiðni hans um aðgang að gögnum.
Með erindi, dags. 13. janúar 2026, óskaði kærandi eftir upplýsingum um athugun hjá Reykjavíkurborg sem lyti að framsali hluta í tilteknu félagi um lóðauppbyggingu. Til nánari afmörkunar vísaði kærandi til fréttar sem birt var á mbl.is þann 9. febrúar, með fyrirsögninni „Lögfræðingar kanna hvort […] hafi framselt hlut sinn“, og lagði fram tilteknar spurningar um þá athugun sem vísað var til í fréttinni.
Í svari Reykjavíkurborgar til kæranda, dags. 14. janúar 2026, kom fram að lögfræðingar á umhverfis- og skipulagssviði hefðu tekið saman stutta samantekt um framsal á lóðaréttindum. Ekki væri um athugun að ræða heldur hefði skrifstofa borgarstjóra sent umhverfis- og skipulagssviði erindi 9. janúar 2026 þar sem spurt hefði verið hvort rétt væri að óheimilt væri að framselja rétt til lóðar til annars aðila. Tilefni spurningarinnar hefði verið frétt á fjölmiðlinum Heimildinni sem birt var 9. janúar með fyrirsögninni „Sat í stjórn og þrýsti á borgarstjóra en sver af sér hagsmuni.“ Í erindinu spurði skrifstofa borgarstjóra einnig hvernig „þessu var háttað í viðkomandi tilfelli.“ Lögfræðingar á umhverfis- og skipulagssviði hefðu svarað erindinu samdægurs með grunnupplýsingum og svo bætt við frekari upplýsingum þremur dögum síðar.
Kærandi brást við erindi Reykjavíkurborgar samdægurs og óskaði eftir að fá tölvupóstana afhenta sem vísað væri til, þ.e. bæði tölvupóst borgarstjóra og svör lögfræðinganna. Beiðninni var hafnað sama dag með vísan til þess að samskipti borgarstjóra við starfsfólk teldust vera vinnugögn samkvæmt upplýsingalögum. Samskiptin hefðu átt sér stað til undirbúnings umræðu. Þau hefðu ekki verið send öðrum en starfsfólki Reykjavíkurborgar og borgarstjóra. Þá ættu engin af þeim atriðum við sem getið væri um í 3. mgr. 8. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012. Ekki þætti tilefni til að veita aukinn aðgang að gögnunum samkvæmt 11. gr. laganna. Takmörkun á aðgangi að gögnunum væri til þess fallin að tryggja réttmæta hagsmuni Reykjavíkurborgar. Ekki væru fyrir hendi hagsmunir eða málefnaleg sjónarmið sem leiða ættu til aukins aðgangs að gögnunum.
Málsmeðferð
Kæran var kynnt Reykjavíkurborg með erindi, dags. 14. janúar 2026, og borginni gefinn kostur á að koma á framfæri umsögn um hana. Þá var þess óskað að afhent yrðu þau gögn sem kæran varðar.
Umsögn Reykjavíkurborgar barst úrskurðarnefndinni með erindi, dags. 28. janúar 2026. Í umsögninni kemur fram sú afstaða borgarinnar að tölvupóstarnir sem óskað sé eftir innihaldi samskipti til undirbúnings umræðu um reglur sem gildi um framsal lóða. Þeir uppfylli skilyrði þess að teljast vinnugögn samkvæmt upplýsingalögum. Engin af þeim atriðum sem getið sé um í 3. mgr. 8. gr. upplýsingalaga eigi við um gögnin. Ákvæði 3. tölul. 3. mgr. 8. gr. laganna taki til upplýsinga um atvik máls en ekki til skoðana, tillagna, vangavelta eða annarra þátta sem teljist til innri undirbúnings. Kjarni málsins, forsendur og staðreyndir hafi verið sendar til kæranda. Almenn birting tölvupóstanna sé ekki nauðsynleg svo almenningur og fjölmiðlar geti skilið grundvöll og samhengi tiltekinnar ákvörðunar eða athafna stjórnvalda.
Umsögn Reykjavíkurborgar var kynnt kæranda með erindi, dags. 28. janúar 2026, og honum gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum. Frekari athugasemdir bárust ekki frá kæranda.
Niðurstaða
Í máli þessu er deilt um rétt kæranda til aðgangs að tölvupóstsamskiptum í vörslu Reykjavíkurborgar sem varða framsal lóðaréttinda. Reykjavíkurborg telur að samskiptin séu vinnugögn í skilningi upplýsingalaga og að því sé heimilt að takmarka aðgang kærenda að þeim.
Í 1. mgr. 8. gr. upplýsingalaga er mælt fyrir um að vinnugögn séu þau gögn sem stjórnvöld eða aðrir aðilar samkvæmt I. kafla laganna hafi ritað eða útbúið til eigin nota við undirbúning ákvörðunar eða annarra lykta máls. Séu gögn afhent öðrum teljist þau ekki lengur til vinnugagna nema þau hafi verið afhent eftirlitsaðila á grundvelli lagaskyldu. Í athugasemdum við 8. gr. með frumvarpi því sem varð að upplýsingalögum, nr. 140/2012, kemur eftirfarandi fram:
Stjórnvöldum er að lögum falið að taka ýmsar matskenndar ákvarðanir og móta tillögur um áætlanir eða aðrar aðgerðir. […] Oft geyma lög ekki að öllu leyti þau skilyrði sem þarf að fullnægja svo slíkar ákvarðanir verði teknar, eða þau sjónarmið eða markmið sem að skal stefnt. Þegar stjórnvöld standa frammi fyrir slíkum verkefnum verða þau iðulega að vega og meta ólík sjónarmið og velja svo á hvaða grundvelli úr máli skuli leyst. Af því leiðir að það tekur einatt einhvern tíma að móta afstöðu til fyrirliggjandi mála og á því tímabili kunna ólík sjónarmið að hafa mismunandi vægi og breytast, t.d. ef fram koma nýjar upplýsingar. Gögn sem til verða í slíku ferli þurfa ekki að endurspegla réttilega að hvaða niðurstöðu er stefnt. Eðlilegt er því að stjórnvöldum sé heimilt að hafna aðgangi að þeim þótt stjórnvöldum sé einnig á grundvelli reglunnar um aukinn aðgang að gögnum heimilt að afhenda slík gögn, standi reglur um þagnarskyldu því ekki í vegi. […]
Úrskurðarnefndin hefur farið yfir tölvupóstsamskiptin, sem Reykjavíkurborg afhenti samhliða umsögn til nefndarinnar og álítur vinnugögn í skilningi upplýsingalaga, með það fyrir augum að leggja mat á hvort þau uppfylli skilyrðin að vera í reynd undirbúningsgögn, að hafa verið rituð eða útbúin af starfsmönnum Reykjavíkurborgar og að hafa ekki verið afhent öðrum. Með vísan til þess að 8. gr. upplýsingalaga er takmörkun á upplýsingarétti samkvæmt meginreglu 5. gr. laganna ber að mati nefndarinnar að túlka ákvæðið þröngt.
Þau gögn sem kærandi hefur óskað eftir og afhent voru úrskurðarnefndinni eru í fyrsta lagi tölvupóstur frá skrifstofu borgarstjóra, dags. 9. janúar 2025, til umhverfis- og skipulagssviðs með fyrirspurn um heimild til framsals lóðarréttinda til annars aðila og hvernig framsali hafi verið háttað í tilgreindu tilviki. Í öðru lagi er tölvupóstur frá umhverfis- og skipulagssviði, dags. 9. janúar 2025, til skrifstofu borgarstjóra með svörum við fyrirspurninni, þar sem m.a. eru upplýsingar um tilgreinda lóð, skilmála úthlutunarbréfs og greiðslufyrirkomulag. Í þriðja lagi er tölvupóstur frá umhverfis- og skipulagssviði, dags. 13. janúar 2025, þar sem framsendar eru upplýsingar úr bókhaldi Reykjavíkurborgar um hvort tilgreindar greiðslur vegna lóðarinnar hafi borist og þannig hvort skilyrði til framsals hafi verið uppfyllt.
Úrskurðarnefndin dregur ekki í efa að gögnin hafi verið rituð af starfsfólki Reykjavíkurborgar til eigin nota og að þau hafi ekki verið afhent öðrum í skilningi 1. mgr. 8. gr. upplýsingalaga. Á hinn bóginn telur nefndin að gögnin geti ekki í reynd talist vera undirbúningsgögn í skilningi sama ákvæðis. Kærandi hefur þegar verið upplýstur um innihald fyrsta tölvupóstsins frá 9. janúar 2026. Tölvupóstarnir frá umhverfis- og skipulagssviði sem kærandi hefur óskað aðgangs að samkvæmt beiðni sinni til borgarinnar innihalda nær einungis upplýsingar um úthlutun tiltekinnar lóðar, skilmála úthlutunarbréfs og hvort skilyrði til framsals hafi verið uppfyllt í því tilviki. Þeir innihalda ekki hugleiðingar um meðferð eða úrlausn málsins, ráðgjöf um hvernig ætti að bregðast við eða ályktanir til bráðabirgða sem hefðu getað tekið breytingum.
Í skýringum Reykjavíkurborgar í málinu hefur komið fram að umræddir tölvupóstar hafi verið ritaðir til undirbúnings umræðu um reglur um lóðir. Ekki kemur hins vegar nánar fram hvaða ákvarðanir eða mál sé rætt um í því sambandi. Tölvupóstarnir sem um ræðir teljast því að mati nefndarinnar ekki til gagna sem takmörkunarákvæði 1. mgr. 8. gr. upplýsingalaga er ætlað að vernda. Þar sem aðrar takmarkanir samkvæmt upplýsingalögum eiga ekki við um gögnin verður hin kærða ákvörðun Reykjavíkurborgar felld úr gildi og lagt fyrir borgina að veita kæranda aðgang að gögnunum.
Úrskurðarorð
Reykjavíkurborg skal veita kæranda, […], aðgang að eftirfarandi gögnum:
- Tölvupósti frá […] til […], dags. 9. janúar 2026, klukkan 15:15.
- Tölvupósti frá […] til […], dags. 9. janúar 2026, klukkan 22:43.
- Tölvupósti frá […] til […], dags. 13. janúar 2026, klukkan 15:17, ásamt tölvupósti sem fylgir honum og er frá […] til […], dags. 13. janúar 2026, klukkan 15:07.
Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir