26 mars 2026
/
1348/2026. Úrskurður frá 26. mars 2026
Hinn 26. mars 2026 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 1348/2026 í máli ÚNU 26020007.
Beiðni um endurupptöku
Með erindi, dags. 12. febrúar 2026, fór […] fram á að úrskurðarnefnd um upplýsingamál tæki upp mál ÚNU 25080006 sem lauk með úrskurði nr. 1334/2026 frá 12. febrúar 2026. Í erindinu kemur fram að verulegir annmarkar hafi verið á rannsókn og málsmeðferð nefndarinnar. Nefndin hafi lagt til grundvallar að þau gögn sem beiðandi hefði óskað eftir teldust ekki fyrirliggjandi í skilningi upplýsingalaga, án þess að rannsaka frekar atriði eins og hvað fælist í þeirri fullyrðingu embættis landlæknis að gögnin væru ekki fyrirliggjandi, í hvaða mynd gögnin væru varðveitt og aðgengileg, hvaða tiltekna vinnsla væri talin nauðsynleg áður en afhending gæti farið fram, umfang vinnunnar og eðli hennar o.fl.
Þá yrði ekki séð að afstaða hafi verið tekin til þeirra fullyrðinga landlæknis að þau gögn og upplýsingar sem óskað væri eftir féllu undir rannsóknarskyldu eða leyfisveitingar vegna vísindarannsókna, þrátt fyrir að beiðnin hafi beinlínis tekið til ópersónugreinanlegra gagna. Með vísan til þessa sé óskað eftir endurupptöku málsins.
Niðurstaða
Í úrskurði úrskurðarnefndar um upplýsingamál nr. 1334/2026 frá 12. febrúar 2026 var það niðurstaða nefndarinnar að ekki væru forsendur til að draga í efa staðhæfingu embættis landlæknis að gagn með þeim upplýsingum sem endurupptökubeiðandi óskaði eftir lægi ekki fyrir í skilningi upplýsingalaga og að embættinu væri á grundvelli laganna óskylt að ráðast í þá vinnu sem það útheimti að verða við beiðninni. Var hin kærða ákvörðun því staðfest.
Í 24. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, er mælt fyrir um endurupptöku stjórnsýslumáls:
Eftir að stjórnvald hefur tekið ákvörðun og hún verið tilkynnt á aðili máls rétt á því að mál sé tekið til meðferðar á ný ef:
- ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik, eða
- íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.
Eftir að þrír mánuðir eru liðnir frá því að aðila var tilkynnt um ákvörðun skv. 1. tölul. 1. mgr., eða aðila var eða mátti vera kunnugt um breytingu á atvikum þeim sem ákvörðun skv. 2. tölul. 1. mgr. var byggð á, verður beiðni um endurupptöku máls þó ekki tekin til greina, nema að fengnu samþykki frá öðrum aðilum málsins. Mál verður þó ekki tekið upp að nýju ef ár er liðið frá fyrrgreindum tímamörkum nema veigamiklar ástæður mæli með því.
Endurupptökubeiðandi telur að á rannsókn og málsmeðferð nefndarinnar hafi verið slíkir annmarkar. Af því tilefni tekur nefndin fram að skýringar embættis landlæknis á umfangi þeirrar vinnu sem það krefðist að verða við beiðni endurupptökubeiðanda töldust nægjanlegar til að unnt væri að leggja mat á hvort þær upplýsingar sem óskað var eftir teldust vera fyrirliggjandi gagn í skilningi upplýsingalaga. Þar sem málinu var ráðið til lykta á þessum grundvelli var ekki nauðsynlegt að taka afstöðu til þýðingar laga um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði í úrskurðinum.
Að mati úrskurðarnefndar um upplýsingamál eru skilyrði 24. gr. stjórnsýslulaga ekki uppfyllt, og verður málið því ekki endurupptekið á þeim grundvelli. Þegar 24. gr. stjórnsýslulaga sleppir kann úrskurðarnefnd um upplýsingamál eftir atvikum að vera rétt og heimilt að endurupptaka mál á ólögfestum grundvelli. Í því tilviki sem hér um ræðir kemur það að mati nefndarinnar til álita ef rökstuddar vísbendingar eru um að á úrskurðum hennar séu verulegir annmarkar að lögum. Úrskurðarnefndin telur að slíkar vísbendingar séu ekki til staðar. Að þessu virtu telur úrskurðarnefndin að ekki séu til staðar vísbendingar um að á úrskurðinum hafi verið verulegur annmarki að lögum.
Með vísan til framangreinds er hafnað beiðni um endurupptöku máls ÚNU 25080006 sem lauk með úrskurði úrskurðarnefndar um upplýsingamál nr. 1334/2026, frá 12. febrúar 2026.
Úrskurðarorð
Beiðni […], dags. 12. febrúar 2026, um endurupptöku máls ÚNU 25080006 sem lauk með úrskurði úrskurðarnefndar um upplýsingamál nr. 1334/2026, frá 12. febrúar 2026, er hafnað.
Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir