26 mars 2026
/
Uppfærðar leiðbeiningar um framkvæmd sérstaks húsnæðisstuðnings til leigjenda
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið hefur uppfært tekjuviðmið í leiðbeiningum ráðherra til sveitarfélaga um framkvæmd sérstaks húsnæðisstuðnings til leigjenda. Fjárhæðirnar hækka um 6,5% frá síðustu útgáfu sem birt var í júlí 2025.
Annars vegar er um árlega uppfærslu að ræða og hins vegar uppfærslu í tengslum við innleiðingu á nýju örorkukerfi sem tók gildi 1. september síðastliðinn.
Sérstökum húsnæðisstuðningi sveitarfélaga er ætlað að lækka greiðslubyrði vegna húsnæðiskostnaðar hjá þeim sem ekki eru á annan hátt færir um að sjá sér fyrir húsnæði eða eru með íþyngjandi húsnæðiskostnað vegna lágra tekna / lítilla eigna, þungrar framfærslubyrði og félagslegra aðstæðna.
Nýju tekjumörkin eru eftirfarandi:
Eignamörk hafa einnig verið hækkuð og viðmiðunarfjárhæðin færð til samræmis við þá fjárhæð sem reiknað er með í húsnæðisbótakerfinu, það er 13,9 m.kr. frá og með 1. janúar 2026.
Ráðuneytið beinir því til sveitarfélaga að taka mið af framangreindu við endurskoðun eigin reglna um sérstakan húsnæðisstuðning.