27 mars 2026
/
Alþingi samþykkti breytingar á tólf lagabálkum til þess að einfalda regluverk orkumála
Frumvarp umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra sem felur í sér breytingar á tólf lagabálkum til einföldunar regluverks og samræmingar leyfisferla var samþykkt á Alþingi í dag. Markmið breytinganna er að stytta ferla, fækka afgreiðslustöðum og auka skilvirkni í stjórnsýslu umhverfis- og orkumála án þess að slá af kröfunni um almenningssamráð og vandaða málsmeðferð.
Með frumvarpinu, sem Jóhann Páll Jóhannsson mælti fyrir í nóvember á síðasta ári, eru matsskilyrðismörk vegna hagnýtingar jarðhita til hitaveitu hækkuð, ekki verður lengur gerð krafa um starfsleyfi vegna hverrar einustu borframkvæmdar og umhverfismatsskylda vegna föngunar kolefnis frá jarðvarmavirkjunum fellur brott. Í frumvarpinu er að finna ákvæði sem gerir stjórnvöldum kleift að veita rannsóknarleyfi vegna vindorkunýtingar á hafi og sjávarfallavirkjana utan netlaga. Þá fær ráðherra auknar heimildir til að kveða á um að atvinnustarfsemi sé skráningarskyld en ekki starfsleyfisskyld.
Ýmis önnur nýmæli er að finna í frumvarpinu en ein stærsta breytingin er sú að Umhverfis- og orkustofnun fær víðtækar heimildir til þess að sameina afgreiðslu mismunandi leyfa í eina leyfisveitingu. Jafnframt er mælt er fyrir um að afgreiðsla leyfa vegna verkefna í orkunýtingarflokki rammaáætlunar fái forgangsmeðferð hjá stofnuninni.
Þann 19. febrúar síðastliðinn samþykkti Alþingi víðtækar breytingar á lagaumgjörð rammaáætlunar með fastákveðnum tímafrestum, færri og styttri samráðsferlum og ákvæðum um mörkun orkuöflunarstefnu með tölulegum markmiðum. Saman er þessum tveimur frumvörpum sem nú hafa orðið að lögum ætlað að stytta verulega þann tíma sem tekur að koma virkjun af hugmyndastigi yfir á framkvæmdastig. Í ráðuneytinu er jafnframt unnið að breytingum á reglugerð um framkvæmd raforkulaga sem miða að sama markmiði.