27 mars 2026
/
Mælt fyrir nýjum heildarlögum um leiðarmerki og öryggi siglinga
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra mælti í gær á Alþingi fyrir nýjum heildarlögum um leiðarmerki og öryggi siglinga sem koma munu í stað laga um vitamál (nr. 132/1999). Markmið með nýjum lögum er að tryggja öruggar og greiðar siglingar við Ísland með notkun vita og annarra leiðarmerkja.
Í framsöguræðu sinni sagði innviðaráðherra að tilgangur nýrra heildarlaga væri að einfalda rekstur leiðbeiningakerfa siglinga á Íslandi og gera skiptingu verkefna milli aðila skýrari og mynda þannig samhljóm við aðra málaflokka samgangna án þess að dregið verði úr kröfum um öryggi. Einnig er nýjum lögum ætlað að uppfylla alþjóðlegar skuldbindingar Íslands í málaflokknum.
„Þjóðfélagið hefur breyst mikið síðan núgilandi lög um vitamál voru sett. Sjósækinn iðnaður hefur aukist með tilheyrandi mannvirkjum í og á hafi. Samhliða þessu hefur verið kallað eftir því að öryggi siglinga sé tryggt og það hyggjumst við gera með nýjum heildarlögum á þessu sviði,“ sagði Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra.
Ákvæði um áhættumat siglinga
Í frumvarpinu er nýtt ákvæði um áhættumat siglinga en ákall hefur verið um að tryggja lagastoð fyrir slíku áhættumati og framkvæmd þess. Í ákvæðinu er einnig að finna heimild fyrir ráðherra til að setja reglugerð með nánari ákvæðum um áhættumat siglinga. Með þessu nýja ákvæði verður tryggt að mannvirki séu ekki reist í eða á hafi nema áhættumat siglinga, og þær mildunaraðgerðir sem áhættumatið kveður á um, hafi verið framkvæmt.
Ráðuneytið vann frumvarpsdrögin í nánu samráði við Landhelgisgæslu Íslands, Samgöngustofu og Vegagerðina. Frumvarpið var kynnt í samráðsgátt í janúar og febrúar sl. Í umsögnum var að finna jákvæðar undirtektir við markmið frumvarpsins en ýmsum athugasemdum var einnig komið á framfæri. Að lokinni úrvinnslu umsagna voru gerðar nokkrar efnislegar breytingar á frumvarpinu en einnig var orðalag fínpússað í nokkrum ákvæðum og í greinargerð til að auka skýrleika.