28 mars 2026
/
Utanríkisráðherra fundaði með ráðamönnum í Berlín og heimsótti Alþjóðlega hafréttardóminn í Hamborg
„Þjóðverjar eru mikilvægir vinir og traustir bandamenn okkar Íslendinga. Við tölum til að mynda fyrir virðingu fyrir alþjóðalögum, lýðræði og mannréttindum. Við leggjum einnig áherslu á öflugt atvinnulíf og sterkan innri markað EES. Það er kraftur í tvíhliða samskiptum ríkjanna, hvort sem litið er til viðskipta, menningar eða varnarsamstarfs. Á fundum mínum fann ég mikinn samhljóm hvað þessi mál varðar og vilja til að stuðla að frekari styrkingu sambands Íslands og Þýskalands,“ segir Þorgerður Katrín.
Í fyrradag heimsótti Þorgerður Katrín Alþjóðlega hafréttardómstólinn í Hamborg. Dómstóllinn starfar á grundvelli hafréttarsamnings Sameinuðu þjóðanna sem Ísland er aðili að og fagnar dómstóllinn 30 ára afmæli á þessu ári. Forseti dómstólsins, Tómas H. Heiðar, tók á móti Þorgerði Katrínu og kynnti starfsemina. Þau ræddu meðal annars mikilvægt hlutverk dómstólsins í hinu reglubundna alþjóðakerfi og nýlega yfirlýsingu Íslands um samþykkt lögsögu dómstólsins í deilumálum um túlkun hafréttarsamningsins og undirsamninga hans.
Þá sótti Þorgerður Katrín tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Elbphilharmonie-tónleikahöllinni í Hamborg á fimmtudagskvöld, hitti efnahagsráðherra sambandslandsins Hamborgar og var viðstödd móttöku fyrirhugaðs kjörræðismann Íslands í Hamborg, þar sem einnig voru staddir fulltrúa íslenskra og þýskra fyrirtækja.