30 mars 2026

/

GRÓ nemendur í Malaví stofna hollnemafélag

{image.Description}
Hópmynd af útskrifuðum malavískum nemendum GRÓ skólanna ásamt starfsfólki utanríkisráðuneytisins.

Nemendur frá Malaví sem útskrifast hafa frá öllum fjórum skólum GRÓ - Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu ákváðu að stofna hollnemafélag á viðburði sendiráðs Íslands í Lilongwe og GRÓ þann 26. mars. Þetta var í fyrsta sinn sem útskrifaðir nemendur GRÓ skólanna fjögurra komu saman í landinu, en skólarnir starfa á sviði jarðhita, sjávarútvegs, landgræðslu og jafnréttis.

Hollnemafélög GRÓ skólanna eru vettvangur fyrir samstarf þar sem fyrrum nemendur geta unnið saman að því að koma þekkingu sinni á framfæri og þróað nýja hæfni til að styðja við framgang sjálfbærrar þróunar í heimalöndum sínum. Einnig er tilgangur slíkra félaga að styrkja tengsl nemenda við sendiráð Íslands í samstarfsríkjum Íslands í þróunarsamvinnu. Þar sem GRÓ starfar undir merkjum Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) skapast einnig tækifæri til að tengja fyrrum nemendur við skrifstofur UNESCO í heimalöndum sínum.

GRÓ - Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu samanstendur af fjórum skólum með sérstaka áherslu á að efla getu stofnana, samtaka og einstaklinga í þróunarríkjum. Skólarnir fjórir hafa um áratugaskeið verið einn mikilvægasti þáttur í alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands. Jafnréttisskóli GRÓ, Jarðhitaskóli GRÓ, Landgræðsluskóli GRÓ og Sjávarútvegsskóli GRÓ starfa á Íslandi og voru settir á laggirnar í þeim tilgangi að byggja upp mannauð í þróunarríkjum á sviðum þar sem fyrir hendi er íslensk sérþekking.