01 apríl 2026

/

Heimsókn ráðherra til Slökkviliðsins

{image.Description}

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra heimsótti í vikunni Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins (SHS) til að kynna sér starfsemi þess með sérstaka áherslu á sjúkraflutninga. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sinnir sjúkraflutningum á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt samningi við Sjúkratryggingar Íslands en sjúkraflutningar teljast til heilbrigðisþjónustu og heyra því undir heilbrigðisráðuneytið. Starfssvæði SHS nær til alls höfuðborgarsvæðisins og þjónar yfir 230.000 íbúum.

Með ráðherra í för voru aðstoðarmaður ráðherra auk sérfræðinga úr ráðuneytinu af skrifstofu stafrænnar heilsu. Heimsóknin var í höfuðstöðvum SHS í Skógarhlíð þar sem ráðherra og fylgdarlið áttu fund með Birgi Finnssyni slökkviliðsstjóra og öðrum stjórnendum.

Í heimsókninni gafst ráðherra kostur á að skoða sjúkrabifreið og búnað sjúkraflutningarmanna ásamt því að heilsa upp á sjúkraflutningamenn á vakt og kynna sér nánar framkvæmd sjúkraflutninga. Að því loknu var farið yfir helstu verkefni SHS og þær áskoranir sem starfsemin stendur frammi fyrir, meðal annars í ljósi aukins álags og vaxandi eftirspurnar eftir þjónustu.

Starfsemin er ráðherra ekki ókunnug, en Alma starfaði sem læknir á sjúkrabílum á árum áður. Hún sagði heimsóknina hafa verið bæði fróðlega og gagnlega. „Það er afar mikilvægt að hafa góða yfirsýn yfir þessa mikilvægu heilbrigðisþjónustu og sjá af eigin raun það faglega starf sem hér er unnið á hverjum degi. Sjúkraflutningar eru lykilþáttur í heilbrigðiskerfinu og skipta sköpum fyrir öryggi og velferð almennings,“ sagði ráðherra.

Birgir Finnsson slökkviliðsstjóri sagði mikilvægt að stjórnvöld hefðu góðan skilning á starfsemi liðsins. „Það er mikilvægt að það sé góður skilningur á okkar störfum hjá stjórnvöldum og erum við þakklát Ölmu fyrir innlitið. Heimsóknir sem þessar skapa tækifæri til uppbyggilegs samtals um þróun þjónustunnar og þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir,“ sagði hann.

Heilbrigðisráðherra að störfum á árum áður

Heilbrigðisráðherra við störf á árum áður. Ljósmyndari óþekktur.