01 apríl 2026
/
Mál nr. 1/2026-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 1/2026
Miðvikudaginn 1. apríl 2026
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 1. janúar 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 4. desember 2025, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 28. júlí 2025 og var umsóknin samþykkt 20. ágúst 2025. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. október 2025, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hún hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði. Mál kæranda var tekið fyrir að nýju af hálfu Vinnumálastofnunar með tilliti til nýrra gagna. Með ákvörðun stofnunarinnar, 4. desember 2025, var kæranda tilkynnt að fyrri ákvörðun væri staðfest þar sem sú ákvörðun hefði að geyma efnislega rétta niðurstöðu þrátt fyrir ný gögn í málinu en að biðtími væri á grundvelli 1. mgr. 59. gr. í stað 58. gr. laga nr. 54/2006.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 1. janúar 2026. Með bréfi, dags. 15. janúar 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 11. febrúar 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 16. febrúar 2026. Leiðrétt greinargerð barst frá Vinnumálastofnun 9. mars 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 10. mars 2026. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Kærandi greinir frá því að Vinnumálastofnun hafi tilkynnt henni um skyldumætingu á fund í gegnum netfang en tilkynningin hafi flokkast sem ruslpóstur og þar af leiðandi farið fram hjá henni. Öll önnur skilaboð frá stofnuninni komi ýmist á island.is eða í gegnum önnur netföng sem fari í innhólfið. Kæranda hafi verið tilkynnt að hún þyrfti að sæta viðurlögum og eigi ekki að fá greiddar atvinnuleysisbætur í tvo mánuði.
Kærandi hafi útskýrt mál sitt en skýringar hennar hafi ekki verið teknar til greina. Hún hafi sagt stofnuninni að hún hefði hvort sem er ekki komist á þessum degi þar sem hún hafi verið heima með veikt barn. Henni hafi þá verið sagt að skila inn vottorði. Þegar kærandi hafi skilað inn vottorði hafi mál hennar verið endurskoðað en niðurstaðan verið sú að hún hafi farið með rangt mál og ætti því að sæta viðurlögum í þrjá mánuði í stað tveggja. Í öðru bréfi hafi staðið að refsingin hefði þyngst þar sem kærandi hafi sagt upp síðasta starfi en hún hafi verið á bótum áður og þegar hún hafi farið aftur að vinna hafi hún verið í „pásu“ frá bótunum en enn verið á atvinnuleysisskrá.
Kærandi greinir frá því að núna hafi hún fengið bréf um að hún hafi verið tekin af atvinnuleysisskrá þar sem hún hafi ekki staðfest atvinnuleit en kærandi haldi því fram að það sé ekki satt. Upplifun hennar sé sú að það sé verið að gera allt til að greiða fólki ekki atvinnuleysisbætur og þess vegna vilji hún kæra þessa ákvörðun Vinnumálastofnunar.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 28. júlí 2025. Með erindi, dags. 20. ágúst 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 92%.
Þann 10. september 2025 hafi kærandi verið boðuð á kynningarfund hjá Vinnumálastofnun þann 12. september 2025, klukkan 10:00. Kæranda hafi verið bent á að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar yrðu stöðvaðar eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Boðun þessi hafi verið send þann 10. september 2025, klukkan 10:53 á „Mínar síður“ kæranda, með tölvupósti á uppgefið netfang X og með smáskilaboðum í farsímanúmerið X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 10. september 2025, klukkan 10:53. Kærandi hafi hvorki mætt né boðað forföll.
Með tilkynningu, dags. 17. september 2025, hafi kærandi aftur verið boðuð á kynningarfund hjá Vinnumálastofnun þann 19. september 2025, klukkan 10:00. Kæranda hafi verið bent á að um lokaboðun væri að ræða, skyldumæting væri og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar á netfangið [email protected]. Athygli kæranda hafi verið vakin á að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar yrðu stöðvaðar eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Boðun þessi hafi verið send þann 17. september 2025 á „Mínar síður“ kæranda, með tölvupósti á uppgefið netfang X og með smáskilaboðum í farsímanúmerið X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 19. september 2025, klukkan 08:46. Kærandi hafi hvorki mætt né boðað forföll.
Þann 21. september 2025 hafi borist tölvupóstur frá kæranda þar sem hún hafi sagst hafa átt að mæta á kynningarfund en vegna veikinda sonar hennar hafi hún boðað forföll en sent á rangt netfang. Þann 1. október 2025 hafi Vinnumálastofnun óskað eftir frekari skýringum á fjarveru kæranda á boðaðan upplýsingafund þann 19. september 2025. Kærandi hafi skilað svohljóðandi skýringum þann 2. október 2025:
„Góðan dag. Ég átti að mæta á kynningarfund hjá ykkur en yngsti sonur minn var veikur og því komst ég ekki. Undir venjulegum kringumstæðum hefði ég fengið pössun fyrir hann en það gekk því miður ekki í þetta skiptið þar sem pabbinn var sjálfur á mjög mikilvægum fundi og amma og afi vestur í X. Ég sendi póst og lét vita og óskaði eftir að mæta á næsta kynningarfund en þá var mér tilkynnt að það yrði ekki annar fundur. Ef ég get á einhvern hátt bætt þetta upp vil ég gera það.“
Með erindi, dags. 13. október 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar hefðu verið felldar niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. og 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem hún hefði ekki mætt í vinnumarkaðsúrræði. Kæranda hafi áður verið gert að sæta tveggja mánaða bið vegna starfsloka með ákvörðun, dags. 20. nóvember 2023.
Með tölvupósti, dags. 16. október 2025, hafi kærandi sagst hafa misst af skilaboðum stofnunarinnar þar sem allir póstar frá stofnuninni hefðu ratað í „updates“ möppu í tölvupósti hennar. Þann 13. nóvember 2025 hafi kærandi sent stofnuninni læknisvottorð, dags. 27. október 2025, þar sem fram komi að kærandi hafi verið óvinnufær með öllu vegna sjúkdóms á tímabilinu 19. til 20. september 2025. Í kjölfar þess að læknisvottorð hafi borist frá kæranda hafi ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. október 2025, verið tekin til endurumfjöllunar þann 4. desember 2025. Þar sem kærandi hafi ekki upplýst Vinnumálastofnun tafarlaust um veikindi sín og ekki boðað forföll á boðaðan kynningarfund þann 19. september 2025 hafi fyrri ákvörðun, dags. 13. október 2025, verið staðfest. Í ljósi þess að kærandi hafi látið líða hjá að tilkynna Vinnumálastofnun um veikindi sín á þeim tíma sem hún hafi verið boðuð á kynningarfund í september 2025 hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 59. gr. í stað 58. gr. laga nr. 54/2006.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Mál þetta lúti að ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslur atvinnuleysistrygginga til kæranda þar sem hún hafi ekki sinnt mætingu á boðuð vinnumarkaðsúrræði og hafi ekki sinnt tilkynningarskyldu sinni gagnvart stofnuninni.
Samkvæmt a. lið 13. gr. og [h.] lið 1. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé eitt af skilyrðum fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna að viðkomandi sé virkur í atvinnuleit og í því felist meðal annars að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum og mæta í viðtöl hjá ráðgjöfum Vinnumálastofnunar.
Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:
„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“
Í 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar segi svo:
„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“
Hin kærða ákvörðun, dags. 4. desember 2025, hafi varðað viðurlög sem kæranda hafi verið gert að sæta á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laganna. Vinnumálastofnun hafi ekki borist tilkynning um forföll kæranda á kynningarfund sem hún hafi verið boðuð á. Þá hafi kærandi ekki upplýst að hún væri óvinnufær með öllu vegna sjúkdóms á tímabilinu 19. til 20. september 2025 fyrr en eftir að stofnunin hafi óskað eftir skýringum á fjarveru hennar á viðkomandi fund.
Kærandi hafi áður sætt biðtíma vegna starfsloka hennar í nóvember 2023 og því komi til beitingar 1. mgr. 61. gr laganna sem sé svohljóðandi:
„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. eða 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“
Í ljósi þess að rík skylda hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum og að tilkynna Vinnumálastofnun um allar þær breytingar sem verði á högum þeirra sé það mat Vinnumálastofnunarinnar að skýringar þær sem kærandi hafi fært fram teljist ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistrygginga og að með því að uppfylla ekki skilyrði um mætingu né tilkynna um forföll hafi hún brugðist skyldum sínum skv. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Þar sem kærandi hafi sætt biðtíma í nóvember 2023 sökum þess að starfslok hennar hafi ekki verið metin gild komi til beitingar 1. mgr. 61. gr. laganna en þar segi að sá sem hafi sætt niðurfellingu bótaréttar áður, á sama bótatímabili, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en að þremur mánuðum liðnum.
Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta þriggja mánaða biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Í 59. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því að láta hjá líða að veita upplýsingar eða láta hjá líða að tilkynna um breytingar á högum. Ákvæðið er svohljóðandi:
„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“
Samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 skal sá sem telst tryggður á grundvelli laganna upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir. Í 2. mgr. 14. gr. laganna kemur einnig fram að hinn tryggði skuli tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr., þar á meðal um tilfallandi veikindi, án ástæðulausrar tafar. Þá segir meðal annars í 5. mgr. 14. gr. laganna að hinn tryggði skuli tilkynna um upphaf og lok veikinda til Vinnumálastofnunar án ástæðulausrar tafar. Jafnframt skuli hann skila inn læknisvottorði innan viku frá lokum veikindanna óski Vinnumálastofnun eftir því.
Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 17. september 2025 boðuð á kynningarfund hjá Vinnumálastofnun sem haldinn var þann 19. september 2025. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna á tiltekið netfang stofnunarinnar. Kærandi var upplýst um að ekki væri hægt að fá nýjan fund en ástæður forfalla yrðu sendar á Greiðslustofu til skoðunar þar sem tekin yrði afstaða til mögulegra viðurlaga í formi tímabundinnar eða varanlegrar greiðslustöðvunar. Hið sama gilti um ótilkynnt forföll.
Í máli þessu liggur fyrir að kærandi mætti ekki á boðaðan kynningarfund hjá Vinnumálastofnun þann 19. september 2025. Þegar kærandi var innt eftir skýringum á fjarveru sinni kvaðst hún ekki hafa komist vegna veikinda barns. Eftir að Vinnumálastofnun hafði tekið ákvörðun um viðurlög á grundvelli 58. gr. laga nr. 54/2006 lagði kærandi fram læknisvottorð, dags. 27. október 2025, þar sem fram kemur að hún hafi verið óvinnufær með öllu dagana 19. og 20. september 2025.
Í ljósi upplýsingaskyldu 3. mgr. 9. gr., 2. og 5. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 verður fallist á það með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn skyldum sínum er hún tilkynnti stofnuninni ekki strax um upphaf veikinda sinna. Í 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er skýrt kveðið á um beitingu viðurlaga við slíku broti.
Í 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um ítrekunaráhrif fyrri viðurlagaákvarðana. Ákvæðið er svohljóðandi:
„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. eða 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“
Samkvæmt gögnum málsins var bótaréttur kæranda felldur niður í tvo mánuði í nóvember 2023 á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006. Þar sem um sama bótatímabil er að ræða, sbr. 29. gr. laganna, kom til ítrekunaráhrifa samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laganna.
Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 1. mgr. 61. laga nr. 54/2006, staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 4. desember 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir