01 apríl 2026

/

Mál nr. 15/2026-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 15/2026

Miðvikudaginn 1. apríl 2026

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 7. janúar 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 5. janúar 2026, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 17. nóvember 2025. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 5. janúar 2026, var kæranda tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt en með vísan til starfsloka hans væri réttur til atvinnuleysisbóta felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 7. janúar 2026. Með bréfi, dags. 13. janúar 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 11. febrúar 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 16. febrúar 2026. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar vísar kærandi til þess að í svari sem hann hafi fengið frá Greiðslustofu Vinnumálastofnunar komi fram að fyrrverandi vinnuveitandi hans hefði staðfest ástæðu uppsagnar hans. Jafnframt komi fram að kærandi hafi lagt fram skýringar á uppsögn sinni en að það hafi verið mat Vinnumálastofnunar að þær skýringar hefðu ekki verið fullnægjandi í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi hafi haft samband við Vinnumálastofnun og þá hafi verið staðfest að ekki hefði verið haft samband við fyrrverandi vinnuveitanda hans til að staðfesta skýringar kæranda á því hvers vegna hann hafi sagt starfi sínu lausu. Af þeim sökum sé enginn texti í gögnum málsins þar sem staðfesting vinnuveitanda á ástæðum uppsagnar komi fram.

Kærandi byggi á því að samkvæmt umsókn um atvinnuleysisbætur eigi einstaklingur rétt á bótum þrátt fyrir að hafa sjálfur sagt starfi sínu lausu ef gild ástæða liggi að baki uppsögninni. Kærandi hafi í tveimur bréfum til Vinnumálastofnunar útskýrt að fyrirtækið sem hann hafi starfað hjá hafi gengið í gegnum breytingar á stjórnun og eignarhaldi sem hafi skapað aðstæður sem kærandi telji óöruggar eins og atvik sem síðar hafi átt sér stað sýni. Uppsögn kæranda hafi byggst á vantrausti gagnvart nýju eignarhaldi fyrirtækisins. Kærandi hafi lýst atvikum í bréfum sem hafi tengst eiganda fyrirtækisins sem hann telji vera þess eðlis að honum hafi ekki verið unnt að halda áfram störfum á vinnustaðnum.

Að mati kæranda séu þau atvik nægjanleg til að réttlæta að honum hafi ekki fundist vinnustaðurinn öruggur og að starfsfólki hafi ekki verið sýnd virðing. Því hafi verið eðlilegt að hann teldi ekki unnt að halda áfram í starfi hjá fyrirtækinu.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um atvinnuleysisbætur 17. nóvember 2025. Í umsókn hafi kærandi tekið fram að ástæður atvinnuleysis væru þær að hann hefði sjálfur sagt upp störfum hjá B vegna framkomu samstarfsfólks og/eða eineltis. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hafi kærandi starfað hjá fyrirtækinu á tímabilinu febrúar 2019 til 28. nóvember 2025. Kærandi hafi látið eftirfarandi skýringar fylgja með umsókn sinni:

„In summer the company underwent massive management changes in a move that felt like a coup after a very uncomfortable power struggle between shareholders. It triggered a lot of resignations and it was quite a bad period.

Now the workplace, people, work ethics and direction have changed drastically and are not aligned with my beliefs and working under these circumstances is extremely distressing, resulting in physical and psychological symptoms associated with burnout, such as anxiety,sleep deprivation and depression.

I hoped for it to get better but it didn't.“

Þann 22. desember 2025 hafi Vinnumálastofnun sent erindi með ósk um frekari skýringar á starfslokum kæranda. Kærandi hafi verið upplýstur um mögulegan biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysisbóta. Þá hafi jafnframt verið óskað eftir því að kærandi myndi skila staðfestingu þess efnis að hann hefði leitað til stéttarfélags, yfirmanns eða Vinnueftirlits um kvörtunarefni sitt áður en hann hafi hætt í starfi sínu.

Kærandi hafi sent ítarlegt bréf sem hafi verið móttekið 23. desember 2025. Í bréfinu lýsi kærandi frekar aðstæðum þeim sem hafi leitt til uppsagnar hans. Með bréfinu hafi einnig borist skjáskot af samskiptum kæranda við stéttarfélag hans sem hafi innihaldið almennar fyrirspurnir um réttindi hans og afleiðingar eigin uppsagnar.

Með erindi, dags. 5. janúar 2026, hafi umsókn kæranda verið samþykkt og bótaréttur hans hafi numið 100%. Með vísan til starfsloka kæranda hafi réttur hans til greiðslu atvinnuleysisbóta þó verið felldur niður í tvo mánuði, sbr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þá hafi orlof kæranda vegna ótekins orlofs við starfslok verið skráð í samræmi við óskir kæranda.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Lögin veiti þeim fjárhagslegt úrræði og beri að gera ríkar kröfur til þeirra sem segi upp störfum sínum að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.

Í 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um þau tilvik þegar starfi sé sagt upp án gildra ástæðna. Þar segi orðrétt:

,,Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir um þann sem missir starf sitt af ástæðum sem hann sjálfur á sök á.“

Orðalagið ,,gildar ástæður“ hafi verið túlkað þröngt og fá tilvik hafi verið talin falla þar undir. Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í greinargerð með frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar komi fram að með ákvæði þessu sé verið að undirstrika það markmið vinnumarkaðskerfisins að stuðla að virkri atvinnuþátttöku fólks. Í ljósi þess sé ekki gefinn kostur á að fólk segi upp starfi sínu til að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að sérstakar ástæður liggi að baki uppsögninni í tilvikum þar sem annað starf sé ekki í boði. Þar sé jafnframt sérstaklega tekið fram að það sé erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega í lögum og reglugerðum hvaða ástæður, sem liggi að baki uppsögn, séu gildar, þar sem þær ástæður geti verið af margvíslegum toga. Í ljósi þess að um matskennda ákvörðun sé að ræða sé Vinnumálastofnun falið að meta hvernig atvik og aðstæður þess máls er fyrir henni liggi falli að umræddri reglu. Vinnumálastofnun beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Fyrir liggi að kærandi hafi sagt starfi sínu lausu hjá B. Ágreiningurinn snúi að því hvort ástæður kæranda fyrir uppsögn í starfi teljist gildar í skilningi framangreinds ákvæðis 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Úrskurðarnefnd velferðarmála hafi í fyrri úrskurðum sínum talið að almennt beri að gera ríkar kröfur til atvinnuleitanda þegar metið sé hvort ástæður fyrir uppsögn séu gildar samkvæmt 1. mgr. 54. gr. laganna. 

Þær skýringar sem kærandi hafi veitt Vinnumálastofnun á ástæðu uppsagnar sinni í starfi hafi að meginstefnu til verið vegna óánægju með vinnuumhverfi og breytingar á yfirstjórn fyrirtækisins. Kærandi tilgreini sérstaklega að honum sé ekki að skapi vinnuumhverfið, það sé hættulegt heilsu hans og stríði því gegn sannfæringu hans. Samskipti kæranda við C feli lítið annað í sér en almennar fyrirspurnir og þrátt fyrir að félagið hafi boðist til að liðsinna kæranda frekar verði ekki séð að kærandi hafi kosið að nýta sér aðstoð stéttarfélagsins. Í þeim tilvikum sem atvinnuleitandi segi starfi sínu lausu vegna óánægju með starfsumhverfi sitt hafi í framkvæmd verið gerð sú krafa til launamanna að þeir nýti sér öll tiltæk úrræði til úrbóta, svo sem að leita til síns stéttarfélags, vinnueftirlitsins eða að tryggja sér annað starf, áður en þeir ákveði að segja starfi sínu lausu. Fyrir liggi að kærandi hafi ekki tryggt sér annað starf áður en hann hafi sagt starfi sínu lausu. Þá liggi ekki fyrir neinar upplýsingar um að tilraunir til úrbóta hafi verið reyndar áður en kærandi hafi sagt starfi sínu lausu, hvorki með aðkomu atvinnurekanda eða stéttarfélags.

Í ljósi framangreinds sé það mat Vinnumálastofnunar að ástæður þær er kærandi gefi fyrir uppsögn sinni teljist ekki gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Það sé því afstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta biðtíma á grundvelli ákvæðisins.

Með vísan til framangreindra sjónarmiða sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að greiðslur atvinnuleysisbóta skuli fyrst hefjast þegar kærandi hafi verið skráður hjá Vinnumálastofnun án bóta í tvo mánuði.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 54. gr. laganna er svohljóðandi:

„Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir um þann sem missir starf af ástæðum sem hann á sjálfur sök á.“

Óumdeilt er að kærandi sagði upp starfi sínu hjá B en ágreiningur málsins lýtur að því hvort ástæður hans fyrir uppsögninni hafi verið gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006. Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í frumvarpi til laga nr. 54/2006 kemur fram að með ákvæðinu sé undirstrikað það markmið vinnumarkaðskerfisins að stuðla að virkri atvinnuþátttöku fólks. Í því ljósi sé ekki gefinn kostur á að fólk segi upp starfi sínu til að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að sérstakar ástæður liggi að baki uppsögninni í tilvikum þegar annað starf sé ekki í boði. Tekið er fram að það sé erfiðleikum bundið að takmarka þau tilvik sem geti talist til gildra ástæðna í lögum og reglugerðum þar sem ástæður þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missi þau geti verið af margvíslegum toga. Því sé lagt til að lagareglan verði áfram matskennd og Vinnumálastofnun falið að meta atvik og aðstæður hverju sinni. Stofnuninni beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Jafnframt er bent á að um íþyngjandi ákvörðun sé að ræða. Í athugasemdunum er þó sérstaklega vísað til tvenns konar tilvika sem talin eru heyra til gildra ástæðna fyrir starfslokum. Annars vegar þau tilvik þegar maki hins tryggða hafi hafið störf í öðrum landshluta og fjölskyldan hafi af þeim sökum þurft að flytja búferlum. Hins vegar þau tilvik þegar uppsögn megi rekja til þess að atvinnuleitandi hafi sagt upp störfum af heilsufarsástæðum en sé að öðru leyti vinnufær.

Úrskurðarnefnd velferðarmála telur að ráða megi af framangreindu að almennt beri að gera nokkuð ríkar kröfur til atvinnuleitanda þegar metið er hvort ástæður fyrir uppsögn séu gildar samkvæmt 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006.

Kærandi hefur gefið þær skýringar að hann hafi sagt upp starfi sínu hjá B vegna vantrausts hans gagnvart nýjum eiganda fyrirtækisins og atviks sem hafi að hans mati skapað óöruggar og óásættanlegar aðstæður á vinnustaðnum.

Líkt og fram kemur í athugasemdum við ákvæði 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 þurfa sérstakar ástæður að liggja að baki uppsögn þegar einstaklingur hefur ekki tryggt sér annað starf til að heimilt sé að greiða atvinnuleysisbætur frá umsóknardegi. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála er málefnalegt að gera þá kröfu til launþega að þeir segi ekki upp starfi sínu nema við ýtrustu nauðsyn þegar annað starf er ekki í hendi, þegar kemur að því að meta hvort viðkomandi skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Við mat á því hvort um sérstakar ástæður sé að ræða skal Vinnumálastofnun líta til málefnalegra sjónarmiða. Ekki verður séð að slíkt eigi við í tilviki kæranda. Þá liggja ekki fyrir í málinu gögn um að kærandi hafi leitað eftir úrbótum vegna starfsaðstæðna. Hefur því að mati úrskurðarnefndar velferðarmála ekki verið sýnt fram á að um sé að ræða gildar ástæður fyrir uppsögn í skilningi 54. gr. laga nr. 54/2006.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006, staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 5. janúar 2026, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

 

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir