01 apríl 2026

/

Útgáfa fyrstu bókar Bergþóru Snæbjörnsdóttur í Frakklandi

{image.Description}

Bókin Duft eftir Bergþóru Snæbjörnsdóttur kemur út í franskri þýðingu í dag hjá hinni virtu bókaútgáfu Grasset. Titill verksins á frönsku er „La congrégation des magnifiques“ og þýðandi hennar er Hadrien Chalard.

Af því tilefni bauð sendiherra í útgáfuhóf í embættisbústaðnum í gær þar sem saman komu aðstandendur bókarinnar í Frakklandi, blaðamenn, bóksalar og fleiri góðir gestir.

Bók Bergþóru bætist í úrval íslenskra bókmennta sem hafa verið þýddar í frönsku síðustu ár og notið mikillar velgengni. Duft fékk frábærar viðtökur á Íslandi og það verður spennandi að fylgjast með hvernig henni vegnar í Frakklandi.