02 apríl 2026
/
Reglur settar um notkun loftfara og skipa Landhelgisgæslunnar
Dómsmálaráðherra hefur sett reglugerð um nýtingu loftfara og skipa Landhelgisgæslu Íslands í verkefnum sem falla utan lögbundinna og samningsbundinna verkefna stofnunarinnar. Reglurnar eru settar með það að markmiði að tryggja gagnsæi, ábyrgð og skýra umgjörð um slíka nýtingu.
„Við erum að setja skýran ramma utan um notkun mikilvægra björgunartækja ríkisins þegar kemur að verkefnum sem falla utan lögbundinna og samningsbundinna verkefna stofnunarinnar. Við viljum tryggja að nýting þeirra sé gagnsæ, ábyrg og alltaf í þágu almennings, án þess að skerða viðbragðsgetu Landhelgisgæslunnar,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.
Samkvæmt reglunum er heimilt að nýta loftför og skip Landhelgisgæslunnar í tengslum við opinberar skyldur eða verkefni stjórnvalda, svo sem vegna óvæntra atburða sem krefjast skjótra flutninga, formlegra athafna sem ekki er hægt að mæta með öðrum hætti, alþjóðasamstarfs, forvarnarstarfs, fræðslu og kynningar á björgunartækjum ríkisins, sem og í góðgerðarverkefnum. Ávallt er skilyrði að hagkvæmni sé gætt og að nýtingin hafi ekki áhrif á getu stofnunarinnar til að sinna lögbundnu hlutverki sínu.
Landhelgisgæslan metur hverju sinni hvort skilyrði fyrir slíkri notkun séu uppfyllt og heldur skrá yfir allar samþykktar beiðnir. Þá ber stofnuninni að upplýsa dómsmálaráðuneytið um allar slíkar ferðir, tilgang þeirra og áhrif á starfsemi.
Sérstaklega er kveðið á um að öll einkanot af loftförum og skipum Landhelgisgæslunnar séu óheimil.