05 apríl 2026
/
Úrskurður nr. 212/2026
Hinn 5. apríl 2026 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 212/2026
í stjórnsýslumálum nr. KNU26020048 og KNU26020049
Kærur [...]og [...]
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 12. febrúar 2026 kærðu [...], fd. [...], ríkisborgari Pakistan (hér eftir M), og [...], fd. [...]ríkisborgari Pakistan (hér eftir K), ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 9. febrúar 2026, um að ógilda vegabréfsáritanir þeirra til Íslands, sem gefnar voru út með ákvörðunum utanríkisþjónustunnar 12. desember 2025, og um frávísun frá Íslandi.
Kærendur krefjast þess að hinar kærðu ákvarðanir um frávísun og ógildingu á vegabréfsáritunum verði felldar úr gildi.
Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og bárust kærurnar fyrir lok kærufrests.
Lagagrundvöllur
Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins 2016/399 um för yfir landamæri, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Með umsóknum, dags. 2. desember 2025, óskuðu kærendur eftir vegabréfsáritunum til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir fjögurra daga dvöl frá 16. til 19. janúar 2026 sem ferðamenn. Umsóknir kærenda voru lagðar fram í Bretlandi. Vegabréfsáritanir kærenda voru gefnar út með ákvörðunum utanríkisþjónustunnar, dags. 12. desember 2025, og heimilaði kærendum dvöl á Schengen-svæðinu á tímabilinu 16. janúar til 1. mars 2026. Kærendur komu til Íslands 9. febrúar 2026, með flugi frá Lundúnum, Bretlandi. Með ákvörðunum Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. sama dag, voru vegabréfsáritanir kærenda ógiltar og kærendum vísað frá landinu.
Ákvörðun um synjun, ógildingu eða afturköllun vegabréfsáritunar byggist á stöðluðu eyðublaði sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauka 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í ákvörðunum lögreglu í málum kærenda er merkt við reit um ógildingu vegabréfsáritunar (e. annulled). Í eyðublaðinu er aukinheldur hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17 þar sem fram koma ástæður þess að áritunin var ógilt. Í ákvörðunum í máli kærenda er merkt í reiti 10 og 12 þess efnis að upplýsingar sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar væru ekki áreiðanlegar og að rökstudd ástæða væri til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, þ.e. hvort þau væru ósvikin eða sannleiksgildi efnis þeirra. Í athugasemdum við ákvarðanir um ógildingu áritananna kemur fram að tilgangur ferðarinnar og ferðaáætlun hafi ekki verið í samræmi við upplýsingar sem gefnar voru upp við umsóknir um vegabréfsáritanir og grunur sé um að vegabréfsáritanir hafi verið fengnar á fölskum forsendum.
Samhliða framangreindum ákvörðunum um ógildingu vegabréfsáritana tók lögregla ákvörðun um frávísun kærenda á grundvelli a- og c-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Í athugasemdum við ákvörðun M kemur fram að hann sé ekki með vegabréfsáritun eða dvalarleyfi í gildi og engin viðeigandi skjöl sem réttlæti tilgang og skilyrði dvalar. Þá kemur fram í athugasemdum við ákvörðun K að upplýsingar sem gefnar hafi verið um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar hafi ekki verið áreiðanlegar.
Samkvæmt samantektum lögreglu, dags. 10. og 11. febrúar 2026, hafi verið haft samband við lögreglu úr komusal vegna kærenda. Kærendur hafi greint frá því að vera á leið til Ítalíu síðar um kvöldið. Kærendum hafi verið kynntur réttur sinn til að hafa samband við lögfræðing á eigin kostnað, fulltrúa heimaríkis og viðurkennd mannréttindasamtök, sem þau kváðust skilja. Kærendur hafi afþakkað túlk þar sem þau hafi skilið og talað ensku vel. Kærendur hafi greint frá því að ætla aðeins að dvelja á Íslandi í nokkrar klukkustundir þar sem þau ættu flug til Mílanó á Ítalíu seinna sama dag. M greindi frá því að þau hafi ætlað að dvelja á Ítalíu í tvo daga áður en þau færu til Frakklands þar sem þau hafi einnig ætlað að dvelja í tvo daga. M greindi frá því að hafa bæði fyllt út umsókn sína og umsókn M um vegabréfsáritun. Kærendur hafi upphaflega ætlað að dvelja á Íslandi í fjórar nætur og fara svo til Bretlands en þau hafi þurft að breyta ferðaáætlun sinni þar sem K hafi veikst. Kærendur hafi því ákveðið að eyða meiri tíma á Ítalíu og Frakklandi. M greindi frá því að vilja skoða Reykjavík á meðan þau dveldu hér en gat ekki nefnt frekari staði sem hann vildi skoða. Samkvæmt framburði K hafi kærendur ætlað að vera á Ítalíu í einn dag en fara svo til Þýskalands og þaðan til Frakklands í eina nótt áður en þau færu aftur til Bretlands. K greindi frá því að vita ekki mikið um ferðina þar sem þetta væri óvissuferð sem M hafi skipulagt fyrir hana. K kvaðst hafa gert umsókn sína um áritun sjálf og þau hafi upphaflega ætlað sér að vera í sjö daga á Íslandi og síðan nokkra daga í framangreindum þremur löndum. K kvaðst hafa þurft að mæta í skólann og því hafi þau ekki getað farið eftir upphaflegri ferðaáætlun. K kvaðst alltaf hafa haldið mikið upp á Ísland og hafi lengi dreymt um að skoða landið. K gat ekki nefnt neina aðra staði en Reykjavík. Lögregla taldi ósamræmi vera í frásögn kærenda um ástæður breyttrar ferðaáætlunar og umsókna um vegabréfsáritanir. Ákveðið hafi verið að frávísa kærendum á grundvelli a- og c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga og ógilda vegabréfsáritanir þeirra þar sem ferðaáætlanir þeirra hafi ekki verið í samræmi við umsóknir um áritun ásamt því að misræmi hafi verið í frásögnum þeirra. Kærendur hafi farið með flugi til Lundúna 9. febrúar 2026.
Kærendur kærðu ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum til kærunefndar útlendingamála 12. febrúar 2026. Vegna ákvarðana um frávísun var kærendum skipaður talsmaður samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laga um útlendinga með bréfum Útlendingastofnunar, dags. 13. febrúar 2026. Greinargerð kærenda barst kærunefnd 27. febrúar 2026 ásamt fylgigögnum.
III. Málsástæður og rök kærenda
Í sameiginlegri greinargerð kærenda kemur fram að þau hafi ætlað að koma hingað til lands sem ferðamenn og ferðin hafi verið hluti af brúðkaupsferð þeirra. Kærendur hafi átt bókað flug og gistingu en af persónulegum ástæðum hafi þau neyðst til að breyta ferðatilhögun og þau afbókað fyrri skuldbindingar. Í framhaldinu hafi þau endurskipulagt ferðina innan þeirra tímamarka sem vegabréfsáritanir þeirra hafi gert ráð fyrir.
Kærendur byggja á því að þau hafi komið hingað til lands með gildar vegabréfsáritanir og ferðaáætlun sem hafi rúmast innan gildistíma áritananna. Kærendur hafi ekki lagt fram fölsuð gögn eða farið rangt með tilgang eða fyrirkomulag ferðarinnar. Upprunaleg gögn sem hafi fylgt vegabréfsumsóknum hafi verið góð og gild og ferðaáætlun þeirra eins og hún hafi verið kynnt í upphafi ekki verið uppspuni. Breyting á ferðatilhögun hafi einfaldlega átt sér stað eftir að vegabréfsáritanir hafi verið veittar. Það hafi verið mikið áfall fyrir kærendur að vera stöðvuð við komuna til landsins og þau hafi reynt að svara spurningum lögreglu eftir bestu getu. Kærendur séu búsett í Bretlandi og eðli málsins samkvæmt hafi þau alltaf ætlað sér að snúa þangað aftur. Kærendur vísa í boðskort í brúðkaup til skyldmennis sem hafi farið fram í Bretlandi 14. febrúar 2026 og leigusamnings um íbúðarhúsnæði þeirra, sem að mati kærenda staðfesti tengsl og skuldbindingar þeirra við Bretland. Kærendur hafi margsinnis áður fengið vegabréfsáritanir innan Schengen-svæðisins og þau alltaf greint satt og rétt frá við öflun slíkra áritana.
Kærendur byggja á því að málsmeðferðarreglum stjórnsýsluréttar hafi ekki verið fylgt við meðferð málsins hjá lögreglu en brotið hafi verið gegn andmælarétti þeirra, leiðbeiningarskyldu og rannsóknarreglu. Þá hafi kærendur ekki fengið að njóta vafans sem uppi sé í málinu. Kærendur telji að lögregla hafi ekki kannað áreiðanleika frásagna þeirra og telji að hinar kærðu ákvarðanir hafi verið illa rökstuddar, sbr. 22. gr. stjórnsýslulaga. Kærendur hafi ekki fengið skýringar á því til hvaða atriða hafi verið litið við ákvarðanatöku í máli þeirra. Kærendur hafi verið í góðri trú um að þeim væri heimilt að ferðast til landsins á grundvelli útgefinna vegabréfsáritana en þeim hafi ekki verið tilkynnt um að smávægileg breyting á ferðatilhögun myndi leiða til ógildingar. Þrátt fyrir að handhafi vegabréfsáritunar geti ekki framvísað fylgiskjölum við landamæri leiði það ekki sjálfkrafa til þess að ákvörðun sé tekin um ógildingu eða afturköllun áritunar. Kærendur fjalla um 35. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir og vísa til þess að skilyrði áritananna hafi verið til staðar í upphafi og þær hafi ekki verið fengnar með sviksamlegum hætti. Játa verði kærendum ákveðið svigrúm til breytinga á ferðaáformum sínum, innan gildissviðs og marka útgefinna áritana, enda liggi fyrir að ekki hafi verið um verulega breytingu að ræða. Kærendur vísa til úrskurðar kærunefndar nr. 15/2026, dags. 15. janúar 2026, máli sínu til stuðnings.
IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Ákvarðanir um ógildingu vegabréfsáritana
Líkt og að framan greinir fengu kærendur útgefnar vegabréfsáritanir með ákvörðunum utanríkisþjónustunnar 12. desember 2025. Áritanirnar heimiluðu kærendum dvöl á Schengen-svæðinu á tímabilinu 16. janúar til 1. mars 2026. Með ákvörðunum Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 9. febrúar 2026, voru vegabréfsáritanir kærenda ógiltar. Í stöðluðu ákvörðunareyðublaði til að tilkynna um og rökstyðja synjun, ógildingu eða afturköllun vegabréfsáritunar, sbr. viðauki 6 í reglugerð um vegabréfsáritun, er hægt að merkja í reiti um synjun, ógildingu eða afturköllun vegabréfsáritunar. Í ákvörðunum í máli kærenda er líkt og áður segir merkt í reit um ógildingu og til skýringar merkt í reiti 10 og 12 þess efnis að upplýsingar sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar væru ekki áreiðanlegar auk þess sem að rökstudd ástæða væri til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, þ.e. hvort þau væru ósvikin eða sannleiksgildi efnis þeirra. Í athugasemdum við ákvarðanir um ógildingu áritananna kemur fram að tilgangur ferðarinnar og ferðaáætlun hafi ekki verið í samræmi við upplýsingar sem gefnar voru upp við umsóknir um vegabréfsáritanir og grunur sé um að vegabréfsáritanir hafi verið fengnar á fölskum forsendum.
Ákvæði 20. gr. laga um útlendinga og reglugerðar um vegabréfsáritanir fela í sér innleiðingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 810/2009 um bandalagsreglur um vegabréfsáritanir en um það vísast einnig til frekari skuldbindinga íslenska ríkisins á sviði Schengen-samstarfsins. Reglugerð um vegabréfsáritanir er sett með stoð í 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga, en þar kemur fram að ráðherra setji reglur um vegabréfsáritanir, þar á meðal um skilyrði fyrir að veita þær. Samkvæmt 2. mgr. 4. gr. laga um útlendinga er lögregla meðal valdbærra stjórnvalda til þess að taka ákvarðanir á grundvelli laga um útlendinga og afleiddra réttarheimilda. Embætti Lögreglustjórans á Suðurnesjum fer með eftirlit með einstaklingum um för yfir ytri landamæri og er lögbært yfirvald til að ógilda eða afturkalla vegabréfsáritun samkvæmt 9. mgr. 35. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Að auki tekur lögregla ákvarðanir um landgöngu einstaklinga, sbr. 1. mgr. 106. gr. a laga um útlendinga, en í a-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er m.a. tekið fram að heimilt sé að frávísa einstaklingum sem ekki fullnægja reglum sem settar eru um vegabréfsáritanir.
Ákvarðanir lögreglu um ógildingu vegabréfsáritana kærenda byggir á 35. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir en samkvæmt 1. mgr. ákvæðisins skal ógilda vegabréfsáritun ef í ljós kemur að skilyrði fyrir útgáfu hennar voru ekki uppfyllt þegar hún var gefin út, einkum ef rík ástæða er til að ætla að vegabréfsáritunin sé fengin með sviksamlegum hætti. Vegabréfsáritun skal að jafnaði ógilt af lögbærum yfirvöldum aðildarríkisins sem gaf hana út. Lögbærum yfirvöldum annars aðildarríkis er heimilt að ógilda vegabréfsáritun og skal þá yfirvöldum aðildarríkisins, sem gaf út vegabréfsáritunina, tilkynnt um ógildingu hennar. Líkt og að framan greinir lagði lögregla til grundvallar að ferðaáætlun kærenda hafi ekki verið í samræmi við umsóknir um áritanir og misræmi hafi verið í frásögnum kærenda.
Játa verður handhöfum vegabréfsáritunar ákveðið svigrúm til að breyta ferðaáformum sínum þegar svo ber undir, innan gildissviðs og marka útgefinna áritana, að því gefnu að breytingarnar eigi sér eðlilegar skýringar. Svigrúm til slíkra breytinga er þó ekki án takmarkana enda miðast útgáfa áritana við tilteknar forsendur sem verða að standast í meginatriðum. Í því samhengi skal t.a.m. litið til verulegra breytinga á fyrirhuguðum dvalartíma, tilvika þar sem útgáfuríki áritunar er ekki aðaláfangastaður, og tilvika þar sem fylgigögn eru þannig úr garði gerð að upphaflegri umsókn yrði hafnað með vísan til gagnanna. Meðal fylgigagna málsins eru umsóknir kærenda um vegabréfsáritanir, dags. 2. desember 2025, þar sem fram kemur að kærendur hafi ætlað að dvelja á Íslandi í fjóra daga á tímabilinu 16. til 19. janúar 2026. Í fylgibréfi með umsóknum um áritanir kemur fram að kærendur hyggist koma hingað til lands sem ferðamenn. Framangreindu til stuðnings hafi kærendur lagt fram fylgigögn á borð við flugbókanir frá Bretlandi til Íslands 16. janúar 2026 og frá Íslandi til Bretlands 19. janúar 2026 og hótelbókun í Reykjavík 16. til 19. janúar 2026. Á grundvelli forsendna sem kærendur báru fyrir sig hafi þau fengið útgefnar vegabréfsáritanir. Við komu til Keflavíkur, 9. febrúar 2026, hafi þær forsendur þó ekki staðist en kærendur hafi við komu til landsins greint frá því að ætla að dvelja á Íslandi í nokkrar klukkustundir og fara svo til Ítalíu síðar sama dag.
Samkvæmt framangreindu hafði ferð kærenda, sem þau byggðu umsóknir um vegabréfsáritanir á, tekið verulegum breytingum og voru kærendur ekki lengur með bókað flug aftur til Bretlands frá Íslandi líkt og umsóknin kvað á um. Þá var mikið misræmi í skýringum kærenda á breytingum á ferðaáætlun þeirra. Gögnin bera með sér að Ísland hafi ekki verið aðaláfangastaður kærenda en samkvæmt frásögnum þeirra hugðust þau einungis dvelja á Íslandi í nokkrar klukkustundir og eiga flug síðar sama dag til Ítalíu þar sem þau hafi ætlað að dvelja í tvo daga og fara þaðan til Frakklands og dvelja þar einnig í tvo daga. Með kæru sinni til kærunefndar lögðu kærendur fram gögn sem sýna bókuð flug frá 9. til 13. febrúar 2026. Samkvæmt gögnunum hafi kærendur átt flug frá London til Reykjavíkur og frá Reykjavík til Mílanó 9. febrúar 2026, frá Mílanó til Berlínar 11. febrúar 2026, frá Berlín til Parísar 12. febrúar 2026 og frá París til London 13. febrúar 2026. Yrði dvöl kærenda á Schengen-svæðinu þannig varið í ferðalög milli landa, án skýrrar ferðaáætlunar eða fyrirhugaðrar afþreyingar á hverjum stað. Af gögnum málsins er ljóst að tilgangur kærenda með umsóknum þeirra um vegabréfsáritanir til Íslands og koma þeirra hingað til lands hafi verið að komast inn á Schengen-svæðið og að Ísland hafi ekki verið aðaláfangastaður kærenda líkt og umsóknirnar byggðu á. Samkvæmt framansögðu verður lagt til grundvallar að framlagning gagna hjá utanríkisþjónustunni hafi verið á röngum forsendum. Samkvæmt framangreindu hafi upplýsingar um tilgang og skilyrði ferðar kærenda ekki verið áreiðanlegar auk þess sem rökstudd ástæða hafi verið til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, sbr. til hliðsjónar ii-lið a-liðar og b-lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Af framangreindu leiðir að útgáfa áritana til handa kærendum hafi byggst á röngum forsendum og voru skilyrði fyrir útgáfu þeirra því ekki uppfyllt þegar þær voru gefnar út. Var lögreglu því heimilt að ógilda vegabréfsáritanir kærenda 9. febrúar 2026 og eru þær ákvarðanir staðfestar.
Ákvarðanir um frávísun
Samkvæmt 1. mgr. 49. gr. laga um útlendinga er útlendingi sem þarf vegabréfsáritun til landgöngu óheimilt að dveljast hér á landi lengur en áritunin segir til um nema sérstakt leyfi komi til. Kærendur eru ríkisborgarar Pakistan og fengu útgefnar vegabréfsáritanir með ákvörðunum utanríkisþjónustunnar, dags. 12. desember 2025.
Ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum um frávísun kærenda, dags. 9. febrúar 2026, byggja á a- og c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017. Samkvæmt 1. mgr. 106. gr. a laga um útlendinga tekur lögreglustjóri ákvörðun um frávísun við komu til landsins samkvæmt 1. mgr. 106. gr. laganna. Útlendingastofnun tekur ákvörðun um frávísun eftir komu til landsins og aðrar ákvarðanir samkvæmt XII. kafla laganna.
Í 106. gr. laga um útlendinga er kveðið á um frávísun við komu til landsins. Samkvæmt a-lið 1. mgr. ákvæðisins er m.a. heimilt að vísa útlendingi frá landi við komu til landsins eða allt að sjö sólarhringum frá komu ef hann fullnægir ekki reglum sem settar eru um vegabréf, vegabréfsáritun, ferðaheimild eða komu til landsins. Líkt og þegar hefur verið rakið tók Lögreglustjórinn á Suðurnesjum ákvörðun um að ógilda vegabréfsáritanir kærenda og hafa þær ákvarðanir verið staðfestar af kærunefnd. Voru skilyrði til frávísunar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga því uppfyllt.
Samkvæmt c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er heimilt að frávísa útlendingi við komu til landsins þegar hann hefur ekki tilskilið leyfi til dvalar eða vinnu eða getur ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn er upp fyrir dvölinni, sbr. c-lið ákvæðisins. Í greinargerð með frumvarpi því sem varð að gildandi lögum um útlendinga segir m.a. að ákvæði c-liðar mæli fyrir um að heimilt sé að vísa útlendingi frá landi ef hann geti ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn sé upp fyrir dvölinni. Sé ákvæðið efnislega samhljóða c-lið 1. mgr. 5. gr. reglugerðar (EB) nr. 562/2006 um för fólks yfir landamæri. Þá er í greinargerðinni vísað til 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri nr. 866/2017.
Í 5. gr. reglugerðar nr. 866/2017 um för yfir landamæri er mælt fyrir um skilyrði fyrir komu útlendinga til landsins sem hvorki eru EES- né EFTA borgarar. Kemur þar fram að útlendingur sem hvorki er EES- né EFTA-borgari, sem hyggst dvelja á Schengen-svæðinu, þ.m.t. Íslandi, í allt að 90 daga á 180 daga tímabili verði, auk þeirra skilyrða sem koma fram í 106. gr. laga um útlendinga, að uppfylla þau skilyrði sem fram koma í a-e-liðum ákvæðisins.
Til sönnunar á að framangreindum skilyrðum 5. gr. reglugerðarinnar fyrir komu sé fullnægt sé landamæraverði m.a. heimilt að krefja útlending samkvæmt 1. mgr. um eftirfarandi gögn vegna ferðalaga af persónulegum ástæðum: Gögn sem sýna fram á tryggt húsnæði, t.d. boðsbréf frá gestgjafa eða önnur gögn sem sýna fram á hvar viðkomandi hyggst búa, gögn sem staðfesta ferðaáætlun, staðfesting bókunar á skipulagðri ferð eða önnur gögn sem varpa ljósi á fyrirhugaða ferðaáætlun og gögn varðandi heimferð, s.s. farmiða.
Með vísan til framangreindra röksemda fyrir ógildingu vegabréfsáritana kærenda voru skilyrði til frávísunar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga uppfyllt.
Í málatilbúnaði kærenda er byggt á því að lögreglan hafi ekki kannað áreiðanleika frásagna þeirra og telja að hinar kærðu ákvarðanir hafi verið illa rökstuddar, sbr. 22. gr. stjórnsýslulaga. Kærendur hafi ekki fengið skýringar á því til hvaða atriða hafi verið litið til við ákvarðanatöku í máli þeirra.
Í ákvörðunum lögreglu, dags. 9. febrúar 2026, kemur fram að kærendur eigi rétt á eftirfarandi rökstuðningi, sbr. 1. mgr. 21. gr. stjórnsýslulaga. Með vísan til framangreinds er ekki tilefni til að gera athugasemdir við ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum.
Í greinargerð kærenda er vísað til úrskurðar kærunefndar nr. 15/2026 frá 15. janúar 2026. Að virtum gögnum málsins var lagt til grundvallar að kærandi hafi átt flugmiða frá landinu þegar lögreglan tók hina kærðu ákvörðun. Leit kærunefnd til þess að kærandi hafi ætlað að koma hingað til lands og dvelja í þrjár nætur og hafi verið með bókað flug frá landinu auk gistingar hér á landi. Báru gögn málsins með sér að lögreglan hafi ekki aflað staðfestingar á umræddri bókun á gistingu. Var lagt til grundvallar að breytingar á ferðaáætlun kæranda væru ekki óhóflegar og var því ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum um ógildingu vegabréfsáritunar felld úr gildi. Með vísan til framangreinds eru málsatvik því ekki sambærileg málsatvikum í máli kærenda.
Samantekt
Að öllu framangreindu virtu eru ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum um að ógilda vegabréfsáritanir kærenda á grundvelli 1., sbr. 9. mgr. 35. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir, sbr. 8. mgr. 20. gr. og 2., sbr. 4. mgr. 4. gr. laga um útlendinga, og frávísa þeim á grundvelli a- og c-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, staðfestar.
Úrskurðarorð:
Ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum eru staðfestar.
The decisions of the Police Commissioner of Suðurnes District are affirmed.
Þorsteinn Gunnarsson
Vera Dögg Guðmundsdóttir