07 apríl 2026
/
Sameiginlegt norrænt útboð til að tryggja afhendingaröryggi á krabbameinslyfjum
Landspítali tekur þátt í samnorrænu útboði ákveðinna krabbameinslyfja og er þetta í fyrsta skipti sem þessi lyfjaflokkur er boðinn út í sameiginlegu útboði Danmerkur, Noregs og Íslands. Tilgangurinn er að tryggja afhendingaröryggi lyfja sem verður æ erfiðara að útvega.
Á undaförnum árum hefur lyfjaskortur verið vaxandi vandamál á heimsvísu. Samnorræn útboð eru mikilvæg leið til að tryggja að sjúklingar fái áfram nauðsynlega lyfjameðferð. Krabbameinslyf eru oft keypt inn í litlu magni þannig að með því að sameina þrjú minni markaðssvæði í eitt stærra skapast betri aðstæður fyrir stöðugra framboð og fleiri bjóðendur.
Hulda Harðardóttir er deildarstjóri innkaupadeildar Landspítala. Í tilkynningu á vef spítalans er haft eftir henni að vegna smæðar íslensks markaðar með færri en 400.000 íbúa sé mikilvægt fyrir Ísland að vera með í samnorrænum útboðum. Það hafi reynslan sýnt og tilboðum til Íslands hafi fjölgað.
Danmörk, Noregur og Ísland hafa undanfarin sjö ár haldið samnorræn útboð til að vinna gegn skorti á mikilvægum lyfjum með góðum árangri. Fyrirhugað er að í næsta samnorræna útboði bætist í hópinn eitt fylki í Svíþjóð og eitt fylki í Finnlandi.