07 apríl 2026
/
Úrskurður félags- og húsnæðismálaráðuneytis 8/2026
Þriðjudaginn 7. apríl 2026 var í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi
ú r s k u r ð u r:
Með erindi til félags- og húsnæðismálaráðuneytis, dags. 9. desember 2025, kærði Áslaug Gunnlaugsdóttir, lögmaður, fyrir hönd Indoitalian ehf., kt. 580521-0610, og A, sem er ríkisborgari Indlands, fd. 13. […] ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 12. nóvember 2025, um synjun á veitingu tímabundins atvinnuleyfis til handa A í því skyni að ráða sig til starfa hjá Indoitalian ehf. auk þess sem óskað var eftir að réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar yrði frestað. Úrskurður þessi lýtur eingöngu að beiðni kærenda um frestun réttaráhrifa hinnar kærðu ákvörðunar.
Málavextir og málsástæður
Málavextir verða hér einungis raktir að því marki sem þörf er á í tengslum við beiðni kærenda um frestun réttaráhrifa hinnar kærðu ákvörðunar.
Mál þetta varðar ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 12. nóvember 2025, um synjun á veitingu tímabundins atvinnuleyfis til handa A í því skyni að ráða sig til starfa hjá Indoitalian ehf.
Þeirri ákvörðun vildu kærendur ekki una og kærðu þeir ákvörðunina til ráðuneytisins með erindi, dags. 9. desember 2025, auk þess sem kærendur óskuðu eftir að réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar yrði frestað með vísan til 2. mgr. 29. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
Í erindi kærenda eru færð fram þau rök fyrir frestun réttaráhrifa á grundvelli 2. mgr. 29. gr. stjórnsýslulaga að verulegir hagsmunir kærenda séu í húfi þar sem hlutaðeigandi atvinnurekandi geti ekki ráðið annan í umrætt starf og að rekstur hans sé í uppnámi án hæfs starfsmanns.
Erindi kærenda var sent Vinnumálastofnun til umsagnar með bréfi ráðuneytisins, dags. 15. desember 2025, og var stofnuninni veittur frestur til 6. janúar 2026 til að veita umbeðna umsögn. Í bréfinu óskaði ráðuneytið sérstaklega eftir umsögn Vinnumálastofnunar í tengslum við beiðni kærenda um frestun réttaráhrifa hinnar kærðu ákvörðunar auk þess sem ráðuneytið óskaði eftir afriti af öllum gögnum málsins.
Í umsögn Vinnumálastofnunar, dags. 9. febrúar 2026, kemur meðal annars fram að viðkomandi útlendingur hafi ekki haft gilt dvalar- og atvinnuleyfi hér á landi áður en umrædd umsókn um tímabundið atvinnuleyfi hafi verið lögð fram. Í ljósi þess sé það mat Vinnumálastofnunar að ákvörðun stofnunarinnar um synjun á veitingu umrædds atvinnuleyfis feli ekki sér breytta réttarstöðu fyrir kærendur. Þar af leiðandi séu að mati Vinnumálastofnunar ekki fyrir hendi ástæður sem mæli með frestun réttarárhrifa hinnar kærðu ákvörðunar.
Með bréfi ráðuneytisins, dags. 16. febrúar 2026, var kærendum gefinn kostur á að koma á framfæri við ráðuneytið athugasemdum við umsögn Vinnumálastofnunar og var frestur veittur til 3. mars 2026.
Í svarbréfi kærenda, dags 4. mars 2026, bentu kærendur meðal annars á að umsögn Vinnumálastofnunar breyti ekki því að ákvörðun stofnunarinnar sé að þeirra mati haldin verulegum annmörkum er varði efnisatriði málsins. Í ljósi þess ítrekuðu kærendur fyrri kröfur sínar í málinu.
Niðurstaða
Samkvæmt 1. mgr. 34. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, er atvinnurekanda og útlendingi sameiginlega heimilt að kæra til ráðuneytisins ákvarðanir Vinnumálastofnunar á grundvelli laganna. Í máli þessu er kærð ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 12. nóvember 2025, um synjun á veitingu tímabundins atvinnuleyfis vegna skorts á starfsfólki, sbr. 9. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga.
Samkvæmt 2. mgr. 34. gr. laganna frestar stjórnsýslukæra ekki réttaráhrifum ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Í athugasemdum við 15. gr. frumvarps þess er varð að 34. gr. gildandi laga um atvinnuréttindi útlendinga, sbr. lög nr. 78/2008, um breytingu á lögum nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, og lögum nr. 74/1993, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum, er tekið fram að miðað sé við að ráðuneytinu „sé engu síður heimilt á grundvelli 2. mgr. 29. gr. stjórnsýslulaga að fresta réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar þar sem ástæður mæla með því.“
Samkvæmt 2. mgr. 29. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, er æðra stjórnvaldi heimilt að fresta réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar á meðan kæra er til meðferðar þar sem ástæður mæla með því. Í athugasemdum við 2. mgr. 29. gr. frumvarps þess er varð að 2. mgr. 29. gr. stjórnsýslulaga kemur meðal annars fram að ávallt verði að vega og meta í hverju tilviki fyrir sig hvort réttlætanlegt sé að fresta réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar en við slíkt mat beri að líta til réttmætra hagsmuna hjá öllum aðilum máls. Þá kemur fram að reglan þyki nauðsynleg þar sem kæruheimild geti í raun orðið þýðingarlaus ef æðra stjórnvald hefur ekki heimild til þess að fresta réttaráhrifum ákvörðunar. Jafnframt kemur fram að ákvæðið hafi mesta þýðingu varðandi ákvarðanir sem fela í sér breytta réttarstöðu fyrir aðila, svo sem boð eða bann. Það hafi hins vegar sjaldnast nokkra þýðingu þegar um sé að ræða neikvæðar stjórnvaldsákvarðanir þar sem synjanir hafi í för með sér óbreytt ástand fyrir aðila. Enn fremur kemur fram að það mæli með því að fresta réttaráhrifum ákvörðunar ef aðili máls er einungis einn og sú ákvörðun sem um ræðir er íþyngjandi fyrir hann. Í athugasemdunum kemur einnig fram að líta beri til þess hversu langt sé um liðið frá því að hin kærða ákvörðun var tilkynnt aðilum en einnig verði að horfa til þess hversu líklegt það sé að ákvörðuninni verði breytt.
Að framangreindu virtu lítur ráðuneytið almennt svo á að við mat á því hvort fresta beri réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar beri ávallt að leggja heildstætt mat á aðstæður.
Að mati ráðuneytisins verður ekki séð af atvikum máls þessa að fyrir hendi séu ástæður sem mælt geta með frestun réttaráhrifa hinnar kærðu ákvörðunar. Á það ekki síst við þar sem viðkomandi útlendingi hafi verið óheimilt að starfa hér á landi þegar ákvörðun Vinnumálstofnunar var tekin þar sem hann hafi hvorki verið með gilt dvalar- né atvinnuleyfi hér á landi. Því verður að mati ráðuneytisins að líta svo á að umrædd ákvörðun Vinnumálastofnunar feli ekki í sér breytta réttarstöðu fyrir aðila máls.
Í ljósi framangreinds telur ráðuneytið að í máli þessu séu ekki fyrir hendi ástæður sem mæla með því að réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar Vinnumálastofnunar verði frestað þar til niðurstaða ráðuneytisins liggur fyrir í málinu og því verði ákvæði 2. mgr. 29. gr. stjórnsýslulaga ekki beitt í máli þessu.
Ú r s k u r ð a r o r ð:
Beiðni um frestun réttaráhrifa ákvörðunar Vinnumálastofnunar, dags. 12. nóvember 2025, um synjun á veitingu tímabundins atvinnuleyfis til handa A, sem er ríkisborgari Indlands, vegna starfs hjá Indoitalian ehf., á meðan stjórnsýslukæra er til meðferðar hjá ráðuneytinu, er hafnað.