08 apríl 2026

/

Breyting á reglugerð um varnir gegn olíumengun frá landi í Samráðsgátt

{image.Description}
Olíutankar

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur sett til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda drög að breytingu á reglugerð um varnir gegn olíumengun frá starfsemi á landi, nr. 884/2017.

Með breytingunni eru kröfur til olíubirgðastöðva gerðar skýrari, s.s. hvað varðar þrýstiprófun olíu- og löndunarlagna og þykktarmælingu olíubirgðageyma. Þá er einnig skerpt á öðrum ákvæðum reglugerðarinnar og kveðið á um heimild fyrir Umhverfis- og orkustofnun til að falla frá kröfum um að niðurfall sé tengt olíuskilju og að lekavörn sé vökvaheld, þegar eingöngu rennur um bik sem storknar við umhverfishita.

Athygli er vakin á því að frestur til að senda umsögn í samráðsgátt er til 6. maí nk.

Breyting á reglugerð um varnir gegn olíumengun frá starfsemi á landi