08 apríl 2026
/
Fyrsti fundur fjármálastöðugleikaráðs á árinu 2026
Fyrsti fundur fjármálastöðugleikaráðs á árinu 2026 fór fram miðvikudaginn 8. apríl.
Á fundinum var farið yfir stöðu og horfur í fjármálakerfinu og hagkerfinu og helstu áhættuþættir ræddir. Sérstaklega var fjallað um þróun og horfur á fasteigna- og íbúðamarkaði. Fjallað var um undirbúning vegna styttingar uppgjörstíma verðbréfaviðskipta í T+1. Löggjöf um innstæðutryggingar var til umræðu. Þá gerði Seðlabankinn grein fyrir innleiðingu kortagreiðslna án nettengingar, sem eru liður í eflingu viðnámsþróttar greiðslumiðlunar hér á landi. Á fundinum var gerð grein fyrir störfum skilavalds frá síðasta fundi ráðsins.