09 apríl 2026
/
1351/2026. Úrskurður frá 9. apríl 2026
Hinn 9. apríl 2026 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 1351/2026 í máli ÚNU 25090016.
Kæra og málsatvik
Með erindi, dags. 24. september 2025, kærði […], varafréttastjóri Sýnar, til úrskurðarnefndar um upplýsingamál ákvörðun dómsmálaráðuneytis að synja beiðni hans um aðgang að gögnum.
Með erindi, dags. 20. september 2025, vísaði kærandi til þess að fyrr á árinu hefði verið ákveðið að ráðuneytið myndi ráðast í úttekt á embætti ríkissaksóknara. Óskað væri afrits af úttektinni en til vara afriti af niðurstöðukafla hennar. Með erindi, dags. 22. september 2025, vísaði kærandi til þess til frekari skýringa að óskað væri eftir skýrslu eða úttekt utanaðkomandi ráðgjafarþjónustu á embættinu.
Beiðni kæranda var hafnað með erindi, dags. 23. september 2025, með vísan til 6. og 7. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012. Ekki væru veittar upplýsingar um einstök starfsmannamál eða einkamál starfsfólks.
Í kæru til úrskurðarnefndarinnar, dags. 24. september 2025, er vísað til þess að embætti ríkissaksóknara sé ein af lykilstofnunum réttarríkisins og því séu ríkir almannahagsmunir af að gagnsæi ríki um starfsemi þess og stjórnun. Úttektin sem óskað hafi verið eftir hafi verið unnin í kjölfar opinberrar umræðu um mál háttsetts embættismanns. Aðhaldshlutverk fjölmiðla vegi þungt í þessu samhengi. Ákvörðun ráðuneytisins byggi á rangri túlkun á 7. gr. upplýsingalaga þar sem gagnið varði ekki persónuleg málefni einstaks starfsmanns heldur sé það úttekt á vinnustaðnum í heild sinni. Það falli því ekki undir 7. gr. upplýsingalaga. Þá hafi ráðuneytið ekki lagt mat á hvort unnt væri að veita aðgang að úttektinni að hluta, sbr. 3. mgr. 5. gr. upplýsingalaga.
Málsmeðferð
Kæran var kynnt dómsmálaráðuneyti með erindi, dags. 26. september 2025, og kostur gefinn á að koma á framfæri umsögn um kæruna. Þá var þess óskað að ráðuneytið afhenti úrskurðarnefnd um upplýsingamál þau gögn sem kæran varðar.
Umsögn ráðuneytisins barst úrskurðarnefndinni með erindi, dags. 3. desember 2025. Í umsögninni kemur fram að ráðuneytið telji að heimilt sé og nauðsynlegt að hafna aðgangi að gögnunum í heild sinni vegna eðlis þeirra. Við mat á því hvort 7. gr. upplýsingalaga eigi við um gögnin þurfi að líta til þess að öll gögn sem málið varða séu óhjákvæmilega tengd þeirri ákvörðun sem að lokum var tekin varðandi starfslok. Af þeim gögnum sem beiðnin hafi verið afmörkuð við megi ráða að þau innihaldi bæði upplýsingar um starfssamband, þ.m.t. starfslok, og upplýsingar sem lágu til grundvallar málsmeðferð ráðherra. Ráðuneytið telji að upplýsingar í gögnunum eigi ekki erindi við almenning. Sú afstaða byggi á þeirri túlkun að eðli upplýsinganna og tengsl þeirra við persónuleg starfsmannamál og innri málsmeðferð stjórnvalda réttlæti að beiðni kæranda sé hafnað í heild.
Í kjölfar þess að umsögn ráðuneytisins var kynnt kæranda bárust nefndinni athugasemdir frá kæranda, dags. 4. desember 2025. Í athugasemdunum eru fyrri röksemdir ítrekaðar. Þá er staðhæfingu ráðuneytisins mótmælt um að upplýsingarnar eigi ekki erindi við almenning. Embætti ríkissaksóknara fari með æðsta ákæruvald í landinu. Almannahagsmunir séu ríkir af að fá aðgang að gögnunum, sér í lagi þar sem málið hafi leitt til svo afdrifaríkra lykta sem starfslok háttsetts embættismanns eru.
Óþarft er að rekja frekar það sem fram kemur í gögnum málsins, sbr. 31. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Úrskurðarnefndin hefur haft hliðsjón af öllum gögnum málsins við úrlausn þess.
Niðurstaða
1.
Í máli þessu er deilt um rétt kæranda til aðgangs að samantektarskýrslu sem Mental ráðgjöf ehf. vann fyrir dómsmálaráðuneyti um vinnustaðarmenningu, stjórnarhætti og samskipti innan embættis ríkissaksóknara. Ákvörðun dómsmálaráðuneytis að hafna beiðni kæranda var byggð á því að gagnið félli undir takmörkunarákvæði 7. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012.
Upplýsingaréttur kæranda byggist á 5. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, þar sem fram kemur að skylt sé að veita aðgang að fyrirliggjandi gögnum með þeim takmörkunum sem mælt er fyrir um í 6. til 10. gr. laganna. Í 4. tölul. 6. gr. er mælt fyrir um að réttur almennings til aðgangs að gögnum taki ekki til gagna sem tengjast málefnum starfsmanna. Ákvæðið er útfært í 7. gr. laganna þar sem segir í 1. málsl. 1. mgr. að réttur almennings til aðgangs að gögnum um málefni starfsmanna, sem starfa hjá aðilum sem lögin taka til samkvæmt 2. gr., taki ekki til gagna í málum sem varða umsóknir um starf, framgang í starfi eða starfssambandið að öðru leyti. Þar sem 1. málsl. 1. mgr. 7. gr. er undantekning frá meginreglu 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga ber að skýra ákvæðið þröngt.
Í athugasemdum við 7. gr. með frumvarpinu sem varð að upplýsingalögum, nr. 140/2012, kemur fram að með gögnum í málum sem varða starfssambandið sé átt við gögn í málum þar sem teknar eru ákvarðanir um réttindi og skyldur starfsmanna, t.d. mál þar starfsmaður hefur þurft að sæta frádrætti frá launum, ákvarðanir stjórnenda um sveigjanlegan vinnutíma og um aukastörf, og enn fremur mál er lúta að aðfinnslum og áminningu eða eftir atvikum starfslokum.
Gagnið sem hin kærða ákvörðun lýtur að fellur að mati úrskurðarnefndarinnar ekki undir 1. mgr. 7. gr. upplýsingalaga. Um er að ræða athugun á starfsumhverfi embættis ríkissaksóknara, sem ráðuneytið ákvað að ráðist yrði í og gerð var af utanaðkomandi aðila á grundvelli viðtala við starfsfólk embættisins. Þó svo að tilefni þess að ráðist var í athugunina kunni að einhverju leyti að mega rekja til framgöngu einstaks starfsmanns telur nefndin ekki unnt að líta svo á að úttektin sé gagn í máli sem varði starfssamband þess starfsmanns við vinnuveitanda, enda hefur úttektin að geyma heildstæða athugun á starfsaðstæðum á vinnustaðnum. Ákvörðun ráðuneytisins gat því ekki byggst á 1. mgr. 7. gr. upplýsingalaga. Á hinn bóginn þarf að taka til skoðunar hvort önnur takmörkunarákvæði upplýsingalaga eigi við um gögnin. Þar kemur 1. málsl. 9. gr. upplýsingalaga einkum til skoðunar.
2.
Samkvæmt 1. málsl. 9. gr. upplýsingalaga er óheimilt að veita almenningi aðgang að gögnum um einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga sem sanngjarnt er og eðlilegt að leynt fari, nema sá samþykki sem í hlut á. Í athugasemdum við ákvæðið með frumvarpinu sem varð að upplýsingalögum, nr. 140/2012, segir að ákvæðið feli í sér vísireglu um það hvenær rétt sé að halda leyndum upplýsingum um einkahagsmuni. Þá segir:
Stjórnvaldi, eða öðrum aðila sem ákvörðun tekur á grundvelli laganna, er með öðrum orðum ætlað að vega og meta umbeðin gögn með tilliti til þess hvort upplýsingar sem þau hafa að geyma séu þess eðlis að rétt sé að undanþiggja þær aðgangi almennings. Við það mat verður að taka mið af því hvort upplýsingarnar séu samkvæmt almennum sjónarmiðum svo viðkvæmar að þær eigi ekkert erindi við allan þorra manna.
Að því er varðar takmörkun á aðgangi að upplýsingum um einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga sem sanngjarnt er og eðlilegt að leynt fari, segir í athugasemdunum:
Erfitt er að tilgreina nákvæmlega þau sjónarmið sem stjórnvaldi er rétt að leggja til grundvallar við mat á því hvaða einkamálefni einstaklinga eru þannig vaxin að þau réttlæti undanþágu frá upplýsingarétti í hverju tilviki. Oft koma sérstakar reglur um þagnarskyldu í veg fyrir að aðgang megi veita að upplýsingum. Þegar þeim reglum sleppir má hafa í huga ýmis lagaákvæði sem sett hafa verið í sama augnamiði. Þannig er engum vafa undirorpið að viðkvæmar persónuupplýsingar samkvæmt lögum um persónuvernd eru allar undanþegnar aðgangi almennings skv. 9. gr. Þar má t.d. nefna upplýsingar um litarhátt, kynþátt, stjórnmálaskoðanir og trúarbrögð, upplýsingar um hvort maður hafi verið grunaður, ákærður eða dæmdur fyrir refsiverðan verknað, upplýsingar um kynlíf manna og heilsuhagi, lyfja-, áfengis- og vímuefnanotkun, svo og upplýsingar um félagsleg vandamál. Aðrar upplýsingar sem geta talist viðkvæmar samkvæmt almennum viðmiðum í íslenskum rétti kunna einnig að falla undir ákvæðið þótt þær teljist ekki viðkvæmar persónuupplýsingar samkvæmt persónuverndarlögum. Hér undir geta til að mynda fallið upplýsingar um fjármál einstaklinga og upplýsingar sem lúta beinlínis að öryggi þeirra.
Úttekt sem Mental ráðgjöf ehf. vann að beiðni dómsmálaráðuneytis hefur að geyma yfirlit yfir niðurstöður viðtala við starfsfólk embættis ríkissaksóknara. Úttektin hafði að markmiði að varpa ljósi á líðan starfsfólks og upplifun þess af vinnustaðarmenningu, stjórnarháttum og samskiptum innan embættisins. Í úttektinni eru tekin saman helstu atriði sem komu fram í viðtölunum. Einstakir starfsmenn eru ekki nafngreindir að undanskildum ríkissaksóknara og vararíkissaksóknara.
Úrskurðarnefndin telur að úttektin hafi að geyma upplýsingar um auðkennanlega einstaklinga. Það á ekki aðeins við um ríkissaksóknara og vararíkissaksóknara, sem nefnd eru sérstaklega, heldur einnig annað starfsfólk embættisins. Í ljósi smæðar vinnustaðarins telur nefndin að jafnvel þótt nöfn starfsmanna komi ekki fram séu upplýsingar í úttektinni, svo sem um tiltekin atvik, tiltekin hlutverk starfsmanna og tiltekin viðbrögð, sem myndu gera það kleift að bera kennsl á þá þannig að þeir yrðu persónugreinanlegir. Málefni annarra starfsmanna embættisins en ríkissaksóknara og vararíkissaksóknara falla því ekki utan gildissviðs 9. gr. upplýsingalaga af þeirri ástæðu að nöfn þeirra komi ekki fram.
Nefndin telur að úttektin hafi að geyma margvíslegar upplýsingar sem teljist varða einkamálefni starfsmanna embættisins og að þær komi mjög víða fram í úttektinni. Má þar nefna upplýsingar um heilsufar og andlega líðan, gildisdóma gagnvart samstarfsmönnum, persónulegar skoðanir og aðrar upplýsingar af persónulegum toga sem teljast samkvæmt almennum sjónarmiðum svo viðkvæmar að þær eigi ekkert erindi við allan þorra manna. Þá skal nefnt, þó það hafi ekki úrslitaþýðingu, að viðmælendur í úttektinni tjáðu sig um málið í trausti þess að vitnisburðir þeirra yrðu ekki gerðir opinberir. Nefndin telur samkvæmt þessu að úttektin hafi að geyma upplýsingar um einkamálefni starfsmanna embættis ríkissaksóknara sem sanngjarnt telst og eðlilegt að fari leynt samkvæmt 9. gr. upplýsingalaga. Í ljósi laga ganga þau sjónarmið hér framar hagsmunum almennings af aðgangi að þessum upplýsingum. Með vísan til þess hve víða upplýsingar af þessu tagi koma fram í úttektinni telst heldur ekki vera fært að veita aðgang að henni að hluta samkvæmt 3. mgr. 5. gr. upplýsingalaga.
Úrskurðarnefndin tekur fram að við mat á því hvort sanngjarnt sé að halda upplýsingum leyndum samkvæmt 1. málsl. 9. gr. upplýsingalaga skipt máli t.d. hvort upplýsingar sem óskað er eftir hafi verið birtar opinberlega með lögmætum hætti. Í þessu máli liggur fyrir að þótt tilteknar upplýsingar um málið séu á vitorði almennings samanstendur gagnið sem mál þetta varðar að stærstum hluta af upplýsingum sem ekki eru opinberar og varða einkamálefni starfsmanna embættisins. Það telst því sem fyrr segir bæði sanngjarnt og eðlilegt að þær upplýsingar fari leynt. Ákvörðun ráðuneytisins verður því staðfest.
Úrskurðarorð
Ákvörðun dómsmálaráðuneytis, dags. 25. september 2025, um afgreiðslu beiðni kæranda, […], dags. 20. september 2025, er staðfest.
Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir