09 apríl 2026
/
Úrskurður nr. 161/2026
Hinn 9. apríl 2026 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 161/2026
í stjórnsýslumáli nr. KNU24090076
Kæra [...]
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 11. september 2024 kærði kona er kveðst heita [...], vera fædd [...] (hér eftir kærandi), og vera ríkisborgari Nígeríu, ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 30. maí 2024, um að synja henni og barni hennar, [...], kt. [...] (hér eftir A), ríkisborgara Nígeríu, um alþjóðlega vernd á Íslandi en veita þeim dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðunum Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi og barn hennar eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
2 Málsatvik
Samkvæmt lögregluskýrslu kom kærandi til landsins frá Ítalíu og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 26. desember 2022. Kærandi kom til landsins frá Ítalíu, hvar hún hefur hlotið alþjóðlega vernd. Kærandi kvaðst komin til Íslands þar sem hún væri vonast eftir betra lífi fyrir sig og ófætt barn sitt. Kærandi kvaðst við komu vera komin fimm mánuði á leið og að hún ætti móður, tvær systur og bróður í Nígeríu.
Kærandi eignaðist A hér á landi [...] og varð umsókn barnsins um alþjóðlega vernd hluti af málsmeðferðinni við fæðingu.
Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum 27. desember 2022 kom í ljós að fingraför hennar höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum á Ítalíu. Hinn 19. janúar 2023 var upplýsingabeiðni beint til yfirvalda á Ítalíu, sbr. 34. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá ítölskum yfirvöldum, dags. 15. febrúar 2023, kom fram að kærandi hefði dvalarleyfi á grundvelli viðbótarverndar með gildistíma til 24. október 2024. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 2. febrúar 2023, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Umsókn kæranda var synjað á grundvelli 36. gr. laga um útlendinga með ákvörðunum Útlendingastofnunar, dags. 20. mars 2023. Ákvörðun Útlendingastofnunar var staðfest með úrskurði kærunefndar nr. 313/2023, dags. 1. júní 2023. Kærandi óskaði eftir frestun réttaráhrifa á þeim úrskurði sem var hafnað með úrskurði kærunefndar nr. 381/2023, dag. 22. júní 2023. Útlendingastofnun tók umsóknir kæranda og barns hennar til efnislegrar meðferðar þar sem ekki tókst að flytja kæranda og barn hennar innan frests samkvæmt þágildandi ákvæði 32. gr. c reglugerðar um útlendinga, nr. 540/2017.
Kærandi kom til viðtals vegna efnismeðferðar hjá Útlendingastofnun 21. maí 2024 ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindi frá ástæðum flótta síns. Kvaðst kærandi fædd og uppalin í borginni Benín í Edo fylki. Kvaðst kærandi hafa flúið Nígeríu árið 2016 en þá hafi hún verið í skóla. Vinkona kæranda hafi kynnt hana fyrir hópi sem hafi ekki verið góður og væri í rauninni gengi. Hafi kærandi verið tekin inn í hópinn í veislu þar sem hún hafi verið skorin til blóðs og þvinguð til að stunda kynlíf með nokkrum meðlimum hópsins. Kærandi hafi þá áttað sig á að um væri að ræða gengi sem kallist Neo Black Movement eða Aye. Hafi kærandi og vinkona hennar rifist um þetta og vinkona hennar sagt að kærandi mætti ekki segja neinum frá. Yfir sumarið hafi kærandi verið að heiman þar sem hún hafi starfað sem saumakona. Í ágúst 2016 hafi kærandi orðið fyrir líkamsárás af hálfu meðlima hópsins þar sem hún hafi lýst því yfir að vilja ekki vera meðlimur hópsins. Í október sama ár hafi vinkona hennar og meðlimir í hópnum komið að heimili kæranda, ráðist á stjúpmóður hennar og hellt sýru yfir andlit hennar. Kærandi hafi í kjölfarið dvalið hjá fyrrverandi kærasta sínum sem hafi ráðlagt henni að yfirgefa landið. Kvaðst kærandi hafa fengið hótanir í gegnum vinkonu sína en þær síðustu hafi verið í október árið 2016. Kærandi hafi fengið aðstoð við að yfirgefa Nígeríu og farið um Líbíu hvar hún hafi verið neydd til að stunda vændi. Viðskiptavinur hafi hjálpað henni að komast til Ítalíu en þangað hafi hún komið árið 2017. Kvaðst kærandi vera í sambandi við móður sína en ekki föður sinn þar sem hann væri ennþá reiður henni vegna árásarinnar á stjúpmóður hennar. Lagði kærandi fram ljósmyndir af konu með áverka á andliti og dánarvottorð sem hún kvað sýna fram á andlát stjúpmóður sinnar. Kvað kærandi fjölskyldu sína búa í Benín borg. Þá kvað kærandi barnsföður sinn búa á Ítalíu. Aðspurð kvaðst kærandi hafa orðið fyrir kynfæralimlestingum í heimaríki en vera mótfallin slíku fyrir barn sitt. Þá kvaðst hún telja að barnsfaðir hennar væri það einnig.
Með ákvörðunum Útlendingastofnunar var kæranda og barni hennar synjað um alþjóðlega vernd en veitt dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærandi kærði ákvarðanirnar til kærunefndar 11. september 2024 og kærunefnd barst greinargerð kæranda 25. september 2024.
3 Greinargerð til kærunefndar
Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.
Um málsatvik er vísað til fyrirliggjandi gagna málsins.
Í greinargerð kæranda er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Nígeríu mótmælt með vísan til landaupplýsinga einkum hvað varðar aðstæður á heimasvæði kæranda, stöðu kvenna og hagsmuna barnsins. Telur kærandi að mat Útlendingastofnunar hafi leitt til efnislega rangrar niðurstöðu. Þá eru gerðar athugasemdir við mat Útlendingastofnunar á trúverðugleika kæranda en frásögn hennar hafi verið í samræmi við fyrirliggjandi landaupplýsingar.
Kærandi krefst þess aðallega að henni og barni hennar verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamenn hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Byggir kærandi kröfu sína á því að óttast ofsóknir af hendi hópsins Neo Black Movement/Black Axe. Þá byggir kærandi á því að tilheyra þjóðfélagshópi þolenda kynfæralimlestingar og því að barn hennar eigi á hættu kynfæralimlestingu í heimaríki.
Verði ekki fallist á aðalkröfu krefst kærandi þess til vara að henni og barni hennar verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Byggir kærandi kröfu sína einkum á sömu málsástæðum og fyrir aðalkröfu.
Verði ekki fallist á framangreindar kröfur krefst kærandi þess að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði staðfestar.
4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga
Í greinargerð kæranda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum við málsmeðferð og ákvarðanatöku Útlendingastofnunar. Telur kærandi að málsmeðferð stofnunarinnar hafi verið haldin annmörkum hvað varðar mat á trúverðugleika frásagnar kæranda.
Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hinar kærðu ákvarðanir sem eru í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til að fella ákvarðanir Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.
5 Alþjóðleg vernd
5.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.
Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).
5.2 Réttarstaða barna
Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.
Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með hagsmuni þess að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.
Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.
Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að barn það sem hér um ræðir er í fylgd móður sinnar og haldast úrskurðir fjölskyldunnar því í hendur.
5.3 Auðkenni
Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi hafi við komu til landsins lagt fram ítalskt flóttamannaskilríki og dvalarleyfiskort. Þrátt fyrir að kærandi hafi veitt sömu upplýsingar um nafn sitt og fæðingardag hér á landi og á Ítalíu var það mat Útlendingastofnunar að kærandi hefði ekki sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti og vafi léki á auðkenni hennar. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærandi hafi ekki sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Þar sem kærandi hafði fengið málsmeðferð og viðbótarvernd á Ítalíu á grundvelli uppgefins auðkennis var það lagt til grundvallar við úrlausn málsins. Ekki er ástæða til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærandi sé nígerískur ríkisborgari.
Þar sem barn kæranda er fætt hér á landi var auðkenni þess talið upplýst og samkvæmt nígerískum lögum öðlast barn fætt nígerísku foreldri utan Nígeríu ríkisborgararétt og er barnið því nígerískur ríkisborgari.
5.4 Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Nígeríu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- 16 Facts About Violence Against Women and Girls in Nigeria (UNICEF, 22. nóvember 2022);
- 2024 Country Reports on Human Righs Pracitces; Nigeria (U.S. Department of State, 12. ágúst 2025);
- 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Nigeria (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Nigeria (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
- 2023 Trafficking in Persons Report – Nigeria (U.S. Department of State, 2023);
- Amnesty International Report 2023/2024 – Nigeria (Amnesty International, 2024);
- Amnesty International Report 2022/23 – Nigeria (Amnesty International, 27. mars 2023);
- Annual report on religious freedom (covering 2024) (USCIRF, mars 2025);
- Annual report on religious freedom (covering 2021) (USCIRF, apríl 2022);
- Country of Origin Information Report Nigeria (The Netherlands, Ministry of Foreign Affairs, janúar 2023);
- Country of origin information report Nigeria (The Netherlands, Ministry of Foreign Affairs, júní 2021);
- Country Profile, FGM in Nigeria (28 Too Many, mars 2023);
- The Law and FGM (28 Too Many, júní 2018);
- Country Profile, FGM in Nigeria (28 Too Many, október 2016);
- Country Policy and Information Note – Nigeria: Actors of Protection (U.K. Home Office, ágúst 2024);
- Country Policy and Information Note – Nigeria: internal relocation (U.K. Home Office, júlí 2024);
- Country Policy and Information Note – Nigeria: Female Genital Mutilation (FGM) (U.K. Home Office, júlí 2022);
- Country Policy and Information Note- Nigeria: Medical treatment and healthcare (U.K. Home Office, desember 2021);
- Country information note: medical treatment and healthcar (U.K. Home Office, desember 2025);
- Country Policy and Information Note – Nigeria: Country Background Note (U.K. Home Office, 7. janúar 2020);
- Country Policy and Information Note – Nigeria: Trafficking of women (U.K. Home Office, apríl 2022);
- Country Policy and Information Note: Nigeria: Women fearing gender-based harm or violence (UK Home Office, ágúst 2016);
- DFAT Country Information Report - Nigeria (Australian Department of Foreign Affairs and Trade, 3. desember 2020);
- EASO COI Report – Nigeria - Actors of Protection (EASO, nóvember 2019);
- EUAA COI Report – Nigeria – Country Focus (EUAA, 12. júlí 2024);
- EUAA COI Report – Nigeria – Trafficking in human beings (EUAA, 25. apríl 2021);
- EUAA COI Report – Nigeria: Security Situation ( EUAA, júní 2021);
- Freedom in the World 2023 – Nigeria (Freedom House, 2023);
- Freedom in the World 2024 – Nigeria (Freedom House, febrúar 2024);
- Freedom in the World 2025 – Nigeria (Freedom House, febrúar 2025);
- Health care in Nigeria, Challenges and recommendations (Socialprotection.org, 7. febrúar 2019);
- Information on trafficking including situation for returness of previous trafficking and risk og re-trafficking (Refugee Documentation Centre, RDC, Legal Aid Board, 17. júní 2019);
- Edo – det nigerianska navet för migration och mannskohandel (1.0) (Migrationsverket, 16. desember 2019);
- Edo Government House, newsletter 5ht – 11th May 2025 (Edo State government, 11. maí 2025);
- Nigeria – Country Focus (EUAA, júlí 2024);
- Nigeria – Country Focus (EUAA, nóvember 2025);
- Nigeria 2023 International Religious Freedom Report – Nigeria (U.S. Department of State, 26. júní 2024)
- Nigeria 2021 International Religious Freedom Report (U.S. Department of State, 2. júní 2022);
- Nigeria Police Effectiveness (Ireland – Refugee Documentation Centre (RDC), 25. apríl 2019);
- Nigeria: Psykisk helsevern (Landinfo, 23. júní 2017);
- Nigeria – Practical Cooperation Meeting 12-13 June 2017 Rome (EUAA, 21. ágúst 2017);
- Nigeria: Security Situation – Country of Origin Information Report (EUAA, nóvember 2025);
- Nigeria – Trafficking and re-trafficking (Ireland – Refugee Documentaion Centre (RDC), 16. júní 2019);
- Nigeria: The Black Axe confraternity (Aiye Confraternity; Ayee), also known as the Neo Black Movement of Africa (NBM), including initiation, rituals, oaths of secrecy, and use of symbols or particular signs; whether they use force to recruit individuals; the treatment of anti-cultists; activities in Candada (2020-November 2022), (Immigration and Refugee Board of Canada, október 2022);
- Nigeria: Whether women who head their own household, without male or family support, can obtain housing and employment in Abuja, Lagos, Ibadan and Port Harcourt; government support services available to female-headed households (2017-November 2019) (Immigration and Refugee Board of Canada, 29. nóvember 2019);
- Ninth Report on Violence in Nigeria (Nigeria Watch, 2019);
- Medical Country of Origin Information Report: Nigeria (EUAA, apríl 2022);
- Responses to Information Requests (Immigration and Refugee Board of Canada, 20. nóvember 2019);
- Social Institutions and Gender Index 2019 - Nigeria (Organisation for Economic Co-operation and Development (OECD), 7. desember 2018);
- Stjórnarskrá Nígeríu (Constitution of the Federal Republic of Nigeria 1999, https://www.wipo.int/edocs/lexdocs/laws/en/ng/ng014.en.pdf);
- The World Factbook – Nigeria (CIA, uppfært 8. júlí 2025);
- The State of Nigeria’s Children 2024 (UNICEF, nóvember 2024);
- Upplýsingar af vefsíðu samstarfsverkefnis Evrópusambandsins og alþjóðlegu fólksflutningastofnunarinnar (https://www.migrationjointinitiative.org/countries/sahel-and-lake-chad/nigeria, sótt 11. apríl 2025);
- Upplýsingar af vefsíðu Acled Data (síðast skoðað 30. júlí 2025);
- Violent Extremist in West Africa (Denmark – Immigration Service, COI Division, 28. júní 2020);
- World Directory of Minorities and Indigenous Peoples – Nigeria (Minority rights group International, janúar 2018);
- Vest-Afrika: Nettverk (Landinfo, 15. maí 2019) og
- World Report 2025 – Nigeria: Events of 2024 (Human Rights Watch, 17. janúar 2025).
Nígería er sambandslýðveldi með um 237 milljónir íbúa. Nígería var nýlenda Bretlands fram að sjálfstæði þess árið 1960 og sama ár gerðist Nígería aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti bæði alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1993. Þá fullgilti ríkið mannréttindasáttmála Afríku árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1991. Ríkið fullgilti sáttmála Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu árið 2004, samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 2001 og valfrjálsa viðbótarbókun við þann samning árið 2009. Samkvæmt skýrslu utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna um trúfrelsi frá árinu 2024 er talið að um helmingur íbúa landsins séu múslimar og hinn helmingurinn kristinn. Þar kemur fram að trúfrelsi sé verndað í stjórnarskrá Nígeríu og einnig sé að finna ákvæði sem banni stjórnvöldum að koma á ríkistrú. Flestir íbúar svæða í Norður-Nígeríu séu múslimar og í Suður-Nígeríu séu kristnir í meirihluta. Bæði kristnir og múslimar hafi greint frá mismunun á grundvelli trúar sinnar á þeim svæðum þar sem þeir séu í minnihluta.
Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Alþjóðasambands sakamálalögreglu (e. Interpol) er löggæsla ríkisins aðallega í höndum ríkislögreglu Nígeríu sem talin er samanstanda af rúmlega 350.000 lögregluþjónum. Ríkislögreglan annist löggæslustörf í öllum 36 fylkjum Nígeríu og höfuðborginni Abuja. Hlutverk ríkislögreglunnar sé að vernda einstaklinga og eignir, koma í veg fyrir afbrot, upplýsa og rannsaka glæpi auk þess að sækja afbrotamenn til saka. Samkvæmt skýrslum EUAA frá 2018 eru nokkrar sérhæfðar deildir innan ríkislögreglunnar sem annist sértæk brot. Ríkislögreglan hafi verið gagnrýnd fyrir spillingu og mannréttindabrot af ýmsum rannsakendum og samtökum. Dæmi séu um að lögregluþjónar hafi orðið uppvísir að því að kúga fé af almennum borgurum og sleppa sakborningum gegn mútugreiðslum. Þá sé talið að allt að 80% lögreglumanna einblíni á að veita efnamiklum einstaklingum persónulega þjónustu. Þá sé mikill skortur á lögreglumönnum í ríkinu auk þess sem þjálfun lögreglumanna sé ábótavant og skortur sé á fjármagni frá ríkinu. Í ríkinu séu þó til staðar formlegar kvörtunarleiðir vegna misferlis lögreglu í starfi eða spillingar, t.d. mannréttindanefndin NHRC. Þá skorti skilvirkar leiðir til að eiga við, rannsaka og refsa vegna ofbeldis eða spillingar öryggissveita. Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 að yfirvöld í Nígeríu hafi tekið skref í átt að því að rannsaka, ákæra og refsa meðlimum lögreglu- og öryggissveita sem ásakaðir hafi verið um brot. Þó hafi refsileysi og spilling verið áframhaldandi vandamál.
Fram kemur í framangreindum gögnum, t.a.m. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2023, að töluverð spilling sé innan dómkerfisins, auk þess sem skortur sé á þjálfun dómara. Þó kemur fram í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá ágúst 2024 að þrátt fyrir veikleika í stjórnkerfinu hafi yfirvöld almennt getu og vilja til að veita vernd. Komið hafi verið á fót embætti umboðsmanns í Nígeríu árið 2004 (e. The Public Complaints Commission) en um sé að ræða sjálfstæða og óháða stofnun sem taki á móti kvörtunum borgara og tryggi rétt þeirra gagnvart nígerískum stjórnvöldum endurgjaldslaust. Hægt sé að nálgast skrifstofur umboðsmanns í öllum 36 fylkjum Nígeríu. Þá kemur fram að ýmsar eftirlitsnefndir starfi í Nígeríu sem almenningur geti beint kvörtunum sínum til, s.s. mannréttindanefndin (e. The National Human Rights Council (NHRC)) sem hefur það hlutverk að rannsaka meint brot gegn mannréttindum. Þá geti almennir borgarar beint kvörtunum til umboðsmanns í Nígeríu ef þeir eru ósáttir við málsmeðferð stjórnvalda. Jafnframt geti almenningur leitað til nígeríska lögregluráðsins (e. The Nigeria Police Council) og framkvæmdastjórnar lögreglunnar (e. Police Service Commission) sem hafi eftirlit með störfum lögreglunnar. Stofnunin DSVA (e. Domestic and Sexual Violence Agency) fari með rannsókn, eftirlit og stuðning vegna mála er lúta að ofbeldi.
Samkvæmt skýrslu EUAA frá nóvember 2025, má rekja helstu orsakir dauðsfalla og ofbeldis í Nígeríu til glæpastarfsemi. Þar á eftir komi pólitísk átök, trúarleg málefni og umferðaslys. Öryggisástandið sé hvað verst í norðurhluta Nígeríu vegna átaka hryðjuverkahópa, átaka um landsvæði og aðgerða nígerískra stjórnvalda gegn uppreisnarmönnum. Í suðurhluta Nígeríu megi aðallega rekja dauðsföll til glæpa og þjóðernis- og samfélagslegs ágreinings. Á tímabilinu desember 2022 til júní 2023 hafi Sameinuðu þjóðirnar greint frá fækkun hryðjuverkaárása og dauðsfalla sem rekja megi til sameiginlegra aðgerða nígerískra stjórnvalda og Multinational Joint Task Force (MNJTF) gegn Boko Haram, afvopnunar fyrrverandi hermanna og stuðningsmanna Boko Haram og átaka á milli Boko Haram og ISWAP. Heimildir bendi þó til þess að stórfelldar árásir haldi áfram að eiga sér stað og vopnaðar vígasveitir starfi áfram í norðurhluta Nígeríu. Samkvæmt upplýsingum frá Sameinuðu þjóðunum hafi óstöðugleiki aukist á fyrri helmingi ársins 2024 einkum við landamæri Nígeríu og Níger og Benín. Samkvæmt skýrslu EUAA frá 2021 og ACLED frá 2024 var hryðjuverkahópurinn Boko Haram, einnig þekktur sem JAS, stofnaður árið 2002 og er einn valdamesti vopnaði vígahópurinn í Nígeríu. Markmið hópsins sé að skipta nígeríska ríkinu út fyrir íslamskt ríki og byggir hópurinn á strangri túlkun á Sharia-lögum. Meginhluti starfsemi hópsins hafi verið friðsæl og ofbeldislaus fyrir árið 2009 en í kjölfar þess að skólastúlkum hafi verið rænt í Chibok árið 2014, hafi hópurinn vakið heimsathygli og verið þekktur sem banvænasti hryðjuverkahópur heims. Síðan þá hafi hópurinn stækkað til nágrannalanda Nígeríu, Kamerún, Tsjad og Níger og hertekið landsvæði. Hópurinn hafi verið í uppreisn á árunum 2014 til 2015 og náð stjórn yfir mikilvægum landsvæðum í norðausturhluta Nígeríu. Nígerísk stjórnvöld og samstarfsmenn þeirra hafi allt frá árinu 2015 barist gegn vígahópnum sem hafi leitt til þess að dregið hafi úr starfsemi hópsins og hann misst yfirráðasvæði. Árið 2016 hafi Boko Haram skipst í tvær fylkingar, JAS og ISWAP og í maí 2021 hafi leiðtogi Boko Haram/JAS verið drepinn í átökum milli JAS og ISWAP. Allt frá þeim tíma hafi átt sér stað átök á milli beggja fylkinga vegna yfirráða landsvæða.
Í skýrslu EASO (nú EUAA) frá árinu 2022 kemur fram að Nígería hafi gerst aðili að Maputo viðaukanum við mannréttindasáttmála Afríkuríkja árið 2003. Þar með hafi ríkið gengist undir skyldu til þess að tryggja þolendum kynbundins ofbeldis aðgengi að innlendum og svæðisbundnum dómstólum til þess að leita réttar síns. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins sem gefin var út í mars 2023 kemur fram að þótt konur og karlar njóti sömu réttinda samkvæmt stjórnarskrá Nígeríu sé raunin ekki alltaf sú og ógiftar konur eigi sérstaklega undir högg að sækja. Konur verði fyrir margskonar mismunun þegar komi að efnahagslegum réttindum, en til að mynda tryggi lög konum ekki jöfn laun og körlum fyrir sambærileg störf. Auk þess sé mismunun byggð á kyni ekki óheimil við ráðningu í störf. Þá sé venjan sú að konur geti ekki eignast land nema í gegnum eiginmann sinn eða fjölskyldu. Venjan sé jafnframt sú að í mörgum tilfellum erfi konur ekki eiginmenn sína og sitji þá uppi allslausar við fráfall þeirra. Þá sé kynbundið ofbeldi gagnvart konum útbreitt vandamál í Nígeríu og séu ógiftar konur enn líklegri til þess að verða fyrir ofbeldi. Heimilisofbeldi í landinu sé útbreitt vandamál og í sumum ríkjum sé það félagslega samþykkt. Þá tíðkist einnig afskiptaleysi meðal lögreglunnar í slíkum málum. Í skýrslum EUAA frá júlí 2024 og nóvember 2025 og á heimasíðu NAPTIP (e. the National Agency for the Prohibition of Trafficking in Persons and Other Related Matters) kemur fram að árið 2015 hafi verið samþykkt ríkislöggjöf gegn ofbeldi (e. The Act on Violence Against Persons Prohibitation). Árið 2021 hafi lögin verið endurskoðuð og á grundvelli laganna hafi verið sett á fót sérstök deild innan NAPTIP til þess að bregðast við auknu kynferðisofbeldi í Nígeríu. Lögin banni ofbeldi gegn konum og stúlkum og viðurkenni m.a. kynbundið ofbeldi sem form mismununar og leggi til að ríkin grípi til aðgerða til að koma í veg fyrir og bregðist við ofbeldi gegn einstaklingum. Í júní árið 2021 hafi Edo fylki samþykkt hin endurskoðuðu lög og innleitt þau í ágúst það sama ár. Þá kemur fram í heimildum að starfrækt sé í Edo fylki sérstök miðstöð fyrir þolendur kynferðis ofbeldis þar sem veitt sé heilbrigðisaðstoð, ráðgjöf og stuðningur. Í ársskýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 kemur fram að í september 2022 hafi Nígería fullgilt samning Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) gegn ofbeldi og áreitni á vinnustað. Nígería er fyrsta ríki Vestur-Afríku til að fullgilda samninginn og það áttunda í heiminum.
Samkvæmt framangreindum gögnum, þ. á m. skýrslum breska innanríkisráðuneytisins frá júlí 2022 og EUAA frá 2021 og 2025, er kynfæralimlesting á konum og stúlkubörnum útbreidd í Nígeríu en talið sé að um 10% kynfæralimlestinga í Afríku eigi sér stað í Nígeríu. Algengt sé að stúlkur yngri en fimm ára séu þolendur kynfæralimlestinga. Þrátt fyrir að tíðni kynfæralimlestinga fari lækkandi milli ára er talið að tíðni kynfæralimlestinga á stúlkum í Nígeríu sem séu á aldursbilinu 1-14 ára sé um 15-20% og að mesta áhættan sé á fyrsta aldursári stúlkunnar. Eftir 15 ára aldur minnki líkurnar á því að þær verði þolendur kynfæralimlestinga. Samkvæmt nígerískum alríkislögum er kynfæralimlesting á konum og stúlkum þó refsiverður verknaður. Lögin gildi hins vegar einungis í höfuðborg Nígeríu, Abuja, en öll fylki í Nígeríu, að undanskildu Kano fylki, hafi samþykkt svipuð lög sem leggi bann við verknaðinum. Flest tilvik kynfæralimlestinga eigi sér stað í fylkjunum Kano, Lagos, Kaduna, Imo pg Oyo. Þá mæli lög fyrir um a.m.k. þriggja ára fangelsisvist, sekt sem samsvari rúmlega 8.000 bandaríkjadollurum eða hvoru tveggja ef fólk framkvæmir kynfæralimlestingar á konum eða stúlkum. Fram kemur að í sumum tilvikum álíti lögreglan í Nígeríu kynfæralimlestingu kvenna einkamál fjölskyldunnar og í öðrum tilfellum styðji lögreglufulltrúar jafnvel aðgerðina. Aftur á móti hafi lögregluyfirvöld í Nígeríu hafið samstarf bæði með stjórnvöldum og frjálsum félagasamtökum við að bæta viðhorf og viðbrögð lögreglu við kynfæralimlestingu kvenna og öðrum hættulegum hefðum. Meðal annars hafi verið stofnuð sérstök deild innan lögreglunnar sem rannsaki kynbundið ofbeldi, komið hafi verið á fót athvörfum fyrir konur, auk þess sem gerendur hafi verið ákærðir. Þá séu flestir íbúar Nígeríu andsnúnir kynfæralimlestingu á konum og stúlkum og hafi m.a. ýmsir leiðtogar hvatt til afnáms á hefðinni. Komið hafi verið á fót aðgerðaráætlun, The National Policy and Plan of Action for the Elimination of FGM in Nigeria (2013-2017), með það að markmiði að afnema kynfæralimlestingar kvenna en aðgerðirnar hafi m.a. falið í sér fræðslu innan heilbrigðisstofnana, stjórnvalda, skóla, mismunandi samfélaga og víðar um bann gegn kynfæralimlestingu. Þá geti konur leitað til lögreglu, umboðsmanns, kirkna eða moskna, frjálsra félagasamtaka og athvarfa eigi þær á hættu kynfæralimlestingu. Þá sé afnám kynfæralimlestingar eitt af markmiðum aðgerðaráætlunar til ársins 2030 um sjáflbærni (e. 2030 Agenda for Sustainable Development) sem samþykkt var árið 2015. Þrátt fyrir framfarir sé erfitt að afnema kynfæralimlestingar kvenna og stúlkna í Nígeríu, m.a. vegna þess að verknaðurinn sé enn löglegur í sumum fylkjum, skortur sé á fræðslu meðal íbúa og á eftirliti með framkvæmd laganna. Fram kemur að ákvörðun um að umskera stúlkur liggi nær alltaf hjá foreldrum þeirra en ömmur og afar stúlknanna, ásamt elstu konunni í ætt fjölskyldu föður stúlkunnar, geti einnig haft áhrif á þá ákvörðun. Þó sé mjög sjaldgæft að ættingjar stúlkna hunsi ákvörðun foreldra hennar og framkvæmi aðgerðina án þeirra leyfis. Foreldrar, einkum mæður, geti sætt þrýstingi frá ættingjum og öldungum ættbálksins til þess að láta umskera dætur sínar og láti þau ekki undan geti það valdið deilum og foreldrar orðið fyrir gagnrýni í samfélaginu sem geti leitt til útskúfunar.
Fram kemur í framangreindum gögnum að ofbeldi gegn börnum sé útbreitt í Nígeríu. Samkvæmt skýrslu UNICEF frá 2022 sætir ein af hverjum fjórum stúlkum í Nígeríu kynferðisofbeldi. Talið sé að tæplega eitt prósent gerenda kynferðisbrota, sem tilkynntir séu til lögreglu, endi á að verða leiddir fyrir dóm og nánast engin mál endi með sakfellingu þeirra. Þolendur treysti margir hverjir ekki réttarkerfinu í Nígeríu og tilkynni því ekki brotin. Algengara sé að málin séu leyst utan réttarkerfisins. Ástæðu þess megi m.a. rekja til þekkingarskorts þolenda á lögunum og réttindum sínum, auk þess sem samfélagsleg viðhorf réttlæti misnotkun, ofbeldi og skömm þolenda. Slíkt leiði til refsileysis gerenda. Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Nigeria Health Watch skorti sálfræðinga og annað fagfólk til að styðja við börn sem séu þolendur kynferðisofbeldis í Nígeríu. Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna hafi unnið í samvinnu með yfirvöldum í Nígeríu, m.a. við að bæta lagaumgjörð um vernd barna gegn ofbeldi, breyta viðurkenndum félagsháttum sem feli í sér hættulegar hefðir líkt og kynfæralimlestingar og barnahjónabönd, auk þess sem unnið hafi verið að styrkingu félagslegrar þjónustu og barnaverndarstarfs þar í landi. Ennfremur hafi verið unnið í samstarfi með alþjóðlegum aðilum að því að draga úr barnahjónaböndum sem og að forvarnarstarfi meðal ráðuneyta og stofnana með það að markmiði að stöðva ofbeldi gagnvart börnum. Í framangreindum gögnum kemur fram að Nígería hafi fullgilt samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1991 og stofnskrá Afríkusambandsins um velferð og réttindi barnsins (e. The African Charter on the Rights and Welfare of the Child) árið 2000. Árið 2003 hafi þjóðþing Nígeríu samþykkt lög um réttindi barnsins (e. The Child Rights Act) og tóku þau gildi sama ár. Þar sem Nígería sé sambandslýðveldi sé ekki nóg að þjóðþingið lögfesti reglurnar heldur þurfi bæði fylkisþing og landstjóri hvers fylkis einnig að færa regluverkið í fylkislöggjöf svo löggjöfin taki gildi í hverju fylki. Árið 2016 hafi 24 af 36 fylkjum tekið lögin í gildi og séu flest þeirra í suðurhluta Nígeríu. Lögin kveði á um að allar ákvarðanir eða ráðstafanir er varða börn skuli byggðar á því sem sé barninu fyrir bestu. Í lögunum komi einnig fram að öll börn eigi rétt á að njóta menntunar. Árið 2004 hafi þjóðþing Nígeríu samþykkt löggjöf sem kveði á um gjaldfrjálsa grunnskólagöngu (e. The Universal Basic Education (UBE) Programme). Hafi þessi nýjung verið leidd í lög með því markmiði að fjölga nemendum í grunnskóla og koma á fót ókeypis og skyldubundnu skólakerfi fyrir öll börn í Nígeríu. Í skýrslu UNICEF frá árinu 2024 kemur fram að undanfarna áratugi hafi Nígería náð framförum í átt að því að auka innritun í skóla, þróa stafrænar lausnir í kennslumálum auk þess að bæta aðstöðu og gæði kennslustofnana. Stefna ríkisstjórnarinnar, Renewed Hope, feli í sér nýja leiðarlýsingu fyrir menntageirann, sem einbeiti sér að grunnmenntun. Eitt markmið áætlunarinnar sé að þau 15 milljón börn sem séu utan skóla skili sér í skólastofuna árið 2027. Þá sé markmiðið að bæta aðgengi að menntun, innviði skóla og gæði námsins. Fátækt, átök innanlands og skortur á fullnægjandi fjármagni séu helstu hindranir í vegi þess að framangreindar áætlanir stjórnvalda nái fram að ganga. Félagslegri aðstoð sé ætlað að draga úr fátækt meðal viðkvæmustu meðlima samfélagsins. Mikill fjöldi Nígeríumanna hafi síðustu ár notið góðs af fjárhagsstyrkum eða verkefnum til að bæta atvinnutækifæri en þessi aðstoð nái þó ekki til allra og margir, sérstaklega börn, njóti ekki slíkrar aðstoðar.
Í skýrslum breska innanríkisráðuneytisins frá því í júlí 2019 og apríl 2022 kemur fram að Nígería sé upprunaland, viðkomustaður og áfangastaður mansals og nauðungarvinnu. Flestir þolendur mansals komi frá borginni Benín í Edo fylki. Fram kemur að nígerísk stjórnvöld uppfylli ekki enn lágmarksviðmið ríkja vegna baráttu gegn mansali en hafi þó tekið mikilvæg skref til að auka vernd borgara sinna og koma í veg fyrir mansal. Gerðar hafi verið ýmsar stefnubreytingar í þessum málum og sérstök löggjöf sett til að koma í veg fyrir, uppræta og refsa fyrir mansal. Þá hafi stjórnvöld, í samvinnu við alþjóðleg samtök og önnur ríki, þjálfað lögreglulið landsins, starfsmenn ríkisins og stofnanir til að gera þeim betur kleift að rannsaka, sækja til saka og sakfella gerendur mansals. Árið 2003 hafi tekið gildi lög sem komu stofnuninni NAPTIP á laggirnar. Markmið NAPTIP sé að vekja athygli á málefninu, fræða þjóðina og með þeim hætti að reyna að koma í veg fyrir frekara mansal, vernda þolendur mansals ásamt því að sækja gerendur til saka. Einnig hafi verið samþykkt sérstök lög gegn mansali árið 2015 sem þá hafi gert það refsivert að stunda mansal og mæli enn fremur fyrir um fangelsisvist allt að fimmtán árum fyrir brot gegn þeim. Starf NAPTIP felist í því að stuðla að framfylgni laga og reglugerða gegn mansali í Nígeríu, rannsaka mansalsmál og fræða og efla lögreglu og aðra aðila sem komi að upprætingu mansals í Nígeríu. Einnig aðstoði stofnunin þolendur mansals með því að veita þeim skjól, ráðgjöf, hafa uppi á fjölskyldumeðlimum þeirra, aðstoða við heimkomu og aðlögun að samfélaginu á ný. Samkvæmt skýrslu Landinfo og skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá því í apríl 2022 hafi NAPTIP þekkingu og reynslu af því að sinna þolendum mansals sem eigi börn. NAPTIP hafi til umráða húsnæði fyrir þolendur mansals í borgunum Abuja, Lagos, Benín, Uyo, Enugu, Kano, Sokoto, Maiduguri og Markudi. Þá kemur fram í skýrslu frá EUAA frá árinu 2025 að dvöl í húsnæði NAPTIP sé ekki langtímalausn og dvelji þolendur þar í um tvær til sex vikur. NAPTIP vinni með frjálsum félagasamtökum sem geti útvegað þolendum mansals langtímahúsnæði og andlegan stuðning. Þá verði konur sem dvelji hjá NAPTIP í einhverjum tilvikum fyrir aðkasti í samfélaginu þar sem gert sé ráð fyrir að þær hafi unnið við vændi erlendis. Af þeim sökum hafi NAPTIP reynt að senda konur eins fljótt og verða megi til fjölskyldu sinnar eða í annað húsnæði. Skortur á fjármagni takmarki getu NAPTIP og frjálsra félagasamtaka við að aðstoða þolendur mansals við að aðlagast samfélaginu og standa á eigin fótum. Nígerísk yfirvöld hafi komið til móts við umræddan fjárskort hjá NAPTIP og veitt þolendum mansals fjárstyrk sem aðstoði við aðlögun að samfélaginu. Þá kemur fram í skýrslu EUAA frá árinu 2025 að hin ýmsu félagasamtök hafi verið mikilvægir samstarfsaðilar við endurkomu fólks frá Nígeríu. Trúarleg samtök veiti einnig ráðgjöf og skjól fyrir þolendur mansals og aðstoði við aðlögun að samfélaginu á ný.
Í skýrslu sérstaks skýrslugjafa Sameinuðu þjóðanna um mansal frá apríl 2019 kemur fram að í ágúst 2017 hafi í Edo fylki verið sett á fót sérstakt aðgerðarteymi gegn mansali (e. Edo State task force against human trafficking (ETAHT)), nú fólkfslutningastofnun Edo fylkis (Edo State Migration Agency (EDMA)), sem leidd sé af dómsmálaráðherra fylkisins (e. State Attorney-General and Commissioner of Justice). Megin verkefni stofnunarinnar séu rannsókn og saksókn í mansalsmálum, forvarnir og vitundarvakning, aðstoð við þolendur með því að bjóða sálfræðiaðstoð, skammtíma og langtíma húsnæði, kennslu og þjálfun í iðngreinum og stuðningur og aðstoð við aðlögun þolenda sem snúa aftur heim. Þá vilji teymið vinna að því að uppræta rót vandans sem birtist í mansali og kynjamisrétti. Aðgerðarteymið sé byggt á þörfinni til að styrkja aðgerðir stjórnvalda og félagasamtaka í baráttunni gegn mansali í Nígeríu og nú hafi einnig verið komið á fót slíkum teymum í öðrum fylkjum s.s. Cross-river, Lagos, Ondo, Delta og Ekiti í samstarfi við UNODC og NAPTIP. Í gögnunum kemur þá fram að þolendur mansals séu líklegri til þess að sæta endurteknu mansali heldur en að sæta líkamlegu ofbeldi vegna hefndaraðgerða þeirra aðila sem staðið hafi að baki mansalinu. Lögreglan í ríkinu hafi þá almennt getu til þess að aðstoða þolendur mansals, jafnvel þótt þolendur standi enn í skuld við geranda sinn. Samkvæmt skýrslu EUAA frá nóvember 2025 benda ýmsar heimildir til þess að mansalsgerendur einblíni frekar á að finna nýja þolendur mansals í stað þess að beita þolendur ofbeldi, sem enn standi í skuld við þá, þar sem þeir vilji síður draga að sér athygli lögregluyfirvalda í Nígeríu. Þrátt fyrir að dæmi séu um að fjölskyldur þolenda verði fyrir ofbeldi eða árásum af hálfu mansalsgerenda bendi heimildir til þess að slíkar hefndaraðgerðir séu sjaldgæfar samkvæmt framangreindri skýrslu EASO. Oft sé ástæðan sú að fjölskyldur þolenda komi að mansalinu sjálfu.
Í skýrslu EUAA frá árinu 2021 og skýrslu flóttamannastofnunar Kanada frá árinu 2022 kemur fram að mikið sé um leynileg glæpasamtök og bræðralög í Nígeríu. Algengt sé að slík samtök starfi innan háskóla en þau stundi einnig umfangsmikla glæpastarfsemi fyrir utan háskólasvæðin. Samtökin séu þekktust fyrir ógnandi hegðun og ofbeldi gagnvart nemendum, kennurum, lögreglu og öðrum samtökum. Dæmi séu jafnvel um að stjórnmálamenn ráði slík samtök til þess að beita andstæðinga sína ofbeldi. Eitt alræmdasta bræðralagið séu samtökin Black Axe og sé meginmarkmið samtakanna skipulögð glæpastarfsemi. Bera heimildir með sér að starfsemi þeirra nái til fjölmargra landa, t.a.m. Bandaríkjanna, Ítalíu og víðar um Evrópu . Fram kemur að samtök og bræðralög sem þessi séu bönnuð samkvæmt stjórnarskránni. Þá hafi þau einnig verið bönnuð með lögum sem samþykkt hafi verið árið 2004, Secret Cult and Cult Related Activities (Prohibition) Bill. Í Edo-fylki hafi þá verið sett á fót sérstakt aðgerðarteymi lögreglu gegn slíkum samtökum (Special Task force on Anti-Cultism). Af skýrslu EUAA frá 2021 kemur fram að upp hafi komið tilvik þar sem aðilar sem hafi neitað að ganga í slík samtök eða reyni að ganga úr þeim hafi orðið fyrir ofbeldi. Heimildir bera þá með sér að lögregla ákæri fyrir glæpi sem framdir séu af hópum og samtökum líkt og fyrir hvern annan glæp. Lögregluyfirvöld hafi í fjölda tilfella handtekið einstaklinga sem séu tengdir slíkum samtökum. Samkvæmt fréttagrein BBC hafa samtökin þó eflst undanfarin ár og bendi tveggja ára rannsókn fréttamiðilsins til þess að Black Axe séu orðin ein af dreifðustu og hættulegustu skipulögðu glæpasamtökum heims í dag. Rannsóknin hafi m.a. leitt í ljós að samtökin hafi tengsl við aðila innan stjórnvalda í Nígeríu. Nýjar heimildir benda þó til þess að yfirvöld í Nígeríu hafi brugðist við slíkri spillingu og árið 2025 beitti fylkistjóri Edo-fylkis sér fyrir sérstöku átaki með það að markmiði að uppræta slík glæpasamtök. Í átakinu felist m.a. efling sjálfstæði dómara og dómstóla, aðgerðir til að bæta launagreiðslur og lífeyriskerfi lögreglumanna, úrbætur í búnaði lögreglu til að efla viðbragðstíma, almenn fræðsla og ýmsar aðgerðir til þess að gera upptækan ágóða af glæpastarfsemi og nýta til góðs fyrir samfélagið.
Samkvæmt skýrslum breska innanríkisráðuneytisins frá desember 2021, desember 2025 og skýrslu EUAA frá apríl 2022 er heilbrigðiskerfinu í Nígeríu skipt í fyrsta, annað og þriðja stig og skiptist jafnframt í opinberan og einkageira. Fyrsta stig heilbrigðiskerfisins sé á vegum sveitarfélaga, annað stigið sé á vegum ráðuneyta í hverju og einu fylki og þriðja stigið á vegum alríkisins. Almenn heilbrigðisþjónusta sé almennt illa skipulögð og innviðir hennar veikburða. Aðgengi sé þá ekki gott sökum skorts á heilbrigðisstofnunum og heilbrigðisstarfsfólki víða um Nígeríu. Þá sé lækniskostnaður almennt hár og aðgengi að lyfjum slæmt. Heilbrigðisþjónusta sé fjórfalt aðgengilegri í þéttbýli heldur en í strjálbýli. Samkvæmt skýrslu UNICEF frá árinu 2024 sé grunnheilbrigðisþjónusta í boði á um 34 þúsund heilbrigðisstofnunum í landinu. Auk þess hafi alríkisstjórnin, 36 fylkisstjórar og samstarfsaðilar þeirra nýlega sett af stað átak til þess að bæta þjónustu og heilbrigði nígerísku þjóðarinnar. Þá hafi samstarf verið að öðrum verkefnum og stefnumótun í tengslum við heilbrigðisþjónustu, einkum í tengslum við ungbarnadauða og bólusetningar. Heilbrigðisþjónusta innan einkageirans sé almennt betri og skipulagðari en lækniskostnaður sé að meðaltali hærri en hjá opinbera geiranum. Allt að 60% íbúa Nígeríu hafi ekki haft fullnægjandi aðgang að lyfjum en aðgengi sé þó betra á þéttbýlli svæðum landsins. Þá komi fram að heilbrigðisþjónusta sé töluvert aðgengilegri í suðurhluta landsins en í norðurhluta þess.
Í skýrslu sérstaks skýrslugjafa Sameinuðu þjóðanna frá 2019 kemur fram að Evrópusambandið og alþjóða fólksflutningsstofnunin (IOM) starfi saman í sérstöku átaksverkefni er lúti að endursendingu fólks til Afríku sunnan Sahara. Fólksflutningsstofnunin í samstarfi við ýmsar innlendar stofnanir, svo sem innflytjendaþjónustu Nígeríu (e. Nigerian Immigration Service), nefnd ríkisins fyrir flóttamenn, innflytjendur og fólk á innri flótta (e. the National Commission for Refugees, Migrants and Internally Displaced Persons), NAPTIP, almannavarnir ríkisins og EDMA (e. Edo State Migration Agency) veiti ýmsa þjónustu vegna móttöku og aðlögunar einstaklinga sem snúi aftur til Nígeríu. Grunnþjónusta sé veitt, m.a. ferðir áfram til heimabæjar eða þorps, símar til frekari samskipta, matur, skammtímahúsnæði, heilbrigðisþjónusta og vernd. Þá sé einstaklingum með sérþarfir jafnframt vísað til heilbrigðisstofnana, sálfræðinga, í ráðgjöf og veitt aðstoð við fjölskyldusameiningu. Í frétt á heimasíðu IOM frá 23. júlí 2025 kemur fram að verkefnið hafi frá árinu 2022 aðstoðað um 21 þúsund Nígeríumenn við að snúa aftur til heimkynna sinna á öruggan hátt.
5.5 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir kröfu sína um alþjóðlega vernd á því að óttast ofsóknir af hálfu hópsins Neo Black Movement/Black Axe, því að vera þolandi kynfæralimlestinga og því að barnið A eigi á hættu kynfæralimlestingar í heimaríki.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að vinkona hennar hafi fengið hana til að mæta í veislu hvar hún hafi verið látin undirgangast athöfn sem falist hafi í því að taka úr henni blóð og þvinga hana til kynferðisathafna með meðlimum hópsins. Kærandi hafi ekki viljað ganga til liðs við hópinn þegar hún hafi áttað sig á því að um hafi verið að ræða Neo Black Movement/Black Axe og í kjölfarið hafi hún fengið hótanir. Þá hafi meðlimir hópsins ráðist á stjúpmóður hennar og skvett á hana sýru í október 2016. Stjúpmóðir kæranda hafi látist vegna þess árið 2023. Lagði kærandi fram ljósmyndir af konu með áverka í andliti sem hún kvað vera stjúpmóður sína auk dánarvottorðs stjúpmóður frá árinu 2023.
Við meðferð málsins lagði kærandi fram myndir af konu sem virðist vera með áverka eftir sýruárás eða bruna af öðrum völdum á höfði og andliti. Ekki verður ráðið af myndinni að um sé að ræða stjúpmóður kæranda enda ekkert sem tengir kæranda við umrædda konu. Þá lagði kærandi fram afrit af dánarvottorði nafngreindar konu sem gefið er út 29. maí 2024 og afrit vottaðrar yfirlýsingar vegna þess að nafngreindur aðili hafi óskað eftir útgáfu dánarvottorðs sömu konu, útgefið sama dag. Í afriti dánarvottorðs kemur ekkert fram um dánarorsök konunnar en í yfirlýsingunni kemur fram að konan hafi látist 6. mars 2023 sem afleiðing sýruárásar þegar hún hafi verið 65 ára. Þar sem um er að ræða afrit er ekki hægt að kanna gögnin með tilliti til áreiðanleika þeirra og hafa gögnin því takmarkað sönnunargildi fyrir mál kæranda. Nafn kæranda kemur hvorki fram í framlögðum gögnum né hefur á annan hátt verið sýnt fram á tengsl kæranda við framangreinda konu eða þann aðila sem óskar eftir útgáfu dánarvottorðsins. Eru framangreind gögn því ekki til þess fallin að styðja við frásögn kæranda af ástæðu flótta hennar frá heimaríki.
Hins vegar verður ekki talin ástæða til að draga í efa að gerð hafi verið tilraun til að fá kæranda til að ganga til liðs við Neo Black Movement eða Black Axe samtökin sem eru þekkt glæpasamtök til langs tíma í Nígeríu og víðar. Það er þó mat kærunefndar að kærandi hafi ekki á greinargóðan hátt gert líklegt að hún sé sérstakt skotmark samtakanna eða stafi hætta af þeim umfram aðra einstaklinga í heimaríki sínu. Horfir kærunefndin við það mat til þess að samtökin eru þekkt fyrir að vera með starfsemi í Evrópu og þá sérstaklega á Ítalíu hvar kærandi dvaldi fyrir komu sína hingað til lands og kærandi hefur ekki lýst neinu frekara áreiti í sinn garð eða fjölskyldu sinnar á þeim tæpu tíu árum sem liðið hafa síðan kærandi yfirgaf heimaríki sitt. Þá eru samtök á borð við Black Axe bönnuð í Nígeríu og yfirvöld í Nígeríu vinna að því að uppræta starfsemi þeirra með ýmsum aðgerðum. Hvað varðar frásögn kæranda af því að stjúpmóðir hennar hafi orðið fyrir árás hópsins eru framlögð gögn ekki til þess fallin að sanna slíka árás eða tengsl kæranda við þá konu sem er á myndunum. Verður sú frásögn kæranda því ekki lögð til grundvallar.
Í þeim gögnum sem kærunefnd hefur tekið til skoðunar um heimaríki kæranda kemur fram að borgurum landsins standi almennt raunhæf vernd yfirvalda til boða þurfi þeir á slíkri aðstoð að halda. Kærandi hefur ekki lagt fram gögn sem leiða líkur að því að hún geti ekki notið verndar lögreglu eða sýnt fram á það með öðrum hætti. Er það því mat kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að stjórnvöld geti ekki eða vilji ekki veita kæranda vernd telji hún þörf á því, m.a. með því að ákæra og refsa fyrir þær athafnir sem feli í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Verður því ekki fallist á að kærandi eigi á hættu ofsóknir af hálfu hópsins Neo Black Movement eða Black Axe.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvaðst kærandi hafa orðið fyrir kynfæralimlestingu í heimaríki. Kvaðst hún sjálf mótfallin því fyrir hönd A og telja að barnsfaðir hennar væri það einnig. Í greinargerð kæranda er byggt á því að kærandi muni ekki geta varið A fyrir slíkri meðferð í heimaríki og m.a. vísað til fjölskyldu hennar. Líkt og að framan greinir eru kynfæralimlestingar á konum og stúlkum refsiverður verknaður samkvæmt nígerískum alríkislögum. Lögin gilda hins vegar einungis í höfuðborg Nígeríu, Abuja, en öll fylki í Nígeríu að undanskildu Kano fylki, hafa samþykkt svipuð lög sem leggja bann við verknaðinum. Þrátt fyrir að tíðni kynfæralimlestinga fari lækkandi milli ára er talið að tíðni kynfæralimlestinga stúlkubarna í Nígeríu á aldursbilinu 1-14 ára séu um 15-25%. Eftir 15 ára aldur minnki líkurnar á því að stúlkur verði þolendur kynfæralimlestinga. Eins og að framan er greint hafa nígerísk lögregluyfirvöld hafið samstarf með bæði stjórnvöldum og frjálsum félagasamtökum við að bæta viðhorf og viðbrögð lögreglu við kynfæralimlestingum kvenna. Meðal annars hafi verið stofnuð sérstök deild innan lögreglunnar sem taki á móti þolendum kynferðisofbeldis, komið hafi verið á fót athvörfum fyrir konur, auk þess sem gerendur hafi verið ákærðir. Með vísan til framangreinds, einkum afstöðu kæranda, framangreindra landaupplýsinga og heimilda um að refsing liggi við kynfæralimlestingu kvenna í heimaríki kæranda er það mat kærunefndar að ekkert bendi til þess að A eigi á hættu kynfæralimlestingu í heimaríki gegn vilja kæranda. Þrátt fyrir að konur sæti almennt mismunun í Nígeríu og geti talist til sérstaks þjóðfélagshóps í skilningi 38. gr. laga um útlendinga nær sú mismunun ekki því alvarleikastigi að geta talist ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laganna. Verður því ekki fallist á að kærandi og barn hennar hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í heimaríki sínu á grundvelli kyns síns. Þá benda landaheimildir ekki til þess að konur sæti ofsóknum í Nígeríu af þeirri ástæðu að vera þolendur kynfæralimlestingar.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun lýsti kærandi aðstæðum sem benda til þess að hún hafi verið þolandi mansals í Líbíu árið 2016 en eftir að hún komst til Ítalíu hafi hún ekki orðið fyrir frekari afskiptum geranda. Þá kvaðst kærandi sjálf ekki óttast gerendur sína.
Með vísan til þeirra heimilda sem kærunefnd hefur skoðað um aðstæður í Nígeríu er ekki ástæða til að draga í efa frásögn kæranda um að hún kunni á einhverjum tímapunkti að hafa verið þolandi mansals. Fram kemur í ákvæði d-liðar 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga að þolendur mansals skuli teljast til sérstaks þjóðfélagshóps. Samkvæmt skýrslu EUAA frá október 2021 og nóvember 2025, geta þolendur mansals átt á hættu athafnir sem eru af slíku alvarleikastigi að þær jafngildi ofsóknum, t.d. ofbeldi og endurtekið mansal. Ekki séu allir þolendur mansals taldir standa frammi fyrir slíkri hættu að þeir geti talist hafa ástæðuríkan ótta við ofsóknir. Fram kemur að einstaklingsbundið mat þurfi að fara fram þar sem tekið sé mið af alvarleika og/eða endurtekningu athafna eða hvort um sé að ræða samansafn athafna sem talist geti til ofsókna. Við mat á því hvort líklegt sé að þolandi mansals eigi á hættu ofsóknir beri að taka tillit til ýmissa áhættuþátta, svo sem upphæðar skuldar þolanda gagnvart geranda sínum, þ.e. þeim sem standi að baki mansalinu, hvort þolandi hafi borið vitni gegn geranda sínum, valda og getu geranda, þekkingu geranda á fjölskyldu og bakgrunni þolanda, aldurs, fjölskylduaðstæðna, t.d. hvort um sé að ræða einstæða konu, félags- og efnahagslegan bakgrunn þolanda, aðgangs þolanda að stuðningsneti í heimaríki og þátttöku fjölskyldu þolanda í mansalinu. Ekki er fjallað um vægi hvers og eins áhættuþáttar við mat á því hvort þolandi mansals geti talist hafa ástæðuríkan ótta við ofsóknir eða hversu margir áhættuþættir verði að vera til staðar svo að leggja megi slíkt til grundvallar.
Þrátt fyrir að þolendur mansals geti átt erfitt uppdráttar við endurkomu til Nígeríu benda gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér til þess að þeir sæti almennt ekki ofsóknum við heimkomu og að til staðar séu innviðir sem sérhæfi sig í þjónustu og aðstoð við þolendur mansals, þ. á m. að sækja gerendur til saka. Þá sé mansal refsivert í Nígeríu og hafa lögregluyfirvöld og stofnunin NAPTIP almennt getu til þess að aðstoða þolendur mansals, jafnvel þótt þolendur standi enn í skuld við mansala sinn. Þá á kærandi þess kost að leita aðstoðar yfirvalda hjá stofnuninni NAPTIP, lögreglu og öðrum aðilum telji hún þess þörf, gegn hugsanlegum gerendum. Jafnframt verður að líta til þess að samkvæmt frásögn kæranda hafi hún aðeins verið þvinguð til vændis í Líbíu um stutt skeið árið 2016 en hefur síðan dvalið á Ítalíu, hvar hún nýtur viðbótarverndar. Þá kvaðst kærandi sjálf ekki óttast þá sem selt hefðu hana mansali. Að framangreindu virtu hefur ekki verið sýnt fram á að kærandi eigi á hættu ofsóknir í heimaríki sem rekja megi til þess að hún kunni að hafa verið þolandi mansals.
Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal, við mat samkvæmt 1. og 2. mgr. 37. gr. í málum sem varða börn, fylgdarlaus sem önnur, hafa það sem er barninu fyrir bestu að leiðarljósi. Í ákvæðinu kemur fram að við það mat beri að líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis barnsins, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skal tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Leggur kærunefnd mat á hagsmuni barna samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af upplýsingum úr fyrirliggjandi gögnum málsins og framangreindum aðstæðum í heimaríki þeirra. Sjónarmiðum barnsins var nægilega komið á framfæri með framburði kæranda og hagsmunagæslu talsmanns. Að teknu tilliti til ákvæða barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og íslenskrar löggjafar um barnavernd standa engin rök í vegi fyrir því að barnið fylgi móður sinni aftur til heimaríkis. Barn það sem um ræðir er í fylgd móður sinnar sem er heilsuhraust og vinnufær og nýtur barnið stuðnings hennar. Eins og áður greinir stendur barni kæranda til boða gjaldfrjáls menntun í heimaríki. Þá bera gögn með sér að barnið muni jafnframt hafa aðgang að heilbrigðiskerfinu í heimaríki. Með vísan til framangreinds og að teknu tilliti til sjónarmiða um öryggi, velferð og félagslegan þroska barnsins er það því fyrir bestu að fylgja móður sinni til heimaríkis síns.
Þegar frásagnir kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum hennar og barns hennar í heimaríki, telst kærandi ekki hafi sýnt fram á með rökstuddum hætti að þau eigi á hættu ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi og barn hennar uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.6 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir kröfu sína á einstaklingsbundnum aðstæðum síns og barns síns auk almennra aðstæðna í Nígeríu.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa verið búsett í Benín borg í Edo fylki áður en hún hafi yfirgefið heimaríki sitt.
Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda til þess að ástandið í Nígeríu sé ótryggt á sumum svæðum, þá einkum í norðurhluta landsins. Þótt hryðjuverkahópar starfi í landinu er það engu að síður mat kærunefndar að þau gögn og heimildir sem nefndin hefur yfirfarið við meðferð málsins bendi ekki til þess að aðstæður í Benín borg séu slíkar að kærandi og barn hennar eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði þeim gert að snúa aftur til Nígeríu.
Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kæranda er ljóst að þau atvik sem kærandi hefur lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburði kæranda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda eða barns hennar leiði til þess að þær eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi kærandi til baka. Kærandi og barn hennar uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.7 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga
Þar sem kærandi og barn hennar eru ekki flóttamenn samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.
6 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Með vísan til forsendna hinna kærðu ákvarðana og kröfu kæranda eru ákvarðanir Útlendingastofnunar staðfestar hvað varðar veitingu dvalarleyfa á grundvelli mannúðarsjónarmiða sbr. 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
7 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana eru þær staðfestar.
Úrskurðarorð:
Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar.
The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed.
Valgerður María Sigurðardóttir
Vera Dögg Guðmundsdóttir