09 apríl 2026
/
Úrskurður nr. 169/2026
Hinn 9. apríl 2026 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 169/2026
í stjórnsýslumáli nr. KNU24090087
Kæra [...]
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 12. september 2024 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Kólumbíu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 29. ágúst 2024, um að synja henni um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja henni um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
2 Málsatvik
Samkvæmt lögregluskýrslu kom kærandi til landsins frá Kólumbíu og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 9. apríl 2023. Kvaðst kærandi sækja um alþjóðlega vernd á Íslandi þar sem hún eigi maka hér á landi sem sótt hafi um alþjóðlega vernd á Íslandi í febrúar s.á. Kvaðst kærandi vera við góða heilsu.
Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 3. maí 2023 ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindi frá helstu ástæðum flótta síns. Kvaðst kærandi vera fædd og uppalin í Barranquilla í Atlántico héraði í Kólumbíu og að hún eigi þar íbúð. Aðspurð um hvar kærandi hafi verið búsett áður en hún fór frá Kólumbíu kvaðst hún hafa verið búsett í Baranquilla seinasta mánuðinn áður en hún fór en að þar áður hafi hún búið og starfað í Cúcuta í Norte de Santander í nokkra mánuði.
Kærandi greindi frá því að maki hennar (hér eftir A) væri frá hættulegu svæði í Venesúela. A hafi byrjað að vinna með rafmyntir og gengið mjög vel. Í lok árs 2022 hafi A greint kæranda frá því að einhver í Venesúela væri að beita hann fjárkúgun. Kvað hún A hafa óttast að honum yrði rænt og hann hafi talið sig vera í hættu. Kærandi og A hafi því í janúar 2023 ákveðið að A yrði að fara svo A hafi farið til Spánar og síðan ákveðið að sækja um alþjóðlega vernd á Íslandi. Aðspurð um hvort kærandi viti hverjir hafi verið að beita A fjárkúgun og um ástæðu þess kvað hún að um væri að ræða glæpahóp sem héldi til á svæðinu þar sem A hafi búið. A hafi orðið skotmark hópsins þar sem um væri að ræða fátækrahverfi og A hafi verið að færa móður sinni peninga. Kvað hún A hafa ferðast á milli Kólumbíu og Venesúela og að á ákveðnum tímapunkti hafi A ekki ferðast aftur til Venesúela og byrjað að greina kæranda frá því hvers vegna hann væri ekki að ferðast til baka. Kærandi kvað glæpahópinn ekki hafa haft samband við sig og er kærandi var spurð hvort hún hafi orðið fyrir hótunum eða ofbeldi af hálfu glæpagengis í Kólumbíu eða annars staðar svaraði hún að hún hafi ekki orðið fyrir slíku í Kólumbíu. Kærandi greindi frá því að þegar hún hafi búið við landamærin að Venesúela hafi hún starfað fyrir olíufyrirtæki og að öllum starfsmönnum fyrirtækisins hafi verið hótað af glæpamönnum. Þær hótanir hafi þó hætt eftir að kærandi hafi flutt frá landamærunum. Kærandi hafi ákveðið að koma til Íslands þar sem hún hafi verið einmana en auk þess hafi hún komið fyrir fjölskyldusameiningu. Aðspurð hvort þau A hafi leitað til lögreglunnar á einhverjum tímapunkti kvað hún þau ekki hafa gert það í Venesúela vegna mikillar spillingar innan lögreglunnar þar í landi. Þau hafi leitað til lögreglunnar í Kólumbíu sem hafi tjáð kæranda og A að þar sem um væri að ræða glæpahóp sem væri bara í Venesúela gæti lögreglan ekki hjálpað þeim og ekki tekið skýrslu af þeim. Kvaðst kæranda óttast glæpahópa í heimaríki og kvað hún glæpamenn frá Venesúela koma að landamærunum og til Kólumbíu. Hún telji sig ekki geta búið annars staðar í heimaríki og verið örugg og telji yfirvöld ekki geta veitt sér aðstoð eða vernd.
Líkamlega heilsu sína kvað kærandi vera góða. Aðspurð um andlega heilsu greindi kærandi frá því að hún hafi orðið fyrir kynferðisofbeldi í Kólumbíu og hafi gengist undir þungunarrof í kjölfarið. Hún væri stundum þunglynd og kvíðin eftir það. Atvikið hafi átt sér stað árið 2015 í Barranquilla og kærandi hafi ekki þekkt gerandann. Hún hafi leitað til lögreglunnar vegna atviksins og lögreglan tekið skýrslu af kæranda. Kærandi telji lögregluna hafa rannsakað málið en kvaðst þó aldrei hafa fengið svar frá lögreglunni. Aðspurð um hverja kærandi óttist, hvort hún óttist yfirvöld eða aðra aðila kvaðst hún óttast glæpahópa í heimaríki.
Með úrskurði kærunefndar nr. 889/2024, dags. 3. september 2024, staðfesti nefndin ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja A um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja A um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 12. september 2024. Greinargerð barst kærunefnd 26. september 2024.
3 Greinargerð til kærunefndar
Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.
Í greinargerð er aðstæðum kæranda lýst. Þar kemur m.a. fram að kærandi hafi flúið frá heimaríki í apríl 2023 og að hún hafi lent á flótta vegna ótta við glæpasamtök sem hótað hafi kærasta hennar ofbeldi.
Kærandi krefst þess aðallega að verða veitt alþjóðleg vernd sem flóttamaður hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Byggir kærandi á því að hún óttist um líf sitt í heimaríki og geti ekki fært sér í nyt vernd stjórnvalda í Kólumbíu.
Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins krefst kærandi þess til vara að verða veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Vísar kærandi til alvarlegs ástands í Kólumbíu og að hún eigi á hættu að sæta pyndingum eða annarri ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu verði henni gert að snúa aftur til heimaríkis og öryggisástand á heimaslóðum hennar sé ótryggt.
Til þrautavara krefst kærandi þess að verða veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Vísar kærandi til þess að gróf mannréttindabrot viðgangist í Kólumbíu og kærandi búi við alvarlega hættu á ofsóknum og illri og vanvirðandi meðferð verði henni gert að snúa aftur til heimaríkis.
Verði ekki fallist á framangreint krefst kærandi þess að endurkomubann til tveggja ára samkvæmt 101. gr. laga um útlendinga verði fellt úr gildi.
Með endursendingu kæranda til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki brjóti slík ákvörðun í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.
4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga
Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hina kærðu ákvörðun sem er í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til þess að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.
5 Alþjóðleg vernd
5.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.
Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).
5.2 Auðkenni og ríkisfang
Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað kólumbísku vegabréfi. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærandi hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Ekki er ástæða til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærandi sé kólumbískur ríkisborgari.
5.3 Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Kólumbíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices – Colombia (US Department of State, 20. mars 2023);
- 2023 Country Reports on Human Rights Practices - Colombia (US Department of State, 22. apríl 2024);
- 2024 Country Reports on Human Rights Practices: Colombia (US Department of State, 12. ágúst 2025)
- ACLED Dashboard, skráð atvik í Kólumbíu frá 1. apríl 2023 – 28. október 2024;
- ACLED Explorer, skráð atvik í Kólumbíu frá 20. ágúst 2024 – 21. ágúst 2025 (https://acleddata.com/platform/explorer);
- Almost half of the human rights defenders killed last year were in Colombia (Guardian, 4. apríl 2023);
- Amnesty International Report 2021/22 – Colombia (Amnesty International, 29. mars 2022);
- Amnesty International Report 2022/23 – Colombia (Amnesty International, 27. mars 2023);
- Annual Report 2024 – Chapter IV.A: Human Rights Development in the Region (IACHR, 2025);
- Annual Report 2020 – Chapter IV.A: Human Rights Development in the Region (IACHR, 2021);
- Availability and accessibility of mental health services, particularly in Bogotá, Cartagena and Barranquilla; treatment of individuals with mental illness by society and by the authorities; state protection, including recourse and complaint mechanism (Immigration and Refugee Board of Canada, 11. ágúst 2021);
- BTI 2022 Country Report: Colombia (Bertelsmann Stiftung, 23. febrúar 2022);
- BTI 2024 Country Report: Colombia (Bertelsmann Stiftung, mars 2024);
- Colombia: Fact-Finding Mission Report. Conflict Dynamics in the Post- FARC- EP Period and State Protection (Immigration and Refugee Board of Canada, mars 2020);
- Colombia (skýrsla aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna (S/2021/312), 30. mars 2021);
- Colombia´s Armed Groups Battle for the Spoils of Peace (International Crisis Group, 19. október 2017);
- Colombia at a Stabilization Crossroads (Center for Strategic and International Studies (CSIS), 5. mars 2021);
- Colombia Complex crisis (ACAPS, 9. ágúst 2021);
- Colombia: Country Focus (EUAA, desember 2022);
- Colombia: Country Focus (EUAA, desember 2025);
- Colombia: Fact – Finding Mission Report; Conflict Dynamics in the Post- FARC-EP Period and
- State Protection (mars, 2020);
- Colombia´s illegal armed groups (maps) (Colombia Reports, 3. október 2021);
- Colombian activist killings hit record high in 2022: Ombudsman (Al Jazeera, 23. janúar 2023);
- Columbia and ELN rebels extend ceasefire by six months, agree to set up fund (Reuters, 6. febrúar 2024);
- Colombia: Urgent Updates October 2024 (WOLA, Advocacy for Human Rights in the Americas, 17. október 2024);
- Colombia. Social Institutions and Gender Index 2023 (Organization for Economic Co-operation and Development, 26. ágúst 2024);
- Colombia. Social Institutions and Gender Index 2019 (Organization for Economic Co-operation and Development, 7. desember 2018);
- Colombia struggles to keep social leaders safe (y News, 13. janúar 2021);
- Colombia Travel Advisory (US Department of State, Bureau of Consular Affairs, síðast uppfært 17. janúar 2025);
- Colombia Country Security Report (US Department of State, Bureau of Consular Affairs, síðast uppfært 24. febrúar 2025);
- Colombia/Venezuela: Border Area Abuses by Armed Groups: Killings, Disappearances, Child Recruitment, Forced Displacement (Human Rights Watch, 28. mars 2022);
- Conflict persists five years after peace deal (Norwegian Refugee Council, 23. nóvember 2021);
- Freedom in the World 2023 - Colombia (Freedom House, 2023);
- Freedom in the World 2024 – Colombia (Freedom House, 2024);
- Freedom in the World 2025 – Colombia (Freedom House, 2025);
- GameChangers 2023; Unintended Consequences for Colombia’s ‘Total Peace’ (Insight Crime, 29. desember 2023);
- Gender-based violence (GBV), particularly domestic and sexual violence; impact of COVID-19; state protection and support services available, including psychological services, particularly in Bogotá, Santiago de Cali and Medellín (2020- July 2022) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. ágúst 2022);
- Gustavo Petro and Francia Márquez: A new era For Colombia (BBC, 20. júní 2022);
- How peace efforts are making a difference (or not) in Colombia (The New Humanitarian, 15. febrúar 2023);
- International Protection Considerations with Regard to People Fleeing Colombia (UNHCR, ágúst 2023);
- ISSA Country profiles – Colombia (The International Social Security Association, 1. janúar 2023);
- Latin America and the Caribbean – September 2024 (Acled Data, 4. október 2024);
- Latin America and the Caribbean Overview: August 2024 (ACLED, 6. september 2024);
- Los Focos del Conflicto en Colombia. Informe Sobre Presencia de Grupos Armados (Indepaz, 4. október 2021);
- Left Undefended – Killings of Rights Defenders in Colombia´s Remote Communities (Human Rights Watch, 10. febrúar 2021);
- Mental Health ATLAS 2020. Member State Profile. Colombia (World Health Organization, 15. apríl 2020);
- National Liberation Army (ELN) (InSight Crime, 18. júní 2024);
- Protecting Colombia´s Most Vulnerable on the Road to Total Peace (International Crisis Group, 24. febrúar 2023);
- Report of the United Nations High Commissioner for Human Rights on the situation of human rights in Colombia (Office of the United Nations High Commissions for Human Rights, 12. júlí 2024);
- Report of the United Nations High Commissioner for Human Rights on the situation of human rights in Colombia (Office of the United Nations High Commissions for Human Rights, 14. febrúar 2024);
- Resolution 2573(2023) (Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna, 11. janúar 2023);
- Social Security Throughout the World, The Americas, 2019 – Colombia (Social Security Administration. Office of Retirement and Disability Policy. Office of Research, Evaluation and Statistics, mars 2020);
- The Situation of Women Social Leaders and Human Rights Defenders after the Peace Deal in Colombia (FOKUS, 9. febrúar 2021);
- The State of the World´s Human Rights; Columbia 2023 (Amnesty International, 24. apríl 2024);
- The State of the World’s Human Rights; Colombia 2024 (Amnesty International, 29. apríl 2025);
- The World Factbook: Colombia (CIA, síðast uppfært 6. ágúst 2025);
- UNHCR Eligibility Guidelines for Assessing the International Protection Needs of Asylum-Seekers from Colombia (UNHCR, september 2015);
- United Nations Verification Mission in Colombia: Report of the Secretary – General (United Nations, 24. mars 2023);
- Why Are Rights Activists Being Targeted in Colombia? (The Dialogue, 8. febrúar 2023);
- World Report 2023 – Colombia Events of 2022 (Human Rights Watch, 12. janúar 2023);
- World Report 2024 – Colombia Events of 2023 (Human Rights Watch, 11. janúar 2024);
- World Report 2025 – Colombia Events of 2024 (Human Rights Watch, 16. janúar 2025);
- World Report 2026 – Colombia Events of 2025 (Human Rights Watch, 4. febrúar 2026);
- Upplýsingar af vefsíðu Alþjóðabankans (https://datos.bancomundial.org/pais/colombia, skoðað 9. febrúar 2026);
- Upplýsingar af vefsíðu kólumbíska heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytisins (https://www.minsalud.gov.co);
- Upplýsingar af vefsíðu Colombia Reports (colombiareports.com);
- Upplýsingar af vefsíðu Global Organized Crime Index (https://ocindex.net/country/colombia, síðast sótt 26. september 2024);
- Upplýsingar af vefsíðu International Citizens Insurance (Overview of Colombia Healthcare System International Insurance, síðast sótt 26. september 2024) og
- Upplýsingar af vefsíðu Refugees International (https://www.refugeesinternational.org).
Kólumbía er stjórnarskrárbundið lýðveldi með tæplega 50 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 92% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 5. nóvember 1945 gerðist Kólumbía aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1969. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1982 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1987.
Í framangreindum heimildum, m.a. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2022 kemur fram að 20. júní 2022 hafi Gustavo Petro verið kjörinn forseti Kólumbíu. Petro sé fyrsti vinstrisinnaði forseti landsins og heimildir bendi til þess að hann hafi á yngri árum tilheyrt M-19 skæruliðahreyfingunni áður en hann hafi snúið sér að stjórnmálum. Í kosningabaráttunni hafi hann heitið því að berjast gegn spillingu og skipulagðri glæpastarfsemi í landinu auk þess að beita sér fyrir auknu jafnrétti. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 kemur fram að eftirlitsaðilar hafi talið kosningarnar frjálsar og þær friðsælustu í áratugi. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að forsetinn hafi valið Francia Márquez sem varaforseta. Hún sé umhverfisverndarsinni af Afró-kólumbískum uppruna og önnur konan til að gegna stöðu varaforseta.
Í skýrslum bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 og 2024 kemur fram að helstu vandamál á sviði mannréttinda í landinu séu m.a. handahófskennd morð, pyndingar og ill meðferð af hálfu öryggissveita ríkisins og vopnahópa, víðtæk spilling innan ríkisstofnana, nauðganir og misnotkun kvenna og barna af hálfu ólöglegra vopnaðra hópa í landinu auk ofbeldis gegn minnihlutahópum s.s á grundvelli uppruna, kynhneigðar og kynvitundar. Spilling sé umtalsverð á meðal stjórnmálamanna og innan lögreglu landsins. Í skýrslunni kemur fram að stjórnvöld hafi almennt gert ráðstafanir til að lögsækja og refsa embættismönnum fyrir mannréttindabrot þó sum mál taki langan tíma. Stjórnvöld hafi almennt beitt lögum sem leggi refsingu við opinberri spillingu. Þá hafi ríkisstjórnin innleitt umbætur hjá lögreglunni sem miði að því að auka ábyrgð og bæta mannréttindavernd og samskipti almennings og lögreglu. Þá hafi refsileysi innan öryggissveita landsins verið vandamál en stjórnvöld hafi á síðustu árum aukið þjálfun liðsmanna öryggissveita landsins hvað varðar mannréttindi ásamt því að rannsaka og sakfella í auknum mæli brot liðsmanna þeirra. Þá hafi dregið úr samstarfi á milli öryggissveita og ólöglegra vopnahópa. Ólöglegir vopnahópar beiti ofbeldi, svo sem fjárkúgunum, morðum, mannránum, pyndingum og sprengjuárásum og notist við barnahermenn. Lögregluyfirvöld rannsaki almennt þessi brot og sæki ábyrga til saka. Mannréttindasamtök hafi þó gagnrýnt að á sumum svæðum virðist glæpahópar fá að starfa því sem næst óáreittir. Lögregla sé fagmannlegri en í nágrannaríkjum Kólumbíu en skortur sé á fjármagni og mannafla. Enn fremur hafi lögreglan verið sökuð um að vinna með glæpamönnum og að vera ekki til staðar á strjálbýlli svæðum þar sem hættulegir hópar séu virkir.
Af framangreindum heimildum, m.a. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024, má ráða að glæpa- og morðtíðni sé há í Kólumbíu og að glæpahópar séu starfandi víðs vegar um landið og séu ráðandi á ákveðnum svæðum, einkum í héruðunum Cauca, Nariño, Catatumbo og Norte de Santander. Þeir stærstu og þekktustu hafi verið skæruliðahóparnir FARC-EP (e. Revolutionary Armed Forces of Colombia -People´s Army) og ELN (e. National Liberation Army). Þá séu einnig starfandi svokallaðir NAG (e. New Armed Groups) sem hafi sprottið út frá hersveitum sem áður hafi starfað í landinu. Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 að í kjölfar undirritunar friðarsamkomulags stjórnvalda við skæruliðahópinn FARC, hafi formlegri afvopnun hópsins lokið árið 2017 og það sama ár hafi fyrrum meðlimir myndað stjórnmálaflokk og tekið þátt í þingkosningum í mars árið 2018. Í skýrslunni kemur fram að her landsins hafi áætlað að meðlimir í afsprengihópum FARC væru nú fleiri en 5.200 talsins. Af fyrirliggjandi gögnum, þ. á m. skýrslu Indepaz frá 2021 og kortum Columbia Reports frá 2020, verður ráðið að afsprengihópar FARC hafi að mestu haldið til í suður-, suðvestur- og suðausturhluta Kólumbíu og við landamæri Venesúela. Hóparnir hafi verið virkir utan tilgreindra svæða, þá ýmist með leynilegum aðgerðum eða í gegnum bandalög með öðrum glæpahópum, en séu ekki með mikla viðveru eða sterk ítök í höfuðborg landsins, Bógóta eða í Cundinamarca héraði. Í skýrslu Freedom House frá 2025 kemur fram að sum landsvæði, einkum svæði sem séu rík af náttúruauðlindum og svæði þar sem flutningur fíkniefna eigi sér stað, séu óörugg. Meðlimir afsprengihópa skæruliðahópa, m.a. ELN og FARC, misnoti óbreytta borgara, sérstaklega á svæðum þar sem kókaín sé ræktað. Almenn sundrung og aukning átaka hafi leitt til þess að íbúar verst útsettu svæðanna hafi neyðst til að flýja heimili sín. Í febrúar 2024 greindi skrifstofa Sameinuðu þjóðanna um samhæfingu mannúðarmála (OCHA) frá því að um 63 þúsund manns hafi þurft að yfirgefa heimili sín og um 88 þúsund manns hafi verið innilokuð sökum hótana og vopnaðra átaka sem sé svipaður fjöldi og árið 2022.
Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2023 að um 6,7 milljónir íbúa í Kólumbíu séu vegalausir innanlands (e. internally displaced people), flestir vegna vopnaðra átaka í landinu. Samkvæmt lögum hafi 52 opinberar stofnanir í Kólumbíu það hlutverk að veita einstaklingum sem hafi þurft að flýja heimkynni sín aðstoð. Jafnframt séu fjöldi félaga og samtaka í samstarfi með stjórnvöldum og hafi tekið að sér að veita mannúðaraðstoð til þeirra sem hafi þurft að flytjast á brott frá heimasvæði sínu. Stjórnvöld hafi þó sætt gagnrýni fyrir seinar og ófullnægjandi aðgerðir. Þá hafi mannúðarsamtök aukið fræðslu og dreifingu hreinlætisvara, í tengslum við Covid-19 heimsfaraldurinn.
Í skýrslu frá bandaríska utanríkisráðuneytinu um glæpi og öryggi í Kólumbíu frá 31. janúar 2024 kemur m.a. fram að lögregluyfirvöld í Kólumbíu séu alla jafna öflug og fagleg. Þrátt fyrir framangreind vandamál hafi dregið verulega úr ofbeldi í landinu öllu á síðustu 20 árum. Megi rekja þessa fækkun ofbeldisglæpa einkum til friðarsamkomulagsins við FARC og vopnahlés og friðarviðræðna við ELN. Þó kemur fram m.a. í skýrslu Freedom House frá árinu 2023 að ofbeldi og glæpatíðni hafi tekið að rísa á ný frá árinu 2017. Megi meðal annars rekja hluta þess til að fyrrverandi skæruliðar hafi hafið glæpastarfsemi á ný vegna þess að þeir telji stjórnvöld ekki hafa staðið við sína hlið friðarsamningsins.
Í skýrslu EUAA frá desember 2025 kemur fram að á fyrri helmingi 2025 hafi ofbeldi vegna vopnaðra átaka aukist í Kólumbíu vegna baráttu glæpa- og vopnaðra hópa um landsvæði og yfirráð yfir ólöglegum hagkerfum. Um 1,45 milljónir íbúa hafi fundið fyrir áhrifum þess, n.t.t. fjórum sinnum fleiri en á sama tímabili árið 2024. Einnig væri aukning í fjöldaflótta (e. mass displacement), takmörkunum á ferðum borgara, morðum og dauðsföllum vegna ofbeldis. Þá hafi 84% þolenda vopnaðra átaka tilheyrt héruðunum Chocó, Cauca, Guavire og Norte de Santander. Náttúruhamfarir hafi haft áframhaldandi áhrif á svæði sem þegar hafi liðið fyrir átök, einkum héruðin Antioquia, Nariño, Arauca, og Amazonas og þannig gert ástandið verra. Öryggisástand og eðli átaka sé mjög mismunandi innan Kólumbíu. Heimildir bendi til þess að ólöglegir vopnaðir hópar hafi aukið viðveru sína í landinu, þar á meðal á afskekktum svæðum. Aukningin sé nátengd vilja þeirra hópa til að græða m.a. á fíkniefnasmygli og ólöglegri námuvinnslu. Á einhverjum svæðum hafi slíkir hópar stofnað til samstarfs sín á milli. Fjöldi vígamanna hafi aukist frá um 15 þúsund einstaklingum um mitt ár 2022 í tæplega 22 þúsund einstaklinga í júní 2025 og í nóvember 2025 hafi fjöldi vígamanna verið rúmlega 25 þúsund. Þau svæði sem helst hafi orðið fyrir áhrifum ofbeldis séu gjarnan þau svæði sem áður hafi verið stjórnað af FARC-EP og búi yfir umtalsverðum auðlindum sem deilt sé um, líkt og kókaínrækt eða ólöglegri námuvinnslu. Þar á meðal séu héruðin Antioquia, Norte de Santander, Bolívar, Cauca, La Guajira, Chocó, Nariño, Putumayo, Caquetá, Guaviare, Meta, Valle del Cauca, og Arauca. Samkvæmt upplýsingum sem EUAA hafi aflað frá ACLED hafi nærri 60% allra ofbeldistilvika á tímabilinu 1. janúar til 24. október 2025 átt sér stað í fimm héruðum Kólumbíu, n.t.t. í héruðunum Cauca, Antioquia, Norte de Santander, Nariño og Arauca. Heimildir EUAA hafi bent á skort á viðveru yfirvalda á ýmsum svæðum landsins, einkum við Kyrrahafsströndinni og utan þéttbýliskjarna þar, ekki síst vegna lélegra innviða, einkum lélegs vegakerfis, sem geri aðgengi að afskekktustu svæðunum erfiðara. Erfitt og nánast ómögulegt sé að tilkynna um tiltekna glæpi á einangruðum og afskekktum svæðum, s.s. svæðum þar sem íbúar séu undir eftirliti vopnaðra hópa og lögregla fari ekki inn á þau svæði. Í nóvember 2025 hafi varnarmálaráðherra Kólumbíu gefið til kynna að herinn og lögregluyfirvöld hafi aukið aðgerðir gegn glæpahópum um 20%.
Í frétt á vef fréttamiðilsins Al Jazeera frá 4. október 2022 kemur fram að kólumbísk yfirvöld og ELN hafi komist að samkomulagi um að hefja friðarviðræður á ný eftir að þeim hafi verið slitið 2018. Þá kemur fram í skýrslu Freedom House frá árinu 2023 að forseti landsins hafi lagt til nýjan friðarsamning við andófsmenn FARC í ágúst 2022, sem hafi verið tilefni gagnrýni frá þeim aðilum er komu að samningaviðræðum vegna friðarsamningsins árið 2016. Forsetinn hafi hafið samningaviðræður við ELN í desember 2022 og hafi það verið fyrstu viðræðurnar við samtökin síðan árið 2019. Í sama mánuði hafi ríkisstjórnin tilkynnt um sex mánaða vopnahlé við ELN, FARC andófsmenn og þrjá aðra glæpahópa. Þá hafi ELN samþykkt vopnahlé til sex mánaða sem hafi byrjað 9. ágúst 2023. Vopnahléið hafi bætt öryggi íbúa þeirra svæða þar sem ítök hópanna séu hvað mest tímabundin. Samkvæmt fréttum á veraldarvefnum hafi vopnahléinu átt að ljúka 29. janúar 2024. Hinn 23. janúar 2024 hafi sjötta umræða friðarviðræðna hafist í Havana á Kúbu og vonast hafi verið til þess að ná samkomulagi um að framlengja vopnahléið auk annarra atriða sem stuðla eigi að friði í Kólumbíu. Í yfirlýsingu frá ELN, dags. 20. febrúar 2024, sögðu samtökin forseta Kólumbíu ekki hafa staðið við gefin loforð og því væru sjöttu viðræðurnar „frystar“ þangað til að loforðin yrðu efnd. Hafi þetta sett friðarviðræðurnar í uppnám og óvíst hafi verið með framhaldið. Í nýlegum fréttaheimildum kemur fram að í febrúar 2024 hafi kólumbísk yfirvöld og ELN tilkynnt um framlengingu vopnahlés til sex mánaða frá 6. febrúar 2024. Í skýrslu Freedom House frá árinu 2025 kemur fram að ríkisstjórn Petro hafi haldið áfram vinnu sinni við áætlun sína um algjöran frið (e. Total Peace) með ýmsum aðgerðum. Dregið hafi verulega úr skærum á milli vopnahópa og öryggissveita ríkisins árið 2024. Í skýrslu nefndar Ameríkuríkja um mannréttindi (e. Inter-American Commission on Human rights) fyrir árið 2024 kemur fram að stjórnvöld hafi ráðist í ýmsar aðgerðir til þess að styrkja lýðræðið og efla öryggi borgaranna. Liður í því hafi verið að víkka út aðgerðir innan áætlunarinnar um algjöran frið og ná fleiri hópum að samningaborðinu. Ýmsar áskoranir hafi þó dregið úr árangri þessara aðgerða. Til að mynda hafi síðustu viðræðum við ELN lokið á þá leið að ekki hafi náðst nema að takmörkuðu leyti að semja um áframhaldandi vopnahlé sem hafi leitt til aukins ofbeldis á ákveðnum svæðum. Árangur hafi þó náðst í viðræðum við önnur glæpasamtök í landinu og dregið hafi úr glæpa- og morðtíðni á þeim svæðum, s.s. í Medellín, Valle de Aburrá, Quibdó og Buenaventura.
Samkvæmt upplýsingum af síðu InSight Crime um ELN hafi þau upphaflega verið stofnuð á sjöunda áratugnum sem þjóðernishreyfing undir áhrifum frá kúbversku byltingunni og séu samtökin síðasti stóri uppreisnarhópurinn í Kólumbíu. Samtökin séu með starfsemi bæði í Kólumbíu og Venesúela og hafi stundað mannrán, fjárkúganir, ólöglega námuvinnslu og fíkniefnaviðskipti. Hin síðari ár hafi hópurinn eflst og stækkað yfirráðasvæði sín m.a. inn fyrir landamæri Venesúela. Þrátt fyrir að friðarviðræður við kólumbísk stjórnvöld hafi mjakast áfram séu innri klofningur og andstaða við afvopnun innan samtakanna gríðarleg áskorun. ELN hafi aukið starfsemi sína á svæðum þar sem kólumbísk stjórnvöld séu veikari fyrir auk þess að vinna í samstarfi við venesúelsk stjórnvöld innan landamæra Venesúela. Þá hafi samtökin starfsemi víða í Kólumbíu en séu öflugust í fylkjunum Chocó, Norte de Santander og Arauca.
Samkvæmt upplýsingum af heimasíðu sannleiks- og sáttanefndar (e. UN Verification Mission) í Kólumbíu hafi Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna framlengt umboð verkefnis til 31. október 2023 varðandi framfylgni samningsins um uppbyggingu á dreifbýlli svæðum og málefni þjóðernishópa. Nefndinni hafi verið gert að fylgjast með og hafa eftirlit með framfylgd ríkisstjórnar og samningsaðila FARC á friðarsamkomulaginu, þ.m.t. pólitíska, efnahagslega og félagslega enduraðlögun FARC meðlima og innleiðingu persónulegra og sameiginlegra öryggistrygginga ásamt því að halda utan um yfirgripsmiklar áætlanir um öryggis- og verndarráðstafanir fyrir samfélög og stofnanir á svæðunum. Í skýrslu aðalframkvæmdastjóra frá 24. mars 2023 komi fram að kólumbíska ríkisstjórnin og FARC hafi samþykkt að framlengja umboð Framkvæmdastjórnar til að fylgja eftir og hafa eftirlit með framfylgd friðarsamkomulagsins til fjögurra ára.
Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024 kemur fram að fjöldi kólumbískra og alþjóðlegra mannréttindahópa starfi án takmarkana stjórnvalda, rannsaki og birti niðurstöður um mannréttindamál. Þá séu embættismenn yfirleitt samvinnuþýðir og reiðubúnir að hlusta á áhyggjur staðbundinna mannréttindasamtaka. Nokkur frjáls félagasamtök hafi fengið hótanir en ríkisstjórnin fordæmi hótanirnar og skori á dómsmálaráðherra að rannsaka þau. Í sumum tilvikum hafi aðgerðarsinnum þótt viðbrögð stjórnvalda hæg og lítil. Þá kemur fram að þótt löggjöf í landinu veiti frjálsum félagasamtökum og mannréttindabaráttufólki vernd þá sé traust til slíkrar verndar takmarkað og á síðustu árum hafi hundruð meðlima mannréttindasamtaka, fjölmiðlafólks, leiðtoga frumbyggja og annarra aðgerðarsinna staðið frammi fyrir margvíslegu ofbeldi, líflátshótunum og verið myrtir, einkum af uppreisnarmönnum eða meðlimum glæpasamtaka. Stjórnvöld hafi ekki gripið til fullnægjandi ráðstafana til að vernda þau, refsileysi sé útbreitt og ákærur og sakfellingar eigi sér sjaldnast stað.
Í skýrslu kanadíska innflytjenda- og flóttamannaráðsins (e. Immigration and Refugee Board of Canada) kemur fram að skrifstofa umboðsmanns (s. Defensoría del Pueblo), sem sett hafi verið á fót árið 1991, sinni margvíslegu hlutverki til að stuðla að bættri mannréttindavernd í Kólumbíu. Skrifstofan beri ábyrgð á að sinna eftirliti og aðhaldi með stjórnvöldum, taki við kvörtunum frá einstaklingum, hópum og lögaðilum og beiti sér fyrir aukinni vernd og fræðslu um mannréttindi. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 og 2024 kemur fram að undirfjármögnun takmarki getu skrifstofunnar til að fylgjast með misnotkun á áhrifaríkan hátt. Umboðsmaðurinn, sem og meðlimir svæðisskrifstofu umboðsmanns, fái hótanir frá vopnuðum hópum í gegnum ýmsa miðla. Skrifstofa umboðsmanns gefi reglulega út viðvaranir fyrir svæði sem hún telji hættuleg en ríkisstjórnin bregðist hægt við tilmælum og viðvörunum. Þá veiti ríkisstofnunin National Protection Unit einstaklingum vernd sem telji sig þurfa á vernd að halda, m.a. þolendum mannréttindabrota og vopnaðra átaka. Eðli verndarinnar fari eftir áhættumati sem stofnunin framkvæmi fyrir hvern og einn einstakling. Verndin sem stofnunin veiti sé þó ekki alltaf fullnægjandi eða í samræmi við þá hættu sem viðkomandi sé í.
Samkvæmt stjórnarskrá Kólumbíu eiga ríkisborgarar rétt á grunnheilbrigðisþjónustu og félagslegri aðstoð í landinu. Samkvæmt vef Alþjóðabankans var atvinnuleysi í Kólumbíu 9,6% árið 2024 en hafði verið 10,5% árið 2022. Ráðuneyti heilbrigðis- og félagslegrar verndar (s. Ministerio de Salud y de Protección Social) ber ábyrgð á að hafa eftirlit með og samræma þjónustu á starfssviði sínu á landsvísu. Samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu frá 2015 (s. La Ley Estatutaria de Salud 1751 de 2015) telst heilbrigði til grundvallar mannréttinda og bann er lagt við því að synja sjúklingum um nauðsynlega heilbrigðisþjónustu á grundvelli efnahagslegrar stöðu. Samkvæmt heimildum hefur heilbrigðiskerfið í Kólumbíu verið með þeim bestu í heiminum og samkvæmt skýrslu Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar (World Health Organization, WHO) frá árinu 2000 var Kólumbía þá í 22. sæti yfir skilvirkustu heilbrigðiskerfi í heimi. Heilbrigðisþjónusta í Kólumbíu sé almennt ekki kostnaðarsöm og aðgengi ríkisborgara að heilbrigðisþjónustu almennt gott. Í Kólumbíu sé opinbert sjúkratryggingarkerfi (s. Entidades Promotoras de Salud (EPS)). Umrætt sjúkratryggingakerfi sé í boði fyrir alla íbúa Kólumbíu með litlum tilkostnaði. EPS sjúkratryggingakerfið sé með þriggja þrepa greiðslukerfi sem nái yfir greiðsluþátttöku EPS vegna rannsóknarstofuprófa, myndgreininga, sérfræðiheimsókna og lyfja. Þá kemur fram í skýrslum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar og innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanada að sérstök löggjöf um geðheilbrigðismál í Kólumbíu hafi verið í gildi frá árinu 2013 og sérstök aðgerðaráætlun um geðheilbrigðismál frá árinu 2018. Samkvæmt þeirri löggjöf sé ríkisborgurum Kólumbíu tryggt aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu og þurfi meirihluti fólks sem sæki þjónustu hjá geðheilbrigðissérfræðingum ekki að greiða fyrir slíka þjónustu. Biðtími geti verið langur en aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum sé betra í þéttbýli heldur en í dreifbýli.
5.4 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hún sé í hættu í heimaríki vegna óöryggis þar í landi og vegna hótana sem kærasti hennar hafi orðið fyrir. Í greinargerð kæranda er byggt á því að hún óttist um líf sitt í heimaríki og geti ekki fært sér í nyt vernd stjórnvalda í Kólumbíu.
Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi um tveimur mánuðum á eftir kærasta sínum, áðurnefndum A. Í viðtali greindi kærandi frá því að hafa flúið frá heimaríki vegna hótana sem A hafi orðið fyrir í Venesúela af hálfu þarlends glæpahóps, n.t.t. fjárkúgana vegna viðskipta A með rafmyntir. Í úrskurði kærunefndar í máli A, sem kveðinn var upp 3. september 2024, var tekin afstaða til málsástæðna hans um hótanir og fjárkúganir og komist að þeirri niðurstöðu að ekki væri hægt að útiloka að A hafi mátt sæta fjárkúgunum af hendi glæpahóps í Venesúela vegna tekna sinna en ekkert bendi til þess að A væri sérstakt skotmark hópsins og að A hafi ekki sýnt fram á að hann eigi á hættu að sæta ofsóknum í heimaríki í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 38. gr. sömu laga.
Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lagði kærandi m.a. fram gögn er hún byggir á að renni stoðum undir samband hennar og A. Að mati kærunefndar er með tilliti til frásagnar kæranda og gagna málsins ekki ástæða til að draga í efa að hún og A séu í sambandi og kunni að hafa verið í sambúð. Að mati kærunefndar er ekkert í frásögn kæranda í viðtali hennar hjá Útlendingastofnun eða í gögnum málsins sem gefur tilefni til að komast að annarri niðurstöðu en í framangreindum úrskurði kærunefndar í máli A. Með vísan til þeirrar niðurstöðu, frásagnar kæranda í viðtali hjá Útlendingastofnun og gagna málsins er ljóst að kærandi hefur ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að hún hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í heimaríki vegna þeirra aðila sem hafi haft í hótunum við A í Venesúela.
Kærandi greindi frá því að hún óttist glæpahópa í heimaríki og að þegar hún hafi búið við landamæri Venesúela og Kólumbíu og starfað fyrir fyrirtæki þar hafi allir starfsmenn fyrirtækisins orðið fyrir hótunum frá glæpamönnum frá fólki frá Venesúela vegna þess að þau hafi verið á landamærunum. Kvaðst hún jafnframt hafa flutt frá landamærunum og að hótanirnar hafi hætt eftir það. Með vísan til þeirra heimilda sem kærunefnd hefur skoðað um aðstæður í Venesúela telur nefndin ekki ástæðu til að draga framangreinda frásögn kæranda í efa. Af frásögn hennar verður ráðið að hún hafi búið við landamærin í nokkra mánuði og að hótanir hafi beinst að starfsfólki fyrirtækisins sem hún hafi starfað fyrir. Ekki verður ráðið að meintar hótanir hafi beinst að persónu kæranda eða haft frekari afleiðingar fyrir hana heldur virðast þær fremur hafa tengst almennu öryggi í Kólumbíu.
Kærandi hefur ekki borið fyrir sig að hafa sætt ofsóknum eða að hún óttist ofsóknir af hálfu kólumbískra yfirvalda sem hafa eða gætu náð því alvarleikastigi sem 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um. Skýrslur og önnur gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Kólumbíu bera með sér að ítök glæpahópa séu á sumum svæðum sterk og löggæsla veik. Þrátt fyrir að gögn um aðstæður í Kólumbíu bendi til þess að glæpahópar séu áhrifamiklir á sumum svæðum þar í landi, er það mat kærunefndar að gögn sýni fram á að á öruggari svæðum geti kólumbísk yfirvöld almennt verndað grundvallarmannréttindi ríkisborgara sinna. Heimildir benda ekki til þess að ítök og áhrif glæpa- og skæruliðahópa séu slík í Atlántico héraði í Kólumbíu að ómögulegt sé fyrir kæranda að leita aðstoðar yfirvalda telji hún ástæðu til þess. Kærandi hefur því raunhæfan möguleika á að leita sér ásjár stjórnvalda þar í landi, ef hún telur sig þurfa á aðstoð þeirra að halda.
Kærandi greindi frá því að hún hafi orðið fyrir kynferðisofbeldi í Baranquilla árið 2015 af leigubílstjóra sem hafi verið henni óþekktur. Hún hafi tilkynnt það til lögreglunnar og telji lögregluna hafa rannsakað málið en hún hafi þó ekki fengið frekari svör frá lögreglunni. Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lagði kærandi fram ýmis gögn til stuðnings framangreindri frásögn hennar, þar á meðal afrit lögregluskýrslu sem dagsett er 3. júní 2020. Kemur þar fram að umrætt atvik hafi átt sér stað 6. mars 2016 og ber skýrslan með sér að í skýrslunni sé greint frá því að rannsókn lögreglunnar vegna kynferðisbrotsins sé hætt og málinu lokað vegna skorts á aðstoð frá tilkynnanda en komi fram nýjar upplýsingar verði málið opnað að nýju. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að draga frásögn kæranda í efa og verður því lagt til grundvallar að hún hafi orðið fyrir kynferðisofbeldi í heimaríki fyrir um áratug. Kærandi hefur ekki borið fyrir sig að hún sé í hættu í heimaríki vegna atviksins eða einstaklingsins sem braut gegn henni. Hún hafi óttast það á tímabili en hafi hætt að taka leigubíla. Ekki verður annað ráðið en að atvikið hafi verið einangrað og að tilviljun hafi ráðið því að kærandi hafi verið þolandi þess. Hún hafi leitað til lögreglunnar og notið heilbrigðisaðstoðar, þar á meðal sálfræðiþjónustu, í kjölfar atviksins.
Þrátt fyrir að gögn um aðstæður kvenna í Kólumbíu gefi til kynna að staða þeirra geti verið erfið, m.a. vegna kynbundins ofbeldis þar í landi þá er það mat kærunefndar, með vísan til framangreindra heimilda og umfjöllunar um aðstæður í Kólumbíu, að þær aðstæður nái ekki því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr., sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Hefur við það mat m.a. verið horft til þess að í landinu eru til staðar úrræði í réttar- og félagslega kerfinu fyrir konur sem verði fyrir kynferðisofbeldi, öðru ofbeldi eða mismunun. Þá vinni stjórnvöld að því að bæta stöðu kvenna með ýmsum aðgerðum s.s. lagasetningu og gerð aðgerðaráætlana sem ætlað er að vernda konur og veita þeim aðgang að nauðsynlegum úrræðum. Kærandi hefur ekki borið fyrir sig að hafa sætt áreiti eða mismunun vegna kyns síns eða af öðrum ástæðum. Er það því mat kærunefndar að hún muni ekki eiga á hættu að sæta ofsóknum í heimaríki sínu á grundvelli kyns síns eða af öðrum ástæðum er tilgreindar eru í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda, telst kærandi ekki hafa sýnt fram á með rökstuddum hætti að hún eigi á hættu að sæta ofsóknum í heimaríki í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 38. gr. sömu laga. Sama gildir þótt litið sé til samsafns athafna. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.5 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir á því að hún eigi rétt á viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með vísan til alvarlegs ástands í Kólumbíu. Byggir kærandi á því að hún eigi á hættu að sæta pyndingum eða annarri ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu verði henni gert að snúa aftur til heimaríkis og að öryggisástand á heimaslóðum hennar sé ótryggt.
Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kæranda er ljóst að þau atvik sem kærandi hefur lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburði kæranda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda leiði til þess að hún eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi kærandi til baka.
Kærandi hefur vísað til þess að hún sé í hættu í heimaríki vegna glæpahópa. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda til þess að ástandið í Kólumbíu sé víða ótryggt, sumum svæðum sé að mestu leyti stjórnað af glæpa- og skæruliðahópum og að íbúar landsins kunni að eiga á hættu að vera beittir ofbeldi af hálfu slíkra hópa. Löggæsluyfirvöld hafa átt erfitt með að komast inn á svæði þar sem glæpahópar hafa völd og átök eigi sér stað. Að jafnaði hafi kólumbísk stjórnvöld og öryggissveitir þeirra góða stjórn á öðrum svæðum og séu þau svæði nokkuð friðsæl og örugg. Þá séu lögregluyfirvöld að alla jafna öflug og fagleg í landinu. Kærandi kvaðst hafa verið búsett í Baranquilla í Atlántico héraði áður en hún yfirgaf heimaríki. Heimildir benda ekki til þess að aðstæður á heimasvæði hennar séu slíkar að hver sem þar sé staddur eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.6 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga
Þar sem kærandi er ekki flóttamaður samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.
6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða
Með ákvæði a-liðar 5. gr. breytingarlaga nr. 12/2026, sem voru samþykkt á Alþingi 16. febrúar 2026, var lögum um útlendinga breytt á þann veg að ákvæði 2. mgr. 74. gr. laganna var felld brott. Samkvæmt 1. mgr. 10. gr. laga nr. 12/2026 öðluðust lögin þegar gildi en í 2. mgr. 10. gr. kemur fram að ákvæði a-liðar 5. gr. gildi ekki um meðferð umsókna sem hafi náð tímamörkum 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga við gildistöku laganna. Lögin voru birt í Stjórnartíðindum 6. mars 2026 og öðluðust þá gildi. Kærandi sótti um alþjóðlega vernd 9. apríl 2023. Hafði málsmeðferð í máli kærandi því náð tímamarki 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga við gildistöku breytingarlaga nr. 12/2026 og á 2. mgr. 74. gr. því við í máli hennar.
Í 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kemur fram að heimilt sé að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann sótti fyrst um alþjóðlega vernd hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt ákvæðinu að því tilskildu að skorið hafi verið úr um að hann uppfylli ekki skilyrði 37. og 39. gr. Frekari skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis í þeim tilvikum koma fram í a- til d-liðum 2. mgr. 74. gr. laganna en þau eru að tekin hafi verið skýrsla af umsækjanda um alþjóðlega vernd, ekki leiki vafi á því hver umsækjandi sé, ekki liggi fyrir ástæður sem geta leitt til brottvísunar umsækjanda og að útlendingur hafi veitt upplýsingar og aðstoð við úrlausn máls.
Að mati kærunefndar uppfyllir kærandi skilyrði a- til d-liðar 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lagði kærandi fram vegabréf. Verður því ekki talið að vafi leiki á því hver kærandi sé, sbr. b-lið 2. mgr. 74 gr. laganna. Þá er það mat kærunefndar að ákvæði a- til d-liðar 3. mgr. 74. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir veitingu dvalarleyfis samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Í ljósi framangreindrar niðurstöðu er ekki þörf á að fjalla um kröfur kæranda skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
7 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar er ákvörðun Útlendingastofnunar hvað varðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd staðfest. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að veita kæranda og dvalarleyfi samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Úrskurðarorð:
Lagt er fyrir Útlendingastofnun að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda varðandi umsókn hennar um alþjóðlega vernd er staðfest.
The Directorate of Immigration is instructed to issue the appellant a residence permit based on Article 74(2) of the Act on Foreigners. The decision of the Directorate related to his application for international protection is affirmed.
Valgerður María Sigurðardóttir
Vera Dögg Guðmundsdóttir