09 apríl 2026
/
Úrskurður nr. 170/2026
Hinn 9. apríl 2026 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 170/2026
í stjórnsýslumáli nr. KNU24120133
Kæra […]
Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 29. desember 2024 kærði […], fd. […], ríkisborgari Venesúela (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 16. desember 2024, um að synja henni um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja henni um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Málsatvik
Samkvæmt lögregluskýrslu kom kærandi til landsins frá Venesúela og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 30. september 2024. Kvaðst kærandi sækja um alþjóðlega vernd á Íslandi þar sem hún hafi starfað sem blaðamaður í heimaríki og óttist um öryggi sitt þar. Kvað hún son sinn vera búsettan á Íslandi en í Venesúela eigi hún systkin og aðra ættingja. Í skýrslunni kemur fram að með kæranda í för var frændi hennar.
Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 14. október 2024 ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindi frá helstu ástæðum flótta síns. Kvaðst kærandi hafa verið búsett í einbýlishúsi í borginni Coro í Falcón fylki í Venesúela áður en hún yfirgaf heimaríki og að hún eigi fjölskyldu í Venesúela, þar á meðal dóttur en sonur hennar væri búsettur á Íslandi. Kærandi kvaðst halda að líkamleg heilsa hennar væri góð en hún hefði lengi glímt við kvíða sem hafi aukist eftir forsetakosningarnar í júlí 2024. Kærandi kvaðst hafa verið í samskiptum við sálfræðing í heimaríki um tíma vegna svefnleysis og sökum kvíða í tengslum við atvik sem sonur hennar hafi orðið fyrir.
Kærandi kvaðst hafa starfað fyrir fyrirtækið […]. Vegna breytinga hjá fyrirtækinu sökum stjórnmálalegs þrýstings hafi kæranda í nóvember 2023 verið boðið að velja á milli þess að fara á eftirlaun eða ljúka störfum. Hafi kærandi sagt upp störfum og byrjað að starfa sjálfstætt með sjónvarpsþátt á tilgreindum samskiptamiðli.
Kærandi kvaðst vera aðili að stjórnmálaflokknum Primero Justicia í heimaríki og hafa tekið þátt í mótmælum í heimaríki, fyrst og fremst sem blaðamaður og til þess að auglýsa mótmælin. Aðspurð um hvenær þetta hafi verið svaraði kærandi alltaf. Hún hafi verið blaðamaður og varaforseti flokksins og vísaði til meðmælabréfs frá flokknum sem hún hafi lagt fram. Aðspurð hvort kærandi væri háttsett innan flokksins kvaðst hún hafa starfað sem blaðamaður eða blaðamannastjóri flokksins. Hún hafi verið sú eina sem hafi fengið heimild til þess að taka viðtal við Maria Corina Machado þegar hún hélt fyrirlestra í Falcón fylki. Það hafi verið í júlí 2024, fyrir kosningarnar í Venesúela. Var kærandi þá spurð hvort hún væri þjóðþekkt í Venesúela og svaraði hún að hún væri þekkt í Falcón fylki í Venesúela og á nokkrum öðrum stöðum í landinu vegna starfa sinna. Aðspurð hvort kærandi teldi sig tilheyra minnihlutahópi í heimaríki, til dæmis á grundvelli stjórnmálaskoðana taldi hún að stjórnarandstæðingar væru í meirihluta en að þeir yrðu fyrir hótunum og kúgunum. Þá kvaðst kærandi hafa þurft að fjarlægja færslur sem hún hefði deilt á tilteknum samfélagsmiðli vegna þrýstings auk þess sem hún hafi heyrt að stjórnvöld geti lokað vegabréfum einstaklinga til þess að hindra að viðkomandi fari úr landi. Kærandi hafi eytt einhverjum færslum af netinu þar sem hún hafi ekki viljað verða fyrir því. Var hún þá spurð hvort henni hafi verið hótað framangreindu og kvaðst hún ekki hafa fengið hótanir persónulega en að viðhorfið gagnvart blaðamönnum væri það að ef einhver vilji yfirgefa landið væri best fyrir viðkomandi að hætta að gagnrýna ríkisstjórnina og skrifa í staðinn nokkur orð í þágu ríkisstjórnarinnar, ella kæmust þeir ekki frá landinu. Er kærandi var spurð hvort hún hafi opinberað stjórnmálaskoðanir sínar kvaðst hún hafa gert það og vísaði til þess að ef einstaklingur væri ekki á skrá hjá ráðandi stjórnmálaflokki væri viðkomandi sjálfkrafa álitin óvinur stjórnvalda. Aðspurð hvort kærandi hafi orðið fyrir atviki vegna stjórnmálaskoðana sinna greindi hún frá atviki sem hún hafi orðið fyrir 30. ágúst 2024 og kvaðst hafa ákveðið að hætta að starfa sem blaðamaður eftir atvikið. Einnig að alltaf þegar mótmæli eða kröfugöngur hafi farið fram hafi mætt menn á mótorhjólum til þess að hræða fólk.
Aðspurð um ástæðu flótta síns kvaðst kærandi hafa ákveðið að flýja þegar hún hafi séð að líf dóttur hennar væri í hættu og greindi frá tveimur atvikum sem leitt hafi til flótta hennar frá heimaríki. Hinn 14. júní 2023 þegar kærandi hafi verið að störfum við það að fylgjast með sölu eldsneytis, hvort fólk fengi að kaupa eldsneyti eða ekki, hafi hermaður komið að og tekið myndir og myndband af henni og samstarfskonu hennar. Atvikið hafi kærandi tilkynnt til blaðamannafélagsins og stjórn félagsins rætt við herforingja og ritara hersins. Kærandi hafi oft spurst fyrir um stöðu málsins en um mánuði síðar hafi henni verið tilkynnt að betra væri að fylgja málinu ekki eftir því það væri enginn til að leysa málið eða aðhafast neitt. Í hvert skipti sem kærandi og fleira fólk hittist til að mótmæla eða fara í kröfugöngu hafi menn á mótorhjólum komið og reynt að hræða þau.
Þegar kærandi hafi séð mann beina skotvopni að dóttur sinni 30. ágúst 2024 hafi hún vitað að hún væri í lífshættu og að ótilgreindir menn væru á eftir sér. Kvað kærandi mennina hafa hótað sér og fjölskyldu sinni og vísað til starfa hennar sem blaðamaður. Greindi hún frá því að á þeim degi hafi kærandi og samstarfsmaður hennar deilt myndböndum af mótmælum í heimaríki og dóttir kæranda beðið eftir að hún lyki störfum. Er kærandi hafi verið að koma að bifreið þeirra hafi ótilgreindir vopnaðir og grímuklæddir menn á mótorhjólum dregið dóttur hennar út úr bifreiðinni, beint byssu að kæranda og ógnað henni. Þar sem mennirnir hafi hulið andlit sín hafi kærandi ekki vitað hverjir þeir væru. Þetta hafi verið í fyrsta skiptið sem kærandi hafi upplifað sig verulega hrædda. Þær mæðgur hafi síðan keyrt heim og læst útidyrahurðinni en seint um nóttina hafi kærandi heyrt í mótorhjóli. Nágranni hennar hafi síðan tjáð kæranda að hann hafi heyrt í „þeim“ á mótorhjóli og séð „þá“ keyra framhjá. Þann dag hafi kærandi ákveðið að hætta með sjónvarpsþáttinn og varað samstarfsmann sinn við. Hún hefði viljað fá dóttur sína með sér til Íslands en það það hafi ekki verið hægt m.a. sökum efnahagslegra ástæðna. Var kærandi þá spurð hverjir hafi verið að verki og kvað hún um hafa verið að ræða Colectivos. Hún hafi lagt fram kæru hjá CICPC lögreglunni og væri með gögn því til stuðnings.
Aðspurð um hvernig líf kæranda hafi verið eftir atvikið 30. ágúst 2024 og hvort hún hafi orðið fyrir frekara áreiti eftir það kvað hún allt hafa verið í rugli eftir forsetakosningarnar í Venesúela. Að undanskyldu því að mótorhjólin hafi keyrt framhjá heimili hennar seinna um kvöldið hafi hún ekki orðið fyrir frekari hótunum eftir atvikið. Þá hafi verið mælt með því að tala frekar á jákvæðan hátt um yfirvöld og ríkisstjórn Venesúela. Kærandi hafi síðan beðið eftir fluginu til Íslands sem hafi verið 26. september 2024. Vísaði kærandi til þess að hefðu stjórnvöld grun um að einhver blaðamaður ætlaði að fara frá landinu væri vegabréfi viðkomandi lokað. Aðspurð hvað hún teldi að myndi gerast snéri hún aftur til heimaríkis svaraði kærandi því að hún þyrfti að halda sig innandyra og þá yrði hún talin hafa framið landráð, handtekin og pyntuð. Hún teldi sig einungis örugga erlendis á meðan ríkisstjórnin væri við stjórn. Kærandi kvaðst óttast um líf sitt í heimaríki, að vera beitt ofbeldi og sett í fangelsi og taldi yfirvöld í heimaríki ekki geta veitt sér aðstoð eða vernd.
Útlendingastofnun óskaði eftir frekari upplýsingum frá kæranda með tölvubréfum 11. og 15. nóvember 2024. Í svörum kæranda til stofnunarinnar kemur m.a. fram hún hafi verið beitt þrýstingi af hálfu stjórnar ríkisrekna fyrirtækisins […] en samskiptin hafi farið fram í gegnum mannauðsstjóra fyrirtækisins. Kærandi hafi verið almannatengill fyrirtækisins og árið 2023 hafi nýr forstjóri og mannauðsstjóri tekið við en áður en nýi forstjórinn hafi tekið formlega við hafi kæranda verið gert ljóst að endurráðning hennar væri háð því skilyrði að hún tæki þátt í ímyndasköpun fyrirtækisins. Á fyrri hluta árs 2023 hafi nýi mannauðsstjórinn tjáð kæranda að nýr forstjóri fyrirtækisins vildi losna við hana vegna stjórnmálastarfa kæranda. Ekki hafi verið hægt að segja henni upp störfum þar sem hún hafi verið opinber starfsmaður með flekklausan feril en hún verið eindregið hvött til að óska eftir starfslokum þótt hún væri ekki komin á aldur. Það hafi kærandi ekki gert og mannauðsstjórinn tilkynnt henni að ákveðið hefði verið að nýta heimild til að færa hana til í starfi og þá hafi kærandi látið undan þrýstingi, sagt upp störfum og hafið störf sem sjálfstætt starfandi blaðamaður og við þáttastjórn. Þá kemur í skýringum kæranda fram að það hafi verið misskilningur eða þýðingarvilla að hún hafi verið varaforseti Primero Justicia. Rétt væri að kærandi hafi verið fjölmiðlastjóri og aðstoðarmaður forseta flokksins í Miranda sveitarfélagi fyrir forsetakosningarnar 2013 og gegnt því hlutverki þar til hún flúði land í september 2024. Útskýrði kærandi að allir stjórnmálaflokkar í Venesúela hafi fjölmiðlateymi sem fjölmiðlastjóri fari fyrir, beri ábyrgð á skipulagningu starfsins og beri m.a. ábyrgð á því hvaða efni sé birt á samfélagsmiðlum. Hún hafi starfað sem blaðamaður fyrir flokkinn auk þess að leiða starf fjölmiðlateymisins og því m.a. borið ábyrgð á samskiptum flokksins og ímynd hans út á við, ráðgjöf fyrir blaðamenn og aðra sem kæmu fram fyrir hönd flokksins og að boða til blaðamannafunda og senda frambjóðendur á viðburði til að ná athygli fjölmiðla og almennings. Fram kemur einnig að þegar sonur kæranda hafi orðið fyrir pólitískum ofsóknum hafi það einnig bitnað á fjölskyldu hans. Ekki síst kæranda sem hafi oft orðið fyrir áreiti almennra borgara sem hafi haft eitthvað við son hennar að athuga. Hún hafi einnig orðið fyrir áreiti manna sem hún telji hafa verið á vegum yfirvalda og falist m.a. í því að setið væri um heimili hennar og fylgst með því. Bifreiðar hafi ekið hægt framhjá í sífellu og snemma á morgnana hafi bifreiðar stöðvað fyrir framan húsið og menn sniglast fyrir utan húsið. Taldi kærandi að þeir hafi haldið að sonur hennar hefði haldið til hjá henni og um væri að ræða aðferð sem alþekkt væri að væri notuð í því skyni að hrella fólk sem ekki væri hlynnt stjórnvöldum.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 29. desember 2025. Greinargerð barst kærunefnd 14. janúar 2025. Viðbótargögn bárust kærunefnd 3. og 17. desember 2025. Kærunefnd sendi kæranda tölvubréf 5. og 19. febrúar 2026. Svör bárust nefndinni 10. og 23. febrúar 2026.
Sonur kæranda hefur dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli alþjóðlegrar verndar en umsókn frænda hennar er til meðferðar hjá kærunefnd.
Greinargerð til kærunefndar
Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.
Í greinargerð kæranda er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Venesúela mótmælt. Mótmælir kærandi einnig því mati stofnunarinnar að frásögn hennar sé ekki studd fullnægjandi gögnum. Þá byggir kærandi á því að hún geti ekki reiknað með því að njóta mannréttinda í heimaríki og eigi á hættu að brotið verði á eða að þegar hafi verið brotið á rétti hennar til lífs, frelsis og friðhelgi, kosningafrelsi hennar eða fjölmiðla- og atvinnufrelsi.
Um rök fyrir umsókn kæranda um alþjóðlega vernd er vísað til viðtals kæranda hjá Útlendingastofnun, greinargerðar talsmanns til stofnunarinnar og annarra gagna málsins.
Kærandi krefst þess aðallega að verða veitt alþjóðleg vernd sem flóttamaður hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi hafi orðið fyrir endurteknum hótunum og áreiti af hálfu stjórnvalda eða aðila sem starfi í skjóli stjórnvalda vegna starfa sinna í þágu stjórnmálaflokks og starfa sinna sem blaðamaður og að lífi sínu og dóttur sinnar hafi verið ógnað eftir að kærandi hafi fjallað um efni sem stjórnvöld hafi ekki viljað umfjöllun um.
Kærandi telur jafnframt að 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga eigi við í máli hennar. Kærandi telur að mat Útlendingastofnunar á aðstæðum hennar og í heimaríki hennar sé verulegum annmörkum háð.
Af tölvubréfi kæranda til nefndarinnar 3. desember 2025 verður ráðið að kærandi byggi einnig á 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga
Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hina kærðu ákvörðun sem er í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til þess að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.
Alþjóðleg vernd
Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.
Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).
Auðkenni og ríkisfang
Umsækjanda um alþjóðlega vernd er skylt að veita atbeina sinn til að upplýsa hver hann er, sbr. 1. mgr. 14. gr. laga um útlendinga. Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað venesúelsku vegabréfi. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærandi hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Ekki er ástæða til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærandi sé venesúelskur ríkisborgari.
Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Venesúela, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
- 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
- 2024 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. ágúst 2025);
- ACCORD - Austrian Centre for Country of Origin and Asylum Research and Documentation: Venezuela, year 2024: Update on incidents according to the Armed Conflict Location & Event Data Project (ACLED) (ACCORD 5. febrúar 2025);
- ‘All sides need to think about the future they want for Venezuela’, says UN human rights chief (vefsíða Sameinuðu þjóðanna, http://news.un.org/en/story/2023/01/1132957, 28. janúar 2023);
- Amnesty International Report 2022/23: Venezuela (Amnesty International, 27. mars 2023);
- Annual Report 2020 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2021);
- Annual Report 2022 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2023);
- Bolivarian Republic of Venezuela interim country strategic plan 2023-2025 (World Food Programme, 1. febrúar 2023);
- Country Reports on Terrorism 2022: Venezuela (U.S. Department of State, 30. nóvember 2023);
- Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 14. október 2024);
- Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 15. september 2020);
- Election Observation Mission – Venezuela 2021 (European Union, 22. febrúar 2022);
- Fostering Impunity: The Impact of the Failure of the Prosecutor of the International Court to Open an Investigation into the Possible Commission of Crimes against Humanity in Venezuela (Organization of American States, OAS, 2. desember 2020);
- Freedom in the World 2022 – Venezuela (Freedom House, 28. febrúar 2022);
- Freedom in the World 2023 – Venezuela (Freedom House, 10. mars 2023);
- Freedom in the World 2024 – Venezuela (Freedom House, 29. febrúar 2024);
- Freedom in the World 2025 – Venezuela (Freedom House, 26. febrúar 2025);
- General Country of Origin Information Report. Venezuela 2020 (Netherlands. Ministry of Foreign Affairs, júní 2020);
- Global Childhood Report 2021 – The Toughest Place to be a Child (Save the Children, 2021);
- Global Organized Crime Index – Venezuela (Global Initiative Against Transnational Organized Crime, 2023);
- Guidance Note on International Protection Considerations for Venezuelans – Update I (UNHCR, maí 2019);
- Human Rights Violations in the Bolivarian Republic of Venezuela: A Downward Spiral with No End in Sight (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), júní 2018);
- Humanitære forhold (Landinfo, 2. mars 2023);
- Humanitarian Access overview (ACAPS, desember 2022);
- Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 24. ágúst 2023);
- Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 12. desember 2023);
- Independence of the justice system and access to justice in the Bolivarian Republic of Venezuela, including for violations of economic and social rights, and the situation of human rights in the Arco Minero del Orinoco region (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 29. september 2020);
- Informe Annual de Violencia 2022 (Observatorio Venezolano de Violencia, 29. desember 2022);
- International Protection Needs of Venezuelan Nationals (Amnesty International, október 2023);
- Judges on the Tightrope Report on the Independence and Impartiality of the Judiciary in Venezuela (International Commission of Jurists, júní 2021);
- Latest Asylum Trends (European Union Agency for Asylum, 17. maí 2023);
- Outcomes of the investigation into allegations of possible violations of the human rights to life, liberty, and physical and moral Integrity in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 17. september 2020);
- Punished for Seeking Change, Killings, Enforced Disappearences and Arbitrary Detention following Venezuela‘s 2024 Election (Human Rights Watch, 30. apríl 2025);
- Religious Regulation and Discrimination in Venezuela (Observatory of Religious Freedom in Latin America, janúar 2022);
- Report of the General Secretariat of the Organization of American States and the Panel of Independent International Experts on the Possible Commission of Crimes Against Humanity in Venezuela. Second Edition (Organization of American States, OAS, mars 2021);
- Report of the independent international fact-finding mission on the on the Bolivarian Republic of Venezuela (UNHRC, 17. september 2024);
- Report of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (Human Rights Council, 18. september 2023);
- Rise of the Criminal Hybrid State in Venezuela (InSight Crime, júlí 2023);
- RMNA 2023 – Refugee and Migrant Needs Analysis (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 11. september 2023);
- RMRP 2023-2024: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 30. nóvember 2022);
- RMRP 2024 Update: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 2. desember 2023);
- Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 16. júní 2021);
- Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (The United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 4. júlí 2023);
- Situation of Venezuelans who have returned and seek to return to their country in the context of COVID-19 (Organization of American States, OAS, september 2020);
- Situation Report No. 1 – Venezuela (UNICEF, 30. júní 2023);
- The World Factbook – Venezuela (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 12. janúar 2026);
- UNHCR Venezuela Operational update, May 2025 (The UN Refugee Agency, 7. maí 2025);
- UNHCR Venezuela Annual Report 2022 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
- UNHCR Venezuela Factsheet April 2025 (The UN Refugee Agency, 9. apríl 2025);
- Update on Venezuela by High Commissioner Türk (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 5. júlí 2023);
- Vefsíða félagsmálastofnunar Venesúela (s. Instituto Venezolano de los Seguros Sociales (IVSS), http://www.ivss.gov.ve);
- Venezuela (Britannica, síðast uppfært 1. mars 2026);
- Venezuela Country Focus (European Asylum Support Office, EASO, ágúst 2020);
- Venezuela Country Focus (European Union Agency for Asylum, EUAA, nóvember 2023;
- Venezuela Country Report 2022 (Bertelsmann Stiftung, 2022);
- Venezuela in 2022: Building solutions with communities affected by armed violence (International Committee of the Red Cross, 6. janúar 2023);
- Venezuela Organized Crime Observatory (InSightCrime, síðast uppfært 12. febrúar 2026);
- Venezuela Situation (UNHCR, janúar 2023);
- Venezuela Situation Fact Sheet (UNHCR, 8. mars 2023);
- Venezuela: Availability of health care, including for persons with disabilities and older persons; treatment of persons with disabilities and older persons within the healthcare system (2021-January 2023) (Immigration and Refugee Board of Canada, 13. febrúar Venezuela: Humanitarian Action, (OCHA, 30. nóvember 2022);
- Venezuela: Humanitarian Response Plan 2022-2023 (OCHA, 7. september 2022);
- Venezuela: Joint Statement on Venezuela Negotiation in Mexico (The Diplomatic Service of the European Union, 26. nóvember 2022);
- Venezuela: Los Colectivos (Landinfo, 1. október 2019);
- Venezuela: Overview of U.S Sanctions (Congressional Research Service, 8. ágúst 2023);
- Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 30. nóvember 2022);
- Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 19. desember 2024);
- Venezuela: Political Crisis and U.S Policy (Congressional Research Service, 1. september 2023);
- Venezuela: Progress Report March – April 2023 (OCHA, 31. maí 2023);
- Venezuela: Sikkerhetssituasjonen for sivilbefolkningen (Landinfo, 14. apríl 2020);
- Venezuela: Situasjonen etter presidentevalget 28. Juli 2024 (Landinfo, 10. desember 2024, uppfærð í apríl 2025);
- Venezuela: The Perilous Path to a Key Election (International Crisis Group, 30. janúar 2024);
- Venezuela: Tidligere og nåværende protestaksjoner, og retursituasjonen for personer som deltok i de store demonstrasjonene i 2017-2019 (Landinfo, 30. maí 2023);
- Venezuela: Treatment of citizens by the authorities based on whether or not they participate in anti-government protests, including whether some are more targeted than others and for what reasons; whether access to social security programs may be affected by political activities (2017-January 2021) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. febrúar 2021);
- Venezuela: UN Experts warn of persisting attacks on civil society, media and trade union leaders
- (UNCHR, 22. mars 2023);
- Venezuela: Utsatte grupper og reaksjoner fra myndighetene (Landinfo, 11. júní 2020);
- Venezuela: Ytringsfrihet og kritiske ytringer i sosiale medier (Landinfo, 28. júní 2023);
- Venezuela’s Humanitarian Emergency (Human Rights Watch, 4. apríl 2019);
- What’s Ahead for Venezuela’s Crisis (World Politics Review, 20. apríl 2023);
- World Report 2023 – Venezuela (Human Rights Watch, 12. janúar 2023);
- World Report 2024 – Venezuela (Human Rights Watch, 11. janúar 2024) og
- World Report 2025- Venezuela (Human Rights Watch, 16. janúar 2025).
Venesúela er stjórnarskrárbundið lýðveldi með tæplega 30 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 96% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 15. nóvember 1945 gerðist Venesúela aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1978. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1991.
Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum bandarísku utanríkisþjónustunnar frá 2022 og 2023, bandarísku leyniþjónustunnar frá 2023 og Human Rights Watch frá 2023, kemur fram að Venesúela sé fjölflokka lýðræðisríki að nafninu til. Nicolás Maduro, forseti landsins frá árinu 2013, hafi styrkt völd sín á kostnað löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvalds landsins. Stjórnarkreppa hafi ríkt í Venesúela frá árinu 2019 í kjölfar umdeildra forsetakosninga, sem sætt hafi gagnrýni fyrir að vera hvorki óháðar né sanngjarnar. Nicolás Maduro hefur neitað að afsala sér völdum og haldið því fram að hann hafi unnið sigur í forsetakosningunum. Í kjölfarið hafi hluti stjórnarandstöðunnar lýst Juan Guaido sem bráðabirgðaforseta, en stjórnvöld undir forystu Maduro haldið áfram að fara með raunveruleg völd ríkisins og notið stuðnings öryggissveita. Samkvæmt skýrslu Evrópusambandsins frá árinu 2022 hafi stjórnarandstaðan sniðgengið þrennar kosningar frá árinu 2015 vegna skorts á lýðræðislegum skilyrðum en tekið þátt í sveitarstjórnarkosningum árið 2021 sem hafi farið fram undir alþjóðlegu kosningareftirliti, en framkvæmd þeirra hafi verið ábótavant. Samningaviðræður milli ríkisstjórnar Maduro og stjórnarandstöðunnar hafi hafist á ný í nóvember 2022 og þar komist að samkomulagi um að bæta mannúðarástand í landinu með stofnun sjóðs á vegum Sameinuðu þjóðanna, sem sótt gæti fjármagn í frystar eignir Venesúela erlendis. Í desember 2022 í kjölfar viðræðnanna hafi stjórnarandstaðan leyst upp bráðabirgðastjórn Juan Guaido í landinu þar sem honum hafi mistekist að ná þeim yfirráðum sem stefnt hafi verið að. Markmið stjórnarandstöðunnar hafi enn verið að koma Maduro frá völdum. Ríkisstjórn Venesúela og stjórnarandstaðan hafi samþykkt á fundi í Barbados 17. október 2023 að halda forsetakosningar í Venesúela seinni hluta ársins 2024 undir alþjóðlegu eftirliti. Alþjóðlegir eftirlitsmenn hafi verið viðstaddir fundinn og samningurinn undirritaður með milligöngu Noregs. Hinn 22. október 2023 valdi stjórnarandstaðan Maríu Corinu Machado sem fulltrúa sinn í kosningunum. Hinn 30. október 2023 ógilti Hæstiréttur Venesúela þá niðurstöðu og frestaði forkosningum stjórnarandstöðunnar vegna mögulegs lögbrots. Í kjölfarið valdi stjórnarandstaðan Edmundo Gonzalez, fyrrum stjórnarerindreka, sem fulltrúa sinn og staðfesti landskjörstjórnin valið 26. mars 2024. Forsetakosningar fóru fram 28. júlí 2024 í Venesúela og landkjörstjórn lýsti því yfir að Maduro hafi hlotið endurkjör. Stjórnarandstaðan mótmælti niðurstöðum kosninganna og sagði Gonzalez vera rétt kjörinn forseta. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, aðrar þjóðir og alþjóðlegir aðilar hafi lýst yfir áhyggjum sínum um að niðurstaða kosninganna endurspeglaði ekki vilja eða atkvæði venesúelsku þjóðarinnar og var kallað eftir því að landskjörstjórnin birti atkvæðatöflur sínar, sem hafi enn ekki verið gert.
Í skýrslu Freedom House frá 2021 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðasinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að yfirvöld hafi áfram takmarkað borgaraleg réttindi og sótt pólitíska andstæðinga sína til saka án réttlátrar málsmeðferðar. Í samantekt rannsóknarnefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá 22. mars 2023 kemur fram að handtökur og varðhöld yfirvalda á pólitískum andstæðingum, aðgerðir gegn mótmælum, lokun fjölmiðla og pyndingar og ómannúðleg meðferð ætlaðra og raunverulegra stjórnarandstæðinga grafi undan tjáningarfrelsi og rétti til mótmæla. Í skýrslum Freedom House frá 2024 og 2025 er það mat staðfest að stjórnvöld hafi lokað nánast öllum rásum fyrir pólitíska mótstöðu og viðhaldið kerfisbundnum takmörkunum á borgaralegum og pólitískum réttindum, þar á meðal með handahófskenndum handtökum og pólitískri misnotkun réttarkerfisins. Í skýrslu Human Right Watch frá 2023 kemur fram að ríkisstjórn landsins hafi fangelsað pólitíska andstæðinga sína og öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðji ríkisstjórnina hafi ítrekað beitt mótmælendur ofbeldi, þar á meðal barsmíðum og skotárásum. Dómskerfi landsins hafi hætt að starfa sem óháð ríkisvald árið 2004 og væru dómsmálayfirvöld samsek venesúelskum yfirvöldum í misnotkun á kerfinu, t.a.m. með útgáfu afturvirkra handtökuheimilda og fyrirskipana um gæsluvarðhöld án fullnægjandi sönnunargagna.
Í niðurstöðuskýrslu óháðrar nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna (e. Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela) frá 2020 kemur fram að yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum hafi framið alvarleg og kerfisbundin mannréttindabrot frá árinu 2014, þ. á m. kerfisbundnar pyndingar og aftökur án dóms og laga, sem geti fallið undir skilgreiningu á glæp gegn mannkyni (e. Crimes against humanity). Meirihluti glæpanna hafi verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í því skyni að þagga niður andstöðu við ríkisstjórn Maduro og hafi háttsettir embættismenn og herforingjar haft vitneskju um glæpina og ekki gripið til aðgerða til að sporna gegn þeim. Samtök Ameríkuríkja (e. Organization of American States (OAS)) komust að sambærilegri niðurstöðu í skýrslum sínum frá 2020 og 2021, þar sem m.a. er greint frá þúsundum tilvika aftaka án dóms og laga, handahófskenndum handtökum, þvinguðum mannshvörfum og ýmsum aðferðum pyndinga s.s. kynferðislegu ofbeldi. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá 2023 tilkynnti saksóknari alþjóðlega sakamáladómstólsins (e. International Criminal Court (ICC)) í nóvember 2021 þá ákvörðun dómstólsins að hefja rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni í Venesúela. Í mars 2022 hafi saksóknaranum verið heimilað að opna skrifstofu sína í Karakas. Samkvæmt skýrslu Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá júní 2022 hafði dregið verulega úr dauðsföllum í aðgerðum öryggissveita, þó talið var að slíkar aðgerðir hafi haldið áfram. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024 kemur fram að Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn hafi í júní 2023 tilkynnt að rannsókninni yrði haldið áfram í Venesúela og að skrifstofa dómstólsins yrði opnuð í Karakas. Fulltrúar venesúelskra yfirvalda áfrýjuðu framangreindri ákvörðun en beiðni þeirra um að stöðva rannsóknina hafi verið hafnað 1. mars 2024.
Í skýrslu rannsóknarnefndar á vegum Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 17. september 2024, kemur fram að brot hafi verið framin gegn raunverulegum eða ætluðum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Í kjölfar kosninganna í júlí 2024 hafi 915 mótmæli átt sér stað og ásakanir um óréttmætar kosningar aukist. Í kjölfarið hafi ríkisstjórnin hert aðgerðir sínar til að þagga niður og stöðva andstöðu við ríkisstjórnina og koma í veg fyrir friðsamleg mótmæli. Aðgerðir hafi m.a. beinst að þeim sem gagnrýnt hafi niðurstöður kosninganna, mótmælt með virkum hætti eða verið grunaðir um slíkt, sem og að yfirvöldum á kjörstöðum og umsjónarmönnum. Öryggissveitir hafi verið sendar á heimili einstaklinga og margir handteknir. Þá hafi stjórnvöld áreitt, hótað eða handtekið blaðamenn. Nefndin hafi skjalfest handtökur einstaklinga sem tengst hafi kosningaviðburðum stjórnarandstöðunnar, þar á meðal fyrirtækjaeigenda, starfsmanna og fjölskyldna þeirra, m.a. fyrir að útvega ýmis aðföng vegna slíkra viðburða. Þeir einstaklingar hafi þó almennt verið í haldi í stuttan tíma, án ákæru og látnir lausir án endurgjalds. Í kjölfar mótmæla hafi fjöldi þátttakenda verið handteknir, þ. á m. börn. Nefndin hafi jafnframt rannsakað markvissar handtökur pólitískra leiðtoga, aðgerðasinna, blaðamanna og mannréttindasinna, þar á meðal áberandi meðlima stjórnarandstöðuflokka í aðdraganda kosninganna og í kjölfar þeirra. Handtökur og meðferð fanga hafi ekki farið fram með lögbundnum hætti né hafi verið gætt að réttlátri málsmeðferð. Telji nefndin að stjórnvöld hafi með þessum aðgerðum framið verknað sem geti talist glæpur gegn mannkyni, gegn einstaklingum sem hafi verið gagnrýnir á ríkisstjórnina og teljist raunverulegir eða ætlaðir pólitískir andstæðingar.
Samkvæmt m.a. skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) frá árinu 2023 og skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2022, heyra lögreglu- og öryggismál landsins m.a. undir alríkislögregluna, herlögregluna, svæðisbundin lögregluembætti og lögregluembætti sveitarfélaga. Um 45 þúsund lögreglumenn starfi hjá alríkislögreglunni og hafi yfirvöld stefnt að því að fjölga þeim í 100 þúsund árið 2024. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins hafi stjórn yfirvalda á öryggissveitum landsins minnkað undanfarin ár og ríkisstjórn Maduro í auknum mæli treyst á hersveitir-, leyniþjónustu og vopnahópa (Colectívos) til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr mótmælum. Í skýrslu Landinfo frá 2019 kemur fram að Colectívos sé sameiginlegt heiti yfir fjölda vopnaðra hópa sem starfa víða um landið og styðja ríkisstjórnina. Þótt óljóst sé að hve miklu leyti yfirvöld hafi formlega stjórn á þessum hópum, hafi þeir tekið þátt í aðgerðum yfirvalda gegn mótmælendum og stjórnarandstæðingum ríkisstjórnar Maduro.
Í skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að tíðni dauðsfalla af völdum ofbeldis í Venesúela sé ein sú hæsta í Mið- og Suður-Ameríku. Þrátt fyrir fækkun slíkra dauðsfalla á árunum 2018 til 2019 sé það ekki talið til marks um minnkandi ofbeldi í landinu, fremur hafi vopnahópum tekist að viðhalda yfirráðasvæðum sínum og komið á fót eiginlegum smáríkjum (e. micro-states),sem dregið hafi úr átökum milli stríðandi fylkinga. Þá megi einnig rekja fækkun dauðsfalla af völdum ofbeldis til aukinnar fátæktar og flutnings fólks úr landi. Mannránum hafi einnig fækkað m.a. vegna erfiðleika við greiðslu lausnargjalda í kjölfar óðaverðbólgu. Nú á síðari árum hafi orðið aukning á glæpum á borð við rán, mannrán og fjárkúgun, einkum í tengslum við lögleiðingu og greiðara aðgengi að erlendum gjaldmiðlum, sem hafi jafnframt leitt til þess að smærri glæpahópar hafa sameinast við stærri glæpasamtök. Venezuelan Observatory of Violence gefur árlega út skýrslur um glæpatíðni í landinu. Samkvæmt skýrslu stofnunarinnar fyrir árið 2020 hafi morðtíðni í landinu það ár verið um 45,6 dauðsföll af völdum ofbeldis á hverja hundrað þúsund íbúa.Í skýrslu þeirra fyrir árið 2023 kemur fram að tíðni dauðsfalla vegna ofbeldis hafi lækkað í 26,8 dauðsföll á hverja hundrað þúsund íbúa, samanborið við 40,4 árið 2022, en áfram hafi verið skráður verulegur fjöldi ofbeldistilvika, þar á meðal dauðsföll af hálfu yfirvalda og fjöldi tilvika þar sem gerendur hafi verið ótilgreindir.
Samkvæmt skýrslu EUAA frá nóvember 2023 hafi fjárkúgun aukist í Venesúela undanfarin ár. Skotmörk slíkra brota séu einkum fyrirtæki sem notist við erlendan gjaldeyri, t.a.m. innflutnings-, flutninga- og þjónustufyrirtæki auk smærri atvinnurekenda. Greiðslukröfur séu að jafnaði miðaðar við greiðslugetu þolanda og geti verið allt frá fimm bandaríkjadollurum á viku upp í 50.000 dollara á mánuði. Fjárkúgun sé að mestu leyti framin af skipulögðum glæpahópum og skæruliðasamtökum og fylgi henni oft alvarlega hótanir, eignaspjöll og ofbeldi, þar á meðal árásir á heimili og fyrirtæki þolenda, auk hótana í gegnum síma og samskiptamiðla á borð við WhatsApp. Í skýrslunni eru einnig rakin dæmi þar sem einstaklingar hafi verið myrtir eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópa. Morðin hafi verið tekin upp og birt á samfélagsmiðum til að senda skilaboð til annarra að verða við kröfum hópsins. Þá kemur fram að fjárkúgun af hálfu ríkisstarfsmanna og öryggissveita hafi einnig aukist. Slíkar fjárkúganir eigi sér oftast stað í formi kröfu um mútugreiðslu, m.a. við eftirlitsstöðvar eða við leyfisveitingu. Samkvæmt skýrslu EUAA sé engin áreiðanleg tölfræði til um umfang fjárkúgunar í Venesúela, enda leggi þolendur sjaldnast fram kæru vegna ótta við hefndaraðgerðir og vegna skorts á trausti á réttarkerfinu. Heimildir bendi jafnframt til þess að viðbrögð yfirvalda við fjárkúgun séu ófullnægjandi og þrátt fyrir viðleitni yfirvalda til þess að bregðast við fjárkúgunum hafi þolendur oft á tíðum ekki átt annarra kosta völ en að verða við kröfum glæpahópa samkvæmt skýrslu Global Initiative Against Transnational Organized Crime frá 2023.
Samkvæmt skýrslu Observatory of Religious Freedom in Latin America frá 2022 kveður stjórnarskrá Venesúela á um trúfrelsi, að því tilskildu að iðkun hennar brjóti ekki í bága við almennt siðgæði, velsæmi og allsherjarreglu. Stjórnarskráin tryggi jafnframt sjálfstæði kirkna í landinu, rétt foreldra til að velja trúarbragðafræðslu fyrir börn sín og banni dreifingu áróðurs gegn trúarbrögðum. Samkvæmt skýrslunni ríki almennt umburðarlyndi gagnvart ólíkum trúarbrögðum í landinu og einstaklingar sæti að jafnaði ekki fordómum vegna trúar sinnar og lítið sé um deilur á milli hópa með ólík trúarbrögð. Þó hafi verið dæmi um að glæpahópar, Colectivos, hafi að undirlagi stjórnvalda ógnað trúarleiðtogum sem gagnrýnt hafi stjórnvöld.
Samkvæmt skýrslu EASO frá 2020, sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023, leiddi mikil lækkun olíuverðs í kjölfar þess að Maduro varð forseti árið 2013, ásamt efnahagsstefnu stjórnvalda og íþyngjandi regluverki gagnvart atvinnulífinu, til djúprar niðursveiflu efnahags Venesúela. Olía hafi lengi verið helsta tekjulind ríkisins og um helmingur tekna ríkissjóðs komið frá olíuvinnslu. Óðaverðbólga og efnahagskreppa hafi dregið verulega úr kaupmætti almennings í landinu og orsakað skort á matvælum, lyfjum og öðrum nauðsynjavörum. Þrátt fyrir hækkanir á lágmarkslaunum hafi meginþorri almennings ekki getað framfleytt sér án fjárhagsaðstoðar. Í skýrslunni kemur fram að öll félagsleg aðstoð sé veitt í gegnum föðurlandskerfi og föðurlandskortið (s. Sistema Patria, Carnet de la Patria) en kortið sé forsenda fyrir aðgangi að opinberri aðstoð, m.a. matvælaaðstoð í formi CLAP matarpakka (s. Comité Local de Abastecimiento y Producción). Kerfið hafi verið notað til eftirlits með íbúum og sumum einstaklingum neitað um aðstoð vegna þess að þeir verið taldir á móti ríkisstjórninni og þannig hafi föðurlandskortið verið verkfæri til samfélagsstjórnunar. Árið 2022 hafi stjórnvöld hafið notkun smáforritsins VenApp, sem geri íbúum kleift að tilkynna truflanir á veitingu grunnþjónustu, s.s. vatns, gas eða rafmagns, en notkun þess krefjist samþykkis fyrir aðgang að persónuupplýsingum og staðsetningu notanda og sé því jafnframt tæki til að fylgjast með íbúum. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 hafi flestir íbúar Venesúela þá verið í þörf fyrir aðstoð vegna skorts á mat, vatni, heilbrigðisþjónustu og hreinlæti. Þá hafi rúmlega sjö milljónir venesúelskra ríkisborgara lagt á flótta eða verið á vergangi vegna ástandsins í landinu og venesúelska flóttamannakrísan sé talin eitt alvarlegasta vandamál nútímans og fólksflutningarnir þeir fjölmennustu í nútímasögu Suður-Ameríku.
Í skýrslu Landinfo frá mars 2023 segir að hagkerfi Venesúela hafi byrjað að sýna merki um bata frá árinu 2021 í kjölfar aukningu á olíuframleiðslu slökunar á ströngum reglum um gjaldeyrismál og gefið leyfi fyrir auknum viðskiptum í erlendri mynt. Talið er að hagkerfið hafi styrkst um 15% árið 2022, en fátæktin sé enn mikil, sérstaklega hjá þeim sem ekki hafi aðgang að erlendum gjaldeyri. Þrátt fyrir aukið framboð matvæla og lyfja eftir lægri verðbólgu og rýmkun innflutningsreglna hafi stór hluti íbúa ekki efni á nauðsynjavörum vegna lágra launa. Um 50% heimila hafi verið undir fátæktarmörkum árið 2022 samanborið við 65% árið 2021 og 87% árið 2017. Í skýrslunni kemur fram að frá árinu 2019 hafa Sameinuðu þjóðirnar aukið viðveru sína og mannúðaraðstoð í landinu. Þá hefur aðgengi ýmissa hjálparsamtaka að landinu aukist en aðstoðin komi aðallega frá Sameinuðu þjóðunum, Rauða krossinum og öðrum alþjóðlegum félagasamtökum.
Í skýrslu Mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2023 kemur fram að hagvöxtur hafi aukist um 17,3% árið 2022, en það hafi ekki skilað sér í bættri almannaþjónustu, s.s. samgöngum, menntun og heilbrigðisþjónustu. Af heimildum má ráða að hagvöxtur hafi verið um 4-5% árið 2023, um 8% árið 2024 og 9% árið 2025. Í skýrslu Human Right Watch frá árinu 2023 er jafnframt fjallað um endurnýjuð stjórnmálasamskipti Venesúela við önnur ríki frá árinu 2022, m.a. enduropnun landamæra við Kólumbíu, endurnýjun stjórnmálasambands við argentínsk yfirvöld og samkomulag stjórnvalda í Venesúela og stjórnarandstöðunnar í nóvember 2022 um aukna mannúðaraðstoð. Samkomulagið hafi falið í sér úthlutun þriggja milljarða Bandaríkjadala til velferðarmála, m.a. til að tryggja betri heilbrigðisþjónustu, fæðuöryggi og rafmagn í landinu, en fram að þessum tíma hafi Maduro, forseti landsins, verið tregur við að þiggja mannúðaraðstoð þrátt fyrir þrýsting frá Sameinuðu þjóðunum, Bandaríkjunum og öðrum löndum. Bandaríkin hafi dregið úr viðskiptaþvingunum í kjölfar samningaviðræðna ríkisstjórnar landsins og stjórnarandstöðunnar og heimilað bandarísku fyrirtæki að hefja að nýju vinnslu á olíu frá Venesúela og innflutning á henni til Bandaríkjanna. Heimildir benda til þess að hluti þeirra þvingana sem aflétt hafi verið hafi verið komið á á ný eða aðrar settar á eftir forsetakosningarnar í júlí 2024 og aðgerða stjórnvalda gegn stjórnarandstæðingum í kjölfarið.
Samkvæmt skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá apríl 2025 hafi fólksflutningur yfir landamæri Venesúela verið stöðugur, bæði inn í landið og út úr því. Á landamærum við Kólumbíu hafi fleiri snúið aftur til Venesúela en farið úr landi, en á landamærum við Brasilíu séu fleiri sem leiti þangað en áður í von um atvinnu og grunnþjónustu. Þá hafi fjöldi fólks snúið til baka til Venesúela í gegnum ríkisstyrktu áætlunina Vuelta a la Patria og vegna brottvísana frá Bandaríkjunum og öðrum nágrannaríkjum. Þrátt fyrir áframhaldandi efnahagslegan bata hafi vaxandi verðbólga og lækkun gjaldmiðilsins dregið úr kaupmætti og matvælaöryggi stórs hluta íbúanna, einkum meðal opinberra starfsmanna og lífeyrisþega. Flóttamannastofnunin hafi leitast við að aðstoða þá sem verst sé settir í landinu með auknu samstarfi við önnur mannúðarsamtök og alþjóðlega aðila í landinu með það að markmiði að stuðla að sjálfbærri endurkomu fólks til Venesúela. Stofnunin áætli að einn af hverjum fjórum Venesúelabúum þurfi á mannúðaraðstoð að halda og sérstökum aðgerðum sé beint að um 2,7 milljónum manna sem séu í sérstaklega viðkvæmri stöðu.
Samkvæmt skýrslum mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (e. OHCHR), innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanadaog Landinfo frá 2023 er heilbrigðiskerfi Venesúela veikburða. Þótt bæði opinberar og einkareknar heilbrigðisstofnanir starfi í landinu hafi aðeins um 3% íbúa tök á að nýta sér einkarekna þjónustu. Opinber sjúkrahús hafi glímt við langvarandi skort á lyfjum, búnaði og starfsfólki, og aðgangur að rafmagni og vatni hafi verið ótryggur. Barnadauði og útbreiðsla sjúkdóma sem hægt væri að koma í veg fyrir með bólusetningum hafi aukist og heilbrigðiskerfið hafi verið illa í stakk búið til að takast á við Covid-19 faraldurinn. Þrátt fyrir að stjórnvöld hafi árið 2022 stutt við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á fátækustu svæðum landsins sé aðbúnaði áfram ábótavant og mikill skortur á heilbrigðisstarfsfólki, meðal annars vegna þess að það hafi flúið land í miklum mæli. Þá hafi læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk sætt hótunum og jafnvel handtökunum af hálfu yfirvalda vegna opinberrar gagnrýni á stöðu heilbrigðiskerfisins. Í skýrslu Human Rights Watch frá 2023 og 2025 kemur fram að Venesúela standi enn frammi fyrir alvarlegri mannúðarkrísu þar sem milljónir íbúa hafi ekki aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu og næringu. Í mars 2023 hafa rúmlega átta milljónir alvarlega veikra einstaklinga átt í erfiðleikum með að fá heilbrigðisþjónustu og yfir níu milljónir ekki haft efni á nauðsynlegum lyfjum eða meðferð. Samkvæmt skýrslum Landinfo frá 2023 og Human Rights Watch frá 2025 hafi Venesúela um árabil glímt við alvarlegan lyfjaskort, þótt aðgengi hafi farið batnandi frá árinu 2019. Aðgengi sé að lyfjum fyrir þau sem geti greitt fyrir það en mörg fái lyf send frá útlöndum.
Hinn 15. nóvember 2023 aðstoðuðu Útlendingastofnun og embætti ríkislögreglustjóra, í samvinnu við Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu (Frontex), 180 venesúelska ríkisborgara við sjálfviljuga heimför til Venesúela. Í kjölfarið bárust fregnir af því að sumir hefðu ekki fengið að fara frjálsir ferða sinna af flugvellinum í Karakas, vegabréf þeirra hafi verið haldlögð og einhverjir sætt yfirheyrslum af hálfu yfirvalda. Íslensk stjórnvöld settu sig í samband við þá einstaklinga sem náðist til og óskuðu eftir upplýsingum um afdrif þeirra. Voru meginniðurstöður þeirra svara sem bárust að nær allir hafi komist á áfangastað eða væru á leið þangað auk þess sem einn aðili var kominn til annars ríkis. Þá hafi allir sem svöruðu verið með vegabréf sín og flestir haft ferðastyrk íslenskra stjórnvalda í fórum sínum. Fyrir umrætt leiguflug höfðu íslensk stjórnvöld veitt alls 135 ríkisborgurum Venesúela aðstoð við sjálfviljuga heimför með hefðbundnu áætlunarflugi án vandkvæða við komu til Venesúela. Samkvæmt upplýsingum sem kærunefnd aflaði frá Útlendingastofnun 23. janúar 2025 fengu 971 venesúelskur ríkisborgari aðstoð við sjálfviljuga heimför til Venesúela á árinu 2024. Hafi íslenskum stjórnvöldum ekki borist upplýsingar um að þeir hafi lent í erfiðleikum við endurkomu sína til Venesúela. Þá kemur fram í tölfræði Útlendingastofnunar fyrir árið 2025 að á árinu hafi verið afgreiddar beiðni 345 einstaklinga frá Venesúela um aðstoð við sjálfviljuga heimför.
Á árunum 2024 og 2025 héldu bandarísk stjórnvöld áfram viðskiptaþvingunum gegn Venesúela, þar á meðal aðgerðum sem beindust að olíuútflutningi, sjóflutningum og fjármálastarfsemi. Í desember 2025 tilkynnti Fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna um nýjar markvissar refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum innan stjórnkerfis Venesúela, ættingjum eiginkonu forsetans, Ciliu Flores, auk fyrirtækja og skipa sem talin hafi verið tengjast ólöglegum olíuflutningum. Nokkur olíuskip hafi verið talin veita stjórnvöldum í Karakas fjárhagslegan stuðning og vera hluti af svokölluðum skuggaflota (e. Shadow-fleet) sem hafi reynt að komast undan refsiaðgerðum Bandaríkjanna. Frá seinni hluta árs 2025 jókst þrýstingur Bandaríkjanna á Venesúela enn frekar í formi aukinna refsiaðgerða, hernaðarlegra aðgerða og efnahagsþvingana. Í desember 2025 hóf Bandaríkjastjórn átak sem hafði það að markmiði að stöðva olíuútflutning sem talinn var styðja við stjórn Maduro og fjármagna stjórnvöld í Karakas. Á þessum tíma beittu bandarísk yfirvöld kyrrsetningu á fjölda olíuskipa sem sögð voru reyna að komast hjá refsiaðgerðum og flytja olíu ólöglega úr landi. Þá buðu bandarísk stjórnvöld 50 milljónir dollara í verðlaun fyrir upplýsingar sem gætu leitt til handtöku Maduro. Þann 16. desember 2025 tilkynnti Donald Trump, forseti Bandaríkjanna um algert hafnarbann gegn öllum skipum sem reyndu að flytja olíu til eða frá Venesúela. Aðgerðinni var lýst sem hluta af víðtækari stefnu til að rjúfa flutningsleiðir olíugeirans og auka þrýsting á stjórnvöld í Venesúela.
Hinn 3. janúar 2026 stóðu bandarísk yfirvöld að umfangsmiklum hernaðaraðgerðum í Karakas. Í kjölfar þeirra tilkynntu bandarísk yfirvöld að Nicolás Maduro, forseti Venesúela og eiginkona hans Cilia Flores, hefðu verið handtekin. Var það sagt byggja á ákærum bandarískra yfirvalda á hendur Maduro, meðal annars vegna meintrar fíkniefna hryðjuverkastarfsemi (e. Narco-terrorism), kókaíninnflutnings til Bandaríkjanna og vörslu á ólöglegum skotvopnum. Í kjölfar aðgerðanna voru Maduro og Flores flutt til Bandaríkjanna þar sem þau verði sótt til saka. Þá greindi Trump frá því að Bandaríkin myndu stýra Venesúela tímabundið á meðan valdaskipti ættu sér stað og eitt af forgangsmálum væri að koma olíuflutningi aftur í gang og nýta olíuauðlindir landsins í þágu almennings og fjármögnunar á uppbyggingu Venesúela. Í kjölfar handtöku Maduro héldu bandarískar hernaðar- og löggæslusveitir áfram að leggja hald á olíuskip sem reyndu að sniðganga bandarískar þvingunaraðgerðir. Bandarísk stjórnvöld tilkynntu jafnframt að fyrstu birgðir af venesúelskri olíu, sem hafi verið haldlögð yrðu seld fyrir um 500 milljónir Bandaríkjadala, með þeim rökum að söluandvirðið myndi nýtast bæði Bandaríkjunum og efnahagslegri uppbyggingu í Venesúela.
Aðgerðir Bandaríkjanna hafa verið afar umdeildar á alþjóðavettvangi. Sameinuðu þjóðirnar, fjölmörg ríki og mannréttindasamtök hafa gagnrýnt þær harðlega og haldið því fram að þær brjóti gegn alþjóðalögum og hafrétti. Þá hefur verið kallað eftir formlegri umfjöllun innan Sameinuðu þjóðanna um afleiðingar þeirra varðandi viðskipti, stjórnmál og mannréttindi. Þá er óljóst hvað framhaldið verður hvað varðar stjórn í Venesúela. Sem stendur hefur varaforseti landsins, Delcy Rodriguez, tekið við forsetaembættinu í fjarveru Maduro. Hefur hún verið í samskiptum við bandarísk stjórnvöld um framtíð landsins og stjórn þess. Sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna segja að eina leiðin til þess að endurreisa lýðræðið í Venesúela eftir nýleg brot á fullveldi landsins og áralanga einræðisstjórn sé að virða vilja venesúelsku þjóðarinnar, tryggja ábyrgð og sjálfákvörðunarrétt og tryggja fullvalda og sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda þeirra í samræmi við alþjóðalög.
Þrátt fyrir framangreindar aðgerðir Bandaríkjanna liggur ekki fyrir að almennt öryggi borgara í Venesúela hafi raskast verulega í kjölfarið. Alþjóðlegir fjölmiðlar og opinberar yfirlýsingar bandarískra stjórnvalda hafa ekki greint frá því að viðvarandi átök, almennar óeirðir eða víðtæk mótmæli hafi brotist út í kjölfar aðgerðanna, heldur virðist öryggisástand að mestu hafa haldist stöðugt utan þeirra afmörkuðu hernaðaraðgerða sem framkvæmdar voru í Karakas við handtöku Maduro. Fjölmiðlar hafa greint frá því að stjórnsýsla og opinber þjónusta hafi að meginstefnu haldið áfram starfsemi sinni, þrátt fyrir pólitíska óvissu í kjölfar aðgerðanna. Jafnframt liggja ekki fyrir heimildir um að aðgangur að heilbrigðisþjónustu eða lyfjum hafi almennt verið hindraður. Þá benda heimildir til þess að landamæri Venesúela séu opin og að almenningur geti ferðast til og frá landinu. Að lokum liggja ekki fyrir heimildir sem benda til þess að einstaklingar sem snúi aftur til Venesúela eigi almennt hættu á að verða fyrir handahófskenndri meðferð, auknu eftirliti eða refsiaðgerðum einungis vegna aðgerða Bandaríkjanna. Stjórnvöld í Venesúela hafi þá unnið að því að láta lausa pólitíska fanga og samkvæmt upplýsingum á heimasíðu frjálsu félagasamtakanna Foro Penal frá 18. janúar 2026, hafði 143 pólitískum föngum verið sleppt frá 8. janúar 2026. Kveða samtökin þær tölur verulega lægri en opinberar tölur stjórnvalda í Venesúela og kalla eftir gegnsæi í upplýsingum stjórnvalda. Telja samtökin að enn séu um 700 pólitískir fangar í haldi. Af yfirlýsingu sérstaks erindreka Sameinuðu þjóðanna fyrir Venesúela frá 12. janúar 2026 hafði aðeins 50 pólitískum föngum verið sleppt af þeim um 800 sem hafi verið í haldi stjórnvalda í Venesúela, ítrekaði erindrekinn kröfu um skilyrðislausa lausn allra þeirra sem hafi verið í haldi.
Í skýrslum bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 og 2024 kemur fram að konur njóti sömu réttinda og karlar samkvæmt stjórnarskrá landsins. Konur og karlar séu lagalega jöfn í hjónabandi, lögin kveði á um jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði og vinnuveitendur megi ekki mismuna konum varðandi laun eða vinnu. Engu að síður sé ójöfnuður á vinnumarkaði viðvarandi og lögum ekki framfylgt. Í skýrslunni kemur einnig fram að sérstakar deildir í höfuðstöðvum lögreglunnar sérhæfi sig í kynbundu ofbeldi og í tveimur þriðju hluta fylkja í Venesúela séu dómstólar sem fjalli eingöngu um mál er varða kynbundið ofbeldi. Dómsmálaráðherra Venesúela hafi sett á fót stofnun sem taki á móti kvörtunum vegna ofbeldis gegn konum og börnum. Ráðherra hafi sett saman teymi lögfræðinga, geðlækna og annarra sérfræðinga sem eingöngu hafi sinnt málum er tengjast morðum á konum, kynbundnu ofbeldi og öðrum glæpum gegn konum. Nauðgun sé refsiverð í Venesúela og geti varðað fangelsi allt að 14 árum. Þá kveði lögin á um tuttugu til þrjátíu ára fangelsisrefsingu fyrir morð á konum og refsingu fyrir líkamlegt, kynferðislegt eða andlegt ofbeldi. Þrátt fyrir að lög í landinu kveði á um refsingar fyrir ofbeldi gegn konum hafi eftirfylgni með lögunum og aðgangur að réttlæti verið ófullnægjandi auk þess sem almenningur sé ekki meðvitaður um þau úrræði sem í boði séu s.s. stuðning til þolenda. Í landinu séu starfandi félagasamtök sem berjist gegn kynbundu ofbeldi og hægt sé að leita til þeirra eftir stuðningi auk þess sem starfræktar séu hjálparlínur sem konur geti hringt í til að fá upplýsingar og aðstoð.
Í skýrslu EUAA frá nóvember 2023 kemur fram að fjölmiðlamenn verði fyrir miklu áreiti í Venesúela, þar á meðal hótunum um hefndaraðgerðir, áreitni, handahófskenndum handtökum, fordómum og hindrunum við fréttaflutning. Óháð dagblöð og sjónvarpsstöðvar séu nánast horfnar og útvarpsstöðvar ritskoði sjálfar efni sitt sem og efni gesta sinna á meðan á útsendingu standi. Árið 2022 hafi stjórnvöld lokað á milli 16 og 26 útvarpsstöðvum um allt land. Óháðir fjölmiðlar standi enn frammi fyrir hindrunum í störfum sínum í landinu, þar á meðal óhóflegum gjöldum fyrir endurnýjun leyfa og auknum lagalegum og stjórnsýslulegum skyldum án nokkurs lagalegs öryggis. Sumar stöðvar hafi brugðið á það ráð að skipta út frétta-, skoðana- eða kvörtunarþáttum borgara fyrir aðrar tegundir þátta til að forðast athygli yfirvalda. Vefsíðum, þar á meðal vefsíðum innlendra og alþjóðlegra fjölmiðla og frjálsra félagasamtaka sé lokað án formlegra fyrirmæla eða tilkynninga. Frá 2021 til júní 2022 hafi fjarskiptafyrirtækjum borist 1,5 milljónir hlerunarbeiðna og yfir ein milljón beiðna um aðgang að lýsigögnum (e. Metadata) frá yfirvöldum. Á milli janúar og apríl 2023 skráðu Espacio Público, frjáls félagasamtök sem berjast fyrir réttindum blaðamanna og tjáningarfrelsi í Venesúela, 55 mál sem vörðuðu eitt eða fleiri tilfelli brota á réttindum blaðamanna, þar á meðal 26 tilvik ritskoðunar, 22 tilvik ógnana, 16 tilvika hótana og 12 tilvika áreitni fyrir dómi. Í skýrslu Human Rights Watch fyrir árið 2024 kemur fram að Espacio Público hafi skráði 507 brot á tjáningarfrelsi sem hafi átt sér stað á milli janúar og ágúst árið 2024, þar á meðal hótanir (168), ritskoðun (101) og áreitni af hálfu dómstóla (65). Flest mál hafi verið skráð í júlí í tengslum við forsetakosningarnar. Á sama tímabili hafi samtökin fengið tilkynningar um að öryggissveitir hefðu handtekið að minnsta kosti 19 starfsmenn fjölmiðla, að fjarskiptastofnun landsins hefði lokað 15 útvarpsstöðvum og að stjórnvöld hefðu lokað að minnsta kosti 35 vefsíður stafrænna fréttamiðla og frjálsra félagasamtaka, lokað aðgangi að stjórnmálaspjallborðum og öðrum vefmiðlum eins og X, Wikipedia og dulkóðaða samskiptaforritinu Signal.
Eldri borgarar í Venesúela sem uppfylla skilyrði fyrir ellilífeyri fá mánaðarlegar lífeyrisgreiðslur frá undirstofnun félags- og vinnumarkaðsráðuneyti Venesúela. Í skýrslu Landinfo frá 2023 kemur fram að ellilífeyrir í Venesúela sé greiddur í bólivörum og sé lítils sem einskis virði. Samkvæmt landaheimildum setti ríkisstjórn Maduro ný lög um verndun lífeyris sem tóku gildi með birtingu í stjórnartíðindum Venesúela hinn 5. ágúst 2024. Með nýju lögunum er stofnaður sérstakur sjóður til að fjármagna lífeyrisgreiðslur sem skulu verða allt að 15% af heildarlaunagreiðslum lögaðila til launþega og hafa því lífeyrisgreiðslur hækkað á grundvelli framangreindra laga.
Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir á því að hún eigi á hættu ofsóknir í heimaríki vegna stjórnmálaskoðana og starfa sinna sem blaðamaður í heimaríki. Hún hafi upplifað hótanir af hálfu Colectivos í tengslum við störf sín og verið gert að segja starfi sínu upp vegna stjórnmálaþátttöku sinnar.
Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurritum af viðtali hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa starfað hjá ríkisfyrirtækinu […] í heimaríki fram í nóvember 2023 en að hennar sögn hafi henni þá verið boðið að velja á milli þess að fara á eftirlaun eða hætta í starfi. Eftir það hafi hún verið sjálfstætt starfandi og sinnt gerð sjónvarpsþáttar á tilgreindum samfélagsmiðli. Hún hafi verið meðlimur í stjórnmálaflokknum Primero Justicia í heimaríki frá 2013 til 1. september 2024, verið varaformaður flokksins og sinnt starfi fjölmiðlastjóra. Starf fjölmiðlastjóra hafi falist m.a. í því að kalla til aðra fréttamenn og -stöðvar á mótmæli. Hún hafi tekið þátt í mótmælum í heimaríki, fyrst og fremst sem blaðamaður og í því skyni að auglýsa mótmæli. Kærandi kvaðst vera vel þekkt í Falcón fylki og á nokkrum öðrum stöðum í Venesúela. Hún greindi frá tveimur atvikum sem leitt hafi til flótta hennar frá heimaríki. Fyrra atvikið hafi átt sér stað 14. júní 2023 en þá hafi hermaður haft afskipti af störfum kæranda og samstarfskonu hennar og um mánuði eftir að kærandi hafi tilkynnt atvikið til blaðamannafélagsins hafi henni verið tilkynnt að best væri að hætta eftirfylgni málsins. Þá hafi ótilgreindir vopnaðir menn ógnað kæranda og dóttur hennar 30. ágúst 2024 eftir að kærandi hafði lokið við að sýna frá mótmælum og fara yfir stöðuna í landinu eftir kosningar í Venesúela. Byggir kærandi á því að mennirnir hafi tilheyrt Colectivos og þeir hafi síðar um nóttina keyrt fram hjá heimili kæranda. Hún hafi leitað til lögreglunnar vegna atviksins.
Í skýringum kæranda til Útlendingastofnunar kemur m.a. fram að kærandi hafi starfað sem almannatengill hjá ríkisrekna fyrirtækinu […] og á fyrri hluta árs 2023 hafi nýr mannauðsstjóri fyrirtækisins tjáð kæranda að nýr forstjóri fyrirtækisins vildi losna við hana vegna stjórnmálastarfa hennar. Þar sem hún hafi verið opinber starfsmaður með flekklausan feril hafi ekki verið hægt að segja henni upp störfum en hún verið eindregið hvött til að óska sjálf eftir starfslokum, þótt hún væri ekki komin á aldur, og þegar hún hafi ekki látið undan hafi mannauðsstjórinn tilkynnt henni að ákveðið hefði verið að nýta heimild til að færa hana til í starfi. Þá hafi hún sagt upp störfum. Kærandi hafi ekki verið varaforseti flokksins heldur hafi hún verið fjölmiðlastjóri Primero Justicia og aðstoðarmaður forseta flokksins í Miranda sveitarfélagi fyrir forsetakosningar 2013. Hlutverkinu hafi kærandi gegnt þar til hún yfirgaf heimaríki í september 2024. Kærandi hafi orðið fyrir áreiti almennings sem hafi haft eitthvað við störf sonar hennar að athuga og manna sem hún telji hafa verið á vegum yfirvalda vegna stjórnmálaþátttöku sonar hennar og hafi falist í því m.a. að setið væri um heimili hennar og fylgst með því, bifreiðar hafi ekið hægt framhjá í sífellu og snemma á morgnanna hafi bifreiðar stöðvað fyrir framan hús hennar og ótilgreindir einstaklingar sniglast fyrir utan hús kæranda.
Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lagði kærandi fram ýmis gögn, m.a. afrit af prófskírteini sínu, dags. 8. mars 1996, og yfirlýsingu Falcón deildar blaðamannafélags til staðfestingar á störfum hennar sem blaðamaður, dags. 24. september 2024. Kærandi lagði einnig fram yfirlýsingu, dags. 26. september 2024, sem ber með sér að stafa frá Primero Justicia og greint sé frá því að kærandi væri meðlimur í blaðamannateymi flokksins. Hún hafi aðallega starfað fyrir flokkinn og tekið þátt í starfsemi hans sem blaðamaður, m.a. sem varaforseti samskiptasviðs fyrir kosningar árið 2013 og sem fjölmiðlastjóri framboðs til borgarstjóra í Falcón fylki árið 2021. Einnig kemur fram að kærandi hafi orðið fyrir ofsóknum og hótunum, líkamlegum og andlegum ógnum sökum þátttöku sinnar í verkefnum flokksins af hálfu öryggissveita ríkisins, vopnaðra hópa tengdum PSUV flokknum og stjórnvöldum. Einnig lagði kærandi fram staðfestingu frá tilgreindri sjónvarpsrás í Venesúela þess efnis að hún hafi starfað við gerð sjónvarpsþáttar og sem fréttamaður á tímabilinu 5. febrúar 2024 til 1. september 2024 ásamt ýmsum hlekkjum á fjölmiðlastörf hennar. Lagði hún einnig fram sálfræðivottorð, dags. 20. september 2024 sem ber með sér að hún hafi leitað til sálfræðings í heimaríki og greint frá því hjá sálfræðingnum að hún hafi upplifað ógnir í tengslum við starf sitt sem blaðamaður.
Með tilliti til framlagðra gagna og frásagnar kæranda er að mati kærunefndar ekki ástæða til að draga í efa að kærandi sé menntaður blaðamaður og hafi sinnt fjölmiðlastörfum í heimaríki, m.a. fyrir Primero Justicia. Ekki verður útilokað að hún hafi að einhverju leyti farið fyrir fjölmiðlateymi flokksins í Falcón fylki.
Í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um réttarstöðu flóttamanna um stjórnmálaskoðanir í skilningi alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 1951 kemur fram að umsækjandi verði að sýna fram á að hann óttist að verða fyrir ofsóknum vegna þessara skoðana sinna. Gengið sé út frá því að stjórnmálaskoðanir umsækjanda feli í sér gagnrýni á stefnu eða aðferðir stjórnvalda sem séu stjórnvöldum ekki þóknanlegar. Einnig sé gert ráð fyrir að stjórnvöldum sé kunnugt um slíkar skoðanir eða að þau ætli að umsækjandi hafi þær. Við mat á því hvort umsækjandi um alþjóðlega vernd hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir á grundvelli stjórnmálaskoðana í skilningi samningsins er þannig ekki skilyrði að viðkomandi hafi skoðanir sem feli í sér gagnrýni á stjórnvöld, heldur aðeins að stjórnvöld ætli að umsækjandi hafi slíkar skoðanir. Samkvæmt e-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga vísa stjórnmálaskoðanir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laganna einkum til skoðana á stefnumótun og aðferðum stjórnvalda sem kunna að beita ofsóknum án tillits til þess hvort viðkomandi hefur aðhafst eitthvað til að tjá skoðanir sínar. Með vísan til þess sem fram kemur í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna verður lagt til grundvallar að ætlaðar stjórnamálaskoðanir geti einnig fallið undir e.-lið 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.
Kærandi byggir á því að sér hafi verið sagt upp störfum hjá ríkisrekna fyrirtækinu […] vegna stjórnmálalegrar þátttöku sinnar. Í greinargerð er á því byggt að gagnrýni kæranda á stjórnvöld og tengsl hennar við Primero Justicia hafi þótt óheppileg og henni hafi því, á seinni hluta árs 2023, verið boðið að segja starfi sínu lausu og fara á eftirlaun. Líkt og fram hefur komið greindi kærandi frá því í skýringum sínum til Útlendingastofnunar að á fyrri hluta ársins 2023 hafi nýr mannauðsstjóri fyrirtækisins tjáð sér að nýr forstjóri fyrirtækisins hafi viljað losna við hana vegna stjórnmálastarfa hennar og þar sem ekki hafi verið hægt að segja henni upp störfum hafi hún verið eindregið hvött til að óska eftir starfslokum. Það hafi hún ekki gert fyrr en mannauðsstjórinn hafi tilkynnt henni að ákveðið hefði verið að nýta heimild til að færa hana til í starfi.
Kærandi hefur lagt fram tvö skjöl varðandi starf hennar hjá fyrirtækinu […]. Um ræðir annars vegarafrit skjals sem hún byggir á að sé ákvörðun um endurráðningu hennar til fyrirtækisins […] og hafi tekið gildi í febrúar 2023. Skjalið er dagsett 23. febrúar 2023 og ber með sér að kærandi hafi fram að þeim tíma sinnt stöðu upplýsinga- og miðlunarstjóra en taki á þeim tímapunkti við stöðu samskiptastjóra fyrirtækisins og um sé að ræða háttsetta stjórnunarstöðu innan fyrirtækisins. Á bréfinu kemur fram handrituð athugasemd þess efnis að bréfið sé móttekið. Ekki er hægt að staðfesta frá hverjum athugasemdin stafi. Kærandi lagði einnig fram afrit skjals um starfslok sín. Skjalið er dags. 1. september 2023 og ber með sér að þar komi fram að frá og með 1. september 2023 verði kæranda greidd eftirlaun. Einnig sé tekið fram að telji kærandi þá ráðstöfun brjóta gegn réttindum sínum og hagsmunum geti hún höfðað viðeigandi mál fyrir lögbærum dómstóli innan 90 daga frá tilkynningu. Á bréfinu kemur fram handrituð athugasemd þess efnis að bréfið sé móttekið 9. október 2023. Ekki er hægt að staðfesta frá hverjum athugasemdin stafi. Ekkert sem á framangreindum bréfum kemur fram rennir stoðum undir að starfslok kæranda hafi verið sökum stjórnmálalegrar þátttöku hennar eða að henni hafi verið boðin önnur staða innan fyrirtækisins sem hún hafi afþakkað.
Með tilliti til frásagnar kæranda og framlagðra gagna er ekki ástæða til að draga í efa að kærandi hafi lokið störfum hjá fyrirtækinu […] haustið 2023. Ekkert í framlögðum gögnum rennir stoðum undir þann málatilbúnað kæranda að henni hafi verið gert að segja upp störfum og hefja töku eftirlauna vegna stjórnmálalegrar gagnrýni hennar eða starfa sinna fyrir Primero Justicia. Verður ekki ráðið af gögnunum að stjórnvöld hafi þrýst á fyrirtækið að hrekja kæranda úr starfi eða að nýr forstjóri fyrirtækisins hafi þrýst á hana að segja upp störfum vegna stjórnmálaþátttöku sinnar.
Líkt og fram hefur komið kvaðst kærandi hafa tekið þátt í mótmælum í heimaríki, einkum sem blaðamaður og að hún hafi auglýst mótmæli. Hún greindi frá því að vopnaðir menn á mótorhjólum hafi oft mætt og áreitt mótmælendur en þau hafi haldið áfram eins og þau gátu. Samkvæmt upplýsingum um heimaríki kæranda, m.a. skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023, hafa öryggissveitir stjórnvalda ítrekað ráðist gegn mótmælendum í landinu síðan árið 2014 en tugir þúsunda manna hafa mótmælt ríkjandi stjórnvöldum í landinu frá þeim tíma. Í skýrslu Freedom House frá 2021 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðarsinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Af gögnum, m.a. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023, verður ekki annað séð en að þeir sem eigi á mestri hættu að sæta handtöku og refsingu vegna andstöðu sinnar við stjórnvöld séu einstaklingar eða samtök sem njóti vegna stöðu sinnar meiri athygli en aðrir.
Kærandi greindi frá tveimur atvikum sem hún hafi orðið fyrir og ber frásögn hennar með sér að það hafi einkum verið síðara atvikið sem leitt hafi til flótta kæranda frá heimaríki. Kærandi greindi frá því að 14. júní 2023 hafi hermaður haft afskipti af störfum hennar og samstarfskonu hennar og mánuði eftir tilkynningu kæranda þar að lútandi hafi henni verið tilkynnt að ekki væri hægt að aðhafast neitt frekar. Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lagði hún m.a. fram myndband sem sýnir kæranda taka myndband af hermanni, orðaskipti eigi sér stað og hermaðurinn gangi síðan í burtu. Kærandi lagði einnig fram tengla á fréttir er fjalla um umrætt atvik. Bera fréttirnar með sér að tveimur blaðamönnum, þar á meðal kæranda, hafi verið meinað af hermanni að taka myndir eða myndbönd er þær fjölluðu um biðraðir að bensínstöðvum. Er einnig í þessum fréttum fjallað um að blaðamönnunum hafi verið ógnað af hermanninum. Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kæranda hafi tekist að sýna fram á að framangreindur atburður hafi átt sér stað en kærandi hafi ekki sýnt fram á að atvikið hafi haft frekari eftirmála fyrir kæranda eða að hún hafi orðið fyrir frekara áreiti í kjölfar atviksins. Af hálfu kærunefndar útlendingamála er ekki talin ástæða til annars en að leggja hið sama til grundvallar við úrlausn málsins. Þá greindi kærandi frá er hún hafi lokið við upptöku sjónvarpsþáttar 30. ágúst 2024 og verið á leið út í bifreið sína þar sem dóttir kæranda beið eftir henni hafi vopnaðir einstaklingar á mótorhjólum dregið dóttur hennar út úr bifreiðinni, beint skotvopni að þeim mæðgum og hótað kæranda vegna starfa hennar sem blaðamaður. Mennirnir hafi síðan sett kæranda upp að vegg og tjáð henni að um væri að ræða síðustu áminninguna til kæranda. Kærandi kvað mennina hafa verið grímuklædda og því hafi hún ekki vitað hverjir þeir hafi verið en taldi að um hafi verið að ræða meðlimi Colectivos. Kærandi lagði fram afrit af kæru sem hún kvaðst hafa lagt fram til lögreglunnar í heimaríki vegna atviksins. Kæran er dagsett 31. ágúst 2024 og ber með sér að tilkynnandi greini frá því að sex vopnaðir og grímuklæddir einstaklingar á vegum Colectivos hafi ógnað kæranda og dóttur hennar og hótað kæranda afleiðingum ef hún héldi áfram að gagnrýna stjórnvöld. Umrædd lögreglukæra ber með sér að vera einhliða frásögn kæranda á atvikum og ekkert sem staðfestir að um ofsóknir Colectivos glæpahóps sé að ræða eða að ástæður að baki atviksins hafi verið gagnrýni kærenda á stjórnvöld eða störf hennar í fjölmiðlum. Þótt ekki sé hægt að útiloka að meðlimir Colectivos hafi í eitt sinn ógnað kæranda og dóttur hennar verður ekki talið að gögn málsins bendi til þess að það hafi verið að undirlagi stjórnvalda eða sökum stjórnmálaþátttöku kæranda. Framangreind atvik virðast hafa verið einangruð og óskyld atvik og átt sér stað með um árs millibili. Með vísan til framangreinds telur kærunefnd framangreind atvik ekki ná því alvarleikastigi að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.
Er kærandi var spurð í viðtali hjá Útlendingastofnun hvort hún hafi skrifað greinar gegn stjórnvöldum, með öðrum hætti en að taka viðtöl við einstaklinga, kvaðst hún hafa gert það á tilteknum samfélagsmiðli en hún hafi þurft að eyða færslum vegna þrýstings þar sem hún hafi ekki viljað gefa yfirvöldum tækifæri á að afturkalla vegabréf hennar. Nánar aðspurð hvort kæranda hafi verið hótað því kvað hún að þrýst hafi verið á blaðamenn sem hygðust yfirgefa landið að hætta að gagnrýna ríkisstjórn Venesúela og skrifa frekar nokkur orð í þágu ríkisstjórnarinnar. Frásögn kæranda ber ekki með sér að hún hafi verið áberandi fyrir hönd stjórnmálaflokka í heimaríki eða verið undir sérstöku eftirliti stjórnavalda vegna stjórnmálaskoðana sinna eða fjölmiðlastarfa sinna fyrir Primero Justicia. Samkvæmt gögnum málsins starfaði kærandi hjá ríkisfyrirtæki til langs tíma þar til að hún lauk störfum í nóvember 2023. Verður af gögnum málsins ekki annað ráðið en að kærandi hafi dvalið vandkvæðalaust í heimaborg sinni frá því að hún lauk störfum í nóvember 2023 þar til hún yfirgaf heimaríki í lok september 2024. Þá horfir kærunefnd til þess að kærandi fékk útgefið nýtt vegabréf hjá venesúelskum stjórnvöldum 13. júní 2022 og samkvæmt útstimplun frá Bolivar flugvellinum 26. september 2024 fór hún úr landinu með löglegum hætti án þess að vera stöðvuð af yfirvöldum. Ber það ekki með sér að kærandi hafi verið eða sé undir sérstöku eftirliti stjórnvalda í heimaríki sínu. Hvað varðar áreiti í garð kæranda vegna stjórnmálaþátttöku sonar hennar verður af svörum hennar til Útlendingastofnunar ekki ráðið að meint áreiti hafi beinst að persónu kæranda eða haft frekari afleiðingar fyrir hana. Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á ástæðuríkan ótta við ofsóknir af hálfu stjórnvalda vegna stjórnmálaskoðana í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. e-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda, telst kærandi ekki hafa sýnt fram á með rökstuddum hætti að hún eigi á hættu að sæta ofsóknum í heimaríki í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 38. gr. sömu laga. Sama gildir þótt litið sé til samsafns athafna. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir á því að hún eigi rétt á viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Þó öryggisástand í Venesúela sé á ákveðnum svæðum ótryggt og glæpa- og morðtíðni há hafa átök að mestu verið staðbundin við svæði við landamæri Kólumbíu og Brasilíu. Benda almennar heimildir ekki til þess að aðstæður í landinu nái því marki að sérhver einstaklingur sem þangað fari eigi á hættu að láta lífið eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum. Stjórnvöld í Venesúela hafi viðurkennt þörfina á mannúðaraðstoð og unnið að því í samstarfi við alþjóðasamfélagið að bæta slíka aðstoð. Samkvæmt alþjóðlegum skýrslum virðist efnahagur landsins hafa þokast í rétta átt síðustu árin, hagvöxtur hafi aukist þrátt fyrir viðskiptaþvinganir og vöruframboð aukist að einhverju leyti þrátt fyrri hátt verðlag. Þrátt fyrir að viðbrögð stjórnvalda í kjölfar forsetakosninga í júlí 2024 hafi verið harkaleg og alþjóðasamfélagið hafi gagnrýnt þær aðfarir verður ekki ráðið að þær aðgerðir hafi beinst að eða beinist að öllum almenningi í landinu. Hvað varðar hernaðaraðgerðir Bandaríkjanna í Venesúela og handtöku Maduro og eiginkonu hans af hálfu bandarískra stjórnvalda er ekkert sem bendir til þess að þær aðgerðir hafi leitt til þess að aðstæður í landinu hafi versnað fyrir almenning í landinu. Benda heimildir til þess að stjórnvöld hafi brugðist við með því að setja í embætti varaforseta landsins og að stjórn og innviðir landsins séu eins og er stöðugir. Þá hafa ekki brotist út mótmæli eða vopnuðu átök sem eða komið upp önnur atvik sem benda til þess að almennar aðstæður séu slíkar að hver sem þar sé staddur teljist eiga á hættu dauðarefsingu eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Með vísan til framangreinds verða frekari persónulegir þættir að vera til staðar svo umsækjandi um alþjóðlega vernd frá Venesúela teljist eiga á hættu meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kæranda er ljóst að þau atvik sem kærandi hefur lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburði kæranda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda leiði til þess að kærandi eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi kærandi til baka.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa verið búsett í borginni Coro í Falcón fylki í Venesúela. Samkvæmt landaupplýsingum er Falcón fylki í norðurhluta Venesúela. Heimildir bera ekki með sér að átök eða árásir á almenna borgara séu tíðar í heimafylki kæranda. Samkvæmt landaupplýsingum, m.a. korti og upplýsingum á vefsíðu ACLED (e. The Armed Conflict Location & Event Data Project), eru ekki virk átök eða óeirðir í heimafylki kæranda eða í Venesúela almennt. Með vísan til framangreinds verður ekki talið að kærandi eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum við komu aftur til heimaríkis.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga
Þar sem kærandi er ekki flóttamaður samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.
Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða
Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.
Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.
Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má ráða að þrátt fyrir það ótrygga ástand sem ríkt hefur í Venesúela síðustu ár þá sé hvorki stríð í landinu né útbreidd vopnuð átök. Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kæranda og aðstæður í heimaríki benda gögn málsins ekki til þess að almennar aðstæður sem bíði kæranda í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hún hafi verið búsett í eigin húsnæði í heimaríki ásamt uppkominni dóttur sinni, sem enn væri búsett þar ásamt gæludýrum þeirra. Dóttir kæranda hafi ekki getað ferðast hingað ásamt kæranda sökum efnahagslegra ástæðna og gæludýranna. Kærandi kvaðst vera menntaður blaðamaður, hafa starfað í fjölmiðlum og hjá ríkisreknu fyrirtæki í heimaríki. Atvinnumöguleika sína í heimaríki kvað hún að yrðu engir vegna lágra launa og hárra skatta. Kærandi kvað líkamlega heilsu sína vera góða en hún væri kvíðin og erfitt væri að fá aðgang að heilbrigðiskerfi Venesúela. Kærandi hafi leitað til sálfræðings í gegnum fjarfundarbúnað vegna m.a. kvíða og svefnleysis og tekið róandi lyf í heimaríki en hún þurfi ekki á þeim að halda á Íslandi.
Við meðferð málsins hjá stofnuninni lagði kærandi fram vottorð sálfræðings, dags. 20. september 2024, sem ber með sér að hún hafi leitað til sálfræðings í heimaríki.
Við meðferð málsins hjá kærunefnd lagði kærandi fram frekari heilsufarsgögn. Annars vegar útprentun samskiptaseðils frá Göngudeild sóttvarna, dags. 2. desember 2025 og hins vegar útprentanir úr sjúkraskrá Landspítalans, dags. 3. og 17. desember 2025 sem ná yfir tímabilið 3. febrúar 2025 til 17. desember 2025. Í hinum síðarnefndu útprentunum kemur m.a. fram að kærandi hafi í desember 2025 leitað til bráðamóttöku Landspítalans vegna verkja í öxl og verið flutt á krabbameinslækningadeild til geislameðferðar og frekari rannsókna. Hún hafi verið greind með illkynja æxli í brjósti. Einnig kemur fram í gögnunum að sjúkdómurinn sé á langvinnu eða ólæknandi stigi og kærandi sé með brjóstakrabbamein sem hafi dreift sér í bein og lungu og því sé ekki ráðlagt að gera skurðaðgerð en meðferð verði gefin til þess að halda sjúkdómnum niðri. Vonir séu um að það muni minnka meinið í brjóstinu og lungum. Slík innkirtlameðferðarnálgun sé talin besta val sem fyrsta meðferð við hormónajákvæðu meini en svari kærandi meðferð ekki vel verði meðferðin endurskoðuð. Þá kemur fram 2. desember 2025 að fyrirhuguð sé líknandi, pallíatív, geislameðferð í eitt skipti. Geislameðferðina hafi kærandi hlotið 12. desember 2025 og meðferðin gengið vel. Í ljósi framlagðra heilsufarsgagna óskaði kærunefnd eftir læknisvottorði þar sem fram kæmi greining, staða þeirrar meðferðar sem framlögð gögn beri með sér að hún hafi hlotið í desember 2025 og fyrirhuguð meðferð eða eftirfylgni eftir því sem við á, m.a. hvað lyf varði. Læknisvottorð barst kærunefnd 23. febrúar 2026.Fram kemur að kærandi hafi í desember 2025 greinst með brjóstakrabbamein á dreifðu stigi og væri nýlega byrjuð á meðferð með lyfjunum Letrozol, Ribociclib ásamt beinstyrkjandi meðferð með lyfinu Zometa. Áætluð meðferð felist í 600 mg af Ribociclib daglega, þrjár vikur í senn og einni viku í hlé, 2,5 mg Letrozol daglega og Zometa á sex vikna fresti í sex mánuði en eftir það á þriggja mánaða fresti. Fram kemur að eindregið sé mælt gegn því að kærandi yrði send úr landi og hlé gert á meðferð eða henni alfarið lokið og ekki sé hægt að tryggja að viðunandi meðferð fáist í heimaríki hennar.
Samkvæmt framansögðu er ljóst að kærandi er í meðferðoghefur verið ávísað lyfjunum Ribociclib, Letrozol og Zometa hér á landi vegna brjóstakrabbameins á dreifðu stigi. Samkvæmt þeim heimildum sem kærunefnd hefur kynnt sér og aðgengilegum upplýsingum á veraldarvefnum verður ráðið að lyfin Letrozol og Zometa séu fáanleg í Venesúela og hægt sé að fá Ribociclib, sem markaðssett sé undir nafninu Kisqali, sent til landsins. Lyfin Ribociclib og Letrozol séu á töfluformi en Zometa sé gefið í æð og því almennt gefið af einstaklingi með heilbrigðismenntun á heilbrigðisstofnun.
Í 83. gr. stjórnarskrár Venesúela er mælt fyrir um að heilbrigði sé grundvallarréttur í samfélaginu, það sé á ábyrgð ríkisins að tryggja og allir eigi rétt á heilsuvernd. Í 86. gr. stjórnarskrárinnar kemur fram að allir eigi rétt á almannatryggingum.Ríkið beri skyldu og ábyrgð á að tryggja virkni þessa réttar og skapa alhliða og heildstætt almannatryggingakerfi.
Samkvæmt landaupplýsingum eru innviðir heilbrigðiskerfisins í Venesúela veikburða og skortur á heilbrigðisvörum og lyfjum. Stjórnvöld hafi stutt við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á fátækustu svæðum landsins en aðbúnaði sé ábótavant og skortur sé á heilbrigðisstarfsfólki. Samkvæmt skýrslu Landinfo frá árinu 2023 hefur Venesúela glímt við lyfjaskort á undanförnum árum en aðgengi hafi farið batnandi frá árinu 2019. Þá sé aðgengi að lyfjum fyrir þá sem geti greitt fyrir það en margir fái lyf send frá útlöndum. Samkvæmt fréttatilkynningu á heimasíðu heilbrigðisráðuneytis Venesúela (sp. Ministerio del Poder Popular para la Salud), birt 17. apríl 2024, eru starfrækt 500 samfélagsapótek í landinu. Frá stofnun samfélagsapótekanna (FC) árið 2019 hafi þau gert ríkisstjórninni, í gegnum heilbrigðisráðuneytið, kleift að sinna beiðnum borgara um gjaldfrjáls lyf. Nái apótekin til meira en 57,49% af þjónustusvæðum heildstæðrar samfélagsheilbrigðisþjónustu (ASIC). Í Falcón fylki, heimafylki kæranda, sé starfrækt 31 samfélagsapótek. Samstarf almannaheilbrigðiskerfisins (SPNS) undir forystu ráðherra heilbrigðismála hafi tekist að afhenda lyf á skilvirkan hátt til lang- og bráðveikra sjúklinga. Aðgengi lang- og bráðveikra sjúklinga að meðferð sé tryggt. Skrifstofa lyfjadreifingar vinni að því að koma lyfjum til samfélagsins í samræmi við fyrirmæli forseta landsins og heilbrigðisráðherra með það að markmiði að styrkja opinbera heilbrigðiskerfið (SPNS). Þrátt fyrir mótlæti og efnahagslega einangrun hafi samfélagsapótekin veitt mikilvæga þjónustu innan heilbrigðisgeirans, sem geri berskjölduðustu þjóðfélagshópunum kleift að fá beinan og tímanlegan aðgang að lyfjum án kostnaðar. Hafi stjórnvöld unnið að því að tryggja að lyf séu aðgengileg og gjaldfrjáls fyrir alla venesúelska borgara. Ríkið niðurgreiði og tryggi jafnan aðgang að nauðsynlegri meðferð fyrir lang- og bráðveika sjúklinga í landinu. Samkvæmt fréttatilkynningu á heimasíðu félagsmálastofnunar Venesúela (sp. El Instituto Venezolano de los Seguros Sociales, IVSS), birtri 25. október 2022 hafi apótek verið opnað í Karakas tileinkað krabbameinslækningum kvenna (s. Farmamujer). Meginmarkmið apóteksins væri að þjónusta konur sem greinst hafi með og berjist við brjósta- og leghálskrabbamein. Samkvæmt fréttatilkynningu á vefsíðu kvenna- og jafnréttismálaráðuneytisins í Venesúela (s.Ministerio del Poder Popular para la Mujer y la Igualdad de Género), birtri 11. apríl 2023, haldi ráðuneytið áfram að veita venesúelskum konum heilbrigðisþjónustu og „Farmamujer“ áætlunin verði leið til að tryggja betri lífsgæði og aðgang að lyfjum og persónulegum hreinlætisvörum fyrir börn, konur og fjölskyldur almennt. Í fyrsta áfanga verkefnis hafi verið náð til 113.000 kvenna um allt Venesúela. Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu félagsmálastofnunar Venesúela veiti 55 apótek hágæða lyfjaþjónustu fyrir sjúklinga sem þarfnist kostnaðarsamra lyfja. Þá aðstoði stofnunin 17 stofnanir sem tilheyri mismunandi opinberum aðilum, þar af sjö sjúkrahús sem afhendi eða gefi krabbameinslyfjameðferð. Af vefsíðunni verður ráðið að eitt apótekanna sé staðsett í heimaborg kæranda og annað í rúmlega klukkustundar fjarlægð frá heimaborg hennar. Heimildir bera með sér að aðgengi að lyfjum í gegnum apótek IVSS geti þó verið mis áreiðanlegt. Einnig er á vefsíðunni að finna upplýsingar um að félagsmálastofnunin veiti alhliða læknisaðstoð ásamt upplýsingum um það m.a. hverjir geti sótt um slíka aðstoð og tímabil hennar. Þeir sem sótt geti um séu m.a. ellilífeyrisþegar. Samkvæmt fréttatilkynningu á vefsíðu kvenna- og jafnréttismálaráðuneytisins birtri 7. október 2025 vinni ráðuneytið, í samstarfi við heilbrigðisráðuneyti Venesúela, að því að samræma þjóðaráætlun um alhliða umönnun og forvarnir gegn brjóstakrabbameini. Tók heilbrigðisráðherra fram að landið hafi alhliða umönnunareiningar fyrir konur (e. Comprehensive Women‘s Care Units) búnar háþróaðri tækni til greiningar á brjóstakrabbameini og öðrum sjúkdómum. Samkvæmt fréttatilkynningum 6. febrúar 2026 hafi venesúelsk stjórnvöld móttekið framlag sem falist hafi í afhendingu 43 kostnaðarsamra lyfja fyrir krabbameinssjúklinga. Lyfin væru ætluð sjúklingum sem greinst hafi með langt gengið krabbamein með meinvörpum og til að tryggja samfellu mikilvægra ónæmisbælandi meðferða fyrir ígræðsluþega. Samkvæmt fréttatilkynningu 4. febrúar 2026 hafi heilbrigðisráðuneytið komið upp upplýsingastöðum varðandi krabbamein víðs vegar um landið. Heimildir benda einnig til þess að ýmis félagasamtök styðji við bakið á konum sem greinst hafi með brjóstakrabbamein og almennt sé hægt að leita til þeirra.
Í 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 segir að engan megi beita pyndingum né annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Sambærilegt ákvæði er í 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur dómstóllinn einkum talið ákvæði 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu eiga við í tilvikum einstaklinga sem eru í yfirvofandi lífshættu. Þó hefur dómstóllinn jafnframt litið svo á að þrátt fyrir að einstaklingur sé ekki í slíkri hættu kunni 3. gr. sáttmálans að eiga við ef hann, vegna skorts á viðeigandi meðferð í viðtökuríki, er í raunverulegri hættu á að verða fyrir alvarlegri, hraðri og óafturkræfri hnignun á heilsufari sem leiðir til mikilla þjáninga eða verulegrar skerðingar á lífslíkum (sjá dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli [...] gegn Belgíu (mál nr. 41738/10) frá 13. desember 2016).
Líkt og að framan hefur verið rakið bera heimildir með sér að aðgengi að bæði greiningu og meðferð vegna brjóstakrabbameins hafi ekki verið án hindrana í Venesúela. Heimildir benda hins vegar til þess að stjórnvöld vinni að því að bæta aðgengi að greiningu og meðferð vegna brjóstakrabbameins og benda upplýsingar um heimaríki kæranda samkvæmt framangreindu til þess að hægt sé að nálgast þau lyf sem kærandi hefur fengið ávísað hér á landi eða sambærileg lyf og viðeigandi meðferð í heimaríki kæranda. Árétta ber að meðferð telst ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana eða ferðast þurfi einhverja vegalengd til þess að nálgast meðferð. Þá benda framburður kæranda og framlögð heilsufarsgögn til þess að hún hafi haft aðgang að heilbrigðisþjónustu í heimaríki, m.a. sálfræðiþjónustu. Hefur jafnframt ekkert komið fram sem bendir til annars en að kærandi muni áfram geta fengið heilbrigðisaðstoð verði henni gert að snúa aftur til heimaríkis.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að kærandi hafi ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Við það mat lítur kærunefnd m.a. til þess að kærandi er á eftirlaunum í heimaríki, hefur stuðningsnet þar, einkum dóttur sem hún bjó með í heimaríki, og son hérlendis, auk þess sem kærandi geti nálgast þau lyf sem henni hafi verið ávísað í heimaríki eða fengið þau send þangað. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Með ákvæði a-liðar 5. gr. breytingarlaga nr. 12/2026, sem voru samþykkt á Alþingi 16. febrúar 2026, var lögum um útlendinga breytt á þann veg að ákvæði 2. mgr. 74. gr. laganna var felld brott. Samkvæmt 1. mgr. 10. gr. laga nr. 12/2026 öðluðust lögin þegar gildi en í 2. mgr. 10. gr. kemur fram að ákvæði a-liðar 5. gr. gildi ekki um meðferð umsókna sem hafi náð tímamörkum 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga við gildistöku laganna. Lögin voru birt í Stjórnartíðindum 6. mars 2026 og öðluðust þá gildi.
Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi 30. september 2024 og hafði málsmeðferð í máli hennar ekki náð tímamörkum ákvæðis 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga fyrir gildistöku framangreindra breytingalaga og á ákvæðið því ekki við.
Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga
Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.
Niðurstaða um bann við endursendingu
Af heimildum verður ekki ráðið að einstaklingar sem snúa til baka til Venesúela sæti ofsóknum eða áreiti stjórnvalda af þeirri ástæðu einni að hafa sótt um alþjóðlega vernd utan heimaríkisins og fengið synjun. Verður því að líta svo á að aðeins þeir einstaklingar sem fyrir eiga á hættu ofsóknir af hálfu stjórnvalda í Venesúela séu í hættu við endursendingu. Þar sem þegar hefur verið komist að þeirri niðurstöðu að aðstæður kæranda falli ekki undir 1. og 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er ekki ástæða til að ætla að kærandi eigi á hættu ofsóknir eða áreiti af hálfu stjórnvalda við það eitt að snúa til baka.
Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kæranda. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.
Brottvísun og endurkomubann
Lagagrundvöllur
Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.
Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins, sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.
Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann
Eins og að framan greinir hefur umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hefur kærandi því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa kæranda úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar.
Kæranda var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa henni frá Íslandi og ákvarða endurkomubann hingað til lands. Var kæranda gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Kvað kærandi son sinn vera búsettan á Íslandi. Hún teldi það ósanngjarna ráðstöfun yrði sér ákveðin brottvísun og endurkomubann á Schengen-svæðið því hún væri í lífshættu í heimaríki og hún gæti þá ekki heimsótt son sinn sem búsettur er á Íslandi á þeim tíma. Hann væri á Íslandi af sömu ástæðu.
Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærandi gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð hennar eða nánustu aðstandenda hennar, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærandi getur komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi hún Ísland innan þess frest sem henni er gefinn. Getur kærandi þá nýtt sér heimild sína til að koma aftur til aðildarríkja Schengen-samstarfsins, m.a. til að rækta fjölskyldutengsl sín, á grundvelli vegabréfsáritunarfrelsis sem ríkisborgarar Venesúela njóta.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda brottvísað, ákvarðað endurkomubann til tveggja ára, veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.
Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kæranda til að yfirgefa landið. Endurkomubann kæranda fellur niður yfirgefi kærandi landið sjálfviljug innan framangreinds frests.
Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar er hún staðfest.
Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Athygli kæranda er einnig vakin á því að samkvæmt 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga sé Útlendingastofnun heimilt að fresta um hæfilegan tíma framkvæmd ákvörðunar sem feli í sér að útlendingur skuli yfirgefa landið ef það telst nauðsynlegt vegna sérstakra aðstæðna hans eða ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu. Skal beiðni samkvæmt 2. mgr. 103. gr. beinast til Útlendingastofnunar. Með framangreindum leiðbeiningum er kærunefnd ekki að taka afstöðu til slíkrar beiðni.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Endurkomubann kæranda verður fellt úr gildi fari hún frá Íslandi innan 15 daga.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. If the appellant leaves Iceland voluntarily within 15 days, the re-entry ban will be revoked.
Þorsteinn Gunnarsson
Vera Dögg Guðmundsdóttir