14 apríl 2026
/
Lækkun eldsneytisgjalda skili sér beint til neytenda
Eftirlit verður falið Samkeppniseftirlitinu í samstarfi við verðlagseftirlit Alþýðusamband Íslands, Neytendastofu og Félag íslenskra bifreiðaeigenda. Fylgst verður með útsöluverði eldsneytis og kallað eftir gögnum frá söluaðilum eldsneytis með reglubundnum hætti.
Samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir að stjórnvöld hafi ákveðin tímabundin úrræði ef eftirlit leiðir í ljós að lækkun virðisaukaskatts skili sér ekki til neytenda sem er grunnforsenda aðgerðarinnar.Tímabundnar aðgerðir geta t.d. falist í ákvörðun hámarksverðs eða hámarksálagningu. Bráðabirgðaákvæðið mun gilda frá 1. maí n.k. til 31. ágúst. Markmiðið er að lækka eldsneytisverð og draga úr kostnaði heimila og fyrirtækja.