14 apríl 2026
/
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla í Tókýó vegna sveitarstjórnarkosninga
Sveitarstjórnarkosningar fara fram 16. maí 2026. Ef kjósendur geta ekki kosið á Íslandi á kjördag er hægt að kjósa utan kjörfundar.
Frá og með 20. apríl er hægt að kjósa utan kjörfundar hjá sendiráði Íslands í Tókýó og hjá ræðismönnum Íslands í Bangkok, Phuket, Jakarta, Kyoto, Manila, Seoul og Singapúr. Kjósendur þurfa að hafa samband með tölvupósti við sendiráðið eða ræðismann í viðkomandi landi til að bóka tíma til að kjósa.
Í sveitarstjórnarkosningum byggir kosningaréttur á lögheimili og gildir í því sveitarfélagi sem viðkomandi er skráður með lögheimili í.
Kjósendur geta flett upp hvort og hvar þeir séu á kjörskrá á vef Þjóðskrár.
Sýna þarf skilríki (vegabréf, nafnskírteini eða ökuskírteini) á kjörstað.
- Kjósendur bera sjálfir ábyrgð á því að koma atkvæði sínu til skila.
- Athugið að senda þarf atkvæði beint á það sveitarfélag sem kjósandi er skráður með lögheimili í.
- Ef senda á atkvæði með pósti er ráð að kjósa tímanlega og þá þarf sömuleiðis að taka mið af sendingartíma og áreiðanleika viðkomandi póstþjónustu þess ríkis sem kosið er í.
Vakin er athygli á því að það tekur að jafnaði um tvær vikur fyrir bréf sem póstlagt er frá Japan að skila sér til Íslands. Kjósendur sem hyggjast greiða atkvæði utan kjörfundar í Tókýó eru því hvattir til að gera það seinni hluta apríl.
Sjá nánari upplýsingar um framkvæmd kosningar utan kjörfundar á vef utanríkisráðuneytisins og á island.is.