14 apríl 2026

/

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla í Bandaríkjunum vegna sveitarstjórnarkosninga 2026

{image.Description}

Sendiráð Íslands í Washington D.C.

Tekið verður á móti kjósendum í sendiráðinu milli kl. 11:00 og 16:00 dagana 24. apríl, 1. maí og 8. maí. 

Sendiráðið er við 2900 K Street NW, 20007 Washington D.C.

Þau sem hyggjast nýta sér þennan kost eru beðin um að bóka tíma á bókunarsíðu.

Ef ofantaldir dagar henta ekki eru kjósendur beðnir um að senda tölvupóst á [email protected]

New York

Boðið verður upp á utankjörfundaratkvæðagreiðslu á skrifstofu fastanefndar Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum í New York þann 1.maí.
Fastanefndin er staðsett við 733 Third Avenue (11 Grand Central East), 18th Floor, New York NY 10017.
Þau sem hyggjast nýta sér þennan kost eru beðin um að bóka tíma á bókunarsíðu.

Kjörræðisskrifstofur Íslands

Hægt er að kjósa á kjörræðisskrifstofum Íslands samkvæmt samkomulagi.
Þau sem hyggjast nýta sér þennan kost er bent á að hafa samband við kjörræðismann á viðkomandi stað með góðum fyrirvara.
Sjá lista yfir kjörræðismenn í umdæmisríkjum (Bandaríkin, Mexíkó, Brasilía)

Mikilvæg atriði og praktískar upplýsingar

Mælt er með því að kjósendur kynni sér upplýsingar um fyrirkomulag atkvæðagreiðslu utan kjörfundar á upplýsingasíðu stjórnvalda: Sveitarstjórnarkosningar 2026 á Ísland.is