15 apríl 2026

/

Fjórar umsóknir um embætti dómara við Hæstarétt Íslands

{image.Description}

Þann 27. mars auglýsti dómsmálaráðuneytið í Lögbirtingarblaði laust til umsóknar embætti dómara við Hæstarétt Íslands. Umsóknarfrestur rann út 13.apríl síðastliðinn og eru umsækjendur eftirtaldir:

  • Aðalsteinn E. Jónasson landsréttardómari,
  • Ásgerður Ragnarsdóttir landsréttardómari,
  • Eiríkur Jónsson landsréttardómari,
  • Eyvindur G. Gunnarsson landsréttardómari.

Umsóknir verða afhentar dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara á allra næstu dögum. Stefnt er að því að ákvörðun um skipun liggi fyrir hið fyrsta eftir að umsögn dómnefndar berst ráðherra.