15 apríl 2026
/
Ísland staðfestir stuðning við sérstakan dómstól vegna glæpa gegn friði í Úkraínu
Íslensk stjórnvöld hafa staðfest aðild sína að samningi um að koma á fót stjórnarnefnd sérstaks dómstóls vegna glæpa gegn frið í Úkraínu á vettvangi Evrópuráðsins. Hlutverk stjórnarnefndar verður að hafa umsjón með rekstri dómstólsins og tryggja aðgang að nauðsynlegri fjármögnun.
„Ísland stendur sem fyrr dyggilega við bakið á úkraínsku þjóðinni og við erum staðráðin í því að standa vörð um alþjóðalög og tryggja að Rússar verði látnir bera ábyrgð á grimmdarverkum sínum í Úkraínu,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.
Tvíhliða samningur um stofnun dómstólsins var undirritaður af Volodómír Selenskí forseta Úkraínu og Alain Berset aðalframkvæmdastjóra Evrópuráðsins þann 25. júní sl. Dómstólnum er ætlað að ná til glæpa sem lögsaga Alþjóðlega sakamáladómstólsins nær ekki til. Ísland hefur verið í hópi ríkja sem leitt hafa undirbúning fyrir stofnun dómstólsins.
Í ályktun allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna 23. febrúar 2023 kom fram mikilvægi þess að tryggja ábyrgðarskyldu Rússa vegna alvarlegustu glæpanna samkvæmt þjóðarétti á yfirráðasvæði Úkraínu með viðeigandi, sanngjörnum og óháðum rannsóknum. Sömuleiðis saksóknum á innlendum eða alþjóðlegum vettvangi til að tryggja öllum þolendum réttlæti og koma í veg fyrir glæpi í framtíðinni.
Þá hefur ríkisstjórn Íslands sömuleiðis samþykkt að fullgilda samning um stofnun alþjóðlegrar kröfunefndar vegna Úkraínu. Áætlað er að hún hefji störf 2029 og verði með aðsetur í Haag, Hollandi. Kröfur sem sendar hafa verið tjónaskrár vegna Úkraínu verða þá framsendar kröfunefnd til efnislegrar meðferðar.
Að lokum er vakin athygli á að tjónaskráin hefur opnað fyrir móttöku á nýjum flokkum krafna sem varða tjón einstaklinga sem hafa neyðst til að flýja Úkraínu vegna innrásar Rússa og tjón sem orðið hefur á rekstri einkarekinna fyrirtækja.