15 apríl 2026
/
Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar
Forsætisráðuneytið býður til samtals um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar mánudaginn 20. apríl nk. á Hilton Nordica. Fundurinn, sem er öllum opinn, hefst kl. 8.30 en boðið verður upp á morgunhressingu frá kl. 8. Gert er ráð fyrir að fundinum ljúki kl. 10.
Á fundinum mun Sveinbjörn Finnsson, aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar, kynna aðgerðaáætlun atvinnustefnunnar en auk þess munu Gylfi Zoëga, fulltrúi í atvinnustefnuráði, og Karl Guðmundsson, verkefnastjóri stórfjárfestinga í forsætisráðuneytinu, flytja erindi. Í seinni hluta fundarins verður boðið upp á samtal Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra, Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra og Daða Más Kristóferssonar fjármála- og efnahagsráðherra við salinn.
Fundurinn verður í beinu streymi.
Fundarstjóri er Kristján Kristjánsson.
Skráning á samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar
Nánari upplýsingar um atvinnustefnu Íslands til 2035 og aðgerðaáætlun