15 apríl 2026

/

Sveitarstjórnarkosningar 2026 - atkvæðagreiðsla utan kjörfundar í sendiráðinu í Brussel og hjá kjörræðismönnum

{image.Description}

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sveitarstjórnarkosninga 2026 hefst í sendiráðinu í Brussel mánudaginn 20. apríl nk.

Síðasti dagur utankjörfundaratkvæðagreiðslu í sendiráðinu er þriðjudagurinn 12. maí þar sem sendiráðið er lokað 14. og 15. maí.

Við hvetjum þó kjósendur til þess að huga að kosningu sem fyrst þar sem póstsendingar til Íslands geta gengið hægt, sérstaklega vegna verkfalls starfsmanna póstþjónustunnar í Belgíu.

 

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla í sendiráðinu fer fram á þriðjudögum milli kl. 10 og 17.

 

Ekki þarf að bóka tíma fyrirfram.

Kjósendur eru minntir á að framvísa skal persónuskilríki með mynd.

Athugið að í sveitarstjórnarkosningum byggir kosningarréttur á lögheimili. Kjósendur þurfa því að hafa lögheimili á Íslandi til þess að kjósa.

Íslendingar staðsettir í Lúxemborg, Hollandi og Belgíu (utan Brussel) geta leitað til kjörræðismanna Íslands vegna kosninganna.

Vinsamlegast hafið samband við viðeigandi kjörræðismann til þess að bóka tíma hjá viðkomandi. Sjá nánari upplýsingar um kjörræðismenn.

Nánari upplýsingar um utankjörfundaratkvæðagreiðslu má nálgast á island.is

Sérstök athygli er vakin á því að kjósendum ber sjálfum að póstleggja atkvæði sín eða koma þeim á annan hátt í tæka tíð til viðkomandi kjörstjórnar á Íslandi.