15 apríl 2026
/
Umsækjendur um þrjú embætti skólameistara
Mennta- og barnamálaráðuneytinu bárust níu umsóknir um embætti skólameistara Menntaskólans á Egilsstöðum, skólameistara Borgarholtsskóla og rektors Menntaskólans við Hamrahlíð.
Fimm umsóknir bárust um embætti rektors Menntaskólans við Hamrahlíð:
- Andri Guðmundsson, framhaldsskólakennari
- Harpa Jörundardóttir, framhaldsskólakennari og sérfræðingur
- Helga Jóhannsdóttir, settur rektor
- Magnús Hlynur Haraldsson, framhaldsskólakennari og brautarstjóri
- Maren Davíðsdóttir, framhaldsskólakennari og deildarstjóri
Tvær umsóknir bárust um embætti skólameistara Borgarholtsskóla:
- Ásta Laufey Aðalsteinsdóttir, settur skólameistari
- Harpa Jörundardóttir, framhaldsskólakennari og sérfræðingur
Tvær umsóknir bárust um embætti skólameistara Menntaskólans á Egilsstöðum:
- Árni Ólason, skólameistari
- Tinna Kristbjörg Halldórsdóttir, félagsfræðingur og framhaldsskólakennari
Embættin voru auglýst laus til umsóknar þann 19. mars síðastliðinn með umsóknarfresti til og með 9. apríl. Mennta- og barnamálaráðherra skipar í embættin til fimm ára í senn að fenginni umsögn hlutaðeigandi skólanefnda skv. 6. gr. laga um framhaldsskóla og lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, með síðari breytingum.