15 apríl 2026
/
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis vegna komandi sveitarstjórnarkosninga
Kosning utan kjörfundar erlendis vegna sveitarstjórnarkosninga 16. maí 2026 hefst 17. apríl nk.
Kjörstaðir erlendis eru:
• Sendiskrifstofur Íslands (nema fastanefnd Íslands hjá Atlantshafsbandalaginu í Brussel)
• Aðalræðisskrifstofur í Winnipeg, Þórshöfn og Nuuk
• Hjá kjörræðismönnum
Nálgast má upplýsingar um opnunartíma sendiskrifstofa á vefsíðum þeirra og samfélagsmiðlum. Athugið að hafa þarf beint samband við viðkomandi kjörræðismann til að kjósa þar.
Sjá upplýsingar um sendiskrifstofur Íslands og kjörræðismenn eftir löndum.
Í sveitarstjórnarkosningum byggir kosningaréttur á lögheimili og gildir í því sveitarfélagi sem viðkomandi er skráður með lögheimili í.
Kjósendur geta flett upp hvort og hvar þeir séu á kjörskrá á vef Þjóðskrár.
Sýna þarf skilríki (vegabréf, nafnskírteini eða ökuskírteini) á kjörstað.
• Kjósendur bera sjálfir ábyrgð á því að koma atkvæði sínu til skila.
• Athugið að senda þarf atkvæði beint á það sveitarfélag sem kjósandi er skráður með lögheimili í.
• Ef senda á atkvæði með pósti er ráð að kjósa tímanlega og þá þarf sömuleiðis að taka mið af sendingartíma og áreiðanleika viðkomandi póstþjónustu þess ríkis sem kosið er í.
Á Ísland.is eru aðgengilegar upplýsingar um hvaðeina sem viðkemur framkvæmd kosninga, bæði á íslensku og ensku.