15 apríl 2026

/

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sveitarstjórnarkosninga 16. maí 2026

{image.Description}

Kosning utan kjörfundar vegna sveitarstjórnarkosninga 16. maí 2026 hefst 17. apríl nk. Hægt verður að kjósa í sendiráðinu frá 9:00 -16:00  alla virka daga en við vekjum athygli á því að sendiráðið er lokað 23.apríl, 1. maí og 14. maí.


Einnig er hægt að kjósa hjá kjörræðismönnum en hægt er að finna upplýsingar um þá hér. Athugið að hafa þarf beint samband við viðkomandi kjörræðismann til að kjósa hjá þeim.


Við vekjum athygli á að í sveitarstjórnarkosningum byggir kosningaréttur á lögheimili á Íslandi.


Kjósendur geta flett upp hvort og hvar þeir eru á kjörskrá á vef Þjóðskrár: Sveitarstjórnarkosningar 2026 | Þjóðskrá

Við vekjum athygli á því að meginreglan er að kjósendur bera sjálfir ábyrgð á því að koma atkvæði sínu til skila. Við ráðleggjum því að kosið sé tímanlega, því taka þarf mið af sendingartíma.

Síðasti dagur til að kjósa utan kjörfundar er 15. maí 2026.