15 apríl 2026

/

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sveitarstjórnarkosninga hefst 17. apríl nk.

{image.Description}
Haraldur Jónasson / Hari

Kosning utan kjörfundar vegna sveitarstjórnarkosninga 16. maí 2026 hefst fös. 17. apríl.

Hægt verður að kjósa í sendiráðinu í Vín alla virka daga á milli 09:30-15:30. Lokað verður í sendiráðinu 1. maí og 14. maí.

Einnig verður hægt að kjósa hjá kjörræðismönnum en hægt er að finna upplýsingar um þá hérHafa skal beint samband við viðkomandi kjörræðismann til að fá að kjósa.

  • Athugið að enginn kjörræðismaður er sem stendur starfandi í Ungverjalandi og þurfa því þeir Íslendingar sem þar hyggjast kjósa, að koma og kjósa í sendiráðinu eða hafa samband við næsta kjörræðismann s.s. í Slóvakíu.

Við vekjum athygli á að í sveitarstjórnarkosningum byggir kosningaréttur á lögheimili á Íslandi.

Kjósendur geta flett upp hvort að og hvar þeir eru á kjörskrá á vef Þjóðskrár: Sveitarstjórnarkosningar 2026 | Þjóðskrá

Sýna þarf skilríki (vegabréf, nafnskírteini eða ökuskírteini) á kjörstað.

Kjósendur bera sjálfir ábyrgð á því að koma atkvæði sínu til skila. Athugið að senda þarf atkvæði beint á það sveitarfélag sem kjósandi er skráður með lögheimili í.

Ef senda á atkvæði með pósti er ráð að kjósa tímanlega og þá þarf sömuleiðis að taka mið af sendingartíma og áreiðanleika viðkomandi póstþjónustu þess ríkis sem kosið er í.

Þess má geta að skv. upplýsingum austurríska póstsins má gera ráð fyrir að sendingartími bréfs frá Austurríki til Íslands geti verið um 7-11 virkir dagar.

Á Ísland.is eru aðgengilegar upplýsingar um hvaðeina sem viðkemur framkvæmd kosninga, bæði á íslensku og ensku.