16 apríl 2026
/
Mál nr. 48/2026-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 48/2026
Fimmtudaginn 16. apríl 2026
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 15. janúar 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar um að setja greiðslur atvinnuleysisbóta til hans á bið.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 15. desember 2025. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 23. janúar 2026, var kæranda tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt en með vísan til þess að hann ætti ótekinn biðtíma frá fyrri umsókn yrðu bætur ekki greiddar fyrr en sá tími væri liðinn.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 15. janúar 2026. Með bréfi, dags. 3. febrúar 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 12. mars 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 13. mars 2026. Athugasemdir bárust frá kæranda 17. mars 2026.
II. Sjónarmið kæranda
Kærandi greinir frá því að hann hafi ekki fengið greiddar atvinnuleysisbætur frá Vinnumálastofnun frá 1. mars 2025. Hann hafi átt í miklum erfiðleikum með framfærslu og að greiða leigu. Kærandi óski eftir aðstoð við að fá greiddar atvinnuleysisbætur.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að upphaf málsins megi rekja til ákvarðana Vinnumálastofnunar frá 15. nóvember 2024 og 17. desember 2024. Með ákvörðunum stofnunarinnar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Bótaréttur kæranda hafi með framangreindum ákvörðunum verið felldur niður í tvo mánuði og svo þrjá mánuði, sbr. 1. mgr. 61. gr. laganna.
Kærandi hafi verið afskráður í kerfum stofnunarinnar frá og með 1. febrúar 2025. Eftirstöðvar viðurlaga hans á þeim tímapunkti hafi verið samtals 3,48 mánuðir.
Kærandi hafi sótt að nýju um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 15. desember 2025. Með erindi, dags. 23. janúar 2026, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt en með vísan til ótekinna viðurlaga yrðu bætur hins vegar ekki greiddar fyrr en að 3,48 mánuðum liðnum.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Mál þetta varði þá ákvörðun Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta eftirstöðvum viðurlaga sinna þegar hann hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta þann 15. desember 2025. Þann 15. nóvember 2024 hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sökum þess að hann hafi ekki mætt í boðað viðtal við ráðgjafa Vinnumálastofnunar. Þá hafi kæranda þann 17. desember 2024 verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar í þrjá mánuði, sbr. 1. mgr. 61. gr. sömu laga, þar sem hann hafi ekki mætt í boðað viðtal sem hafi átt að fara fram á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar. Kærufrestur vegna þeirra ákvarðana sé nú liðinn, sbr. 5. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála. Eftir standi þá ákvörðun Vinnumálastofnunar um að kærandi skuli sæta eftirstöðvum viðurlaga sinna þegar hann hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta þann [15.] desember 2025.
Í 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé meðal annars kveðið á um að sá sem hafi sætt viðurlögum samkvæmt 57.-59. gr. eða biðtíma samkvæmt 54. og 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greini eigi sér stað að nýju á sama tímabili samkvæmt 29. gr. skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum. Ákvörðun um viðurlög á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi því leitt til ítrekunaráhrifa fyrri viðurlaga hans samkvæmt 1. mgr. 61. gr. þar sem hann hafi ekki unnið sér inn rétt til nýs bótatímabils samkvæmt 29. gr. laganna. Heildarviðurlagatími kæranda hafi því verið fimm mánuðir.
Í lögum um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um nokkur tilvik þar sem biðtími eða viðurlög samkvæmt lögunum falli niður eða frestist. Þannig sé meðal annars kveðið á um í 3. mgr. 58. gr. að taki hinn tryggði starfi sem ekki sé hluti af vinnumarkaðsaðgerðum meðan á viðurlagatíma skv. 1. mgr. standi falli viðurlög niður eftir að hinn tryggði hafi starfað í a.m.k. hálfan mánuð áður en hann sæki aftur um atvinnuleysisbætur.
Ekki sé fyrir heimild í lögunum að fella niður biðtíma vegna starfa atvinnuleitanda í þeim tilfellum sem viðkomandi hafi þurft að sæta ítrekuðum viðurlögum. Í [5.] mgr. 61. gr. sé hins vegar kveðið á um að ítrekunaráhrif samkvæmt ákvæðinu falli niður þegar nýtt tímabil skv. 29. gr. hefjist, sbr. 30. eða 31. gr. laganna. Kærandi hafi ekki unnið sér inn rétt til nýs bótatímabils. Til að öðlast rétt á nýju bótatímabili þurfi atvinnuleitandi að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í a.m.k. 24 mánuði frá því að hann hafi síðast fengið greiddar atvinnuleysisbætur. Af staðgreiðsluskrá Skattsins sé ekki unnt að sjá að kærandi hafi starfað á innlendum vinnumarkaði frá því að honum hafi verið tilkynnt um ákvörðun, dags. 15. nóvember 2024. Í samræmi við 4. mgr. 29. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi tímabilið því haldið áfram að líða þegar kærandi hafi sótt að nýju um atvinnuleysisbætur.
Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að rétt hafi verið staðið að ákvörðun í máli kæranda og að eftirstöðvar biðtíma hans, samtals 3,48 mánuðir, skuli halda áfram að líða frá síðasta umsóknardegi kæranda, dags. 15. desember 2025.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að setja greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda á bið.
Með ákvörðunum Vinnumálastofnunar frá 15. nóvember 2024 og 17. desember 2024 var réttur kæranda til atvinnuleysisbóta felldur niður í tvo og þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Kærandi sótti á ný um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 15. desember 2025. Umsókn kæranda var samþykkt 23. janúar 2026 en tekið var fram að bætur yrðu ekki greiddar fyrr en ótekinn biðtími frá fyrri umsókn væri liðinn.
Í 5. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 kemur fram að ítrekunaráhrif samkvæmt ákvæðinu falli niður þegar nýtt tímabil samkvæmt 29. gr. hefjist, sbr. 30. eða 31. gr. laganna. Í 29. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um að sá sem telst tryggður samkvæmt lögunum geti átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í 30 mánuði frá þeim degi er Vinnumálastofnun tók við umsókn hans um atvinnuleysisbætur nema annað leiði af lögunum. Biðtími eftir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt X. kafla telst hluti tímabilsins sem og sá tími er viðurlög samkvæmt XI. kafla standi yfir. Í 4. mgr. 29. gr. laganna kemur fram að tímabilið samkvæmt 1. mgr. haldi áfram að líða þegar hinn tryggði sækir að nýju um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar eftir að hafa starfað í skemmri tíma en 24 mánuði á innlendum vinnumarkaði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur. Þá segir í 31. gr. laga nr. 54/2006 að nýtt tímabil samkvæmt 29. gr. hefjist þegar hinn tryggði sæki að nýju um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar eftir að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í að minnsta kosti 24 mánuði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur.
Samkvæmt gögnum málsins hafði kærandi ekki, þegar umsókn hans barst Vinnumálastofnun þann 15. desember 2025, starfað í a.m.k. 24 mánuði á innlendum vinnumarkaði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur. Kærandi hafði því ekki áunnið sér rétt til nýs bótatímabils samkvæmt 31. gr. laga nr. 54/2006 og því hélt allur ótekinn biðtími vegna eldri viðurlaga samkvæmt ákvörðunum Vinnumálastofnunar, dags. 15. nóvember og 17. desember 2024, áfram að líða þegar hann skráði sig atvinnulausa að nýju 15. desember 2025.
Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. janúar 2026, staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. janúar 2026, um að setja greiðslur atvinnuleysisbóta til A, á bið, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir