16 apríl 2026

/

Mál nr. 61/2026-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 61/2026

Fimmtudaginn 16. apríl 2026

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 22. janúar 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 22. janúar 2026, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 1. september 2024 og var umsóknin samþykkt 11. september 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 22. janúar 2026, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 22. janúar 2026. Með bréfi, dags. 19. febrúar 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 19. mars 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 23. mars 2026. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hann hafi ekki náð að skrá sig inn á „Mínar síður“ Vinnumálastofnunar þegar hann hafi fengið boð í viðtal vegna einhverrar villu. Kærandi hafi mætt til Vinnumálastofnunar til að útskýra mál sitt og starfsmaður stofnunarinnar hafi ætlað að aðstoða hann. Kærandi tekur fram að hann hafi ekki verið að hafna þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, hann hafi viljað fá annan tíma. Kærandi óski eftir aðstoð og endurskoðun málsins en hann sé viljugur til þátttöku. Kærandi sé með börn á framfæri og þurfi að greiða leigu en eigi engan pening.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 1. september 2024. Með erindi, dags. 11. september 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að bótaréttur væri 100%.

Þann 7. janúar 2026, kl. 08:19 hafi kærandi verið boðaður í viðtal sem fara átti fram á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar í Reykjavík þann 9. janúar 2026, kl. 09:30. Kæranda hafi verið tjáð að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar á „Mínum síðum“ Vinnumálastofnunar. Sömuleiðis hafi kæranda verið tjáð að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans yrðu stöðvaðar. Boðun þessi hafi verið birt á „Mínum síðum“ kæranda. Þá hafi verið vakin athygli á nýjum samskiptum með tölvupósti á netfang kæranda og með SMS skilaboðum í skráð símanúmer kæranda, X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi SMS skilaboðin borist í símtæki kæranda þann 7. janúar 2026, kl. 08:19. Kærandi hafi hvorki mætt til umrædds upplýsingafundar né boðað forföll.

Með erindi, dags. 12. janúar 2026, hafi verið óskað eftir skriflegum skýringum kæranda fyrir því að hafa ekki mætt til boðaðs viðtals og að hafa ekki tilkynnt um forföll. Áréttað hafi verið að ef kærandi hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum án gildra ástæðna gæti hann þurft að sæta biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysisbóta. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að koma að skýringum sínum. Engar skýringar hafi borist frá kæranda og með erindi, dags. 22. janúar 2026, hafi kæranda verið tilkynnt um ákvörðun Vinnumálastofnunar að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði sökum þess að hann hefði ekki sinnt boðun í viðtal þann 9. janúar 2026. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. og 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar en kærandi hafi áður sætt viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. þann 13. desember 2024 vegna fjarveru á upplýsingafund í nóvember 2024.

Kærandi hafi vísað máli sínu til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 22. janúar 2026. Kærandi fari fram á að ákvörðun um frestun greiðslu atvinnuleysisbóta verði felld úr gildi.

Þann 27. janúar 2026 hafi kærandi svo sent stofnuninni skýringar á ástæðum fjarveru hans í boðað viðtal með eftirfarandi orðsendingu:

„Góðan dag, Ég náði ekki að skrá mig inná mínar síður þegar ég fékk tilkynningu frá ykkur um að koma í viðtal svo ég mætti til ykkar til að fá aðstoð. Ég hef greinilega misskiliið ykkur þarna vegna þess að ég hélt að ég væri að fá aðstoð með næstu skref en svo allt í einu fékk ég tilkynningu um að ég fái ekkert greitt næstu 3 mánuði vegna þess að ég hafnaði þátttöku. Getið þið skoðað þetta aftur fyrir mig? Ég þarf að greiða leigu og með börn á framfæri. Ég á engan pening núna og er í miklum kvíða yfir þessu. Kv. A“

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Eitt af almennum skilyrðum greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit en samkvæmt [h.] lið 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitanda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki þegar þeir sæki um komi fram að viðkomandi sé upplýstur um að honum sé skylt að mæta í þau viðtöl, þá fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði hann til.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á upplýsingafund þann 9. janúar 2026. Áður hafi kærandi fengið sendar tilkynningar í tölvupósti, með smáskilaboðum í farsíma og á „Mínum síðum“ með tímasetningu og staðsetningu fundarins. Kæranda hafi sömuleiðis verið greint frá því að öll forföll þyrfti að tilkynna til stofnunarinnar án ástæðulausrar tafar. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa. Í 1. mgr. 58. gr. segi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Þær skýringar sem kærandi hafi veitt á ástæðum fjarveru hans í boðað viðtal þann 9. janúar 2026 lúti að því að hann hafi misskilið boð Vinnumálastofnunar.

Í ljósi þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga. Engin tilkynning hafi borist Vinnumálstofnun um að kærandi kæmist ekki á boðaðan upplýsingafund, hann ætti í erfiðleikum með að ráða í leiðbeiningar í boði eða að hann gæti ekki skráð sig inn á „Mínar síður“ stofnunarinnar. Þá séu heldur ekki til skráðar upplýsingar um að kærandi hafi mætt á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar eftir að umrædd boðun hafi verið send kæranda eða að hann hafi verið í sambandi við stofnunina með öðrum leiðum. Það sé því mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi ekki fært fram gildar ástæður fyrir fjarveru í boðað vinnumarkaðsúrræði, í skilningi 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Í ljósi þess að kærandi hafi ekki mætt á boðað vinnumarkaðsúrræði án gildra skýringa í skilningi 1. mgr. 58. gr. beri honum að sæta viðurlögum á grundvelli sama ákvæðis. Þar sem um önnur viðurlög sé að ræða á sama bótatímabili beri honum að sæta bið í þrjá mánuði eftir greiðslum atvinnuleysisbóta, sbr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. og 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.

Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 7. janúar 2026 boðaður í viðtal á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar sem fara átti fram þann 9. janúar 2026. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Kærandi var jafnframt upplýstur um að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Að lokum var kærandi hvattur til að hafa samband ef eitthvað væri óljóst eða hann óskaði frekari upplýsinga. Fyrir liggur að kærandi hvorki mætti í boðað viðtal né boðaði forföll. Af hálfu kæranda hefur komið fram að hann hafi ekki náð að skrá sig inn á „Mínar síður“ Vinnumálastofnunar þegar hann hafi fengið boð í viðtal vegna einhverrar villu.

Framangreind boðun var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tilkynningu á „Mínar síður“, í skráð tölvupóstfang og farsíma. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hann hafi ekki mætt í boðað viðtal hjá Vinnumálastofnun.

Í 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um ítrekunaráhrif fyrri viðurlagaákvarðana. Ákvæðið er svohljóðandi:

„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. eða 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“

Samkvæmt gögnum málsins var bótaréttur kæranda felldur niður í tvo mánuði þann 13. desember 2024 á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006. Þar sem um sama bótatímabil er að ræða, sbr. 29. gr. laganna, kom til ítrekunaráhrifa samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laganna.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. laga nr. 54/2006, staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 22. janúar 2026, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir