16 apríl 2026

/

Mál nr. 62/2026-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 62/2026

Fimmtudaginn 16. apríl 2026

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 23. janúar 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 16. desember 2025, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 5. apríl 2025 og var umsóknin samþykkt 8. maí 2025. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 16. desember 2025, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hún hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 23. janúar 2026. Með bréfi, dags. 10. febrúar 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 17. mars 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 18. mars 2026. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að viðurlög sem kæranda hafi verið gert að sæta byggi á misskilningi hennar á orðalagi tölvupósts sem Vinnumálastofnun hafi sent í desember 2025. Í tölvupóstinum hafi komið fram að umrætt námskeið væri í fjögur skipti og fyrsti tíminn væri 1. desember 2025. Kærandi hafi skilið þessi skilaboð á þann hátt að námskeiðið væri endurtekið fjórum sinnum og að henni væri heimilt að mæta þann dag sem myndi henta henni. Að sögn kæranda hafi hún ekki verið sú eina sem hafi túlkað skilaboðin með þessum hætti og að fleiri þátttakendur hafi mætt í færri skipti en búist hafi verið við. Kærandi mótmæli að ábyrgðin sé lögð á hana og vilji meina að ábyrgð á misskilningnum liggi hjá Vinnumálastofnun þar sem ekki hafi verið skýrt nægilega hvernig námskeiðinu væri háttað. Kærandi bendi á að hún geti ekki unnið þetta upp með því að mæta á önnur námskeið síðar. Kærandi fari því fram á að ákvörðun Vinnumálastofnunar verði felld úr gildi og að henni verði greiddar fullar atvinnuleysisbætur fyrir viðeigandi mánuði.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 5. apríl 2025. Með erindi, dags. 8. maí 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 48%.

Þann 27. nóvember 2025 hafi kæranda verið sendur tölvupóstur og smáskilaboð í farsíma hennar þar sem hún hafi verið boðuð á námskeið. Námskeiðið hafi verið haldið dagana 1., 2., 3. og 5. desember 2025 á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á Grensásvegi 9 í Reykjavík. Umrædd boðun hafi verið send þann 27. nóvember 2025 á „Mínar síður“ kæranda, með tilkynningu á uppgefið netfang X og með smáskilaboðum í farsímanúmerið X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 27. nóvember 2025, klukkan 08:44. Kæranda hafi verið bent á að um skyldumætingu væri að ræða og öll forföll þyrfti að boða án ástæðulausrar tafar. Forföll bæri að tilkynna í gegnum „Mínar síður“ Vinnumálastofnunar. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til stöðvunar greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Í umræddri boðun hafi verið innsláttarvilla er varði eina dagsetningu af fjórum. Ranglega hafi verið tilgreint 3. október í stað 3. desember. Boðunin hafi verið leiðrétt með nýrri boðun, dags. 2. desember 2025, þar sem innsláttarvillan hafi verið leiðrétt. Kærandi hafi einungis mætt í eitt skipti af þeim fjórum, þ.e. einungis þann 5. desember 2025.

Með erindi, dags. 10. desember 2025, hafi verið óskað eftir skriflegum skýringum kæranda á ástæðum þess að hún hefði ekki mætt á boðað námskeið. Áréttað hafi verið að ef kærandi hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum án gildra ástæðna gæti hún þurft að sæta biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysisbóta. Kæranda hafi verið veitt sjö virkra daga frestur til að koma að skýringum sínum.

Þann 12. desember 2025 hafi skýringar borist frá kæranda þar sem fram komi að hún hafi misskilið boð Vinnumálastofnunar á námskeiðið. Hún hafi skilið boð stofnunarinnar þannig að námskeiðið yrði endurtekið yfir fjóra daga. Kærandi bendi á að hún hafi ekki verið sú eina sem hafi skilið boð Vinnumálastofnunar á þann hátt. Kærandi hafi tekið fram að hún hafi verið í góðri trú og að um misskilning af hennar hálfu hafi verið að ræða.

Með erindi, dags. 16. desember 2025, hafi kæranda verið tilkynnt um ákvörðun Vinnumálastofnunar að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar sökum þess að hún hefði ekki sinnt boðun á námskeið. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 23. janúar 2026. Þær skýringar sem kærandi hafi áður veitt stofnuninni á fjarveru sinni á boðað vinnumarkaðsúrræði samhliða kæru séu efnislega þær sömu og hafi legið fyrir við vinnslu hinnar kærðu ákvörðunar. Í kæru greini kærandi frá því að boð sem Vinnumálastofnun hafi sent henni hafi verið óskýrt og leitt til þess að hún hefði ekki uppfyllt mætingarskyldu á boðað námskeið.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Eitt af almennum skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit, en samkvæmt [h. lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysistrygginga komi fram að umsækjendum sé skylt að mæta í viðtöl, fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði til.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki uppfyllt mætingarskyldu á boðað námskeið. Áður hafi kærandi fengið senda tilkynningu í tölvupósti, farsíma og á „Mínum síðum“ atvinnuleitanda um boðun á umrætt námskeið. Kærandi hafi fengið rúmlega sólarhringsfyrirvara til að bregðast við boðun stofnunarinnar. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kærandi verið innt eftir skýringum á fjarveru sinni með erindi, dags. [10. desember] 2025. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Skýringar sem kærandi hafi veitt Vinnumálastofnun á fjarveru hennar á boðað námskeið lúti að því að hún hafi misskilið boð sem stofnunin hafi sent henni þann 27. nóvember 2025. Óvíst sé hvernig orðalag boðunarinnar sem stofnunin hafi sent kæranda hafi valdið misskilningi um tilhögun námskeiðsins. Í boðuninni komi orðrétt fram:

„…Námskeiðið er í 4 skipti og fyrsti tíminn er 1.desember næstkomandi. Nauðsynlegt er að mæta með gild skilríki. Athugið að um skyldumætingu er að ræða og öll forföll ber að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Forföll skulu tilkynnt í gegnum Mínar síður Vinnumálastofnunar.“

Þar fyrir utan hafi viðtakendur verið hvattir til að hafa samband við stofnunina í boðun ef eitthvað væri óljóst eða óskað væri eftir frekari upplýsingum. Vinnumálastofnun meti skýringar kæranda ekki gildar. Boðun til umrædds námskeiðs hafi borist kæranda með sannanlegum hætti, sbr. lokamálslið 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í boðun til kæranda hafi komið skýrt fram að um skyldumætingu væri að ræða og að fyrsti tími námskeiðsins væri þann 1. desember 2025. Jafnframt hafi verið bent á að fjarvera gæti leitt til greiðslustöðvunar á greiðslum atvinnuleysisbóta. Kærandi hafi einungis mætt þann 5. desember 2025, þ.e. í einungis eitt skipti af fjórum. Því verði að líta svo á að kærandi hafi brugðist skyldu sinni sem atvinnuleitandi að mæta á boðað námskeið og hafi ekki gildar skýringar á fjarveru sinni.

Í ljósi alls framangreinds og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga. Með því að hafa ekki uppfyllt mætingarskyldu á boðað námskeið hafi kærandi brugðist skyldum sínum og beri því að sæta tveggja mánaða biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar með frumvarpi til laga nr. 54/2006 segir meðal annars um 1. mgr. 58. gr. að ekki séu tilgreindar sérstakar vinnumarkaðsaðgerðir sem geti valdið því að hinn tryggði þurfi að sæta viðurlögum samkvæmt ákvæðinu heldur eigi það við um allar aðgerðir sem hinum tryggða sé boðið að taka þátt í til að auka líkur sínar á að fá vinnu við hæfi. Gert sé ráð fyrir að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að hinir tryggðu njóti faglegrar ráðgjafar sérfræðinga stofnunarinnar. Þannig megi ætla að þeim sem eru tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins verði boðin þátttaka í vinnumarkaðsúrræðum við hæfi en litið sé svo á að þeim sé skylt að taka þátt í slíkum úrræðum. Bregðist hinn tryggði þessum skyldum sínum leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 27. nóvember 2025 boðuð á námskeið á vegum Vinnumálastofnunar sem haldið var í fjögur skipti dagana 1., 2., 3. og 5. desember 2025. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og ef upp kæmu forföll bæri að tilkynna þau án ástæðulausrar tafar á „Mínum síðum“ kæranda. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Sérstaklega var endurtekið að námskeiðið væri haldið dagana 1., 2., 3. og 5. desember, klukkan 9-12 alla þá daga. Þá var kærandi hvött til að hafa samband ef eitthvað væri óljóst eða hún óskaði frekari upplýsinga. Fyrir liggur að kærandi mætti ekki á námskeiðið dagana 1., 2. og 3. desember 2025 og tilkynnti engin forföll. Fyrir úrskurðarnefndinni hefur kærandi vísað til þess að hún hafi misskilið skilaboð Vinnumálastofnunar og talið að hún hafði einungis þurft að mæta í eitt skipti af fjórum.

Framangreind boðun var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tilkynningu í skráð tölvupóstfang og farsíma. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins. Af gögnum málsins má ráða að kæranda hafi mátt vera fullljóst að henni bæri að uppfylla mætingarskyldu á boðað námskeið með því að mæta alla fjóra daga námskeiðsins. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta fjarveru á boðað námskeið á vegum Vinnumálastofnunar. Þar sem kærandi hvorki mætti né boðaði forföll á námskeiðið kom til viðurlaga á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006.

Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 er því staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 16. desember 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

 

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir