16 apríl 2026

/

Sveitarstjórnarkosningar 2026 - Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar í sendiráðinu í Osló

{image.Description}

Sendiráð Íslands í Osló vekur athygli á eftirfarandi varðandi utankjörfundaratkvæðagreiðslu í apríl og maí, í tengslum við sveitarstjórnarkosningar sem fara fram laugardaginn 16. maí 2026.

 

Hægt verður að kjósa í sendiráðinu frá og með 17. apríl á afgreiðslutíma sendiráðsins, alla virka daga á milli kl. 10.00 og 15.00. Athugið að sendiráðið verður lokað á uppstigningardag, fimmtudaginn 14. maí, og föstudaginn 15. maí. 


Bent er á að kjósendur bera sjálfir ábyrgð á sendingu atkvæðisbréfs til þess sveitarfélags þar sem þeir eru á kjörskrá. Þar sem póstsendingar milli landa geta tekið nokkra daga er mælt með því að greiða atkvæði utan kjörfundar í Noregi í síðasta lagi í byrjun maímánaðar, til að tryggja að atkvæði berist kjörstjórn innan tilskilins tíma.

 

Kjósendur þurfa að framvísa persónuskilríkjum með mynd.


Kjörskrá fyrir sveitarstjórnarkosningar hefur nú verið opnuð. Kjósendur sem eru í vafa um hvort þeir séu á kjörskrá flett upp kennitölunni þinni hjá Þjóðskrá

 

Í sveitarstjórnarkosningum byggist kosningaréttur á lögheimili, og gildir hann í því sveitarfélagi þar sem viðkomandi er skráður með lögheimili. Því geta einungis íslenskir ríkisborgarar með lögheimili á Íslandi, eða íslenskir námsmenn með lögheimili á Norðurlöndum, tekið þátt í sveitarstjórnarkosningum. Námsmenn með lögheimili á Norðurlöndunum þurfa að sækja sérstaklega um að vera teknir á kjörskrá, sjá nánar HÉR.


Þá er einnig hægt að kjósa hjá ræðismönnum eftir samkomulagi. Nánari upplýsingar um staðsetningu og tengiliðaupplýsingar ræðisskrifstofa má finna á vef sendiráðsins