16 apríl 2026

/

Úrskurður nr. 185/2026


Hinn 16. apríl 2026 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 185/2026

í stjórnsýslumáli nr. KNU24060052

Kæra […]

Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 11. júní 2024 kærði kona sem kveðst heita […], vera fædd […] og vera ríkisborgari Sómalíu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 31. maí 2024, um að synja henni um alþjóðlega vernd á Íslandi. Kæranda var veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.

Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Málsatvik

Samkvæmt lögregluskýrslu kom kærandi til landsins og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 7. júní 2023. Kærandi kvaðst hafa verið beitt ofbeldi af stjúpföður, það hafi átti að neyða hana til hjónabands og faðir hennar hafi verið myrtur.

Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 7. september 2024 ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindi frá ástæðum flótta síns. Kærandi kvaðst vera frá bænum […] í Beledweyne í umdæmi Hiiraan. Kærandi kvað bæinn vera undir yfirráðum Al-Shabaab. Kærandi kvaðst tilheyra ættbálknum Gaajeecel og undirættbálkinum Dirisame. Hún hafi búið hjá móður sinni, fjórum systkinum og stjúpföður. Faðir hennar hafi verið myrtur af Al-Shabaab þegar hún hafi verið barn. Kærandi kvaðst ekki hafa gengið í skóla sökum fátæktar. Móðir hennar hafi verið mjólkursali og kærandi hafi aðstoðað móður sína við heimilisstörf. Bróðir kæranda hafi kennt henni að lesa og hún hafi lært um Kóraninn í íslömskum skóla. Kærandi kvaðst almennt vera heilsuhraust.

Aðspurð um ástæður flótta greindi kærandi frá því að stjúpfaðir hennar hafi ætlað að neyða hana til hjónabands með manni sem væri talsvert eldri en hún og væri leiðtogi innan Al-Shabaab. Hún greindi frá því að stjúpfaðir hennar hafi beitt hana ofbeldi. Allar stúlkur í […] væru neyddar til að giftast meðlimum Al-Shabaab. Þetta hafi átt sér stað þegar hún hafi verið nýorðin 18 ára. Hún hafi verið hrædd og viljað flýja. Móðir hennar hafi hjálpað henni að fara með mjólkurbíl til borgarinnar Beledweyne en hún hafi verið handsömuð á leiðinni. Henni hafi verið haldið í tvo daga í dimmu herbergi með bundið fyrir augun. Kærandi greindi ekki frá því hver hafi handsamað hana og haldið henni en kvað að maðurinn sem hún hafi átt að giftast hafi tvisvar komið í fangelsið og hótað henni. Í annað skiptið hafi hann verið vopnaður hnífi og hótað henni lífláti ef hún myndi ekki giftast honum. Kærandi kvaðst hafa verið pyntuð, á hana hafi verið skvett köldu vatni og hún verið slegin. Hún hafi sagst ætla að giftast manninum til þess að sleppa úr haldinu. Henni hafi verið sleppt en hún hafi flúið strax aftur með aðstoð móður sinnar og farið með bíl sem flytji dýr til Beledweyne. Föðurbróðir hennar, sem hafi búið í Mógadisjú, hafi komið henni þaðan til Eþíópíu þar sem hún hafi hitt þrjá smyglara sem hafi komið henni til Íslands. Kærandi kvaðst ekki vera í sambandi við móður sína og ekki vita hvort hún sé á lífi. Hún kvaðst þó vita til þess að maðurinn sem hún hafi átt að giftast hafi farið fram á það við móður hennar að koma kæranda aftur til baka. Kærandi kvaðst óttast Al-Shabaab og að þeir myndu myrða hana líkt og föður hennar.

Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda synjað um alþjóðlega vernd en henni veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 11. júní 2024. Greinargerð barst kærunefnd 24. júní 2024.

Greinargerð til kærunefndar

Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.

Í greinargerð er aðstæðum kæranda lýst. Þar kemur m.a. fram að kærandi sé ung kona frá bænum […] í Hiiraan í Hirshabelle. Þar hafi hún búið allt sitt líf og fjölskylda hennar hafi haft viðurværi af því að selja mjólk. Bærinn og svæðið í kring sé undir stjórn Al-Shabaab og öryggisástand á svæðinu mjög slæmt. Kærandi hafi ekki hlotið formlega menntun að öðru leyti en því að hún hafi sótt trúarskóla en eldri bróðir hennar hafi kennt henni að skrifa á sómölsku. Þá hafi kærandi mikið dvalið inni á heimili fjölskyldu sinnar við að aðstoða við heimilisstörf. Hún hafi því verið nokkuð einangruð allt sitt líf, hlotið takmarkaða fræðslu og ekki haft aðgang að samfélagsmiðlum.

Kærandi krefst þess aðallega að vera veitt alþjóðleg vernd sem flóttamaður hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Meginástæða flótta kæranda frá Sómalíu sé sú að stjúpfaðir hennar hafi viljaði gifta hana eldri manni sem hafi verið leiðtogi innan Al-Shabaab. Kærandi byggir á því að hún hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í Sómalíu af hálfu hryðjuverkasamtakanna Al-Shabaab af þeim sökum. Að auki eigi kærandi á hættu ofsóknir í Sómalíu þar sem hún sé ung einhleyp kona og hafi verið þolandi ofbeldis. Konur og stúlkur standi frammi fyrir margs konar áskorunum í Sómalíu. Árangursrík vernd stjórnvalda sé ekki til staðar þar sem Al-Shabaab fari með yfirráð í heimabæ hennar. Í greinargerð er mati Útlendingastofnunar á trúverðugleika kæranda mótmælt. Telur kærandi að við mat á trúverðugleika verði að líta til ungs aldurs kæranda, lítillar menntunar og aðstæðna hennar við flótta. Í því samhengi er vísað til úrskurðar kærunefndar útlendingamála í máli nr. 208/2022. Þá er því mótmælt að úrskurður kærunefndar útlendingamála í máli nr. 235/2023 hafi fordæmisgildi fyrir mál kæranda, eins og lagt sé til grundvallar í hinni kærðu ákvörðun.

Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins krefst kærandi þess til vara að verða veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Telur kærandi úrskurð kærunefndar útlendingamála í máli nr. 138/2023 frá 16. mars 2023 hafa fordæmisgildi í málinu. Kærunefnd hafi metið aðstæður í umræddu máli sem svo að kærandi, sem kom frá svæðinu Mið-Shabelle í Sómalíu, ætti á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum á fyrrgreindu landsvæði í Sómalíu þar sem ekki væri greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Kærandi byggir á því að ástandið á heimasvæði hennar, Hiiran, sé sambærilegt við ástandið í Mið-Shabelle og að Al-Shabaab hafi þar afar sterk ítök. Þá séu mikil og stöðug átök á svæðinu milli meðlima Al-Shabaab og stjórnarliða.

Til þrautavara krefst kærandi þess að hin kærða ákvörðun, þess efnis að veita henni dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga, verði staðfest með vísan til forsendna hinnar kærðu ákvörðunar hvað varðar umrætt ákvæði.

Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga

Í greinargerð kæranda eru ekki gerðar athugasemdir við málsmeðferð Útlendingastofnunar. Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hina kærðu ákvörðun sem er í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.

Alþjóðleg vernd

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.

Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

Auðkenni og ríkisfang

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi hafi ekki lagt fram nein gögn sem staðfesti auðkenni hennar. Að því virtu var það mat Útlendingastofnunar að kærandi hafi ekki sannað hver hún er með fullnægjandi hætti. Með vísan til þess var leyst úr auðkenni kæranda á grundvelli mats á trúverðugleika og komst Útlendingastofnun að þeirri niðurstöðu að kærandi væri frá Sómalíu. Eins var gengið út frá því við úrlausn málsins að hún kynni hugsanlega að eiga uppruna sinn að rekja til umdæmis Beledweyne eða að hún hafi verið með búsetu þar að einhverju leyti, svo sem í þorpinu […], þó auðkenni hennar væri að öðru leyti óupplýst. Að því virtu var það mat Útlendingastofnunar að kærandi hafi ekki sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Ekki er ástæða til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærandi sé sómalskur ríkisborgari og kunni að eiga uppruna sinn að rekja til eða hún hafi haft fyrri búsetu í umdæminu Beledweyne, en að auðkenni hennar sé að öðru leyti óupplýst.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Sómalíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 2021 Country Reports on Human Rights Practices – Somalia (US Department of State, 12. apríl 2022);
  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices – Somalia (US Department of State, 20. mars 2023);
  • 2023 Country Reports on Human Rights Practices – Somalia (US Department of State, 23. apríl 2024);
  • 2024 Country Reports on Human Rights Practices – Somalia (US Department of State, 23. apríl 2025);
  • 2023 Report on International Religious Freedom: Somalia (US Department of State, 112. ágúst 2025);
  • 2022 UNICEF Somalia Annual Report (UNICEF Somalia, febrúar 2023);
  • Amnesty International Report 2022/23 – Somalia (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • Amnesty International Report 2023 – The State of the World’s Human Rights Somalia 2023 (Amnesty International, 24. apríl 2024);
  • Amnesty International 2025 – The State of the World’s Human Rights (Amnesty International, apríl 2025);
  • Benadir Regional Report 2020, Somali Health and Demographic Survey (SHDS) (Somalia National Bureau of Statistics, júlí 2021);
  • BTI 2022 Country Report – Somalia (Bertelsmann Stiftung, 23. febrúar 2022);
  • Challenges Facing the Health System in Somalia and Implications for Achieving the SDGs (European Journal of Public Health, 30. september 2020);
  • Clans in Somalia (Austrian Centre for Country of Origin and Asylum Research and Documentation (ACCORD), desember 2009);
  • Country Guidance: Somalia (EUAA, júní 2022);
  • Country Guidance: Somalia (EUAA, ágúst 2023);
  • Country Guidance: Somalia (EUAA, október 2025);
  • Country of Origin Information – Somalia: Health care services in Mogadishu (Danish Immigration Service, mars 2024);
  • Country of Origin Information – Somalia: Health care services in Mogadishu (Danish Immigration Service, febrúar 2025);
  • Country of Origin Information – Somalia: Health System (Danish Immigration Service, nóvember 2020);
  • Country Policy and Information Note – Somalia: Al-Shabaab (UK Home Office, nóvember 2020);
  • Country Policy and Information Note – Somalia: Majority clans and minority groups in south and central Somalia (UK Home Office, uppfært janúar 2018);
  • Country Policy and Information Note: Security and humanitarian situation in Mogadishu, Somalia (UK Home Office, maí 2022);
  • Country Reports on Terrorism 2020 – Somalia (US Department of State, 16. desember 2021);
  • DFAT Country Information Report Somalia (DFAT, 13. júní 2017);
  • EASO COI Report: Somalia Actors (EUAA, 1. júlí 2021);
  • EASO Country of Origin Information Report: Somalia – Targeted profiles (EUAA, 19. september 2021);
  • Freedom in the World 2023 – Somalia (Freedom House, 2023);
  • Freedom in the World 2024 – Somalia (Freedom House, 2024);
  • Freedom in the World 2024 – Somalia (Freedom House, 2025);
  • Genelogical Table of Somali Clans (UNHCR Somalia);
  • Humanitarian Needs Overview 2023 – Somalia (OCHA, 8. febrúar 2023);
  • International Protection Considerations with Regard to People Fleeing Somalia (UNHCR, 6. september 2022);
  • June 2025 Somalia Control Map & Timeline: Al Shabaab Resurgence, ISIS Retreat, Jubaland Defiant (Political Geography Now, 19, júní 2025)
  • Key socio-economic indicators (EUAA, september 2021);
  • Protection of Civilians: Building the Foundation for Peace, Security and Human Rights in Somalia (OHCHR, UNSOM, 10. desember 2017);
  • Query response on Somalia: Al-Shabaab (2021 – March 2023) (leadership, objectives, structure; recruitment; areas of operation and activities; financing; attacks; targets; capacity to track individuals; state response) (Immigration and Refugee Board of Canada, 7. mars 2023);
  • Reply by the United Nations High Commissioner for Refugees (UNHCR) in response to request for guidance on the application of the internal flight or relocation alternative, particularly in respect of Mogadishu, Somalia (UNHCR, 25. 6. september 2013);
  • Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 8. febrúar 2022);
  • Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 15. júní 2023);
  • Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 3. júní 2024);
  • Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 28. mars 2025);
  • Somalia country profile (BBC, 2. janúar 2024);
  • Somalia – Security situation (EUAA, 21. febrúar 2023);
  • Somalia – Security situation (EUAA, 3. júní 2025);
  • Somalia – Security situation update (EUAA, 25. apríl 2023): Somalia Situation Reports 2023 (UNICEF, 9. september 2023);
  • Somalia Situation Update: April 2023 (ACLED, 21. apríl 2023);
  • Somalia (ACLED Explorer, 23. apríl 2026);
  • Somalia. Al-Shabaab areas in Southern Somalia (Landinfo, 21. maí 2019);
  • Somalia. Key crises to watch in 2023 (Acaps, 14. apríl 2023);
  • Somalia: Al-Shabaab and local employees of AMISOM, the UN and other international organisations (Landinfo, 2. júní 2015);
  • Somalia: Al-Shabaab Regains Lost Territories as Tax Dispute Halts Counter-Insurgency Operation (ACLED, 2. júní 2023);
  • Somalia: Basisinfo (Landinfo, 22. mars 2021);
  • Somalia: Conflict displacement in Hiiraan and Gedo Regions: Flash Update No.2 As of 3 August 2025 (United Nations Office for the Coordination of Humanitarian Affairs, 4. ágúst 2025)
  • Somalia: Counter-Insurgency Operation Gains Regional Support in Phase Two as al-Shabaab Attacks and Political Differences Persist (ACLED, 21. apríl 2023);
  • Somalia: Defection, desertion and disengagement from Al-Shabaab (EUAA, 13. febrúar 2023);
  • Somalia: Det generelle voldsbildet og al-Shabaabs aktivitet i ulike deler av landet (Landinfo, 3. júní 2021);
  • Somalia: Fact-Finding Mission to Mogadishu in March 2020 – Security situation and humanitarian conditions in Mogadishu (Finnish Immigration Service, 7. ágúst 2020);
  • Somalia: Kampene i Mogadishu den 25. April 2021 og sikkerhetssituasjonen i byen etter dette (Landinfo, 15. júní 2021);

Sómalía er sambandslýðveldi með tæplega 13 milljónir íbúa. Ríkið lýsti yfir sjálfstæði frá Bretum og Ítölum þann 1. júlí 1960. Hinn 20. september 1960 gerðist Sómalía aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi sem og alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1990. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám alls kynþáttamisréttis árið 1975 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1990. Sómalía fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 2015 og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks árið 2019.

Í skýrslu EUAA frá árinu 2016 kemur fram að árið 1991 hafi brotist út borgarastyrjöld í Sómalíu eftir að vopnaðir andspyrnuhópar hafi steypt þáverandi forseta landsins, Siad Barre, og ríkisstjórn hans af stóli. Næstu ár hafi einkennst af miklum átökum og lögleysu í landinu án þess að starfhæf ríkisstjórn væri við völd. Í ágúst 2012 hafi fyrsta varanlega alríkisstjórnin verið mynduð frá því borgarastyrjöldin hafi hafist. Frá árinu 2009 hafi átök verið bundin við mið- og suðurhluta Sómalíu á milli ríkisstjórnar landsins og bandamanna þeirra annars vegar og íslamskra öfgahópa hins vegar, einkum Al-Shabaab, sem hafi náð stjórn á nokkrum svæðum í landinu. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 beri hryðjuverkasamtökin Al-Shabaab m.a. ábyrgð á fjölda hryðjuverkaárása síðustu ár í Sómalíu sem kostað hafi hundruð óbreyttra borgara lífið. Samkvæmt skýrslu öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna frá því í maí 2020 sé almennt öryggisástand í Sómalíu sveiflukennt. Megi rekja það til aukningar hryðjuverkaárása í landinu, fjölgunar glæpa og vopnaðra átaka sem hafi verið viðvarandi frá því í janúar 2020. Al-Shabaab hafi aukið árásir sínar í Mógadisjú og í Boosasoo í Bari héraði í Puntlandi. Samkvæmt skýrslu EUAA frá 2023 var mánaðarlegt meðaltal svokallaðra öryggisatvika, þ.e. bardaga, sprenginga og ofbeldis gagnvart almennum borgurum, um 240 á tímabilinu janúar 2022 til nóvember 2022.

Fram kemur í skýrslu EUAA frá júní 2022 að Al-Shabaab séu sómölsk herská samtök íslamskra súnnísalafi jihadista sem hafi myndast upp úr síðustu aldamótum. Sameiginleg hugmyndafræði samtakanna sé að berjast á móti ríkisstjórn landsins sem sé studd af vestrænum öflum. Hafi samtökin áður fyrr farið með yfirráð yfir Mógadisjú en hafi með hervaldi verið þröngvað í burtu frá helstu þéttbýliskjörnum borgarinnar. Samtökin stjórni í reynd svæðum við Juba og Shabelle-dölum, svæðum í kringum Harardhere, El Dher og El Buur í mið-Sómalíu og stórum hluta af landsvæðum annars staðar í landinu. Til að fjármagna samtökin haldi þau úti skattheimtu við eftirlitsstöðvar, kúgi fé af fyrirtækjum, leggi á innflutningsskatt í helstu höfnum og á fasteignafélög. Þá skattleggi samtökin einnig búfé, landbúnaðarafurðir og áveitu, auk þess að innheimta svonefnt zakat sem sé árleg trúarleg skylda til að greiða tiltekið hlutfall af auði einstaklings til fátækra. Þá skattleggi Al-Shabaab embættismenn sem láti samtökunum eftir hluta af launum sínum til að verða ekki skotmark þeirra.

Í skýrslu Landinfo frá árinu 2019 kemur fram að Al-Shabaab hafi tekið yfir stjórn stærsta hluta suður-Sómalíu árin 2008 til 2010. Á árunum 2011 til 2015 hafi friðargæsla Afríkuþjóða í Sómalíu (The African Union Mission in Somalia (AMISOM)) studd m.a. af Sameinuðu þjóðunum, og fleiri samtök stjórnvalda tekist að ná stjórn á Mógadisjú og í kjölfarið öðrum bæjum suður-Sómalíu. Markmið AMISOM sé m.a. að draga úr hættunni sem stafi af Al-Shabaab og öðrum vopnuðum hópum og koma á stöðugleika og öryggi í landinu undir stjórn sómölsku ríkisstjórnarinnar. Þrátt fyrir það hafi Al-Shabaab náð yfirráðum yfir nokkrum bæjum í suðurhluta landsins að nýju á árunum 2016 og 2017 og hafi einnig viss áhrif á þeim svæðum þar sem samtökin hafi ekki varanlega viðveru. Sterkir ættbálkar hafi ákveðið svigrúm til að semja við samtökin en flestir hræðist hefndaraðgerðir þeirra. Al-Shabaab hafi umfangsmikið net uppljóstrara og bandamanna sem fari tiltölulega frjálslega um á svæðum þar sem sómölsk yfirvöld hafi ekki yfirtekið.

Hópar Al-Shabaab starfi í litlum hreyfanlegum hópum sem hægt sé að safna saman þegar þörf krefji t.d. til þess að gera árásir eða ráðast gegn fólki sem sé á móti þeim. Heimildir bendi til þess að slíkir hópar séu sérstaklega virkir í kringum svæði sem sómölsk yfirvöld og stuðningsmenn þeirra hafi yfirráð yfir. Í skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2022, sem fjallar um mat á umsóknum einstaklinga um alþjóðlega vernd frá Sómalíu, kemur fram að þeir sem tilheyri áhættuhópi vegna ofsókna af hálfu Al-Shabaab séu m.a. einstaklingar sem tengist eða taldir séu tengjast sómölskum yfirvöldum á einhvern hátt, einstaklingar sem taldir séu brjóta gegn sharía lögum eða tilskipunum sem Al-Shabaab hafi sett fram, þ. á m. þeir sem hafi yfirgefið Al-Shabaab, fjölmiðlamenn, einkum þeir sem gagnrýni Al-Shabaab, baráttufólk fyrir mannréttindum og einstaklingar sem Al-Shabaab hafi kúgað fé út úr.

Samkvæmt skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá árinu 2020 er árangursrík vernd stjórnvalda á yfirráðasvæðum Al-Shabaab ekki tiltæk. Ríkisstjórn landsins hafi leitast við að bæta öryggisþjónustu sína með aðstoð AMISOM. Í höfuðborg Sómalíu, Mógadisjú, og á öðrum þéttbýlisstöðum þar sem ríkisstjórnin sé við völd séu öryggissveitir veikburða sökum skorts á fjármagni, fullnægjandi búnaði og skorts á þjálfun starfsmanna. Í skýrslu Landinfo frá árinu 2018 kemur fram að sómalska lögreglan (e. Somali Police Force) sé virk og sýnileg í höfuðborginni Mógadisjú. Megináhersla lögreglunnar sé að vernda stofnanir ríkisins gegn árásum Al-Shabaab. Aftur á móti ber heimildum saman um að lögreglan hafi takmarkaða getu til að vernda einstaklinga gegn ofbeldi, þ.m.t. að rannsaka, ákæra og refsa fyrir ofbeldisbrot. Þá kemur fram að spilling sé útbreidd meðal lögreglu og hjá dómstólum. Í skýrslu danskra innflytjendayfirvalda frá 2020 kemur fram að öryggisástand í Sómalíu sé sveiflukennt og Al-Shabaab fremji flest brot gegn óbreyttum borgurum í suður- og mið-Sómalíu.

Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá janúar 2019 kemur fram að ættbálkakerfið sé mikilvægur hluti af auðkenni íbúa Sómalíu og að kerfið hafi áhrif á alla þætti samfélagsins. Ættbálkakerfið sé stigskipt en neðst í stigskiptingunni séu fátækir ættbálkar og minnihlutahópar sem tilheyri ekki ættbálkasamfélaginu. Í leiðbeiningum EUAA frá ágúst 2023 kemur fram að í Sómalíu séu fimm stærstu ættbálkarnir Darood, Hawiye, Isaaq, Dir og Rahanwyen (sem samanstendur af ættbálkunum Digil og Mirifle). Samkvæmt UNHCR eru þeir ættbálkar sem eru í minnihluta í Sómalíu; Bantu/Jareer Bravense, Rerhamar, Bajuni, Eeyle, Jaaji/Reer Maanyo, Barawani, Galgala, Tumaal, Yibir/Yibron og Midgan/Gaboye. Það að tilheyra ættbálki sem sé í minnihluta leiði ekki sjálfkrafa til þess að einstaklingur sé í hættu á að verða fyrir ofsóknum. Samkvæmt skýrslu EUAA frá júní 2023 eru meðlimir Rahanwyen ættbálksins aðallega búsettir í héruðunum Bay, Bakool og Gedo, á milli ánna Shabelle og Jubba og starfi aðallega við búskap. Ættinni sé skipt upp í tvær stórar ættir, Digil og Mirifle. Að hluta til sé litið á ættbálkinn sem lágsettan ættbálk af meðlimum annarra ættbálka en hann tilheyri meirihlutaættbálkum. Ættbálkurinn sé fjölmennur og meðlimir hans geti gengið í hjónaband með meðlimum Hawiye og Darood. Þá hafi ættbálkurinn öðlast virðingu annarra meirihlutaættbálka þegar þeir hafi stofnað sína eigin hersveit og svæðisstjórn. Meðlimir ættbálksins hafi þó mátt sæta mismunun af hálfu annarra meirihlutaættbálka þegar þeir hafi sest að á stöðum þar sem aðrir ættbálkar séu ríkjandi.

Í skýrslu EUAA frá 2025 kemur fram að konur og stúlkur standi frammi fyrir margs konar áskorunum í Sómalíu, m.a. þvinguðum hjónaböndum á barnsaldri, kynfæralimlestingum, heimilisofbeldi, kynferðis- og kynbundnu ofbeldi, auk takmarkana á skólagöngu. Sómölsk lög og réttarkerfið veiti takmarkaða vernd gegn mismunun á grundvelli kyns. Konur eigi erfitt uppdráttar á mörgum sviðum, m.a. á sviði húsnæðis, menntunar og atvinnu. Þá njóti þær ekki jafnréttis þegar komi að því að erfa eignir og sé þeim oft neitað um þær eignir sem þær eigi lagalegan rétt á vegna félagslegra viðhorfa sem mismuni konum. Í skýrslu EUAA frá 2021 kemur fram að nauðganir og annað kynferðisofbeldi sé mjög útbreitt í Sómalíu, einkum í suður- og mið-Sómalíu og á svæðum innan Puntlands. Meirihluti brotanna sé ekki tilkynntur til lögreglu, einkum sökum víðtæks refsileysis innan réttarkerfisins og ótta og skömm þolenda. Heimilisofbeldi í garð kvenna í Sómalíu sé jafnframt lýst sem „hömlulausu“. Konur séu berskjaldaðar fyrir kynferðislegu ofbeldi á vinnumarkaði og sé algengt að karlmenn, sem sjái um ráðningar innan bæði einkageirans og hins opinbera, krefjist einhvers konar kynlífsþjónustu gegn ráðningu. Konur hafi litla möguleika á að kvarta yfir slíku ofbeldi, en nær öruggt að konur missi vinnuna geri þær það. Fyrir vikið neyðist margar konur til að þola kynferðislega misnotkun til að sjá fyrir fjölskyldu sinni. Þá sé þátttaka kvenna í stjórnmálastörfum takmörkuð vegna viðhorfa sem einkennist af mismunun og fjandskap í garð þeirra. Einstæðar konur séu almennt í viðkvæmari stöðu en giftar konur, en skortur á vernd í bland við viðhorf feðraveldisins í Sómalíu leiði til mismununar og útilokunar einstæðra kvenna. Einstæðar konur standi t.a.m. frammi fyrir erfiðleikum við að leigja eigið húsnæði þar sem þær þurfi karlmann til að ábyrgjast leigufyrirkomulagið. Þá eigi einstæðar konur sérstaklega á hættu að sæta kynbundnu ofbeldi þar sem þær neyðist til að vera á vinnumarkaði til að geta mætt grunnþörfum fjölskyldu sinnar og vegna staðalímynda í samfélaginu sem álíti konur og stúlkur veikburða.

Í framangreindum gögnum, m.a. skýrslu danskra útlendingayfirvalda frá árinu 2025, kemur fram að heilbrigðiskerfi Sómalíu sé í grunninn einkavætt og þó svo að það hafi tekið töluverðum framförum á undanförnum árum séu töluverðar áskoranir um landið allt, sérstaklega í dreifbýli þar sem aðgengi sé slæmt og skortur sé á heilbrigðisvörum. Ekkert miðlægt heilbrigðiskerfi sé í Sómalíu og sérhæfðar læknismeðferðir takmarkaðar. Þá sé aðgengi að lyfjum takmarkað og engin umsjón eða eftirlit með gæðum og öryggi þeirra. Í skýrslunni kemur fram að í Mógadisjú hafi almennir borgarar aðgengi að heilbrigðisþjónustu og sé ekki mismunað á grundvelli þjóðernis eða ættbálks. Þá sé öll opinber heilbrigðisþjónusta gjaldfrjáls en þó geti einstaklingar þurft að greiða óformleg gjöld og greiðslur til starfsmanna. Í borginni hafi orðið aukning á einkarekinni heilbrigðisþjónustu og gæði slíkrar þjónustu séu almennt betri en á opinberum heilsustofnunum. Geðheilbrigðisþjónusta sé í boði í Mógadisjú en sé þó afar takmörkuð. Við stærstu spítala borgarinnar séu starfandi geðlæknar og sálfræðingar og flest algengustu lyf við geðrænum veikindum séu fáanleg í borginni. Þá sé hægt að leita til aðila sem starfi á einkamarkaðnum. Þrátt fyrir takmarkað aðgengi að lyfjum þá megi nálgast fjölda nauðsynlegra lyfja í apótekum í Mógadisjú.

Í skýrslu Amnesty International frá apríl 2025 kemur fram að á árinu 2024 hafi flóð, óreglulegar úrkomur, sjúkdómar og áframhaldandi átök leitt til alvarlegrar mannúðarkrísu. Talið sé að tæpar sjö milljónir manna þurfi á mannúðaraðstoð að halda og að minnsta kosti fjórar milljónir manna standi frammi fyrir matvælaskorti á neyðar‑ eða kreppustigi. Al-Shabaab hafi haldið áfram að takmarka aðgang mannúðaraðstoðar á svæðum undir stjórn hópsins, sem hafi gert ástandið enn verra. Í skýrslu aðalframkvæmdastjóra öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna frá mars 2025, fyrir tímabilið 23. september 2024 til 23. mars 2025, kemur fram að 179 dauðsföll meðal óbreyttra borgara hafi verið skráð á tímabilinu auk þess sem 223 hafi særst. Líkt og áður hafi Al-Shabaab borið ábyrgð á flestum tilvikanna, eða um helmingi þeirra. Önnur tilvik hafi verið rakin til óþekktra aðila, til hersveita ættbálka, eða til sómalísku öryggissveitanna en einnig til íslamska ríkisins í Sómalíu. Í skýrslu Freedom House fyrir árið 2025 kemur fram að hersveitir yfirvalda, sómalskra ættbálka og Afríkubandalagsins hafi beitt sér gegn Al-Shabaab á árinu með stuðningi bandarískra stjórnvalda. Al-Shabaab hafi gert sínar eigin árásir og drepið hundruð hermanna úr hersveitum ættbálka og óbreytta borgara, meðal annars með hryðjuverkaárásum í höfuðborginni. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá ágúst 2026 kemur fram að Al-Shabaab beiti fólk á svæðum undir stjórn hópsins harðri meðferð og refsingu. Hópurinn fremji kynferðisofbeldi, þar á meðal með þvinguðum hjónaböndum, og beiti refsingu samkvæmt eigin túlkun á íslömskum lögum. Þeir sem hafi verið hnepptir í hald af Al-Shabaab hafi verið fangelsaðir við ómannúðlegar aðstæður fyrir tiltölulega minniháttar brot, svo sem að reykja, hafa óviðeigandi efni í farsímum, hlusta á tónlist, horfa á eða spila fótbolta, klæðast brjóstahaldara eða að ganga ekki með slæðu.

Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærandi byggir umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hún óttist ofsóknir af hálfu hryðjuverkasamtakanna Al-Shabaab þar sem átt hafi að neyða hana í hjónaband með háttsettum meðlimi samtakanna. Að auki eigi kærandi á hættu ofsóknir í Sómalíu þar sem hún sé ung einhleyp kona og hafi verið þolandi ofbeldis.

Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurriti af viðtali hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki.

Kærandi greindi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að vera fædd og uppalin í bænum […]. Bærinn er í nágrenni borgarinnar Beledweyne í umdæminu Hiiraan sem er í fylkinu Hirshabelle. Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að við komuna hingað til lands hafi kærandi ekki sannað hver hún væri með fullnægjandi hætti og var því leyst úr auðkenni kæranda á grundvelli mats á trúverðugleika. Taldi Útlendingastofnun ekki ástæðu til að leggja annað til grundvallar en að kærandi sé ríkisborgari Sómalíu og frá því svæði sem hún kveðst vera frá, þó auðkenni hennar væri að öðru leyti óupplýst. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að hnekkja niðurstöðu Útlendingastofnunar að þessu leyti og verður því gengið út frá því að kærandi hafi fram að flótta frá heimaríki búið í bænum […] í nágrenni borgarinnar Beledweyne í umdæminu Hiiraan í fylkinu Hirshabelle og að það sé heimasvæði kæranda. Hirshabelle fylki er í Mið-Sómalíu og skiptist fylkið annars vegar í Hiiraan og hins vegar í Mið Shabelle. Heimabær kæranda, […], er staðsettur á milli borganna Tiyeglow og Halgan. Samkvæmt korti á vefsíðu Political Geography Now frá því í júní 2025 liggur bærinn á mörkum yfirráðasvæðis Al-Shabaab og svæðis þar sem óljóst sé hver fari með yfirráð. Af heimildum má ráða að Hiiraan hafi verið eitt mesta átaka­svæði Sómalíu árið 2025, þar sem Al-Shabaab hafi sótt fram og átök leitt til lokunar heilsugæslustöðva og flótta yfir 60.000 íbúa. Ástandið hafi róast að einhverju leyti í ágúst 2025, en þörf fyrir bráða mannúðaraðstoð; skjól, mat, vatn og heilbrigðisþjónustu, hafi áfram verið mjög mikil. Samkvæmt framansögðu liggur heimabær kæranda á eða við yfirráðasvæði Al-Shabaab. Verður lagt til grundvallar að Al Shabaab kunni að vera með viðveru af einhverju tagi á heimaslóðum kæranda.

Aðspurð um ástæður flótta kvaðst kærandi hafa flúið heimaríki í kjölfar þess að stjúpfaðir hennar hafi ætlað að neyða hana til hjónabands með manni sem væri leiðtogi innan Al-Shabaab þegar hún hafi verið nýorðin 18 ára, auk þess sem hann hafi beitt hana ofbeldi. Móðir hennar hafi aðstoðað hana við að flýja en hún hafi verið handsömuð á leiðinni til Beledweyne. Henni hafi verið haldið í tvo daga í dimmu herbergi með bundið fyrir augun. Kærandi greindi ekki frá því hver hafi handsamað hana og haldið henni en að maðurinn sem hún hafi átt að giftast hafi tvisvar komið í fangelsið og hótað henni. Í annað skiptið hafi hann verið vopnaður hnífi og hótað henni lífláti ef hún myndi ekki giftast honum. Kærandi kvaðst hafa verið pyntuð, á hana hafi verið skvett köldu vatni og hún verið slegin. Henni hafi verið sleppt úr haldi eftir að hún hafi sagst ætla að giftast honum en hún hafi flúið strax aftur með aðstoð móður sinnar. Hún hafi ferðast með dýraflutningabíl til Beledweyne og þaðan hafi hún flúið landið. Í greinargerð kæranda til kærunefndar eru gerðar athugasemdir við trúverðugleikamat í ákvörðun Útlendingastofnunar sem byggt hafi verið á innbyrðis misræmi í viðtölum kæranda hjá stofnuninni

Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lagði kærandi fram mynd af áverkum á kæranda, sem hún kveður vera eftir ofbeldi stjúpföður. Myndin er ódagsett en ber með sér að vera tekin þegar viðtal við kæranda hjá Útlendingastofnun fór fram þann 7. september 2024. Þá lagði kærandi fram heilsufarsgögn kæranda frá Göngudeild sóttvarna fyrir tímabilið 10. júlí til 14. ágúst 2023.

Með tölvubréfi, dags. 24. mars 2026, óskaði kærunefnd eftir ítarlegri upplýsingum frá kæranda. Óskað var eftir nánari upplýsingum um hvenær kærandi hefði yfirgefið Sómalíu, um þá sem hefðu aðstoðað hana við að flýja heimabæ sinn og um þá sem hefðu handsamað hana. Óskað var eftir nánari upplýsingum um manninn sem hún kvaðst hafa átt að giftast og nánari skýringu á frásögn kæranda um hvort hún hefði hitt hann eða ekki. Þá var óskað eftir frekari upplýsingum um með hvaða hætti henni hafi verið sleppt úr haldi, nánari upplýsingum um flótta hennar úr landi og um andlát föður kæranda. Þann 27. mars 2024 bárust svör frá kæranda. Í svörum sínum greindi kærandi frá því að hún hafi farið frá Sómalíu í kringum febrúar 2023. Hún greindi frá því að hafa ekki þekkt manninn sem hún hafi átt að giftast en aðrir, þar á meðal fjölskylda hennar og meðlimir Al-Shabaab, hafi upplýst hana um að hún ætti að giftast honum. Henni hafi verið sagt að hann væri tengdur Al-Shabaab og að það að hafna hjónabandinu myndi hafa alvarlegar afleiðingar. Hún hafi ekki haft neitt val í þessu máli og fyrirkomulaginu hafi verið þvingað upp á hana. Kærandi kvað móður hennar hafa gegnt lykilhlutverki í að hjálpa henni að flýja. Móðir hennar hafi haft samband við einstaklinga sem hún hafi treyst og sem hafi verið þekktir innan samfélagsins fyrir að aðstoða fólk við flutning á milli staða. Kærandi kvað fyrri ferðina til Beledweyne hafa verið erfiða og tekið nokkrar klukkustundir. Þau hafi ekið eftir sveitavegum og reynt að forðast helstu eftirlitsstöðvar. Á leiðinni hafi bíllinn verið stöðvaður af einstaklingum sem kærandi taldi að hafi verið Al-Shabaab og virst hafa stjórn á svæðinu. Meðlimir Al-Shabaab hafi yfirheyrt þau og fært kæranda í varðhald. Aðspurð um misræmi í frásögn hennar um hvort hún hafi hitt manninn sem hún hafi átt að giftast eða ekki kvað kærandi að hún hafi í upphafi viðtals hjá Útlendingastofnun sagt að hún hafi aldrei hitt manninn því hún hafi aldrei átt eðlileg eða sjálfviljug samskipti við hann. Hins vegar hafi hún síðar í viðtalinu lýst atviki þar sem hann hafi komið í fangelsið þegar bundið hafi verið fyrir augu hennar og hann hótað henni. Kærandi greindi frá því að hún hafi verið látin laus eftir að hafa samþykkt undir þrýstingi að giftast manninum. Henni hafi verið sagt að hún gæti farið, en það væri háð samþykki hennar fyrir því að giftast manninum. Meðlimir Al-Shabaab hafi verið viðstaddir þegar henni hafi verið sleppt úr haldi. Kærandi kvaðst telja að meðlimir Al-Shabaab hafi leyft henni að fara vegna þess að þeir hafi búist við að hún myndi standa við loforð sitt. Kærandi hafi þó notað tækifærið til að flýja, með hjálp fjölskyldu sinnar, áður en málið gæti þróast lengra. Hvað varðar andlát föður síns kvaðst kærandi einungis vita að faðir hennar hafi verið myrtur af Al-Shabaab. Hún kvaðst ekki vita nákvæma dagsetningu og aldrei hafa séð föður sinn. Hún hafi frétt af andláti hans í gegnum móður sína og fjölskyldumeðlimi. Hann hafi verið skotmark vegna þess að hann hafi neitað að greiða zaka, árlega greiðslu sem væri sú sama og skattar.

Kærandi hefur ekki lagt fram gögn sem styðja frásögn hennar um að hana hafi átt að neyða til hjónabands með meðlimi Al-Shabaab. Landaupplýsingar bera með sér að það sé ekki óheyrt að ungar stúlkur séu neyddar til hjónabands á heimasvæði kæranda. Kærandi hefur tímasett flótta sinn frá heimaríki í febrúar 2023 og greint frá því að hana hafi átt að neyða til hjónabands þegar hún var nýorðin 18 ára. Kærandi greindi upphaflega frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hún hafi aldrei hitt eða talað við manninn sem hún hafi átt að giftast og að stjúpfaðir hennar hafi alfarið séð um samskipti við hann. Þegar hún var spurð nánar út í þetta og bent á misræmið í frásögninni, kvaðst hún í raun ekki hafa hitt manninn í hefðbundnum skilningi heldur aðeins séð hann þegar hann hafi komið í fangelsið þar sem henni hafi verið haldið. Að mati kærunefndar er um óverulegt misræmi að ræða sem getur ekki eitt og sér rýrt trúverðugleika frásagnar kæranda. Í ákvörðun Útlendingastofnunar er veruleg áhersla lögð á framangreint misræmi og lagt til grundvallar að kærandi hefði átt að geta lýst aðstæðum með meiri nákvæmni, bæði hvað varðar samskiptin við manninn og hvenær atburðirnir hafi átt sér stað. Í því samhengi er vísað til úrskurðar kærunefndar nr. 235/2023 frá 28. apríl þar sem svipaðar málsástæður komu fram. Í úrskurði kærunefndar nr. 235/2023 var innra misræmi frásagnar kæranda hins vegar mun meira og sneri að veigameiri atriðum. Samkvæmt framansögðu voru málsatvik í umræddum málum því ekki sambærileg máli kæranda.

Gera verður þá kröfu að umsækjandi um alþjóðlega vernd leiði líkum að því að þau atvik sem hann ber fyrir sig hafi átt sér stað og hann leggi sig fram við að rökstyðja umsókn sína. Kærunefnd lítur til þess að kærandi er ung og hefur borið því við að vera ómenntuð. Þrátt fyrir að frásögn kæranda verði ekki talin í verulegu innra ósamræmi lítur kærunefnd hins vegar til þess að frásögn kæranda var ónákvæm og skorti smáatriði. Frásögn kæranda um hvernig hún hafi verið handsömuð, af hverjum og hvernig það hafi atvikast að hún hafi verið látin laus á ný, var óljós. Hafa svör kæranda við spurningum kærunefndar litlu bætt við frásögn kæranda. Frásögn kæranda þess efnis að henni hafi verið sleppt eftir að hafa áður verið tekin fyrir að reyna að flýja, í stað þess að hún hafi þegar í stað verið látin giftast manninum er ótrúverðug, einkum með vísan í heimildir um Al-Shabaab og þeirra aðferðir hvað varðar einstaklinga sem fara gegn þeim. Er framangreint til þess fallið að draga úr trúverðugleika kæranda. Samkvæmt framansögðu hefur kæranda ekki tekist að leiða að því líkum að hana hafi átt að neyða til hjónabands með meðlimi Al-Shabaab. Verður sú frásögn kæranda því ekki lögð til grundvallar.

Kærandi hefur einnig borið því við að hafa verið beitt ofbeldi af stjúpföður sínum. Frásögn kæranda að þessu leyti var einnig ónákvæm og er ekki studd gögnum. Með vísan í heimildir um Sómalíu og stöðu kvenna er þó ekki ástæða til að efast um að kærandi kunni að hafa sætt ofbeldi af hálfu stjúpföður. Kærandi hefur borið fyrir sig hættu á ofsóknum á grundvelli þess að vera kona frá Sómalíu. Þrátt fyrir slæma stöðu kvenna í Sómalíu eru aðstæður kvenna samkvæmt skýrslu EUAA frá árinu 2025 ekki slíkar að allar konur teljist hafa ástæðuríkan ótta við ofsóknir á grundvelli kyns síns. Einstaklingsbundið mat þurfi að fara fram í hverju og einu tilfelli þar sem tekið sé tillit til ýmissa áhættuþátta sem setji konuna í sérstaka hættu á að sæta ofsóknum. Horfa verður til þess að kærandi á fjölskyldu í heimaríki, móður og systkini sem hún getur notið stuðnings frá og hefur kærandi ekki leitt líkum að því að hún hafi orðið fyrir eða eigi á hættu að sæta ofbeldi á grundvelli kyns síns sem nái því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. útlendingalaga, sbr. d-lið 3. mgr. 38. gr. sömu laga.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda, telst kærandi ekki hafa sýnt fram á með rökstuddum hætti að hún eigi á hættu að sæta ofsóknum í heimaríki í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 38. gr. sömu laga. Sama gildir þótt litið sé til samsafns athafna. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að ekki verði lögð til grundvallar sú frásögn kæranda að hún sé í sérstakri hættu í heimaríki hennar vegna ofsókna af hálfu Al-Shabaab sem rekja megi til þess að hana hafi átt að neyða til hjónabands við meðlim Al-Shabaab. Við meðferð málsins hefur verið lagt til grundvallar að kærandi komi frá bænum […]í nágrenni Beledweyne í Hiiraan umdæmi sem er í fylkinu Hirshabelle í Mið-Sómalíu. Samkvæmt skýrslum sem kærunefnd hefur kynnt sér er almennt öryggisástand á heimasvæði kæranda ekki gott.

Í skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá því í september 2022 kemur fram að þeir einstaklingar sem komi frá svæðum sem séu undir stjórn Al-Shabaab eða svæðum þar sem mikil átök ríkja á milli Al-Shabaab og sómalskra öryggissveita séu í hvað mestri hættu á að lenda í aðstæðum sem falli undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í skýrslu EUAA frá 23. febrúar 2023 kemur fram að Al-Shabaab stjórni stórum hluta Hirshabelle fylkis, sem Hiiraan umdæmi tilheyrir, þá einkum dreifbýlli svæðum og stjórni umferð um helstu vegi svæðisins sem hafi gert það að verkum að vegirnir séu í raun ófærir þeim sem ekki styðji Al-Shabaab. Í skýrslunni kemur fram að sómalskar hersveitir og Al-Shabaab hafi barist um yfirráð yfir landssvæðum Hirshabelle fylkis. Samkvæmt upplýsingum ACLED um stöðuna í Sómalíu í apríl og maí 2023 er Hiiraan umdæmi skjálftamiðja átakanna. Líkt og fram hefur komið bera heimildir með sér að […], heimabær kæranda, liggi á eða við svæði þar sem Al-Shabaab hafi farið með yfirráð yfir á þeim tíma. Samkvæmt skýrslu EUAA frá 2. október 2025 var Hiiraan umdæmi áfram miðpunktur átaka yfirvalda og ættbálka hersveita gegn Al-Shabaab, sem hafi leitt til bardaga, sprengiárása og loftárása í byrjun árs 2024. Milli apríl og júlí 2025 hafi Al-Shabaab náð verulegum árangri í Hiiraan og hafi samtökin beitt sprengjuárásum, sjálfsmorðsárásum til að valda mannfalli meðal almennra borgara. Norðausturhluti svæðisins og þéttbýlisstöðvarnar hafi verið undir stjórn bandalags alríkisstjórnarinnar en Al-Shabaab stjórnað svæðinu milli suðvesturlandamæranna og Shabelle-árdalsins að fullu. Aðrir hlutar svæðisins hafi verið undir blandaðri, óljósri eða staðbundinni stjórn. Í febrúar 2025 hafi verið greint frá hörðum bardögum við Shabelle-ána. Frá 1. apríl 2023 til 31. júlí 2025 hafi ACLED skráð 567 öryggisatvik (að meðaltali 4,7 atvik á viku) sem hafi valdið 1.740 dauðsföllum (sem samsvarar um það bil 345 dauðsföllum á hverja 100.000 íbúa). Á milli 1. apríl 2023 og 16. mars 2025 hafi um 10.500 manns flúið á brott frá Hiiraan. Al-Shabaab hafi í auknum mæli beitt árásum gegn fæðu- og vatnsauðlindum til að refsa ættbálkum sem unnið hafi með stjórnvöldum gegn samtökunum. Í skýrslunni kemur fram að ofbeldi í Hiiraan-héraði sé á háu stigi, í ljósi þess að deilt er um stjórn yfir svæðinu og ofbeldis sem aðilar í átökum þar beita, s.s. með sprengivopnum og sjálfsmorðsárásum.

Frá því er greint á vef UNOCHA frá ágúst 2025 að eftir tveggja mánaða átök í Hiiraan‑ og Gedo umdæmum‑, sem hafi leitt til þess að yfir 100.000 manns hafi þurft að flýja innanlands, hafi dregið úr átökum og aðstoð aukist. Í Hiiraan hafi 13 heilsugæslustöðvar lokað og um 62.000 manns flúið frá því í júní 2025. Átök í lok júlí 2025 hafi leitt til enn frekari flótta, en um 22.800 manns hafi flúið til Beledweyne, Bulo Burto og nágrannasvæða. Íbúar hafi þurft brýna aðstoð, þar á meðal skjól, mat, vatn og heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt upplýsingum á vef ACLED var Hiiran hérað næst róstursamasta svæði Sómalíu í febrúar 2026. Í febrúar 2026 voru 48 skráð tilvik um pólitísk átök og 48 skráð tilvik um vopnuð átök.

Með vísan til framangreindra landaupplýsinga um ástandið í […] og þess sem rakið er að framan um félagslega stöðu kæranda er það mat kærunefndar að óvarlegt sé annað en að telja að raunhæf ástæða sé til að ætla að kærandi eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum á fyrrgreindu landsvæði í Sómalíu þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka.

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda telur kærunefnd að aðstæður hennar þar falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Telur kærunefnd því að kærandi uppfylli skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Mat á möguleika á flutningi innanlands

Í 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga segir að ef útlendingur getur fengið raunverulega vernd í öðrum landshluta heimalands síns en hann flúði frá, viðkomandi getur ferðast þangað á öruggan og löglegan hátt og hægt er með sanngirni að ætlast til þess af viðkomandi að hann setjist að á því svæði getur verið að 1. og 2. mgr. eigi ekki við í þeim tilvikum og að hann teljist ekki flóttamaður. Niðurstaða um hvort útlendingur geti fengið raunverulega vernd í öðrum hluta heimalands skuli byggð á einstaklingsbundnu mati á persónulegum aðstæðum útlendingsins og þeim aðstæðum sem séu í því landi. Við mat á því hvort hægt sé með sanngirni að ætlast til þess að útlendingur setjist að á því svæði sem talið er öruggt samkvæmt ákvæði þessu skuli tekið tillit til ýmissa þátta, svo sem aldurs, kyns, heilsu, fjölskylduaðstæðna, trúar, menningar sem og möguleika viðkomandi útlendings á atvinnu eða menntun. Við mat samkvæmt ákvæðinu skuli m.a. höfð hliðsjón af leiðbeiningum flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (Guidelines on International Protection: „Internal Flight or Relocation Alternative“ within the Context og Article 1A(2) of the 1951 Convention and/or 1967 Protocol relating to the Status of Refugees, frá 23. júlí 2003).

Í leiðbeiningunum, sem varða möguleika á flutningi innanlands þegar einstaklingur hefur flúið heimaríki af ástæðuríkum ótta við ofsóknir, er lagt til grundvallar að mat á því hvort möguleiki sé á að einstaklingur geti flust búferlum til annars svæðis í heimaríki sé tvíþætt. Annars vegar verði að kanna hvort flutningur innanlands sé raunhæft úrræði. Að því er mál kæranda varðar kemur í þessu sambandi einkum til athugunar hvort það svæði sem lagt er til að hann flytjist til sé aðgengilegt á öruggan og löglegan hátt og hvort flutningur hans þangað skapi hættu á að kærandi verði fyrir ofsóknum eða alvarlegum skaða. Hins vegar beri að kanna hvort viðkomandi geti, með hliðsjón af aðstæðum í heimaríki hans, lifað tiltölulega eðlilegu lífi án þess að standa frammi fyrir óþarfa erfiðleikum. Við þann þátt matsins verður m.a. að horfa til persónulegra aðstæðna viðkomandi, t.a.m. félags- og efnahagslegra aðstæðna á því svæði sem lagt er til. Í leiðbeiningunum segir m.a. um síðastnefnt atriði að það sé ósanngjarnt að ætlast til þess að lífsviðurværi einstaklings verði verra en það sem talist geti viðunandi eða að viðkomandi búi við eymd.

Líkt og fram hefur komið kveðst kærandi fædd og uppalinn í […] í Hiiraan umdæmi í Mið-Sómalíu. Kærunefnd hefur lagt til grundvallar að aðstæður kæranda á því svæði falli undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur hvatt ríki til að endursenda ekki einstaklinga til Mið-Sómalíu eða suðurhluta landsins, einkum vegna hernaðaraðgerða af hálfu vopnaðra hópa sem þar hafi átt sér stað lengi, sbr. skýrsla stofnunarinnar frá 2022, UNHCR Position on Returns to Southern and Central Somalia (Update I). Í leiðbeiningum stofnunarinnar um mat á innri flutningi í Sómalíu frá 2022 er fjallað um mögulegan innri flutning til ákveðinna svæða í Sómalíu, s.s. Mógadisjú, Puntlands og Sómalílands. Flutningur þangað sé þó afar erfiður og almennt sé ekki sanngjarnt að ætlast til þess að einstaklingur setjist að annars staðar í Sómalíu nema ljóst sé að hann muni njóta stuðnings fjölskyldu sinnar eða ættbálkar. Þá séu aðstæður í flóttamannabúðum á svæðinu afar slæmar og hefur Mannréttindadómstóll Evrópu m.a. komist að því að þær nái því marki að teljast ómannúðlegar í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. dómur dómstólsins í máli [...] og Elmi gegn Bretlandi nr. 8319/07 og 11449/07 frá 28. nóvember 2011. Þá hefur Flóttamannastofnun lagst gegn því að slíkar búðir teljist viðunandi aðstæður til innri flutnings.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að tilheyra Gaajeecel ættbálknum og undirættbálkinum Dirisame. Af heimildum verður ekki skýrt ráðið hvort ættbálkur kæranda, Gaajeecel, og undirættbálkurinn Dirisame, teljist til meiri- eða minnhlutaættbálks í Sómalíu. Samkvæmt skýrslu EUAA frá júní 2022 eru fimm höfuðættbálkarnir, Dir, Isaaq, Darod, Hawiye og Rahanweyn en í skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (e. UNHCR) frá september 2022 er í umfjöllun um minnihlutaættbálka m.a. vísað til Bantu, Tumaal, Reer Hamar/Benedari og Madhiban sem nokkurra af ættbálkum í minnihluta innan Sómalíu. Kærandi bar því við að ættbálkur hennar væri í meirihluta á heimasvæði hennar en í skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (e. UNHCR) frá september 2022 kemur fram að landsvæði Hiraan sé aðallega byggt upp af Hawiye ættum. Í sömu umfjöllun kemur fram að undirættbálkurinn Hawadle sem og Jajele (Galjaal/Gaaljeel) ættin fari helst með yfirráð yfir svæði sem nái frá norðausturhluta Shabelle árinnar. Líkt og fjallað er um í framangreindri skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna hafa ríki m.a. verið hvött til að endursenda einstaklinga ekki til Mið- og Suður-Sómalíu vegna öryggisástands á svæðinu og telur kærunefnd því ekki raunhæft að kærandi snúi þangað. Kærandi hefur greint frá að hafa búið með móður sinni, stjúpföður og systkinum í […]. Þá hefur hún greint frá því að eiga föðurbróður í Mógadisjú. Í ljósi takmarkaðra fjölskyldutengsla kæranda utan heimabæjar síns er það mat kærunefndar að kærandi njóti ekki stuðnings fjölskyldu sinnar eða ættbálks á öðrum stöðum í heimaríki sínu.

Með vísan til framangreinds er það mat kærunefndar að ekki sé hægt með sanngirni að ætlast til þess að kærandi sem er ung einstæð kona setjist að annars staðar í Sómalíu, sbr. 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt framansögðu er það mat kærunefndar að skilyrði 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um flutning innanlands séu ekki uppfyllt og telst kærandi því flóttamaður.

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi eigi ekki möguleika á flutningi innanlands telst hún flóttamaður samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga og á rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi samkvæmt 40. gr. laganna, enda er hann staddur hér á landi. Þá bendir ekkert til þess að hún falli undir útilokunarástæður 2. mgr. 40. gr. sömu laga.

Samantekt og leiðbeiningar

Að öllu framangreindu virtu ákvörðun Útlendingastofnunar felld úr gildi og lagt fyrir stofnunina að veita kæranda alþjóðlega vernd á Íslandi á grundvelli 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.


Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Kærandi telst flóttamaður samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga og er veitt alþjóðleg vernd með vísan til 1. mgr. 40. gr. sömu laga. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli 73. gr. laga um útlendinga.

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The appellant is a refugee according to Article 37(2) of the Act on Foreigners and is granted international protection according to Article 40(1) of the same law. The Directorate is instructed to issue the appellant a residence permit on the basis of Article 73 of the Act on Foreigners.


Valgerður María Sigurðardóttir

Vera Dögg Guðmundsdóttir