16 apríl 2026

/

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla í sendiráðinu í Berlín vegna komandi sveitarstjórnarkosninga

{image.Description}
Kosning utan kjörfundar

Sendiráð Íslands í Berlín vekur athygli á utankjörfundaratkvæðagreiðslu fyrir komandi sveitastjórnarkosningar þann 16. maí.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst hjá sendiráðum og kjörræðismönnum Íslands föstudaginn 17. apríl. Í sendiráðinu í Berlín verður hægt að greiða atkvæði alla virka daga fram að kosningum á opnunartímum ræðisdeildar sendiráðsins:

Mánudaga til fimmtudaga kl. 9:00-12:00 og 13:00-16:00.
Föstudaga kl. 9:00-12:00.

Athugið að lokað verður í sendiráðinu verkalýðsdaginn þann 1. maí og uppstignardag þann 14. maí.

ATH! Kjósendur eru vinsamlegast beðnir um að bóka tíma fyrirfram, vilji þeir greiða atkvæði í sendiráðinu í Berlín, annað hvort í síma +49 30 7001 60380, eða með tölvupósti á netfangið [email protected]. Í tölvupóstinum eða símtalinu þurfa nöfn þeirra sem mæta og ósk um tímasetningu að koma fram, þar sem ræðisdeildin er einungis mönnuð þegar von er á kjósendum.

Atkvæðagreiðslan fer fram í ræðisdeild sendiráða Norðurlandanna á horni Rauchstraße og Klingelhöferstraße, merkt "Konsularabteilung". Kjósendur þurfa að gera ráð fyrir örstuttri öryggisleit og skulu framvísa gildum íslenskum persónuskilríkjum, svo sem vegabréfi, nafnskírteini eða ökuskírteini.

Upplýsingar um ræðismenn Íslands í Þýskalandi og Tékklandi eru að finna hér. Ef kjósa á hjá ræðismönnum skal hafa beint samband við þá.

Í sveitarstjórnarkosningum byggir kosningaréttur á lögheimili og gildir í því sveitarfélagi þar sem viðkomandi er skráður með lögheimili.

Nánari upplýsingar um utankjörfundaratkvæðagreiðslu má nálgast á kosning.is

Kjósandi ber ábyrgð á að koma atkvæði sínu á réttan stað. Hægt er að setja bréfið í póst, eða afhenda það einhverjum sem kjósandi felur að koma því til skila. Kjörstjóra er þó skylt, ef kjósandi óskar þess, að koma bréfinu í venjulegan póst. Ef senda á atkvæði með pósti er ráð að kjósa tímanlega og þá þarf sömuleiðis að taka mið af sendingartíma og áreiðanleika viðkomandi póstþjónustu.