17 apríl 2026
/
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sveitarstjórnakosninga 16. maí 2026 er hafin.
Hægt verður að kjósa í sendiráðinu frá og með 17. apríl á afgreiðslutíma sendiráðsins, alla virka daga frá 09:30-15:30. Æskilegt er að kjósendur tilkynni komu sína fyrirfram.
Athugið að sendiráðið er lokað fimmtudaginn 23. apríl og fimmtudaginn 14. maí.
Kjósendur þurfa að framvísa persónuskilríkjum með mynd.
Í sveitarstjórnarkosningum byggist kosningaréttur á lögheimili, og gildir hann í því sveitarfélagi þar sem viðkomandi er skráður með lögheimili. Námsmenn með lögheimili á Norðurlöndunum þurfa að sækja sérstaklega um að vera teknir á kjörskrá, sjá nánar HÉR.
Kjósendur sem eru í vafa um hvort þeir eru a kjörskrá geta flett upp kennitölu sinni hjá Þjóðskrá.
Kjósendur bera sjálfir ábyrgð á því að koma atkvæði sínu til skila, t.d. með pósti eða einhver taki atkvæðið heim og komi því til skila
Þá er einnig hægt að kjósa hjá ræðismönnum eftir samkomulagi. Nánari upplýsingar um staðsetningu og tengiliðaupplýsingar ræðisskrifstofa má finna á heimasíðu sendiráðsins.