20 apríl 2026

/

Hraðari rafbílavæðing á tímum hækkandi olíuverðs

{image.Description}
Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

Ráðist verður í sérstakt átaksverkefni árið 2026 til uppsetningar hleðsluinnviða fyrir rafbíla í ljósi hækkandi heimsmarkaðsverðs olíu og óstöðugleika á eldsneytismörkuðum. Greint var frá þessu á fréttamannafundi ríkisstjórnarinnar um sértækar efnahagsaðgerðir vegna stríðsátaka við Persaflóa þann 10. apríl síðastliðinn.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið ber ábyrgð á framkvæmd verkefnisins, en markmið þess er að gera sem flestum kleift að slíta sig frá eldsneytisdælunni á tímum hækkandi heimsmarkaðsverðs olíu og nýta þess í stað hreina, íslenska og ódýra orku. Með hraðari orkuskiptum er stutt við efnahagslegt áfallaþol Íslands og dregið úr berskjöldun heimila og fyrirtækja gagnvart hækkunum og verðsveiflum á eldsneytismörkuðum. 

Eftirspurn eftir rafbílum hefur tekið kipp víða um heim eftir að heimsmarkaðsverð olíu rauk upp vegna innrásar Bandaríkjanna í Íran og lokunar Hormússunds. Er þetta í annað skipti á þessum áratug sem veruleg röskun verður á alþjóðlegum orkumörkuðum vegna stríðsátaka. Í ljósi þess að bensínverð er hátt á Íslandi en raforkuverð með því sem lægsta sem gerist í heiminum er efnahagslegur ávinningur og rekstrarsparnaður af rafbílavæðingu fyrir heimili og fyrirtæki umtalsvert meiri hér en í nágrannalöndunum.

Skilyrði til almennrar notkunar rafbíla á Íslandi í stað bensín- og dísilbíla eru jafnframt orðin hagstæðari nú en nokkru sinni fyrr. Framleiðslukostnaður rafbíla hefur snarminnkað á undanförnum árum og drægni þeirra aukist eftir því sem rafhlöðutækni fleygir fram. Úrvalið af bílum er meira og verð lægra auk þess sem hleðslustöðvum hefur fjölgað markvert víða um land.

Hraðari orkuskipti í samgöngum er eitt af fimm forgangsverkefnum ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum sem Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra kynnti á blaðamannafundi þann 12. september 2025. Í samræmi við þetta stóðu stjórnvöld fyrir stærstu styrkjaúthlutun sögunnar til orkuskiptaverkefna úr Loftslags- og orkusjóði auk þess sem tekin var ákvörðun um að fella niður vörugjöld af rafbílum.

Aðgerðirnar sem nú er gripið til eru framhald af þessari vegferð og koma til framkvæmda strax árið 2026. Gert er ráð fyrir að umfang átaksverkefnisins nemi 500 milljón krónum.

Átaksverkefnið felur í sér fjórar aðgerðir.

  1. Stutt verður við uppbyggingu hleðslustöðva í fjöleignarhúsum, til að stuðla að jafnara aðgengi að hleðsluinnviðum óháð því hvort fólk býr í fjölbýlishúsi, raðhúsi eða einbýlishúsi. Verður einkum horft til húsa sem voru byggð áður en skylt varð samkvæmt byggingarreglugerð að gera ráð fyrir hleðslustöðvum við nýbyggingar. 
  2. Fyllt verður skipulega í götin á hraðhleðslunetinu hringinn í kringum landið. Þótt hraðhleðslunet þjóðvega sé nú þegar þéttriðið eru enn svæði þar sem langt er á milli hleðslustöðva. Markmið aðgerðarinnar er að í lok ársins 2026 verði hvergi meira en 100 km á milli hraðhleðslustöðva á þjóðvegakerfinu og að hraðhleðslustöð sé að finna í hverjum þéttbýlisstað á landinu.
  3. Stutt verður við uppbyggingu hleðslustöðva við gististaði. Þar sem bílaleigubílar eru stór hluti bílaflotans á Íslandi er lykilatriði að rafvæðingu bílaleiguflotans verði hraðað og að ferðamenn velji rafbíla í auknum mæli, frekar en bíla sem knúnir eru jarðefnaeldsneyti. Þéttriðnara hleðslunet og tryggari hleðsluaðstaða við gististaði getur stuðlað að þessu.
  4. Hafin verður vinna við að tryggja samræmdara og einfaldara greiðslufyrirkomulag vegna hleðslu rafbíla þannig að auðvelt sé að greiða með greiðslukorti í stað ólíkra snjallforrita. Markmiðið er að draga úr flækjustigi, bæta notendaupplifun og koma í veg fyrir að fólk, sérstaklega ferðafólk, mikli fyrir sér slíkar hindranir við val á ökutækjum.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur umsjón með framkvæmd þessara aðgerða í samvinnu við Umhverfis- og orkustofnun og Loftslags- og orkusjóð.