20 apríl 2026

/

Jöfnunarsjóður: Endurskoðun á úthlutun almennra jöfnunarframlaga til reksturs grunnskóla 2026

{image.Description}

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafanefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um endurskoðun á áætlaðri úthlutun almennra jöfnunarframlaga til reksturs grunnskóla fyrir árið 2026. Við endurskoðunina var tekið mið af endanlegum útsvarsstofni sveitarfélaga vegna ársins 2024 og áætlun um útsvarstekjur sveitarfélaga á árinu 2025. Jafnframt var áætlunin uppfærð hvað varðar fjölda íbúa á grunnskólaaldri í hverju sveitarfélagi 1. janúar 2026.

Að tillögu ráðgjafanefndar nemur áætluð heildarúthlutun almennra jöfnunarframlaga til reksturs grunnskóla 16.000 m.kr. Til viðbótar eru leiðréttingar á framlögum ársins 2024 að fjárhæð 60 m.kr. Áætlaðar heildargreiðslur framlaganna nema því 16.060 m.kr. á árinu 2026.